Claudia skrifaði:
Hallo Danke für die Nachricht aber ich verstehe es nicht so.Meine Frage wieviel Maschen habe ich am Ende übrig?Ich werde wahrscheinlich von der Strickjacke meine Finger lassen.Drops hat auch nicht so gute Strickbeschreibung.
21.06.2013 - 01:31
Claudia skrifaði:
Hallo Wer kann mir helfen.Ich komme mit dm Schalkragen nicht klar.Bleiben die 14 Maschen am Ende oder muss ich weiter verkürzte Maschen machen. Liebe Grüße Claudia
15.06.2013 - 18:14DROPS Design svaraði:
Liebe Caludia, es wird immer abwechslungsweise über alle Maschen und über 14 M gestrickt (=verkürzte R), damit der Kragen schräg wird und sich schön legt (siehe Schnittzeichnung).
18.06.2013 - 14:51
Donatsch Paula skrifaði:
Resultat mit Eskimo 23: Genial! Negativ: Mengenangabe in Anleitung stimmt nicht überein mit effekt. Verbrauch. Bei Nachbestellg. Farbe nicht mehr an Lager! In Sion noch 2 Knäuel erhalten. Verbrauch: 1050 g statt 900 g!!
24.01.2013 - 16:59
Christine skrifaði:
Bonjour, Je suis en train de tricoter cette veste et je pense qu'il y a une erreur sur le devant gauche : ne faut-il pas commencer les rangs raccourcis sur l'envers ? Le petit côté du col se retrouvera ainsi sur l'encolure du dos.
30.10.2012 - 13:20DROPS Design svaraði:
Bonjour Christine, une correction a été faite, les rangs raccourcis se commencent bien sur l'envers, pour tricoter les premières mailles côté extérieur. Merci et bon tricot !
01.11.2012 - 09:29
Giagia Poloni skrifaði:
Scusate, seconda domanda . . . è obbligatorio usare i ferri circolari??? Io preferisco quelli classici! :-)
26.10.2012 - 20:59DROPS Design svaraði:
Può tranquillamente usare quelli classici.
04.12.2012 - 16:51
Giagia Poloni skrifaði:
Scusate, mi piace questo modello, ma lo vorrei fare come giacca . . . come posso fare? Chi mi aiuta? Grazie, Giagia
26.10.2012 - 20:56DROPS Design svaraði:
E' una giacca.
17.12.2012 - 15:38
Bärbel skrifaði:
Sehr schöne klassische Jacke
03.08.2012 - 10:15
Anne skrifaði:
Hoi bij dit patroon staat geen tekening van de mouw
01.08.2012 - 17:02
Agnès skrifaði:
Bonjour, bravo pour vos modèles ... c'est toujours un vrai plaisir de les découvrir ...Pourriez vous donner un tableau d'équivalence des tailles. , ce serait sympa. A quoi correspond du XXL ? par exemple tour de poitrine par ex. J'ai cherché sur votre site mais je n'ai pas trouvé. Merci par avance. Je vous souhaite un bon week end. Agnès
28.07.2012 - 11:53DROPS Design svaraði:
Bonjour Agnès, pour trouver votre taille, nous vous recommandons de comparer les mesures d'un de vos vêtements semblable à celles du schéma en bas de page, elles sont en cm et fiables. Bon Tricot !
30.07.2012 - 08:56
Karen skrifaði:
Could someone please explain to me how you diagrams work as I love all the patterns on you web-page. I tried to work it out i.e. figure at bottom - does it equals to the number of stitches or is it the measurement at lower point of garment? Regards Karen
27.07.2012 - 06:03
Tweed on the Town#tweedonthetownjacket |
|||||||
|
|||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Snow með sjalkraga. Stærð S - XXXL
DROPS 143-13 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð frá réttu þannig: Fækkið um 1 l í byrjun umf: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið um 1 l í lok umf: Prjónið þar 3 l eru eftir á prjóni, prjónið næstu 2 l slétt saman, 1 kantlykkja í garðaprjóni. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1, mynsturteikningin sýnir allar umf í 1 mynstureiningu séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellt er af frá réttu fyrir 6 hnappagötum í kanit á hægra framstykki þannig: Prjónið 4 l, fellið af næstu 2 l, prjónið 6-6-6-8-8-8 l, fellið af næstu 2 l = 2 hnappagöt í sömu umf (4 l eftir í kanti að framan). Í næstu umf eru fitjaðar upp 2 l yfir þær l sem felldar voru af. Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist: Stærð S: 36, 45 og 54 cm Stærð M: 38, 47 og 56 cm Stærð L: 40, 49 og 58 cm Stærð XL: 42, 51 og 60 cm Stærð XXL: 44, 53 og 62 cm Stærð XXXL: 46, 55 og 64 cm Eftir er ca 1 cm þar til prjónaður er garðaprjónn yfir allar l í kanti að framan. ÚTAUKNING: Aukið er út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. BAKSTYKKI: Fitjið upp 62-66-70-76-82-90 l ( meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) með Snow á hringprjóna nr 7. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – í 5-5-5-6-6-6 cm (1. umf = rétta). Í næstu umf frá réttu er skipt yfir á hringprjóna nr 8 og prjónað áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í hvorri hlið í garðaprjóni. ATH! Allar kantlykkjur í hliðum eru prjónaðar í garðaprjóni til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12-12-13-13-14-14 cm er fækkað um 1 l innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 7-7½-7½-8-8-8 cm millibili 6 sinnum til viðbótar (= alls 7 l færri) = 48-52-56-62-68-76 l. Haldið áfram þar til stykkið mælist 61-63-65-67-69-71 cm. Fellið af fyrir handveg í byrjun hverrar umf í báðum hliðum: Fellið af 3 l 0-0-1-1-1-1 sinni, 2 l 1-1-1-1-2-3 sinnum, og 1 l 2-3-1-3-3-4 sinnum = 40-42-44-46-48-50 l. Haldið áfram þar til stykkið mælist 77-80-83-86-89-92 cm. Fellið af miðju 8-8-10-10-12-12 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umf frá hálsi er felld af 1 l = 15-16-16-17-17-18 l eftir á öxl. Fellið laust af allar l þegar stykkið mælist 80-83-86-89-92-95 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 44-46-47-52-54-58 l (meðtalin er 1 kantlykkja) á hringprjóna nr 7. Prjónið 1. umf frá réttu þannig: Prjónið sl þar til eftir eru 18-18-18-20-20-20 l, prjónið A.1 yfir þær l sem eftir eru (= kantur að framan). Haldið áfram með A.1 yfir kant að framan og garðaprjón yfir þær l sem eftir eru í 5-5-5-6-6-6 cm. Skiptið nú yfir á hringprjóna nr 8 og næsta umf frá réttu eru prjónuð þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið sléttprjón þar til eftir eru 18-18-18-20-20-20 l, haldið áfram með A.1 yfir kant að framan. Prjónið sléttprjón með A.1 yfir kant að framan þar til stykkið mælist 12-12-13-13-14-14 cm. Fækkið um 1 l eftir 1 kantlykkju í byrjun umf frá réttu. Endurtakið úrtöku með 7-7½-7½-8-8-8 cm millibili 6 sinnum til viðbótar (= alls 7 færri = 37-39-40-45-47-51 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm er prjónað garðaprjón yfir 18-18-18-20-20-20 l í kanti að framan til loka. Þegar stykkið mælist 61-63-65-67-69-71 cm er fellt af fyrir handvegi í byrjun hverrar umf frá réttu þannig: Fellið af 3 l 0-0-1-1-1-1 sinnum, 2 l 1-1-1-1-2-3 sinnum, og 1 l 2-3-1-3-3-4 sinnum = 33-34-34-37-37-38 l. Haldið áfram þar til stykkið mælist 80-83-86-89-92-95 cm. Í næstu umf frá réttu eru felldar af fyrstu 15-16-16-17-17-18 l (= öxl) = 18-18-18-20-20-20 l með garðaprjóni eru eftir á kanti að framan. Haldið áfram í garðaprjóni yfir þessar l – JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umferðir með byrjun frá hálsmálli (ranga) þannig: * Prjónið 2 umf með garðaprjóni yfir allar l. Í næstu umf frá röngu eru prjónaðar 14-14-14-16-16-16 l sl, snúið við og prjónið sl til baka *, endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist 7-7-8-8-9-9 cm þar sem fellt var af fyrir öxl (styttri hliðin). Fellið laust af allar l. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema spegilmynd – JAFNFRAMT er fellt af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan – í kanti að framan. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 26-26-30-30-34-34 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) með Snow á hringprjóna nr 8. Prjónið A.1 í 5-5-5-6-6-6 cm. Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 9 cm er aukið út um 1 l – LESIÐ ÚTAUKNING – innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 6½-4½-5-4½-5-4 cm millibili alls 6-8-7-8-7-8 sinnum = 38-42-44-46-48-50 l. Þegar stykkið mælist 47-46-45-44-43-43 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari handvegs) fellið af fyrir ermakúpu í byrjun hverrar umf í hvorri hlið þannig: Prjónið 3 l 1 sinni, 2 l 1 sinni og 1 l 3-3-4-5-6-5 sinnum. Fellið nú af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist ca 56 cm, fellið nú af 3 l 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær l sem eftir eru, stykkið mælist ca 57 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlarsaumana og saumið ermar í innan við 1 kantlykkju. Saumið hliðar- og ermasaumana í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið kant saman að miðju að aftan við kraga – ATH! Saumurinn verður að vera á bakhlið svo að hann sjáist ekki þegar kraginn er brotinn saman. Saumið kragann meðfram hálsmáli að aftan við hnakka. Saumið tölur í vinstri kant að framan. VASI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 18-18-18-20-20-20 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) með Snow á hringprjóna nr 8. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 16-16-16-18-18-18 cm. Prjónið nú 4 umf garðaprjón áður en fellt er af (stykkið mælist ca 18-18-18-20-20-20 cm á hæðina). Prjónið annan vasa til viðbótar á sama hátt. Saumið vasana niður á framstykkin, ca 12-12-12-13-13-13 cm frá neðri kanti og 18-18-19-19-20-20 cm inn frá miðju að framan. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #tweedonthetownjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 143-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.