Kathryn Golec skrifaði:
How do i find the size ie s m l. i am size 16 english so which size from s-xxxl would be the one i needed? love the wool cant wait to start clicking thankyou.
14.01.2012 - 11:51Kathryn Golec skrifaði:
How do i find the size ie s m l. i am size 16 english so which size from s-xxxl would be the one i needed? love the wool cant wait to start clicking thankyou.
14.01.2012 - 11:51
DROPS Design skrifaði:
The charts are corrected. Thank you for your help.
14.12.2011 - 08:58
Sabine skrifaði:
Im Diagramm 4b muss in der 8. Reihe die 24 Masche rot sein. In M5 muss in der 17. Reihe die 6. Masche weiß sein. 4A, 4B und 4C ergeben mE den Fußrücken, und nicht die Fersenmaschen.
13.12.2011 - 15:13
Mona Krogstrup Olsen skrifaði:
Fin opskrift - der er dog 1 fejl i diagram 4B= række 8 maske nr. 24 skal være rød. Ligeledes en fejl i diagram 5= række 17 maske nr. 6 skal være natur og så er det meget pænere hvis sidste række i m. 5 er som i m.6
13.12.2011 - 10:08
DROPS Design skrifaði:
Now the chart is in place.
06.12.2011 - 11:38
Line Huth skrifaði:
Det var en fin oppskrift,men det mangler M1,2 og 3
06.12.2011 - 11:31
Minna skrifaði:
Mallineuleet M1-M3 puuttuvat ohjeesta . Mistähän ne voisi löytää ?
06.12.2011 - 11:16
Britt Edvardsson skrifaði:
Jag saknar mönster för 1, 2 och 3. Var hittar jag dem?
06.12.2011 - 10:34
Hilde Skofsrud skrifaði:
Hvor er mønster 1,2 og 3
06.12.2011 - 09:58
Christmas Fable#christmasfablesocks |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónaðir sokkar með mynstri úr DROPS Fabel. Stærð 35-43. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-789 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Mynsturteikning M.1 til M.6. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. HÆLÚRTAKA: Hælúrtaka er prjónuð í sléttprjóni þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 9-9-9 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 9-9-9 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 8-8-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 8-8-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku á sama hátt með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 15-15-15 lykkjur eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. SOKKUR: Fitjið upp 66-66-72 l á sokkaprjóna með litnum rauður DROPS Fabel. Prjónið 1 umf sl, prjónið síðan 4 umf stroff = 1 l sl, 1 l br. Prjónið síðan M.1 yfir allar l. Þegar M.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið M.2 JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 72 l í öllum stærðum í fyrstu umf í M.2. Þegar M.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið M.3 JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 66-72-72 l í fyrstu umf í M.3.1 Þegar M.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónuð 1 umf með litnum natur yfir allar l. Prjónið nú þannig: M.4A (= 3 l), M.4B (= 25-31-31 l), M.4C (= 3 l), M.5 (= 35 l). ATH! Í umf 8 og umf 16 er fækkað um 1 l hvoru megin við M.5 eins og útskýrt er í mynstri = 62-68-68 l. Þegar M.5 hefur verið prjónað 1 sinni til loka á hæðina eru settar 31-37-37 l (= M.4A, B og C) á þráð = 31 l fyrir hæl. Prjónið M.6 yfir hæl-l í 5-5½-6 cm, setjið 1 prjónamerki, fækkið síðan lykkjum fyrir hæl – sjá HÆLÚRTAKA – haldið áfram með mynstur M.6. Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 12-13-14 l hvoru megin við hæl (prjónið upp til skiptis með litnum rauður og natur þannig að það passi inn í M.6) og 31-37-37 l af þræði eru settar til baka á prjóninn = 70-78-80 l. Þær 31-37-37 l ofan á fæti halda áfram með M.4 eins og áður, l undir fæti eru prjónaðar með M.6. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað hvoru megin við M.4 (l ofan á fæti). Prjónið 2 l á undan M.4A slétt saman og 2 l á eftir M.4C snúnar slétt saman (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri), endurtakið í annarri hverri umf alls 6 sinnum = 58-66-68 l. Haldið áfram með mynstur M.4 og M.6 þar til stykkið mælist 17-18-21 cm frá prjónamerki á hæl (= 5-6-6 cm eftir). Prjónið nú þannig: M.4A, M.6 yfir næstu 25-31-31 l, M.4C, M.6 yfir næstu 27-29-31 l. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við M.4A/C. Fækkið lykkjum á undan M.4A/C þannig: prjónið 2 síðustu l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir M.4A/C þannig: takið fyrstu l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið lykkjum í annarri hverri umf alls 6-9-9 sinnum og síðan í hverri umf alls 4-1-1 sinnum = 18-26-28 l eftir. Í næstu umf eru allar l prjónaðar 2 og 2 slétt saman með litnum rauður = 9-13-14 l. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #christmasfablesocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-789
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.