DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8624.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 143-12
DROPS Design: Mynstur nr u-675
Garnflokkur B
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
700-750-850-900-1000-1100 gr litur nr 52, sinnepsgulur

DROPS HEKLUNÁL nr 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 6 umf í mynstri A.4 verði 10 cm á breidd (1 mynstureining A.1 mælist 3½ cm á breidd, 1 mynstureining A.2 mælist 3 cm á breidd, 1 mynstureining A.3 mælist 2½ cm á breidd, 1 mynstureining A.1/A.2/A.3 mælist ca 2½ cm á hæð).
DROPS PERLUTALA NR 522 (20 mm): 6 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8624.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

UMFERÐ MEÐ FL (FRAM OG TIL BAKA):
Allar umf með fl byrja á 1 ll (ekki talin með sem 1.fl), heklið 1 fl í hverja l út umf, snúið við.

MYNSTUR A.1 (deilanlegt með 6 + 1):
UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið 4 ll (= 1 tbst) í 1. fl, haldið áfram – sjá einnig umf 1 í mynstri A.1 þannig: * Heklið 2 ll, 1 kúla með 5 tbst, 2 ll, 1 tbst í næstu fl *, endurtakið frá *-* út umf, snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið 1 ll, 3 fl um 1. ll-boga, 1 fl í næstu kúlu, 2 fl um næsta ll-boga, haldið áfram – sjá einnig umf 2 í mynstri A.1 þannig: * Heklið 1 fl í næsta tbst, 2 fl um næsta ll-boga, 1 fl í næstu kúlu, 2 fl um næsta ll-boga*, endurtakið frá *-* út umf, endið með 1 fl að síðasta ll-boga í umf (= sami fjöldi fl eins og áður).

MYNSTUR A.2 (deilanlegt með 5+1):
UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið 4 ll (= 1 tbst) í 1. fl, haldið áfram – sjá einnig umf 1 í mynstri A.2 þannig: * Heklið 2 ll, heklið 1 kúlu með 4 tbst, 2 ll, 1 tbst í næstu fl *, endurtakið frá *-* út umf, snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið 1 ll, 3 fl um 1. ll-boga, hoppið yfir 1. kúlu, 2 fl um næsta ll-boga, haldið áfram – sjá einnig umf 2 í mynstri A.2 þannig: * Heklið 1 fl í næsta tbst, 2 fl um næsta ll-boga, hoppið yfir næstu kúlu, 2 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf endið umf með 1 fl að síðasta ll-boga í umf (= sami fjöldi fl eins og áður).

MYNSTUR A.3 (deilanlegt með 4+1):
UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið 4 ll (= 1 tbst) í 1. fl, haldið áfram – sjá einnig umf 1 í mynstri A.3 þannig: * Heklið 1 ll, heklið 1 kúlu með 3 tbst, 1 ll, 1 tbst í næstu fl *, endurtakið frá *-* út umf, snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið 1 ll, 2 fl um 1. ll-boga, 1 fl í næstu kúlu, 1 fl um næsta ll-boga, haldið áfram – sjá einnig umf 2 í mynstri A.3 þannig: * Heklið 1 fl í næsta tbst, 1 fl um næsta ll-boga, 1 fl í næstu kúlu, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf, endið með 1 fl að síðasta ll-boga í umf (= sami fjöldi fl eins og áður).

ÚTAUKNING:
Aukið er út um 1 l með því að hekla 2 l í sömu l.

UMFERÐ MEÐ ST (FRAM OG TIL BAKA):
Allar umf með st eru heklaðar frá réttu. Allar umf með st byrja á 3 ll (= 1. st), hoppið yfir 1. fl frá fyrri umf, heklið 1 st í hverja fl út umf, snúið við.

MYNSTUR A.4:
UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið 1 umf með st.
UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið 1 umf með fl.

ÚRTAKA –ST:
Heklið 2 st saman þannig: Heklið 1 st í fl undir, bíðið með að draga þráðinn í gegnum síðustu l (= 2 l á heklunálinni), heklið 1 st í næstu fl, þegar draga á þráðinn í gegnum síðustu l er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni, nú hefur verið fækkað um 1 st.
Fækkið um 3 st í byrjun eða enda umf með því að hekla 6 fyrstu eða 6 síðustu st saman 2 og 2.
Fækkið um 2 st í byrjun eða enda umf með því að hekla 4 fyrstu eða 4 síðustu st saman 2 og 2.
Fækkið um 1 st í byrjun eða enda umf með því að hekla 2 fyrstu eða 2 síðustu st saman.

ÚRTAKA – FL:
Stingið heklunálinni í l fyrir neðan og sækið þráðinn, stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. Nú hefur fækkað um 1 fl.

HEKLAÐ Í HRING:
Eftir síðustu fl í umf er ekki endað með 1 kl, heldur er haldið áfram í næstu umf með 1 fl í fyrstu fl frá fyrri umferð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Heklið 188-200-218-242-266-290 LAUSAR ll með Karisma með heklunál nr 4,5, snúið við og heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, heklið nú 1 fl í hverja ll út umf = 187-199-217-241-265-289 fl, snúið við stykkinu ( umf 1 = ranga). Heklið 4 UMFERÐ MEÐ FL – sjá útskýringu að ofan = alls 5 umf með fl, stykkið mælist ca 2½ cm.
Heklið nú MYNSTUR A.1 – sjá útskýringu að ofan = 31-33-36-40-44-48 mynstureiningar + 1 tbst. Þegar umf 2 er lokið eru 187-199-217-241-265-289 fl í umf. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Heklið A.1 alls 6-6-7-7-8-8 sinnum á hæðina – en í síðustu umf með fl frá röngu er heklað þannig: Heklið 1 ll, 3 fl um 1. ll-boga, hoppið yfir 1. kúlu, 2 fl um næsta ll-boga, * 1 fl í næsta tbst, 2 fl um næsta ll-boga, hoppið yfir næstu kúlu, 2 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf, en endið með 3 fl um síðasta ll-boga = 156-166-181-201-221-241 fl, snúið við.
Heklið nú MYNSTUR A.2 – sjá útskýringu að ofan! Þegar umf 2 hefur verið hekluð eru 156-166-181-201-221-241 fl í umf. Heklið A.2 alls 6 sinnum á hæðina – en í síðustu umf með fl frá röngu er heklað þannig: Heklið 1 ll, 2 fl um 1. ll-boga, 1 fl í næstu kúlu, 1 fl um næsta ll-boga, * 1 fl í næsta tbst, 1 fl um næsta ll-boga, 1 fl í næstu kúlu, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf, endið með 2 fl um síðasta ll-boga = 125-133-145-161-177-193 fl.
Heklið nú MYNSTUR A.3 – sjá útskýringu að ofan. Þegar umf 2 hefur verið hekluð eru 125-133-145-161-177-193 fl í umf. Heklið A.3 alls 6 sinnum á hæðina – í síðustu umf með fl frá röngu er aukið út um 10-12-14-16-18-20 fl jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING = 135-145-159-177-195-213 fl, nú mælist stykkið ca 48-48-50½-50½-53-53 cm.
Heklið nú MYNSTUR A.4 1 sinni – sjá útskýringu að ofan – JAFNFRAMT Í umf með fl frá röngu er aukið út um 9-11-13-11-13-15 l jafnt yfir = 144-156-172-188-208-228 fl. Heklið A.4 alls 6-7-7-8-8-9 sinnum á hæðina (síðasta umf = 1 umf með fl frá röngu), nú mælist stykkið ca 58-60-62-63-66-68 cm.
Klippið ekki frá. Setjið 1 prjónamerki 36-39-43-47-52-57 fl inn frá hvorri hlið í síðustu umf með fl (= 72-78-86-94-104-114 fl á milli prjónamerkja á bakstykki).

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 36-39-43-47-52-57 fl. Haldið áfram með A.4 – JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í næstu umf frá réttu þannig: Heklið st þar til 3 fl eru að prjónamerki = 33-36-40-44-49-54 st, snúið við (= hoppið yfir 3 l á undan prjónamerki) og heklið 1 umf með fl frá röngu.
LESIÐ NÆSTU 2 KAFLA ÁÐUR EN HEKLAÐ ER ÁFRAM!
Nú er lykkjum fækkað fyrir handveg í lok hverrar umf frá réttu – LESIÐ ÚRTAKA – ST þannig: Fækkið um 3 st 0-0-1-1-1-2 sinnum, 2 st 1-1-1-3-4-5 sinnum, og 1 st 1-3-3-2-3-1 sinnum.
JAFNFRAMT þegar A.4 hefur verið heklað alls 5-6-6-6-6-6 sinnum á hæðina (talið frá prjónamerki úr síðustu umf með fl fyrir úrtöku fyrir handveg) fækkið lykkjum fyrir hálsmáli í næstu umf með st frá réttu þannig: Klippið frá, heklið 3 ll (= 1 st ) í þær 7.-7.-8.-8.-9.-9. fl frá miðju að framan (= hoppið yfir 6-6-7-7-8-8 st frá miðju að framan), heklið st – JAFNFRAMT er haldið áfram með úrtöku fyrir handveg í lok umf ef henni er ekki lokið, snúið við og heklið 1 umf með fl frá röngu.
Fækkið lykkjum í byrjun hverrar umf frá réttu þannig: Fellið af 2 st 2 sinnum og 1 st 2 sinnum. Þegar úrtöku er lokið, eru 18-19-19-20-21-23 l eftir fyrir öxl.
Heklið A.4 alls 11-12-13-13-14-14 sinnum á hæðina (talið frá prjónamerki frá síðustu umf með fl á undan úrtöku fyrir handveg), stykkið mælist ca 76-80-84-86-89-91 cm (endið á 1 umf með fl), klippið frá og festið enda.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 36-39-43-47-52-57 fl. Haldið áfram með A.4 – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir handveg í næstu umf frá réttu þannig: Hoppið yfir fyrstu 3 fl frá prjónamerki í hlið, heklið 3 ll (= 1 st) í næstu fl (= 4. fl frá prjónamerki), heklið st út umf = 33-36-40-44-49-54 st, snúið við og heklið 1 umf með fl frá röngu.
LESIÐ NÆSTU 2 KAFLA ÁÐUR EN HEKLAÐ ER ÁFRAM!
Fækkið nú lykkjum fyrir handveg í byrjun hverrar umf frá réttu þannig: Fækkið um 3 st 0-0-1-1-1-2 sinnum, 2 st 1-1-1-3-4-5 sinnum, og 1 st 1-3-3-2-3-1 sinnum, JAFNFRAMT þegar A.4 hefur verið heklað alls 5-6-6-6-6-6 sinnum á hæðina (talið frá prjónamerki frá síðustu umf með fl fyrir úrtöku fyrir handveg) fækkið lykkjum fyrir hálsmáli í næstu umf með st frá réttu þannig: Haldið áfram með úrtöku fyrir handveg í byrjun umf ef henni er ekki lokið, heklið st þar til 6-6-7-7-8-8 st eru eftir frá miðju að framan, snúið við og heklið 1 umf með fl frá röngu.
Fækkið lykkjum í lok hverrar umf frá réttu þannig: Fellið af 2 st 2 sinnum og 1 st 2 sinnum. Þegar úrtöku er lokið, eru 18-19-19-20-21-23 l eftir fyrir öxl.
Heklið A.4 alls 11-12-13-13-14-14 sinnum á hæðina (talið frá prjónamerki frá síðustu umf með fl fyrir úrtöku fyrir handveg) stykkið mælist ca 76-80-84-85-89-91 cm (endið á 1 umf með fl), klippið frá og festið enda.

BAKSTYKKI:
= 72-78-86-94-104-114 fl. Haldið áfram með A.4 – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir handveg í næstu umf frá réttu þannig: Hoppið yfir 3 fl frá prjónamerki í hægri hlið á stykkinu, heklið 3 ll í næstu fl (=1. st í 4. fl frá prjónamerki), 1 st í hverja fl þar til eftir eru 3 fl að næsta prjónamerki = 66-72-80-88-98-108 st, snúið við (= hoppið yfir 3 fl í hvorri hlið) og heklið 1 umf með fl frá röngu.
Fækkið lykkjum fyrir handveg í byrjun og enda hverrar umf frá réttu þannig: Fækkið um 3 st 0-0-1-1-1-2 sinnum, 2 st 1-1-1-3-4-5 sinnum, og 1 st 1-3-3-2-3-1 sinnum = 60-62-64-66-70-74 l eftir. Heklið A.4 alls 9-10-11-11-12-12 sinnum á hæðina (talið frá prjónamerki frá síðustu umf með fl fyrir úrtöku fyrir handveg).

HÆGRI ÖXL:
Heklið frá réttu 19-20-20-21-22-24 st, snúið við og heklið 19-20-20-21-22-24 fl frá röngu, snúið. Í næstu umf frá réttu er fellt af 1 st í lok umf fyrir hálsmáli = 18-19-19-20-21-23 st eftir fyrir öxl. Heklið 1 umf með fl frá röngu = alls 11-12-13-13-14-14 mynstureiningar A.4 á hæðina (talið frá prjónamerki í síðustu umf með fl fyrir úrtöku fyrir handveg), klippið frá og festið enda, stykkið mælist ca 76-80-84-85-89-91 cm.

VINSTRI ÖXL:
Heklið þannig frá réttu, í byrjun frá hálsmáli: Teljið 19-20-20-21-22-24 l inn frá vinstri hlið og byrjið með 3 ll í þessa fl. Heklið nú 1 st í hvern og einn af þeim 18-19-19-20-21-23 st út umf (þ.e.a.s. það er ekki heklað yfir miðju 22-22-24-24-26-26 l = hálsmál). Snúið við og heklið 1 fl í hvern st til baka, snúið. Í næstu umf (= st) er fellt af 1 st í byrjun umf fyrir hálsmáli = 18-19-19-20-21-23 st. Heklið 1 umf með fl til baka, klippið frá og festið enda, stykkið mælist ca 76-80-84-85-89-91 cm.

ERMI:
Stykkið er heklað fram og til baka.
Heklið 37-37-42-42-47-47 LAUSAR ll með Karisma með heklunál nr 4,5, snúið við og heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, síðan 1 fl í hverja ll út umf = 36-36-41-41-46-46 fl, snúið við (umf 1 = ranga). Heklið 4 umf með fl til viðbótar = alls 5 sinnum með fl, stykkið mælist ca 2½ cm.
Heklið nú MYNSTUR A.2 = 7-7-8-8-9-9 mynstureiningar + 1 tbst. Þegar umf 2 hefur verið hekluð verða þá 36-36-41-41-46-46 fl í umf.
Heklið A.2 alls 3 sinnum á hæðina – í síðustu umf með fl frá röngu er aukið út um 0-4-2-4-6-8 fl jafnt yfir = 36-40-43-45-52-54 fl (stykkið mælist ca 10 cm). Heklið nú A.4 til loka – JAFNFRAMT er aukið út um 1 st í síðustu fl í hvorri hlið í 1. umf með st – LESIÐ ÚTAUKNING = 2 fleiri st.
Endurtakið útaukningu í hvorri hlið í annarri hverri umf með st (þ.e.a.s. í 4. hverri umf) alls 8-8-8-8-7-7 sinnum til viðbótar = 54-58-61-63-68-70 l (= 9-9-9-9-8-8 sinnum). Haldið áfram þar til A.4 hefur verið heklað alls 21-21-20-20-19-19 sinnum á hæðina (síðasta umf = 1 umf með fl frá röngu), þegar stykkið mælist ca 45-45-43½-43½-42-42 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla). Fækkið nú lykkjum fyrir handveg í næstu umf með st frá réttu þannig: Heklið kl í 4. fl, heklið 3 ll í sömu fl (= 1. st), 1 st í hverja fl þar til eftir eru 3 fl í umf = 48-52-55-57-62-64 st, snúið við og heklið 1 umf með fl frá röngu. Fækkið lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið í hverri umf frá réttu þannig: Fellið af 3 st 1-2-2-2-2-2 sinnum, 2 st 2-2-2-3-4-4 sinnum, 1 st 1-0-1-1-1-1 sinnum, 2 st 2-2-2-1-1-1 sinnum. Í næstu umf frá réttu er fækkað um 3 st í hvorri hlið á stykkinu = 18-18-19-21-22-24 l eftir. Í næstu umf frá röngu er fækkað um 3 fl í hvorri hlið á stykkinu – LESIÐ ÚRTAKA – FL = 12-12-13-15-16-18 fl eftir, klippið frá og festið enda. Stykkið mælist ca 57 cm í öllum stærðum.
Heklið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma yst í lykkjubogann með litlu spori. Saumið ermar í, saumið ermar saman.

KRAGI:
Heklið frá réttu ca 80 – 100 fl meðfram öllum kantinum við hálsmál (byrjið efst á hægra framstykki). Heklið 1 umf með fl frá röngu – JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út að 80-82-84-88-92-94 fl. Heklið 4 umf með fl til viðbótar = alls 6 umf með fl. Í næstu umf er aukið út um 3 fl jafnt yfir í umf = 83-85-87-91-95-97 fl. Haldið áfram umf með fl þar til heklaðar hafa verið alls 11 umf með fl. Í næstu umf með fl er aukið út um 3-6-4-5-6-4 fl jafnt yfir = 86-91-91-96-101-101 fl. Heklið nú A.2 (= 17-18-18-19-20-20 mynstureiningar + 1 tbst) 1 sinni á hæðina. Heklið 2 umf með fl til viðbótar, klippið frá og festið enda, kraginn mælist ca 9 cm.

KANTUR AÐ FRAMAN:
Heklið frá réttu ca 130-150 fl meðfram öllum kantinum við miðju að framan á hægra framstykki (meðtalin er styttri hlið á kraganum). Heklið nú 1 umf með fl frá röngu – JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út að 128-134-138-140-144-148 fl. Í næstu umf frá réttu er heklað þannig: Heklið fl þar til eftir eru 80-84-84-84-88-90 fl í umf, * 2 ll, hoppið yfir 2 fl, heklið 13-14-16-17-17-18 fl *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, 2 ll, hoppið yfir 2 fl, heklið 12 fl, 2 ll, hoppið yfir 2 fl, heklið síðustu 2 fl í umf = 4 hnappagöt, snúið. Heklið nú 2 umf með fl til viðbótar (heklið 2 fl i hvern ll-boga), klippið frá og festið enda) 5 umf með fl alls.
Heklið kant á sama hátt við miðju að framan á vinstra framstykki, en án hnappagata.
Saumið 4 tölur í vinstri kant.

SPÆLL:
Stykkið er heklað í hring. Heklið 19 LAUSAR ll með Karisma með heklunál nr 4,5, snúið við og heklið 3 fl í 2. ll frá nálinni, heklið nú 1 fl í hverja ll þar til eftir er 1 ll í umf, heklið 3 fl í síðustu ll, snúið við stykkinu og haldið áfram að hekla 1 fl í hverja ll á annarri hliðinni við keðjuna með ll – LESIÐ HEKLAÐ Í HRING!
Í næstu umf er hekluð 1 fl í hverja fl, en á styttri hliðum er aukið út um 1 fl (með því að hekla 2 fl í sömu fl) í hverja af miðju 3 fl (= 3 auka l í styttri hliðum). Haldið áfram hringinn með útaukningu í styttri hliðum á sama hátt þar til spællinn mælist ca 14-14-15-15-16-16 cm á breiddina, heklið 1 kl í næstu fl, klippið frá og festið enda.
Leggið spælinn á mitt bak þar sem mynstur A.3 liggur að mynstri A.4. Saumið 1 tölu hvoru megin í gegnum bæði stykkin.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 07.08.2012
HÆGRI ÖXL: Heklið frá réttu 19-20-20-21-22-24 st, snúið við og heklið 19-20-20-21-22-24 fl frá röngu, snúið.

Mynstur

symbols = 1 kúla með 5 tbst: heklið 1 tbst í næstu fl – bíðið með að draga bandið í gegn í lokin (= 2 l á nálinni), heklið 1 tbst í hvern og einn af næstu 4 fl á sama hátt, dragið bandið í gegnum allar 6 l á nálinni.


symbols = 1 kúla með 4 tbst: heklið 1 tbst í næstu fl – bíðið með að draga bandið í gegn í lokin ( 2 l á nálinni), heklið 1 tbst í hverja og eina af næstu 3 fl á sama hátt, dragið bandið í gegnum allar 5 l á nálinni.
symbols = 1 kúla með 3 tbs: heklið 1 tbst í næstu fl – bíðið með að draga bandið í gegn í lokin ( 2 l á nálinni), heklið 1 tbst í hverja og eina af næstu 2 fl á sama hátt, dragið bandið í gegnum allar 4 l á nálinni.
symbols = 1 tvíbrugðinn stuðull
symbols = 1 fastalykkja
symbols = 1 loftlykkja
symbols = umferð 1 í mynstri
symbols = umferð 2 í mynstri
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 143-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (106)

country flag Marina Bieller wrote:

Buongiorno. Ho appena comprato 1.5 kg di filato Flora da lavorare con il n. 3 e vorrei realizzare il modello 143/12 che però è realizzato con il filato Karisma. da lavorare con il n. 4,5 Quale filo posso unire al Flora per avere lo spessore necessario a realizzare questo modello? Io ho il colore verde. Grazie

22.08.2023 - 17:00

DROPS Design answered:

Buonasera Marina, non ci sono dei filati che si abbinano a Flora per ottenere lo spessore del gruppo filati B. Per un'assistenza così personalizzata può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!

22.08.2023 - 22:27

country flag Sylvie Marsille Schérer wrote:

Bonjour, j'ai réalisé ce gilet en taille S pour ma fille. J'aimerais faire ce même gilet pour ma petite fille en taille 6 ou 7 ans. Auriez vous les explications ? Je vous remercie infiniment pour votre réponse.

11.05.2023 - 11:51

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Marsille Schérer, ce modèle n'est malheureusement pas disponible en version enfant; retrouvez ici toutes les vestes ou tous les gilets ou boléros enfant au crochet; en espérant que l'un d'eux puisse vous inspirer. Bon crochet!

11.05.2023 - 16:37

country flag Evy Nilsson wrote:

Hej! Jag skulle vilja virka koftan, Jaqueline by DROPS Design i ett bomullsgarn. Vilket bomullsgarn rekommenderar ni? Evy

26.02.2023 - 20:23

DROPS Design answered:

Hej Evy, Prøv vores garnkalkulator. Vælg DROPS Karisma, vælg antal gram i din størrelse og vælg 1 tråd så får du garnåtgången frem i bla DROPS Muskat, DROPS Cotton Light, DROPS Cotton Merino :)

28.02.2023 - 14:47

country flag Lotta wrote:

Hej! Jag undrar om mouchen stängs med en lm och att jag sedan ska virka 2 lm och dubbelstolpen i A1? Alltså en mouch inkl 1 lm sen 2 lm 1 dstp 2 lm?

24.02.2023 - 16:23

DROPS Design answered:

Hei Lotta. Se vårt svar tidligere idag. mvh DROPS Design

28.02.2023 - 20:18

country flag Lotta wrote:

Hej! Jag undrar om mouchen stängs med en lm och att jag sedan ska virka 2 lm och dubbelstolpen i A1? Alltså en mouch inkl 1 lm sen 2 lm 1 dstp 2 lm?

22.02.2023 - 11:25

DROPS Design answered:

Hei Lotta. Nei, du hekler slik det står i diagrambeskrivelsen for dette ikonet, deretter hekler du 2 luftmasker og 1 dobbeltstav. mvh DROPS Design

28.02.2023 - 19:40

country flag Delyen De La Cruz Velita wrote:

Buenas tardes, me gustaría saber cuántas vuelta hago con los cinco puntos altos en la misma, delos cuatro pa en la misma cadena y de los 3 pa en la misma, etc del abrigo color mostaza se le gradecer eternamente gracias x por su atención.

15.08.2021 - 23:41

DROPS Design answered:

Hola Delyen, el tamaño de las motas (A.1, A.2, A.3) depende de la talla. El número de repeticiones en la fila y el número de filas depende de la talla, por lo que sin saber la talla no podemos concretarlo. Por ejemplo, A.1 (la mota de 5 pa) para la talla S se repite 5 veces en vertical., e.t.c.

16.08.2021 - 18:43

country flag Delyen wrote:

Hola buenas tardes me gustaría que nos brinde en video el tutorial ya que me es difícil entender soy principiante, del abro color moztasa

15.08.2021 - 23:37

DROPS Design answered:

Hola Delyen, no hacemos vídeos personalizados, pero puedes encontrar bajo el patrón aquellos vídeos que puedan servirte de ayuda para realizar la labor.

16.08.2021 - 18:37

country flag Soco Martinez wrote:

Hola buenas noches soy nueva y todavia no entiendo muy bien los patrones me gustaria mas un tutorial, esta precioso el sueter mostaza o especificar un poco mas como se hacen los puntos del saco parte alta y baja y son piezas separadas gracias

08.02.2021 - 01:45

DROPS Design answered:

Hola Soco! La chaqueta se trabaja de abajo hacia arriba empezando por el CUERPO hasta las sisas, luego trabajará diferentes piezas por separado. Luego, las mangas se trabajarán y coserán. Terminar con cuello, bandas y solapa. Buen trabajo!

11.02.2021 - 08:08

country flag Anika wrote:

Hello! I'm working on this pattern and I have two questions about the right front instructions. 1. When it says to decrease 3dc 0 times, does that mean I work one row of dc with a decrease? 2. For the neck shaping, it says to chain 3 in the 7th sc from center front, but it's not clear to me what center front is referring to. Thank you!

25.01.2021 - 22:46

DROPS Design answered:

Hi Anika, When it says increase x 0, it means that in your size you do not need to increase. The centre front is the edge of the front piece, so the 7th sc from the centre front is the 7th sc from the band-edge. Happy crocheting!

26.01.2021 - 07:33

country flag Klaartje wrote:

Ik zie in de opmerkingen en vragen dat er wordt verwezen naar het telpatroon. Waar kan ik dat vinden?

24.10.2020 - 14:37

DROPS Design answered:

Dag Klaartje,

Het telpatroon staat helemaal onderaan de beschrijving en dan onder de matentekening (beetje verstopt onder de mouw :))

25.10.2020 - 19:09