Helen Beer skrifaði:
I am making up diagram for pattern of Sweet Scarborough Hat. Drops 140-8. When you reach the 1st stitch on line 7. It tells you need to do a thumb stitch. I am making a hat, not mittens. Could you please explain what I need to do at this stitch. Thank you. Helen.
08.09.2020 - 13:31DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Beer, work the stitch with a star with red on hat. Happy knitting!
08.09.2020 - 15:18
Christine McGann skrifaði:
I made 3 gauge squares before starting the hat pattern and ended up using 3.5 mm and 4mm needles. This made a satisfactory hat which I am pleased with.
13.03.2019 - 18:02
Fortuné Nicole skrifaði:
Ce bonnet doit être fait avec des aiguilles du 3,5 ou 4 sinon on optien un bonnet bébé.
08.03.2019 - 09:42DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Fortuné, en fonction de votre façon de tricoter, vous devrez peut-être prendre des aiguilles plus petites ou plus grosses (comme dans votre cas apparemment), assurez-vous toujours d'avoir le bon échantillon indiqué, soit 23 m x 32 rangs jersey = 10 x 10 cm en adaptant la taille des aiguilles si besoin. Bon tricot!
08.03.2019 - 15:04
Marian T. skrifaði:
I love working this mitten, but I'm having trouble with the increase for the thumb gusset. The star indicates the first thumb stitch, but does that mean all the first stitches on the right in A-1 are all to be part of the thumb gusset? The pattern indicates I will have a total of 60 stitches once the thumb gusset is done, but won't I have 61 because 48 stitches on needles plus 13 equals 61. Confused. Also, for the very first thumb stitch should the increases be red or white?
07.07.2018 - 18:45DROPS Design svaraði:
Dear Marian, the stitch with a star in A.1 is the st for thumb. On next round, work A.2 over this st (= work it in red and make a YO on each side (= 3 sts for thumb) and A.1 over the remaining 47 sts. When A.2 is done you have increased 12 sts + 1 st = there are 13 sts for thumb + 47 sts for the mitten = 60 sts. Happy knitting!
09.07.2018 - 08:19
Anne Flear skrifaði:
Sweet Scarborough hat. I am having to knit a second hat as this one is too small for an adult. Adding 14 stitches at the back isn't enough. I'm adding two pattern repeats to be large enough. I don't think my tension is too tight as the gloves are OK.
06.12.2016 - 00:47
Kari Aas skrifaði:
Dette sammen med strømpene og vesten blir kjempe fine julegaver til de yngre i familien
10.06.2012 - 19:38
Yvonne Ström skrifaði:
Snygg, härliga färger
03.06.2012 - 20:35
Sweet Scarborough Hat#sweetscarboroughhat |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónaðir vettlingar og húfa með eyrnaleppum úr DROPS Karisma með norrænu mynstri.
DROPS 140-8 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A-1 fyrir húfu. Sjá mynsturteikningu A-1 og A-2 fyrir vettlinga. Mynstur er prjónað í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst er byrjað á að prjóna eyrnaleppa fram og til baka á sokkaprjóna. Síðan er húfan prjónuð í hring á sokkaprjóna / hringprjóna. EYRNALEPPUR Byrjið á að prjóna eyrnaleppa fram og til baka á 2 sokkaprjóna nr 3. Fitjið upp 7 l með litnum vínrauður DROPS Karisma. Prjónið sl fram og til baka í öllum umf (= garðaprjón). Jafnframt í 2. umf er aukið út um 1 l í hvorri hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við síðustu l, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir göt. Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf 5 sinnum til viðbótar og síðan í 4. hverri umf 4 sinnum = 27 l. Prjónið áfram þar til eyrnaleppurinn mælist 8 cm. Geymið stykkið og prjónið annan eyrnalepp á sama hátt. HÚFA: Stykkið er prjónað í hring. Prjónið inn l frá öðrum eyrnaleppnum (= 27 l) á hringprjóna nr 2,5 með litnum vínrauður DROPS Karisma. Fitjið upp 44 nýjar l (= fram), prjónið inn l frá hinum eyrnaleppnum (= 27 l) og fitjið upp 14 nýjar l (= aftur) = alls 112 l. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið 1 umf brugðið og 1 umf slétt. Haldið áfram með stroff = 2 l sl, 2 l br í 6 umf. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og haldið áfram með A-1 (= 14 mynstureiningar). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A-1 hefur verið prjónað til loka, er prjónað áfram til loka með litnum vínrauður. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 17 cm (mælt án eyrnaleppa), eru 8 prjónamerki sett í stykkið með 14 l millibili. Í næstu umf er fækkað um 1 l eftir hvert prjónamerki með því að prjóna 2 l sl saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf 7 sinnum til viðbótar og síðan í hverri umf 4 sinnum = 16 l eftir. Prjónið 1 umf þar sem allar l eru prjónaðar slétt saman 2 og 2. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru og herðið að. Húfan mælist ca 23 cm án eyrnaleppa. ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. HÆGRI VETTLINGUR: Fitjið upp 52 l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum vínrauður DROPS Karisma. Prjónið stroff = 2 l sl, 2 l br í 10 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3 og prjónið 1 umf sléttprjón jafnframt sem fækkað er um 4 l jafnt yfir = 48 l. Haldið áfram með A-1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Nú þegar prjónað hefur verið upp að umf merktri með 1 ör, byrjar útaukning fyrir þumal – aukið er út hvoru megin við þumallykkjurnar með því að slá uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir göt. Þumallykkjur eru prjónaðar eftir A-2. Eftir alla útaukninu eru 13 þumallykkjur og 60 l alls á prjóni. Þegar síðasta umf í A-2 hefur verið prjónuð, eru 13 þumallykkjur settar á þráð. Í næstu umf er fitjuð upp 1 ný l fyrir aftan þumallykkjur = 48 l alls á prjóni. Prjónið A-1 þar til mynstri er lokið, síðan er haldið áfram með litnum vínrauður. Þegar stykkið mælist 15 cm (mælt eftir stroff), eru 6 prjónamerki sett í með 8 l millibili. Í næstu umf er fækkað um 1 l á eftir hvert prjónamerki með því að prjóna 2 l sl saman. Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf 1 sinni til viðbótar og síðan í annarri hverri umf 4 sinnum = 12 l eftir á prjóni. Í næstu umf eru allar l prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 6 l, klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru og herðið að. Allur vettlingurinn mælist ca 29 cm. ÞUMALL: Setjið þær 13 l yfir þumli á sokkaprjóna nr 3 og takið að auki upp 3 l á kantinum fyrir aftan þumallykkjur = 16 l. Prjónið sléttprjón hringinn með litnum vínrauður í ca 6 cm, prjónið nú allar l slétt saman 2 og 2. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær 8 l sem eftir eru, herðið að. VINSTRI VETTLINGUR: Prjónið á sama hátt og hægri vettlingur. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweetscarboroughhat eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 14 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 140-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.