Agnes Savigny skrifaði:
Il est conseillé de monter 36m pour les manches (t.5/6) ça parait très petit! pour les autres pull fait en karisma c'est environ 10m de plus. est-ce vraiment ça ou il y a une petite erreur?
31.08.2013 - 14:12DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Savigny, le nombre de mailles est correct, après les côtes 2/2 (qui resserrent les mailles), on diminue 4 m et on continue en jersey tout en augmentant régulièrement sous la manche pour atteindre 50 m. Bon tricot!
02.09.2013 - 09:57
Michaela skrifaði:
Hej! Jag har nu 76m på st enligt beskrivning under OK:. Jag har stickat framkanterna och skulle nu börja med d HALSKANT men då står det sticka upp ca 70 till 86 m runt halsen (också över framkanterna).... Jag undrar hur ni tänkt detta?
24.07.2013 - 10:34DROPS Design svaraði:
Du sätter maskorna från tråden tillbaka på stickan, justerar så du har ca 86 m (största st) och ökar enligt beskrivningen.
10.10.2013 - 08:26
Raffaella skrifaði:
Scusate ma non capisco cosa vuol dire che nel davanti bisogna portare il n. delle maglie nelle 2 taglie piu' grandi.Grazie
14.03.2013 - 14:23DROPS Design svaraði:
Ora è stato modificato. Anziché portare abbiamo scritto aggiustare il n di m. Se vede nelle 2 taglie più grandi ci sono 176-192 m, ma in queste 2 taglie bisogna aggiustare questo numero a 175-191 (quindi diminuire-aumentare). Grazie per la segnalazione.
14.03.2013 - 15:32
Annette skrifaði:
Hvis man ønsker at strikke den i ensfarvet, hvor meget garn bruges der så ?
02.03.2013 - 18:44DROPS Design svaraði:
Så skal du nok kun bruge 1 extra nøgle... Spørg gerne din lokale DROPS forhandler!
04.03.2013 - 12:03
Silje jacket#siljejacket |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn með hringlaga berustykki og bylgjulaga stroffi úr DROPS Karisma. Stærð 3 til 12 ára
DROPS Children 23-15 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 – veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 280-304-328-352-384 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 3,5 með litnum beige Karisma. Fyrsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 6 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 7 l eru eftir og endið með 6 l sl og 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN. Haldið svona áfram með stroff í 3-3-4-4-5 cm – passið uppá að næsta umf er prjónuð frá réttu. Fækkið nú um 1 l hvoru megin við hverja brugðnu einingu með því að allar 6 l sl eru prjónaðar þannig (2 l br eru prjónaðar eins og áður): Takið 1 l óprjónaða, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu l yfir, prjónið sl þar til 2 l eru eftir, prjónið 2 l slétt saman. Endurtakið úrtöku í næstu umf frá réttu = 140-152-164-176-192 l. Prjónið 1 umf með sl yfir sl og br yfir br. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út í 2 stærstu stærðm að 140-152-164-175-191 l. Setjið nú 2 prjónamerki í stykkið, 35-38-41-44-48 l inn frá hvorri hlið (= 70-76-82-87-95 l á milli prjónamerkja á bakstykki). Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 7-8-8-9-9 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 7-7-8-8-9 cm millibili, 2 sinnum til viðbótar = 128-140-152-163-179 l. Þegar stykkið mælist 26-28-31-33-35 cm er fellt af 6 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. 3 l hvoru megin við bæði prjónamerkin )= 58-64-70-75-83 l á bakstykki og 29-32-35-38-42 l á hvoru framstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 36-36-40-44-44 l á sokkaprjóna nr 3,5 með litnum beige. Prjónið stroff (= 2 l sl, 2 l br). Þegar stykkið mælist 4 cm er prjónuð 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 4-4-4-8-8 l jafnt yfir = 32-32-36-36-36 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið sléttprjón. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi). Þegar stykkið mælist 7 cm er aukið út um 2 l við miðju undir ermi (þ.e.a.s. 1 l hvoru megin við prjónamerki). Endurtakið útaukningu með 2-2-2½-2½-2½ cm millibili, 8-11-10-12-14 sinnum til viðbótar = 50-56-58-62-66 l. Þegar stykkið mælist 27-31-34-39-44 cm eru felldar af 6 l við miðju undir ermi (þ.e.a.s. 3 l hvoru megin við prjónamerki) = 44-50-52-56-60 l eftir á ermi. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handvegi = 204-228-244-263-287 l. Prjónið 3-4-2-3-4 cm í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið með litnum beige. JAFNFRAMT er fækkað um 5-1-3-8-4 l jafnt yfir í síðustu umf = 199-227-241-255-283 l. Prjónið nú næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 2 l eru eftir í umf (= 14-16-17-18-20 mynstureiningar), prjónið 1. 1 í A.1 (þ.e.a.s. þessi l fylgir mynstrinu þannig að A.1 byrjar og endar eins innan við kantlykkju í hvorri hlið við miðju að framan, fellið ekki af í þessari l), endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni eins og áður. Haldið svona afram með mynstur. Eftir A.1 eru 87-99-105-111-123 l eftir á prjóni. Prjónið 1 umf brugðið frá röngu. Prjónið nú upphækkun að aftan við hnakka með stuttum umferðum (1. umf = rétta) þannig: Prjónið sl þar til 18-19-20-22-26 l eru eftir, snúið við, herðið á þræði og prjónið br þar til 18-19-20-22-26 l eru eftir í hinni hliðinni. Snúið við, herðið á þræði og prjónið sl þar til 36-38-40-44-52 l eru eftir, snúið við, herðið á þræði og prjónið br þar til 36-38-40-44-52 l eru eftir í hinni hliðinni, snúið við, herðið á þræði og prjónið sl út umf. Prjónið nú 1 umf brugðið frá röngu JAFNFRAMT er fækkað um 27-35-37-39-47 l jafnt yfir = 60-64-68-72-76 l. Stykkið mælist ca 40-43-47-50-53 cm upp að öxl. Setjið l á þráð (eða haldið þeim eftir á prjóni) á meðan prjónaður er kantur að framan. KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp frá réttu ca 84 til 112 l meðfram hægra framstykki innan við 1 kantlykkju á hringprjóna nr 3,5 með litnum beige. Prjónið 1 umf brugðið frá röngu JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir að 101-105-113-121-129 l. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni ,* 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir og endið með 2 l sl og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff. JAFNFRAMT eftir 1 cm er fellt af fyrir 5-5-6-6-6 hnappagötum jafnt yfir. Prjónið 1 hnappagat = prjónið 2 l saman og sláið uppá prjóninn (fallegast er að fella af í 2 l br séð frá réttu). Efsta hnappagatið á að vera ca 0,5-1 cm frá hálsmáli og neðsta 4-4-5-5-6 cm frá neðri brún. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br þegar kanturinn mælist 2,5 cm. Endurtakið meðfram vinstra framstykki en ekki fella af fyrir hnappagötum á vinstra framstykki. HÁLSMÁL: Prjónið upp frá réttu ca 70 til 86 l í kringum hálsmál (einnig yfir kant að framan) á hringprjóna nr 3,5 með litnum beige. Prjónið 1 umf brugðið frá röngu JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir að 78-82-86-90-94 l. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 l sl, 2 l br * endurtakið frá *-* þar til 4 l eru eftir, endið með 2 l sl og 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff. Þegar hálsmálið mælist ca 2,5 cm er fellt laust af með sl yfir sl og br yfir br. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir höndum. Saumið tölur í. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #siljejacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 23-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.