Elisabetta skrifaði:
E' graziosissimo!
19.12.2011 - 12:33
Elisabeth skrifaði:
Mignon petit chapeau et très british
17.12.2011 - 12:35
Nina Dahlke skrifaði:
Der Hut ist passend zur kommen Frühjahrsaison. Gefällt mir super !!
15.12.2011 - 23:05
Terry Romaire skrifaði:
Love hats with brims.
14.12.2011 - 17:58Jutta skrifaði:
Lovely piece for warm weather, but also nice in a warmer yarn for cooler temps
14.12.2011 - 06:45
Jelena skrifaði:
Denne er det flott fasong på ;) Jeg hadde sikkert brukt andre farger, den vill jeg lage!
12.12.2011 - 23:20
Pia skrifaði:
Ihana malli, ihana väri
12.12.2011 - 16:37
Janice skrifaði:
I love this hat!
10.12.2011 - 19:35
Arife skrifaði:
Wunderschön,muß ich unbedingt haben,bitte nimmt es in die Kollektion auf!!!
10.12.2011 - 16:53
Pavla skrifaði:
Very nice hat,I must do it
10.12.2011 - 14:49
Summer Harmony#summerharmonyhat |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Heklaður hattur úr DROPS Safran og DROPS Cotton Viscose.
DROPS 139-8 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Umferð með st: Fyrsta st í hverri umf er skipt út fyrir 3 ll, endið umf með 1 kl í 3. ll í byrjun umf. Umferð með fl: Fyrstu fl í hverri umf er skipt út fyrir 1 ll, endið umf með 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf. MYNSTUR: UMFERÐ 1 (Safran): Heklið 1 fl í hvern st. UMFERÐ 2 (Safran): Heklið 4 ll, hoppið yfir 1 fl, * 1 st í næstu fl, 1 ll, hoppið yfir 1 fl *, endurtakið frá *-* og endið með 1 kl í byrjun umf. UMFERÐ 3 (Cotton Viscose): Heklið 1 fl í hvern st og 1 fl í hverja ll. UMFERÐ 4 (Safran): Heklið 1 st í hverja fl. UMFERÐ 5 (Cotton Viscose): Heklið 1 st í hvern st. UMFERÐ 6 (Safran): Heklið 1 st í hvern st. Endurtakið umf 1- 6. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HATTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Heklið fyrst ferninga – þeir eru heklaðir saman jafnóðum. Síðan er heklað meðfram annarri hliðinni á ferningunum og upp að toppi (= kollur). Síðan er heklað meðfram hinni hliðinni á ferningunum og áfram (= barð). FERNINGUR-1: Sjá einnig mynsturteikningu M.1 Heklið 4 ll með Safran með heklunál nr 3 og tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 1: Heklið 3 ll (= 1 st), 11 st um ll-hringinn, endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf. UMFERÐ 2 (Skiptið yfir í Cotton Viscose): Heklið 2 ll, 1 fl í næsta st, 1 ll, * 1 fl í næsta st, 1 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið með 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf. UMFERÐ 3: Heklið 1 ll, 1 fl í 2. ll frá fyrri umf, * 4 ll, 1 fl um næstu ll frá fyrri umf *, endurtakið frá *-*, endið með 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf = 12 ll-bogar. UMFERÐ 4 (Skiptið aftur yfir í Safran): Heklið 2 ll, 1 fl um fyrsta ll-boga, * 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 8 ll (= horn), 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn, en endið með 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf (í stað 1 fl um næsta ll-boga). Klippið frá og festið alla enda. FERNINGUR-2: Fitjið upp með Cotton Viscose og heklið eins og FERNINGUR-1 frá umf 1 til 3, en skiptið um garntegund, svo að það verður Cotton Viscose í umf 1 og Safran í umf 2 og 3. UMFERÐ 4: Sjá mynsturteikningu M.2. Heklið þannig með Safran: Heklið 2 ll, 1 fl um fyrsta ll-boga, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, leggið ferninginn með röngu á móti röngu á FERNINGUR-1, heklið 1 fl um stóra ll-bogann á FERNINGUR-1 (= horn), 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga á FERNINGUR-2, * 2 ll, 1 fl um næsta litla ll-bogann á FERNINGUR-1, 2 ll, 1 fl um næsta ll-boga á FERNINGUR-2 *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, 4 ll, 1 fl um næsta stóra ll-boga á FERNINGUR-1 (= horn), 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga á FERNINGUR-2. Heklið nú þannig í kringum FERNINGUR-2: ** 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 8 ll, 1 fl um næsta ll-boga **, endurtakið frá **-** 1 sinni til viðbótar, en endið með 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf. Klippið frá og festið enda. Heklið nú FERNINGUR-1 og FERNINGUR-2 til skiptis (jafnframt eru þeir heklaðir saman eins og útskýrt er frá í umf 4 á FERNINGUR-2) þar til heklaðir hafa verið alls 8 ferningar. Síðasti ferningurinn er heklaður í næst síðasta ferning og fyrsta ferning þannig að allir ferningarnir eru tengdir saman og mynda hring. KOLLUR: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR AÐ OFAN! Heklið með Safran með heklunál nr 3 meðfram annarri hlið á ferningum þannig: Heklið 5 st í hvern af þeim stóru ll-bogum í horninu á ferningum og 3 st í hvern af þeim litlu ll-bogum = 16 st í hvern ferning og 128 st alls. Heklið nú MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist alls ca 12 cm (með ferningum) – passið uppá að næsta umf er umf bara með st eða fl – fellið af 16 l jafnt yfir með því að hoppa yfir 8. hverja l = 112 l. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf 3 sinnum til viðbótar og síðan í hverri umf 3 sinnum (það verður 1 l færri á milli úrtöku fyrir hverja umf með úrtöku þar sem hoppað er yfir 1 l, þ.e.a.s. næsta umf með úrtöku hoppið yfir 7. hverja l og í næsta skipti 6. hverja l o.s.frv – ATH: Í umf 2 í mynstri verður að hoppa yfir 2 fl í stað 1 þar sem fækka á lykkjum) = 16 l eftir. Heklið að lokum 1 umf með fl þar sem hoppað er yfir aðra hverja l = 8 l. Stykkið mælist nú ca 19-20 cm á hæðina. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær 8 l efst uppi, herðið að og festið. BARÐ: Heklið með Safran með heklunál nr 3 meðfram hinni hliðinni á ferningunum alveg eins og meðfram fyrri hliðinni, þ.e.a.s. 5 st í hvern af þeim stóru bogunum og 3 st í hvern af þeim litlu = 128 st. Barðið er heklað einungis með Safran þannig: UMFERÐ 2: Heklið 1 fl í hvern st, en í 8. hvern st eru heklaðar 2 fl (þ.e.a.s. aukið er út um 16 l) = 144 fl. UMFERÐ 3: Heklið 1 st í hverja fl. UMFERÐ 4: Heklið 1 fl í hvern st, en í 9. hvern st eru heklaðar 2 fl = 160 fl. UMFERÐ 5: Heklið 1 st í hverja fl. Haldið áfram að hekla 1 umf með st og 1 umf með fl til skiptis jafnframt sem aukið er út um 16 l í hvert skipti sem fl eru heklaðar, þar til 192 l eru í umf. Heklið nú st og fl í aðra hvora umf (en nú án útaukninga) – þar til barðið mælist ca 8 cm. Klippið frá og festið enda. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #summerharmonyhat eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 7 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 139-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.