DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Litte William`s Body

Prjónuð samfella fyrir börn með lasakalínu og norrænu mynstri úr DROPS BabyMerino eða DROPS BabyAlpaca Silk

DROPS Baby 21-32
DROPS Design: Mynstur nr BM-037-by
Garnflokkur A
--------------------------------------------------------

Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio
150-150-200 (200-200) g litur nr 18, brúnn
50-50-50 (50-50) g litur nr 17, beige

Eða notið:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio
150-200-200 (200-200) g litur nr 5670, brúnn
50-50-50 (50-50) g litur nr 2110, beige

DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5 (60 cm) – eða þá stærð sem þarf til að 26 l x 34 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2 (60 cm) – fyrir stroff.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 – fyrir ermi.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2 – fyrir stroff.
DROPS PERLUTALA NR 521 (15 mm): 6 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

SNÚIN LYKKJA:
Prjónað er í aftari lykkjubogann í stað fremri.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 lykkju á undan og á eftir lykkju með prjónamerki með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir göt.

ÚRTAKA-1 (á við um framstykki og bakstykki):
Fækkið lykkjum frá réttu um 1 lykkju á eftir og á undan 1 kantlykkju í hvorri hlið þannig:
Á eftir kantlykkju: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir.
Á undan kantlykkju: 2 lykkjur slétt saman.
Fækkið lykkjum frá röngu um 1 lykkju á eftir og á undan 1 kantlykkju í hvorri hlið þannig:
Á eftir 1 kantlykkju: 2 lykkjur brugðið snúnar saman.
Á undan 1 kantlykkju: 2 lykkjur brugðið saman.

ÚRTAKA-2 (á við um ermi):
Fækkið um 1 l hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, (prjónamerki), prjónið næstu 2 l slétt saman.

MYNSTUR Á BERUSTYKKI:
Sjá mynsturteikningu M.1-A.3. Prjónið fyrst M.1, M.2 og M.3 1 sinni á hæðina, síðan M.2 að auki 0-0-0 (1-1) sinnum = 25-25-25 (30-30) umf alls.

MYNSTUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI/ERMI:
Sjá mynsturteikningu M.4 og M.5. Prjónið fyrst M.4 og síðan M.5 1 sinni á hæðina.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SAMFELLA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka og síðan í hring. Prjónað er ofan frá og niður.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 49-57-65 (73-81) l á hringprjóna nr 2 með litnum brúnn. Prjónið stroff fram og til baka (umf 1 = rétta) þannig: * 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*, prjónið síðustu l slétt. Þegar stroffið mælist ca 1 cm er næsta umf prjónuð frá röngu slétt – JAFNFRAMT er aukið út um 7-9-11 (13-15) l jafnt yfir í umf = 56-66-76 (86-96) l. Í næstu umf (= rétta) er skipt yfir á hringprjóna nr 2,5 og prjónað þannig: 1 l sl (= miðja að aftan), 7-9-12 (14-16) l sl (= hægra bakstykki), 1 l sl, setjið eitt prjónamerki í þessa l, 8-9-8 (9-10) l sl (= hægri ermi), 1 l sl, setjið eitt prjónamerki í þessa l, 20-24-30 (34-38) l sl (= framstykki), 1 l sl, setjið eitt prjónamerki í þessa l, 8-9-8 (9-10) l sl (= vinstri ermi), 1 l sl, setjið eitt prjónamerki í þessa l, 7-9-12 (14-16) l sl (= vinstra bakstykki), 1 l sl (= miðja að aftan) = alls 4 l með prjónamerki á undan laskalínu.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Prjónið síðan sléttprjón – JAFNFRAMT er aukið út í næstu umf frá réttu 1 l hvoru megin við hverja l með prjónamerki = 8 nýjar l í hverri útaukningu. Endurtakið útaukningu frá réttu í annarri hverri umf alls 12-12-12 (13-15) sinnum, síðan í 4. hverri umf alls 2-3-4 (4-4) sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3-4-5 (5-6) cm frá uppfitjunarkanti er prjónað MYNSTUR Á BERUSTYKKI – lesið útskýringu að ofan. ATH: Nýjar l eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Þegar stykkið mælist 8-9-9 (10-10) cm frá uppfitjunarkanti eru fitjaðar upp 4 l í lok næstu umf frá röngu (= lykkjur neðst í opi í hálsmáli eru prjónaðar inn í mynstur) – Héðan er prjónað í hring.
Þegar MYNSTUR Á BERUSTYKKI hefur verið prjónað til loka (öll útaukning á nú að vera lokið) eru 172-190-208 (226-252) l á prjóni. Framstykki = bakstykki = 48-54-62 (68-76) l. Setjið l á ermar og l með prjónamerki (38-41-42 (45-50) l fyrir hvorri ermi) á þráð. Nú skiptist stykkið, framstykki/bakstykki og ermar eru prjónaðar til loka fyrir sig.

FRRAM- OG BAKSTYKKI:
Framstykki + bakstykki = 96-108-124 (136-152) l. Prjónið áfram í hring á hringprjóna (umf byrjar í hlið). Í næstu umf er umf 1 prjónuð í M.4 þannig: Fitjið upp 4 l fyrir handveg, prjónið 48-54-62 (68-76) l (= framstykki), fitjið upp 8 nýjar l fyrir handveg, prjónið 48-54-62 (68-76) l (= bakstykki), fitjið upp 4 l fyrir handveg = alls 112-124-140 (152-168) l á prjóni. Í næstu umf (= umf 2 í M.4) er aukið út um 0-4-4 (8-8) l jafnt yfir = 112-128-144 (160-176) l. Haldið áfram með M.4 og síðan M.5 1 sinni á hæðina. Prjónið síðan sléttprjón með litnum brúnn þar til stykkið mælist 15-17-19 (21-23) cm frá handveg (þegar stykkið mælist ca 26-29-32 (35-38) cm alls). Nú skiptist stykkið og fram- og bakstykki er prjónað til loka fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 56-64-72 (80-88) l. Prjónið nú fram og til baka (umferð 1 = rétta) í sléttprjóni og fækkið l fyrir opi fyrir fætur þannig: 1 l sl (= kantlykkja), fækkið um 1 l – lesið ÚRTAKA-1 að ofan, prjónið þar til 3 l eru eftir, fækkið um 1 l – lesið ÚRTAKA-1 að ofan, 1 l sl (= kantlykkja). Haldið áfram í sléttprjóni, endurtakið úrtöku í hverri umf frá réttu (= í annarri hverri umf) innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið alls 20-23-27 (30-34) sinnum = 16-18-18 (20-20) l eftir. Skiptið nú yfir á hringprjóna nr 2 og prjónið stroff (1 l sl, 1 l br) í 1½ cm, fellið LAUST af allar l.

FRAMSTYKKI:
= 56-64-72 (80-88) l. Prjónið síðan fram og til baka (umferð 1 = rétta) með sléttprjóni og fækkið l fyrir op fyrir fætur þannig: 1 l sl, fækkið um 1 l – lesið ÚRTAKA-1 að ofan, prjónið þar til 3 l eru eftir, fækkið um 1 l – ÚRTAKA-1 að ofan, 1 l sl. Haldið áfram í sléttprjóni og endurtakið úrtöku í hverri umf innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið alls 6-6-8 (8-10) sinnum, síðan í hverri umf frá réttu (= í annarri hverri umf) alls 14-17-19 (22-24) sinnum = 16-18-18 (20-20) l eftir. Skiptið yfir á hringprjóna nr 2 og prjónið stroff (1 l sl, 1 l br). Í næstu umf frá réttu er fellt af fyrir 3 hnappagöt þannig: Prjónið 1 l , * sláið uppá prjóninn, prjónið næstu 2 l slétt saman, prjónið 4-5-5 (6-6) l *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 2 l slétt saman, prjónið síðustu l. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn. Þegar stroffið mælist ca 1½ cm fellið LAUST af allar l.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna ofan frá og niður. Setjið inn l af þræði á sokkaprjóna nr 2,5 = 38-41-42 (45-50) l, og fitjið upp 8 l mitt undir ermi = 46-49-50 (53-58) l. Setjið eitt prjónamerki á undan 1. l í umf og látið það fylgja með uppúr (byrjun umf er mitt undir ermi). Haldið áfram með M.4 og síðan M.5 (byrjið á 1. l í mynstureiningu í umf 1 í M.4). Þegar ermin mælist 2-3-3 (3-3) cm er fækkað um 1 l á undan og á eftir prjónamerki – lesið ÚRTAKA-2 að ofan. Endurtakið úrtöku með 1½-1½-2(2½-2½) cm millibili alls 7-7-7 (6-8) sinnum = 32-35-36 (41-42) l. Haldið áfram þar til ermin mælist 12-15-18 (20-23) cm frá handveg. Í næstu umf er fækkað um 0-1-0 (1-0) l = 32-34-36 (40-42) l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 2 og prjónið síðan stroff (1 l sl, 1 l br) í 3-3-3 (4-4) cm. Fellið LAUST af allar l.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp ca 21-25 l frá réttu meðfram opi á hægra bakstykki með litnum brúnn á sokkaprjóna nr 2. Prjónið stroff (1 l sl, 1 l br) fram og til baka í ca 1½ cm (= hægri kantur að framan, umferð 1 = ranga). Fellið laust af allar l. Endurtakið meðfram opi á vinstra bakstykki, en í 2. umf (= rétta) er fellt af fyrir 3 hnappagötum (1 hnappagat = sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l slétt saman) jafnt yfir á kant að framan. Þegar stroffið mælist ca 1½ cm fellið laust af allar l. Leggið kant að framan með hnappagötum ofan á hinn neðst í opi í hálsmáli og saumið í gegnum bæði lögin.

OP FYRIR FÓT:
Prjónið upp frá réttu ca 16 l frá 5 cm meðfram öðru opinu fyrir fót innan við 1 kantlykkju með litnum brúnn á hringprjóna nr 2, lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1. Í næstu umf (= ranga) er prjónað þannig: * 1 l br, 1 l sl *, endurtakið frá *-* og endið á 1 l br. Haldið áfram fram og til baka með stroff í 1 cm, fellið síðan laust af allar l. Endurtakið á hinu opinu.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í stroff neðst á bakstykki og í hægri kanti að framan í opi í hálsmáli.

Mynstur

symbols = brúnn
symbols = beige
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 21-32

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (43)

country flag Madelaine wrote:

Strikke minste oppskrift, men det ser ut å bli på tok for smått med kun 49 m hals, og etter ökning 56. får kun 9 cm mellom to raglanfellinger frem överst og ikke 12. Har dere sjekket at det stemmer?

09.11.2018 - 00:30

Cecilia wrote:

Hola, estoy tejiendo el patrón y tengo una duda, cuando se cierra el círculo del tejido? o se teje con las agujas circulares con el tejido abierto? porque me señala derecho y reves del tejido, y en circular es siempre derecho. Gracias!

23.09.2018 - 16:21

DROPS Design answered:

Hola Cecilia. Este jersey primero se trabaja de ida y vuelta y después en redondo. Se trabaja siempre con agujas circulares. Cuando la pieza mida 8-9-9 (10-10) cm a partir de la orilla de montaje hay que tejer la pieza en redondo.

30.09.2018 - 18:39

country flag Victoria wrote:

Yoke says to k last stitch on first row but does that stitch always get knit on every row? Not sure why?

13.03.2018 - 23:16

DROPS Design answered:

Dear Victoria, that stitch is the edge stitch. The edge stitches on bot the beginning and at the end of the rows are always knitted (on each row). This gives a definite egde to the piece that is easy to handle, easy to pick up stitches or sewn together later on. Happy Knitting!

17.03.2018 - 13:25

country flag Liisa Kaarla wrote:

Hei, Jeg strikker ikke til vanlig og lurte på hvordan man finner ut antall masker man skal legge opp i denne oppskriften hvis man ikke ville strikke den som body men som genser?

27.07.2015 - 10:32

DROPS Design answered:

Hej Liisa, Du strikker opskriften ovenfra og ned, så det er bare at afslutte med en kant når du har den længde du vil have. God fornøjelse!

28.07.2015 - 13:50

country flag Ina wrote:

Jeg lurer også på det med antall masker i halsen. Jeg strikker str 12/18mnd. Det blir for trang for min gutt iallefall, kanskje kan jeg ta de 6 maskene som skal legges opp før en starter med glattstrikk med i ribbekanten?

08.11.2014 - 13:15

DROPS Design answered:

Hej Ina, da de første pinde strikkes frem og tilbage, samtidig som du tager ud og da du bagefter strikker yderligere en kant på, så skal halsen være stor nok. God fornøjelse!

25.11.2014 - 09:38

country flag Anikjl wrote:

Dommage qu on ne peut le faire avec les aiguilles normales!!!

15.10.2014 - 10:09

DROPS Design answered:

Bonjour Anikjl, vous pouvez recompter chaque pièce pour la tricoter en allers-retours, ou bien vous aider des différents tutoriels vidéo pour apprendre à tricoter en rond. Bon tricot!

15.10.2014 - 10:35

country flag Sanne wrote:

Kan det virkelig passe, at der kun skal være 47 masker rundt i halsen i str. 1-3 måneder? Synes den virker meget lille, har lige strikket en anden body i samme str., som har hele 80 masker i halsen.

13.10.2014 - 23:00

DROPS Design answered:

Hej Sanne, Det lyder som om det er for lidt... Vi skal se på den så kommer vi tilbage med en rettelse! Takf for information!

23.10.2014 - 10:42

country flag Morgane wrote:

There are not enough stitches on my sleeves to do complete repetitions of the charted pattern. How do I maintain the pattern in the sleeves?

26.09.2014 - 22:53

DROPS Design answered:

Dear Morgane, you are correct, maintain the pattern in the sleeves - nber of sts will not fit pattern because of dec. Happy knitting!

29.09.2014 - 09:18

Mary wrote:

Vorderteil: 3 Knopflöcher einstriceken!

24.09.2014 - 20:19

country flag Daniela wrote:

Eine Frage zur Öffnung im Schritt. Bleibt dieser offen? Wird zusammengenäht? Oder gehören - wie ich es eher vermute noch drei der 6 Knöpfe hier angenäht? Dann jedoch die Knopflöcher nicht vergessen...

24.09.2014 - 13:48

DROPS Design answered:

Liebe Daniela, Sie arbeiten 2 x 3 Knopflöcher ein, beschrieben unter "Vorderteil" (das ist dann die Öffnung unten) und "Öffnung am Rücken".

24.09.2014 - 23:38