Corry skrifaði:
Leuk kalssiek vest. Wel erg sombere kleuren; wel mooi op zwarte broek of rok.
06.06.2012 - 03:54
Hanne Eriksen skrifaði:
Virker rigtig sød
04.06.2012 - 09:27
Kirsten skrifaði:
Har savnet raglanmodeller. Mange farverige muligheder
03.06.2012 - 19:00
Elke skrifaði:
Einfach toll!
31.05.2012 - 18:43
Jarka skrifaði:
Das ist schöne!
31.05.2012 - 17:12
Clo skrifaði:
Couleurs automnales pour cette veste superbe!
31.05.2012 - 17:05
October#octobercardigan |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Delight og DROPS Vivaldi eða DROPS Delight og Brushed Alpaca Silk. Stæðir S - XXXL.
DROPS 143-23 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna): *1 umf sl og 1 umf br, endurtakið frá *-*. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l á kant slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist (mælt frá hálsmáli og niður): STÆRÐ S: 2, 9, 16, 23, 30, 37, 44 og 51 cm STÆRÐ M: 2, 9, 17, 24, 31, 39, 46 og 53 cm STÆRÐ L: 2, 10, 17, 25, 32, 40, 47 og 55 cm STÆRÐ XL: 2, 9, 17, 25, 33, 41, 49 og 57 cm STÆRÐ XXL: 2, 10, 18, 26, 34, 42, 50 og 59 cm STÆRÐ XXXL: 2, 11, 19, 27, 36, 44, 52 og 61 cm MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Byrjið 4 l á undan prjónamerki: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið mynstur A.1/A.2 (prjónamerki er staðsett í miðju mynstri), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um fram- og bakstykki og ermar): Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 l sl saman og síðan 2 l snúnar slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá hálsmáli og niður. BERUSTYKKI: Fitjið laust upp 80-80-88-88-92-92 l (meðtaldar 6 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 5 með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir). Byrjið frá réttu og prjónið 8 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 6 og prjónið 1 umf frá réttu JAFNFRAMT er aukið út um 4-4-8-8-12-12 l jafnt yfir (aukið ekki út yfir kanta að framan) = 84-84-96-96-104-104 l. Prjónið nú sléttprjón JAFNFRAMT er prjónuð upphækkun að aftan við hnakka (1. umf = ranga og þær 6 kantlykkjur í byrjun umf eru prjónaðar sl) þannig: Prjónið þar til eftir eru 16-16-18-18-19-19 l, snúið við, herðið á þræði og prjónið þar til eftir eru 16-16-18-18-19-19 l í hinni hliðinni, snúið við, herðið á þræði, prjónið þar til eftir eru 26-26-29-29-31-31 l, snúið við, herðið á þræði og prjónið þar til eftir eru 26-26-29-29-31-31 l í hinni hliðinni, snúið við, herðið á þræði, prjónið þar til eftir eru 36-36-40-40-43-43 l, snúið við, herðið á þræði og prjónið þar til eftir eru 36-36-40-40-43-43 l í hinni hliðinni, snúið við, herðið á þræði og prjónið út umf. Nú eru sett 4 prjónamerki í stykkið fyrir laskalínu (setjið prjónamerki í stykkið án þess að prjóna) þannig: Setjið 1. prjónamerki á eftir 18-18-21-21-23-23 l (= framstykki), setjið 2. prjónamerki á eftir 12-12-12-12-12-12 l (= ermi), setjið 3. prjónamerki á eftir 21-24-30-30-34-34 l (= bakstykki) og setjið 4. prjónamerki á eftir 12-12-12-12-12-12 l (= ermi). Það eru nú 18-18-21-21-23-23 l á eftir síðasta prjónamerki á framstykki. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Prjónið 1 umf slétt frá réttu (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni), JAFNFRAMT er aukið út um 3 l við hvert og eitt þeim 4 prjónamerkjum þannig: Prjónið 2 l í hverja og eina af þeim 2 l innan við prjónamerki fyrir framan ermi og prjónið 2 l í l innan við prjónamerki fyrir framan fram- og bakstykki (það eru nú 12 l fleiri í umf, þ.e.a.s. 4 l við hverja ermi, 2 l á bakstykki og 1 l á hvoru framstykki) = 96-96-108-108-116-116 l. Prjónið nú sléttprjón með 6 l í garðaprjóni í kanti í hvorri hlið við miðju að framan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu (þ.e.a.s. í fyrstu umf frá réttu eftir að aukið er út við prjónamerki), er prjónaður kaðall eftir mynstri A.1 yfir 1. og 3. prjónamerki og kaðall eftir mynstri A.2 yfir 2. og 4. prjónamerki (prjónamerkin eru staðsett í hverjum kaðli fyrir miðju). JAFNFRAMT í sömu umf frá réttu (þ.e.a.s. jafnframt er byrjað að prjóna kaðal), aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, hvoru megin við 4 prjónamerki (= 8 l fleiri). Endurtakið útaukningu fyrir lasklínu í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu), 12-16-15-19-21-25 sinnum til viðbótar og síðan í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) alls 2-1-2-1-1-0 sinnum = 216-240-252-276-300-324 l. Útaukning fyrir laskalínu er nú lokið. Prjónið 1 umf frá röngu eins og áður. Prjónið nú 1 umf frá réttu eins og áður JAFNFRAMT þar sem l í kaðli í mynstri A.1, eru prjónaðar slétt saman 2 og 2, og l í kaðli í mynstri A.2 eru prjónaðar snúnar slétt saman 2 og 2 (= 3 l færri í hverjum kaðli) = 204-228-240-264-288-312 l eftir á prjóni. Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið fram að 1. prjónamerki, setjið 42-48-48-54-58-64 l á milli 1. og 2. prjónamerkis á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar l yfir þráðinn, prjónið fram að 3. prjónamerki, setjið 42-48-48-54-58-64 l á milli 3. og 4. prjónamerkis á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar l yfir þráðinn og prjónið út umf = 132-144-156-172-188-200 l á prjóni (stykkið mælist nú ca 22-24-26-28-30-32 cm frá öxl og niður). FRAM- OG BAKSTYKKI: HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 6 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki í miðju við 6-6-6-8-8-8 nýjar l í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 10 cm, er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerkin í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 12-12-12-8-8-8 cm millibili, 1-1-1-2-2-2 sinnum til viðbótar = 124-136-148-160-176-188 l. Prjónið nú áfram þar til stykkið mælist 29 cm (stykkið mælist nú ca 51-53-55-57-59-61 cm frá öxl og niður). Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og prjónið garðaprjón fram og til baka í 5 cm, fellið LAUST af. Stykkið mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið l af öðrum þræðinum á stutta hringprjóna nr 6 (skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörfum) og fitjið að auki upp 6-6-6-8-8-8 nýjar l undir ermi = 48-54-54-62-66-72 l. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi). Prjónið sléttprjón hringinn þar til ermin mælist 2-4-4-4-4-2 cm. Fækkið nú um 2 l við miðju undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 4-2½-2½-2-1½-1½ cm millibili, 8-11-10-13-14-17 sinnum til viðbótar = 30-30-32-34-36-36 l. Þegar ermin mælist 35-34-32-31-29-28 cm (styttri mæling í stærri stærðum vegna breiðari axla og víðari handvegs), skiptið yfir á sokkaprjóna nr 5. Prjónið garðaprjón hringinn í 10 cm og fellið síðan LAUST af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermi. Saumið tölur í. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #octobercardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 143-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.