DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9900.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Bergen

Prjónuðu peysa úr DROPS Alpaca með berustykki, vösum og norrrænu mynstri. Stærð XS – XXXL

DROPS 142-1
DROPS Design: Mynstur nr z-612
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: XS/S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
300-350-400-450-500-550 gr litur nr 2020, ljós kamel
50-50-50-100-100-100 gr litur nr 3800, bleikur
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 2925, dökk appelsínugulur
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 3969, rauðfjólublár
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 6309, turkos/grár

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l og 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 2,5 – fyrir stroff.
DROPS SILFURTALA NR 534: 9 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9900.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A-1 og A-2. Mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 244-276-308-340-372-404 l á hringprjóna nr 2,5 með litnum ljós kamel DROPS Alpaca.
Prjónið stroff(1. umf = rétta) þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 l sl, 2 l br*, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir, prjónið 2 l sl og 1 kantlykkju í garðaprjón. Þegar stroffið mælist 4 cm, skipið yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið næstu umf (frá réttu) þannig: Prjónið 3 l sl, * 2 l sl saman, 2 l sl*, endurtakið frá *-* þar til 5 l eru eftir, prjónið 2 l sl saman og 3 l sl = 184-208-232-256-280-304 l. Setjið 1 prjónamerki eftir 46-52-58-64-70-76 l í hliðum (=92-104-116-128-140-152 l milli prjónamerkja á bakstykki). Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist ca 6 cm (passið uppá að næsta umf sé prjónuð frá röngu), prjónið næstu umf þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 38-40-44-47-51-53 l br, setjið síðustu 29-29-31-31-33-33 l sem prjónaðar voru á þráð (þessar l eru prjónaðar seinna sem vasi), haldið áfram með br þar til eftir eru 10-12-14-17-19-21 l, setjið síðustu 29-29-31-31-33-33 l sem prjónaðar voru á þráð fyrir vasa, prjónið 9-11-13-16-18-20 l br og 1 kantlykkju í garðaprjón. Í næstu umf er prjónuð upp 1 l aftan í hverja af þeim l sem settar voru á þráð. Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 8-8-9-9-10-10 cm, er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki í hliðum. Endurtakið úrtöku með 3 cm millibili 2 sinnum til viðbótar = 172-196-220-244-268-292 l. Þegar stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki í hliðum. Endurtakið útaukningu með 3 cm millibili 5 sinnum til viðbótar = 196-220-244-268-292-316 l. Þegar stykkið mælist ca 38-39-40-41-42-43 cm (passið uppá að næsta umf sé prjónuð frá röngu), prjónið næstu umf þannig: Prjónið 43-49-55-61-67-73 l (= framstykki), fellið af 12 l fyrir handveg, 86-98-110-122-134-146 l (= bakstykki), fellið af 12 l fyrir handvegi, 43-49-55-61-67-73 l (= framstykki) = 172-196-220-244-268-292 l eftir á prjóni.
Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Ermin er prjónuð á sokkaprjóna.
Fitjið upp 72-80-80-80-88-88 l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum ljós kamel DROPS Alpaca.
Prjónið stroff = 2 l sl, 2 l br í 8 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3, prjónið næstu umf þannig: * Prjónið 2 l sl, 2 l sl saman *endurtakið frá *-* = 54-60-60-60-66-66 l. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 10-10-12-14-14-14 cm, er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki undir ermi, endurtakið útaukningu með 3½-3½-2½-2-2-2 cm millibili 10-10-13-15-14-16 sinnum til viðbótar = 76-82-88-92-96-100 l. Þegar stykkið mælist 48 cm, fellið af 12 l við miðju undir ermi (þ.e.a.s. 6 l hvoru megin við prjónamerki) = 64-70-76-80-84-88 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið ermarnar á sama hringprjón nr 3 og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 300-336-372-404-436-468 l (l eru ekki prjónaðar inn þegar þær eru settar á prjóninn).
Prjónið 2-4-8-6-8-12 l í sléttprjóni með litnum ljós kamel – JAFNFRAMT í 1. umf (= rétta) er fækkað um 3-11-5-9-13-3 l jafnt yfir = 297-325-367-395-423-465 l. Prjónið og fækkið lykkjum eftir mynsturteikningu A-1 (1. umf = rétta, sjá mynstur fyrir rétta stærð) með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, næst síðasta l á prjóni er prjónuð sem fyrsta l í A-1 og lykkjum er ekki fækkað yfir þessar lykkjur.
Eftir úrtöku eru 108-118-133-143-153-168 l á prjóni og stykkið mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm upp að öxl. Prjónið 1 umf með litnum ljós kamel (frá réttu) jafnframt er fækkað um 12-18-25-27-29-36 l jafnt yfir = 96-100-108-116-124-132 l. Prjónið 1 umf br (frá röngu). Prjónið nú upphækkun að aftan með litnum ljós kamel og sléttprjóni (frá réttu) þannig: Prjónið 58-60-64-68-72-76 l, snúið, prjónið 20 l br, snúið, prjónið 30 l sl, snúið, prjónið 40 l br, haldið svona áfram og prjónið 10 l fleiri fyrir hvert skipti áður en snúið er við þar til prjónað hefur verið yfir alls 80-80-80-100-110-110 l, snúið og prjónið út umf, setjið l á þráð.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið upp ca 172 til 204 l (deilanlegt með 4) innan við 1 kantlykkju meðfram vinstra framstykki með litnum ljós kamel. Prjónið stroff (1. umf = ranga) þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 2 l br, 2 l sl*, endurtakið frá *-* og endið með 2 l br og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með sl yfir sl og br yfir br og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stroffið mælist 3 cm, fellið laust af.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið á sama hátt og vinstri kantur að framan en eftir 1 cm er fellt af fyrir 8 hnappagötum jafnt yfir (fellið af fyrir hnappagati í br umf séð frá réttu). 1 HNAPPAGAT = prjónið 2 l br saman og gerið 1 uppslátt – neðsta hnappagatið á að vera í annarri br umf frá neðri kanti og það efsta ca 6-7 cm að ofan (fellið einnig af fyrir 1 hnappagati á hálsmáli).

HÁLSMÁL:
Hálsmálið er prjónað með litnum ljós kamel á hringprjóna nr 2,5 þannig: Prjónið upp 8 l yfir hægri kant að framan (innan við 1. kantlykkju), prjónið inn þær 96-100-108-116-124-132 l af þræði kringum hálsmál og prjónið upp 8 l yfir vinstri kant = 112-116-124-132-140-148 l. Prjónið 1 umf br frá röngu jafnframt sem aukið er út 20-20-16-16-12-12 l jafnt yfir = 132-136-140-148-152-160 l. Prjónið nú stroff (frá réttu) þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 2 l sl, 2 l br*, endurtakið frá *-* og endið með 2 l sl og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með sl yfir sl og br yfir br. Þegar hálsmálið mælist 1 cm er fellt af fyrir 1 hnappagati fyrir ofan hin í kanti að framan. Þegar hálsmálið mælist 3 cm er fellt af með sl yfir sl og br yfir br.

VASI:
Vasinn er prjónaður fram og til baka á 2 sokkaprjóna.
Setjið til baka þær 29-29-31-31-33-33 l af þræði frá öðru framstykkinu á 1 sokkaprjón nr 3. Prjónið sléttprjón með litnum ljós kamel og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið 8-8-9-9-10-10 cm (passið að næsta umf sé prjónuð frá réttu), haldið áfram þannig: Prjónið 1 l garðaprjón, 1-1-2-2-0-0 l slétt með litnum ljós kamel, síðan mynstur A-2 yfir næstu 25-25-25-25-31-31 l, 1-1-2-2-0-0 l slétt með litnum ljós kamel og síðan 1 l garðaprjón. Þegar mynstri A-2 er lokið, prjónið 2 umf slétt með ljós kamel –JAFNFRAMT í síðustu umf er aukið út um 3-3-5-5-3-3 l jafnt yfir = 32-32-36-36-36-36 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 2,5 og haldið áfram með stroff (frá réttu) þannig: Prjónið 1 l garðaprjón, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* og endið með 2 l sl og 1 l garðaprjón. Prjónið alls 6 umf stroff, fellið af frá réttu með sl yfir sl og br yfir br .
Saumið vasann niður með fínu spori í l í garðaprjóni í annarri hliðinni.
Prjónið annan vasa á sama hátt og saumið í hina hliðina.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir höndum. Saumið tölur í.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 16.04.2013
BERUSTYKKI: ...Prjónið 1 umf br (frá röngu). Prjónið nú upphækkun að aftan með ljós brúnu camel og sléttprjóni (frá réttu) þannig:...

Mynstur

symbols = litur ljós camel
symbols = litur turkos/grár
symbols = litur bleikur
symbols = litur rauðfjólublár
symbols = litur dökk appelsínugulur
symbols = 2 lykkjur slétt saman í þeim lit sem passar í mynstri
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Bergen Jacket

Kristina Mari, Portugal

Bergen

Kim, United Kingdom

Bergen jacket

Miriam, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 142-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (111)

country flag Nina Haugsnes wrote:

Hei. Jeg får ikke opp diagram A-1 og A-2. Bruker IPad. Har det noen betydning?

11.02.2020 - 22:40

DROPS Design answered:

Hej Nina, Nej det skal ikke betyde noget.... Vi får diagrammerne op på både Iphone og Ipad. Prøv et af de andre sprog...

12.02.2020 - 08:06

country flag Nanettedev wrote:

Bonjour , je ne comprends pas la correction au niveau de l empiecement ,

15.12.2019 - 15:02

DROPS Design answered:

Bonjour Nanettedev, si vous avez imprimé ce modèle après la date de cette correction, les explications sont justes, si, en revanche, vous avez imprimé ce modèle avant la date de la correction, il vous faudra la prendre en compte. Bon tricot!

16.12.2019 - 08:28

country flag Μαρια Κασσαλια wrote:

Ich versuche die jacke zu stricken in grösse M aber die maschen beim rumpfteil kommen nicht hin bei 276 und 6 mal zunehmen sind es 288 und nicht 220 vielen dank

14.11.2018 - 18:58

DROPS Design answered:

Liebe Μαρια Κασσαλια, nach den Bündchen werden die 276 Maschen zu 208 M abgenommen - dann werden 2 M beidseitig x 3 insgesamt = 12 M abgenommen = 196 M, dann werden 2 M beidseitig x 6 = 24 M zugenommen = 220 M. Viel Spaß beim stricken!

15.11.2018 - 08:36

country flag Edita H wrote:

Lurer på hvis erme lengde 48 cm er inkludert vrbord ?

25.07.2017 - 15:31

country flag Sprookje wrote:

Hallo Drops, Ik heb het eea in fair isle gebeid, maar altijd in de rondte. Het verbaasde me dan ook dat dit heen en weer gebeid is. Erg vervelend om avérecht een patroon te breien. Ik heb dan ook rond gebreid met in het midden acht extra steken, om doormidden te knippen. Nu het zover is vraag ik me af of ik eerst zal verstevigen/knippen en dan de bies breien, of eerst de biezen breien en dan knippen? Kunt u op deze techniek ingaan? Grtz Sprookje

01.10.2016 - 18:00

DROPS Design answered:

Hoi Sprookje. Wij hebben ook een deel gebruikers, die niet gewend zijn om in de rondte te breien (ook fair isle). Het is een kwestie van smaak - en daarom kan je dit ook prima doen door knipsteken op te zetten en daarna openknippen. Ik zou eerst openknippen en daarna de bies breien. Je kan dan een dubbele bies breien om de knipst te bedekken of later een mooie bies erop naaien. Succes.

03.10.2016 - 10:59

country flag Sprookje wrote:

In de zak zit een fout; er wordt gezegd met drie steken te beginnen, dan 25! Steken patroon en dan weer drie steken eindigen. Het patroon bestaat uit 6 steken, het moet dus 24 steken zijn en 30, niet 31, totaal (maat L).

01.10.2016 - 17:53

country flag Marion wrote:

Bonjour, je voudrais faire ce gilet en uni et j'ai à ma disposition 450g d'alpaca. Est-ce suffisant pour faire ce gilet en taille S? Merci pour votre aide. Marion

07.08.2016 - 13:41

DROPS Design answered:

Bonjour Marion, en additionnant toutes les couleurs nécessaires, il faudrait 500 g Alpaca, il est possible que 450 g suffisent pour le faire en uni, mais pas certain, pensez à bien vérifier et à bien conserver votre tension et n'hésitez pas à demander conseil à votre magasin DROPS. Bon tricot!

08.08.2016 - 09:55

country flag Anneli Sörslätt wrote:

Jag ville sticka bara oket vilket mönster ska jag göra

16.01.2016 - 14:54

DROPS Design answered:

Hej. På oket stickar du A.1. Lycka till!

19.01.2016 - 10:01

country flag Linda Ødegården Madshus wrote:

Hei! Jeg lurer på om det virkelig skal legges opp 80 m til ermene og så felle til 60? Det er veldig vidt. Den ser ikke så vid ut på bilde. Jeg er 15 cm rundt håndleddet og 56 m var mer enn nok til meg. MVH Linda

04.02.2015 - 08:54

DROPS Design answered:

Hej Linda, jo det stemmer, bare følg opskriften. God fornøjelse!

04.02.2015 - 09:03

country flag Anna Pönitz wrote:

Ich komme mit dem Mustersatz bei der Rundpasse nicht zurecht. Bei 325 Maschen gehen sich 11,5 Mustersätze aus. Wie muss man da beginnen?

21.01.2015 - 17:48

DROPS Design answered:

Es müssten 23 Rapporte von A-1 (= 14 M) in 325 M passen: 1 Rand-M + 23 x 14 M + die 1. M von A-1 + 1 Rand-M = 1 + 322 + 1 + 1 = 325.

21.01.2015 - 21:52