April skrifaði:
Hello When doing the YO, does it count towards the pattern? Sometimes both before and after YOs are different colours / threads so those stitches seem to float freely.
22.03.2021 - 14:42DROPS Design svaraði:
Dear April, do you mean when increasing for raglan? the yarn overs = increases for raglan should be worked into pattern, ie depending on the stitch in pattern either in brown or beige. But you can work these yarn overs in brown, and then work them either with brown or beige (depending on the pattern) on next row/round. Happy knitting!
22.03.2021 - 15:37
Geir Olsen skrifaði:
Hei. jeg lurer på dette med rapporten på erme jeg, for står at jeg skal starte med 1 maske i rapporten med da er det jo for mange masker, å lurer veldig på hvordan jeg skal gå frem for å få mønsteret riktig.
11.09.2020 - 16:17DROPS Design svaraði:
Hei Geir. Når du har satt erm maskene på settpinnene og lagt opp 8 nye masker, så strikker du etter mønster M.4 1 gang i høyden og deretter M.5 1 gang i høyden. Du starter med første maske i M.4. God Fornøyelse!
14.09.2020 - 09:50
Marloes skrifaði:
Hallo, ik heb het garen besteld overeenkomstig het patroon. De beige kleur (nr 17) ziet er alleen zo donker uit, klopt dit wel?
11.01.2020 - 17:04DROPS Design svaraði:
Dag Marloes,
Voor vragen over het garen kun je het beste even contact opnemen met de winkel waar je het garen gekocht hebt. De kleur op de foto kan overigens altijd wat afwijken van de werkelijke garenkleur.
14.01.2020 - 20:43
Sandra skrifaði:
In der Anleitung sollen Maschen markiert werden und später vor und nach der Markierung zugenommen werden. Nehme ich jetzt vor und nach dieser Masche zu?
21.12.2019 - 13:26DROPS Design svaraði:
Liebe Sandra, ja genau, es wird wie beim TIPP ZUM AUFNEHMEN zugenommen, dh: 1 Umschlag vor der Masche mit der Markierung, die Masche mit der Markierung stricken und 1 Umschlag nach dieser Masche stricken = 2 Maschen/Zunahmen bei jeder Markierung. Viel Spaß beim stricken!
02.01.2020 - 09:33
Ingunn Sælid Sell skrifaði:
Hei - nå forstod jeg det: Det skal legges opp 8 masker under hvert erme - og siden man starter midt under det ene så legges det opp 4 i starten av omgangen og 4 på slutten. Da skal det gå bra :)
08.06.2019 - 18:06DROPS Design svaraði:
Hei Ingunn. Det stemmer! Så flott at du fant ut av det, God fornøyelse videre
12.06.2019 - 14:31
Ingunn Sælid Sell skrifaði:
Hei igjen! Beklager hvis jeg spør litt dumt, men jeg forstår fremdeles ikke: Man skal vel bare legge opp 4 masker under hver er, hva betyr de 8 maskene som skal legges opp i tillegg? Hvor skal de være? Mvh Ingunn
08.06.2019 - 17:52DROPS Design svaraði:
Hej Ingunn, jo du skal legge op 8 nye masker i hver side under hvert erme, både på ermerne og på bolen. God fornøjelse!
10.06.2019 - 13:29
Ingunn Sell skrifaði:
Hei! Jeg skal starte på bolen, og det står at man skal legge opp 4 masker til ermhull, 8 masker til ermhull og 4 masker til ermhull = totalt 112 masker. Her må vet være noe feil?\r\nMvh Ingunn.
03.06.2019 - 10:27DROPS Design svaraði:
Hei Ingunn. Maskene du legger opp her er maskene som vil være under armen. Maskene du satte på en tråd er maskene som blir selve ermet. God fornøyelse
03.06.2019 - 14:08
Giovanna skrifaði:
Buonasera mi trovo in questo punto ( Davanti + dietro = 96-108-124 (136-152) m. Proseguire in tondo sui ferri circolari (il giro ha inizio su un lato). Visto che l’ultimo giro termina al centro dietro, devo ripassare sulla metà dietro e chiudere invece prima della manica? Perché sono alle prima armi e non riesco proprio a capire
27.02.2019 - 22:21DROPS Design svaraði:
Buonasera Giovanna, alla fine della lavorazione dello sprone deve mettere in sospeso le maglie per le maniche e lavorare il corpo. Una volta che ha messo in sospeso le maglie per le maniche può inserire un segnapunti a lato e far partire il giro da lì. Buon lavoro!
27.02.2019 - 23:27
Giovanna skrifaði:
Ciao c’è una parte della spiegazione che non riesco a capire, ed è questa “ DAVANTI & DIETRO: Davanti + dietro = 96-108-124 (136-152) m. Proseguire in tondo sui ferri circolari (il giro ha inizio su un lato) “ . Il mio giro inizia sempre sul retro e non sul lato.. ma non riesco a capire dov’e l’errore.
26.02.2019 - 22:51DROPS Design svaraði:
Buongiorno Giovanna. Le istruzioni che ha seguito sono corrette, l'inizio del giro è al centro sul dietro. Quando però mette in attesa le maglie delle maniche, l'inizio del giro viene spostato su un lato. Buon lavoro!
27.02.2019 - 12:04
Synnøve Vea skrifaði:
Hvis det strikkes fram og tilbake på M1 så må garnet klippes av når garnet ikke blir med tilbake. Tungvint
03.02.2019 - 13:04
Litte William`s Body#littewilliamsbody |
|||||||
|
|||||||
Prjónuð samfella fyrir börn með lasakalínu og norrænu mynstri úr DROPS BabyMerino eða DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS Baby 21-32 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- SNÚIN LYKKJA: Prjónað er í aftari lykkjubogann í stað fremri. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju á undan og á eftir lykkju með prjónamerki með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir göt. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (á við um framstykki og bakstykki): Fækkið lykkjum frá réttu um 1 lykkju á eftir og á undan 1 kantlykkju í hvorri hlið þannig: Á eftir kantlykkju: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. Á undan kantlykkju: 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum frá röngu um 1 lykkju á eftir og á undan 1 kantlykkju í hvorri hlið þannig: Á eftir 1 kantlykkju: 2 lykkjur brugðið snúnar saman. Á undan 1 kantlykkju: 2 lykkjur brugðið saman. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (á við um ermi): Fækkið um 1 l hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, (prjónamerki), prjónið næstu 2 l slétt saman. MYNSTUR Á BERUSTYKKI: Sjá mynsturteikningu M.1-A.3. Prjónið fyrst M.1, M.2 og M.3 1 sinni á hæðina, síðan M.2 að auki 0-0-0 (1-1) sinnum = 25-25-25 (30-30) umf alls. MYNSTUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI/ERMI: Sjá mynsturteikningu M.4 og M.5. Prjónið fyrst M.4 og síðan M.5 1 sinni á hæðina. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SAMFELLA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka og síðan í hring. Prjónað er ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Fitjið upp 49-57-65 (73-81) l á hringprjóna nr 2 með litnum brúnn. Prjónið stroff fram og til baka (umf 1 = rétta) þannig: * 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*, prjónið síðustu l slétt. Þegar stroffið mælist ca 1 cm er næsta umf prjónuð frá röngu slétt – JAFNFRAMT er aukið út um 7-9-11 (13-15) l jafnt yfir í umf = 56-66-76 (86-96) l. Í næstu umf (= rétta) er skipt yfir á hringprjóna nr 2,5 og prjónað þannig: 1 l sl (= miðja að aftan), 7-9-12 (14-16) l sl (= hægra bakstykki), 1 l sl, setjið eitt prjónamerki í þessa l, 8-9-8 (9-10) l sl (= hægri ermi), 1 l sl, setjið eitt prjónamerki í þessa l, 20-24-30 (34-38) l sl (= framstykki), 1 l sl, setjið eitt prjónamerki í þessa l, 8-9-8 (9-10) l sl (= vinstri ermi), 1 l sl, setjið eitt prjónamerki í þessa l, 7-9-12 (14-16) l sl (= vinstra bakstykki), 1 l sl (= miðja að aftan) = alls 4 l með prjónamerki á undan laskalínu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Prjónið síðan sléttprjón – JAFNFRAMT er aukið út í næstu umf frá réttu 1 l hvoru megin við hverja l með prjónamerki = 8 nýjar l í hverri útaukningu. Endurtakið útaukningu frá réttu í annarri hverri umf alls 12-12-12 (13-15) sinnum, síðan í 4. hverri umf alls 2-3-4 (4-4) sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3-4-5 (5-6) cm frá uppfitjunarkanti er prjónað MYNSTUR Á BERUSTYKKI – lesið útskýringu að ofan. ATH: Nýjar l eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Þegar stykkið mælist 8-9-9 (10-10) cm frá uppfitjunarkanti eru fitjaðar upp 4 l í lok næstu umf frá röngu (= lykkjur neðst í opi í hálsmáli eru prjónaðar inn í mynstur) – Héðan er prjónað í hring. Þegar MYNSTUR Á BERUSTYKKI hefur verið prjónað til loka (öll útaukning á nú að vera lokið) eru 172-190-208 (226-252) l á prjóni. Framstykki = bakstykki = 48-54-62 (68-76) l. Setjið l á ermar og l með prjónamerki (38-41-42 (45-50) l fyrir hvorri ermi) á þráð. Nú skiptist stykkið, framstykki/bakstykki og ermar eru prjónaðar til loka fyrir sig. FRRAM- OG BAKSTYKKI: Framstykki + bakstykki = 96-108-124 (136-152) l. Prjónið áfram í hring á hringprjóna (umf byrjar í hlið). Í næstu umf er umf 1 prjónuð í M.4 þannig: Fitjið upp 4 l fyrir handveg, prjónið 48-54-62 (68-76) l (= framstykki), fitjið upp 8 nýjar l fyrir handveg, prjónið 48-54-62 (68-76) l (= bakstykki), fitjið upp 4 l fyrir handveg = alls 112-124-140 (152-168) l á prjóni. Í næstu umf (= umf 2 í M.4) er aukið út um 0-4-4 (8-8) l jafnt yfir = 112-128-144 (160-176) l. Haldið áfram með M.4 og síðan M.5 1 sinni á hæðina. Prjónið síðan sléttprjón með litnum brúnn þar til stykkið mælist 15-17-19 (21-23) cm frá handveg (þegar stykkið mælist ca 26-29-32 (35-38) cm alls). Nú skiptist stykkið og fram- og bakstykki er prjónað til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 56-64-72 (80-88) l. Prjónið nú fram og til baka (umferð 1 = rétta) í sléttprjóni og fækkið l fyrir opi fyrir fætur þannig: 1 l sl (= kantlykkja), fækkið um 1 l – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 að ofan, prjónið þar til 3 l eru eftir, fækkið um 1 l – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 að ofan, 1 l sl (= kantlykkja). Haldið áfram í sléttprjóni, endurtakið úrtöku í hverri umf frá réttu (= í annarri hverri umf) innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið alls 20-23-27 (30-34) sinnum = 16-18-18 (20-20) l eftir. Skiptið nú yfir á hringprjóna nr 2 og prjónið stroff (1 l sl, 1 l br) í 1½ cm, fellið LAUST af allar l. FRAMSTYKKI: = 56-64-72 (80-88) l. Prjónið síðan fram og til baka (umferð 1 = rétta) með sléttprjóni og fækkið l fyrir op fyrir fætur þannig: 1 l sl, fækkið um 1 l – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 að ofan, prjónið þar til 3 l eru eftir, fækkið um 1 l – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 að ofan, 1 l sl. Haldið áfram í sléttprjóni og endurtakið úrtöku í hverri umf innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið alls 6-6-8 (8-10) sinnum, síðan í hverri umf frá réttu (= í annarri hverri umf) alls 14-17-19 (22-24) sinnum = 16-18-18 (20-20) l eftir. Skiptið yfir á hringprjóna nr 2 og prjónið stroff (1 l sl, 1 l br). Í næstu umf frá réttu er fellt af fyrir 3 hnappagöt þannig: Prjónið 1 l , * sláið uppá prjóninn, prjónið næstu 2 l slétt saman, prjónið 4-5-5 (6-6) l *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 2 l slétt saman, prjónið síðustu l. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn. Þegar stroffið mælist ca 1½ cm fellið LAUST af allar l. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna ofan frá og niður. Setjið inn l af þræði á sokkaprjóna nr 2,5 = 38-41-42 (45-50) l, og fitjið upp 8 l mitt undir ermi = 46-49-50 (53-58) l. Setjið eitt prjónamerki á undan 1. l í umf og látið það fylgja með uppúr (byrjun umf er mitt undir ermi). Haldið áfram með M.4 og síðan M.5 (byrjið á 1. l í mynstureiningu í umf 1 í M.4). Þegar ermin mælist 2-3-3 (3-3) cm er fækkað um 1 l á undan og á eftir prjónamerki – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 að ofan. Endurtakið úrtöku með 1½-1½-2(2½-2½) cm millibili alls 7-7-7 (6-8) sinnum = 32-35-36 (41-42) l. Haldið áfram þar til ermin mælist 12-15-18 (20-23) cm frá handveg. Í næstu umf er fækkað um 0-1-0 (1-0) l = 32-34-36 (40-42) l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 2 og prjónið síðan stroff (1 l sl, 1 l br) í 3-3-3 (4-4) cm. Fellið LAUST af allar l. Prjónið hina ermina á sama hátt. HÁLSMÁL: Prjónið upp ca 21-25 l frá réttu meðfram opi á hægra bakstykki með litnum brúnn á sokkaprjóna nr 2. Prjónið stroff (1 l sl, 1 l br) fram og til baka í ca 1½ cm (= hægri kantur að framan, umferð 1 = ranga). Fellið laust af allar l. Endurtakið meðfram opi á vinstra bakstykki, en í 2. umf (= rétta) er fellt af fyrir 3 hnappagötum (1 hnappagat = sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l slétt saman) jafnt yfir á kant að framan. Þegar stroffið mælist ca 1½ cm fellið laust af allar l. Leggið kant að framan með hnappagötum ofan á hinn neðst í opi í hálsmáli og saumið í gegnum bæði lögin. OP FYRIR FÓT: Prjónið upp frá réttu ca 16 l frá 5 cm meðfram öðru opinu fyrir fót innan við 1 kantlykkju með litnum brúnn á hringprjóna nr 2, lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1. Í næstu umf (= ranga) er prjónað þannig: * 1 l br, 1 l sl *, endurtakið frá *-* og endið á 1 l br. Haldið áfram fram og til baka með stroff í 1 cm, fellið síðan laust af allar l. Endurtakið á hinu opinu. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í stroff neðst á bakstykki og í hægri kanti að framan í opi í hálsmáli. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #littewilliamsbody eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 21-32
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.