Linda DeFeo skrifaði:
Diamond gem
23.06.2012 - 03:30Janinka skrifaði:
The half mittens are awesome
12.06.2012 - 05:09
Nanou skrifaði:
Sympa l'ensemble!!!
06.06.2012 - 08:53Roseane skrifaði:
SUPER BONITO
04.06.2012 - 17:57
Kirsti skrifaði:
Disse vil jeg strikke og sælge i min webshop.
31.05.2012 - 20:35
Eva.kroon-bisenius skrifaði:
Fint mönster. Jag vill sticka mössan och vantarna
31.05.2012 - 16:17
Bergen Set#bergenset |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð húfa, hálsskjól og handstúkur úr DROPS Alpaca með norrænu mynstri.
DROPS 142-2 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A-1 fyrir húfu, A-2 fyrir hálsskjól og A-3 og A-4 fyrir handstúkur. Mynstrin eru prjónuð í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna / sokkaprjóna. HÚFA: Fitjið upp 140-152 l á hringprjóna nr 2,5 með litnum ljós kamel. Prjónið 1 umf sléttprjón, haldið áfram með stroff = 2 l sl, 2 l br í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið 1-4 umf sléttprjón –JAFNFRAMT í 1. umf er fækkað um 0-2 l jafnt yfir = 140-150 l. Haldið áfram með A-1 (= 14-15 mynstureiningar hringinn). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar mynstri er lokið, mælist stykkið ca 22-23 cm á hæðina og 28-30 l eru eftir á prjóni. Prjónið 1 umf með litnum bleikur jafnframt þar sem allar l eru prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 14-15 l eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru og herðið að. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring neðan frá og upp á hringprjóna. HÁLSSKJÓL: Fitjið upp 288-320 l á hringprjóna nr 2,5 með litnum ljós kamel. Prjónið stroff = 2 l sl, 2 l br í 6 umf. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3. Næsta umf er prjónuð þannig: * Prjónið 2 l sl, 2 l sl saman *, endurtakið frá *-* = 216-240 l. Haldið áfram með mynstur A-2. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir A-2, prjónið til loka með litnum ljós kamel –JAFNFRAMT eru 12 prjónamerki sett í stykkið með 18-20 l millibili. Í 2. umf eftir A-2 er fækkað um 1 l á undan öllum prjónamerkjum með því að prjóna 2 l sl saman. Endurtakið úrtöku í 3.– 5. umf til viðbótar = 144-168 l. Stykkið mælist nú ca 11-14 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5 og haldið áfram með stroff = 2 l sl, 2 l br í 10-11 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br. ------------------------------------------------------- HANDSTÚKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. HANDSTÚKA: Fitjið upp 60 l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum ljós kamel. Prjónið stroff = 2 l sl, 2 l br í 12 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3. Prjónið nú 1 umf sléttprjón jafnframt er fækkað um 12 l jafnt yfir = 48 l. Haldið áfram með mynstur A-3 (= 4 mynstureiningar hringinn). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið 1 prjónamerki í fyrstu l í umf (= þumallykkjur). Þegar komið er að umf merktri með ör í mynstri, byrjar útaukning fyrir þumal þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við þumallykkjuna (= rúða með stjörnu), í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir göt. Endurtakið útaukningu í 3. hverri umf 5 sinnum til viðbótar = 13 þumallykkjur. ATH: Þumallykkjur eru prjónaðar eftir mynstri A-4. Þegar A-4 er lokið, setjið 13 þumallykkjur + 1 l hvoru megin við þær á þráð (= 15 l á þræði). Í næstu umf er fitjað upp 3 nýjar l á bak við þumallykkjur = 48 l. Prjónið þar til A-3 er lokið. Prjónið nú 1 umf sléttprjón með litnum ljós kamel jafnframt þar sem aukið er út um 8 l jafnt yfir = 56 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 2,5 og haldið áfram með stroff = 2 l sl, 2 l br í 5 umf, fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Handstúkan mælist ca 25 cm. ÞUMALL: Allur þumallinn er prjónaður með litnum bleikur. Setjið l fyrir þumal af þræði á sokkaprjóna nr 3 og prjónið að auki upp 5 l í kanti fyrir aftan þumallykkjur = 20 l. Prjónið 3 umf í sléttprjóni hringinn. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 2,5 og haldið áfram með stroff = 2 l sl, 2 l br í 5 umf, fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Prjónið aðra handstúku á sama hátt. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bergenset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 8 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 142-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.