Lieke skrifaði:
Waarom wordt er geminderd na de boord, het is ook een behoorlijk aantal steken ook?
29.03.2019 - 23:32DROPS Design svaraði:
Dag Lieke,
Het ontwerp van dit model is zo dat de boord ongeveer dezelfde wijdte heeft van het kledingstuk. Doordat de boordsteek samentrekt in de breedte wordt er gemeerderd vlak na de boordsteek.
31.03.2019 - 11:35
Hilde skrifaði:
Dank voor uw antwoord maar ik bedoelde juist dat meestal het boord juist met opzet iets strakker is maar in dit model niet. Ik ga toch eerst maar breien zonder extra steken, verder is het namelijk precies het model dat ik zocht.
20.02.2019 - 17:26
Hilde skrifaði:
Hartelijk dank voor uw antwoord. Ik heb nog een vraag: waarom worden in dit model zoveel extra steken voor het boord opgezet en daarna afgekant? Ik ben bang dat het gaat lubberen.
16.02.2019 - 11:28DROPS Design svaraði:
Dag Hilde,
Het ontwerp van dit model is zo dat de boord ongeveer dezelfde wijdte heeft van het kledingstuk. Door de boordsteek trekt de boord samen in de breedte en daarom wordt er gemeerderd vlak na de boordsteek.
17.02.2019 - 19:27
Hilde skrifaði:
Ik wil deze trui liever breien met boordpatroon 2r 2a. Moet ik dan hetzelfde aantal steken opzetten en minderen bij de overgang naar tricotsteek?
11.02.2019 - 12:39DROPS Design svaraði:
Dag Hilde,
Je zet dan een meervoud van 4 steken op en je mindert inderdaad steken in de eerste naald tricotsteek (net als in het patroon)
13.02.2019 - 11:20
Marina skrifaði:
Quanti gomitoli o grammi servono per la taglia xxl? Grazie.
03.12.2018 - 11:50DROPS Design svaraði:
Buongiorno Marina. Trova l'indicazione del filato necessario, all'inizio del testo. Per la taglia XXL, servono 850 g di Lima. Buon lavoro!
03.12.2018 - 11:54
Asli skrifaði:
Hi, I'm knitting both sleeves in the flat . I have reached the double seed section: Can you help me how to translate this to the flat version? "AT THE SAME TIME bind off 6 sts mid under sleeve (bind off 3 sts on each side of marker)." How do I bind off mid under sleeve while in the flat? Thanks!
14.05.2018 - 21:41DROPS Design svaraði:
Dear Asli, bind off now 3 sts at the beg of next 2 rows (= 3 sts at the beg of RS row + 3 sts at the beg of WS row) and continue now as explained for your size (sleeve cap is worked back and forth in the pattern). Happy knitting!
15.05.2018 - 08:32Nada skrifaði:
Hi there,the begining of the sleeve is with circular needle as the begining of the body? when sleeve reach75 cm i will continue with circular or double pointed needle?
02.02.2018 - 13:47DROPS Design svaraði:
Dear Nada, sleeves are worked first in the round with double pointed needles then back and foth on double pointed needles or on circular needle (your choice). Happy knitting!
02.02.2018 - 15:27
Ivan Bentzen skrifaði:
Hej, i opskriften angiver I at dobbelt perlestrik består af 1 ret, 1 vrang, etc., men så vidt jeg kan se består dobbelt perlestrik af 2 masker af gangen?
23.10.2017 - 06:44DROPS Design svaraði:
Hei Ivan. I denne oppskriften er det dobbelt perlestrikk i HØYDEN, se beskrivelsen i oppskriften. (Dobbelt perlestrikk kan også være i bredden og både i bredden og høyden). God Fornøysele!
23.10.2017 - 14:10
Rocío skrifaði:
Buenas tardes: He hecho otros jerseys de hombre y, la talla M mida de contorno en torno a 50cm., ¿cambiar talla en este patrón? ¿debo hacer la talla XL? En la foto parece que queda holgado. Estoy confunida, ¿puede usted Ayudarme? GRacias☺
04.11.2016 - 17:52DROPS Design svaraði:
Hola Rocio. Las medidas dependen del modelo de jersey. Este modelo es más ajustado, pero, por ejemplo, el 134/5 es un modelo más amplio y la medida del pecho para la talla M es de 50 cm.
09.11.2016 - 19:30Kim Angus skrifaði:
Hi, What does at the beg of each row each side mean? Does it mean at the beg and end of a row or just the beg of each row? Each side I interrupt as the front then the back however it could mean each side of the sleeve (the edges) Thanks Kim
07.08.2016 - 14:46DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Angus, at the beg of row in each side means at the beg of next row from RS + at the beg of next row from WS, ie when you are casting off 2 sts 1 time on each side, you will have to cast off 2 sts at the beg of next row from RS, turn and cast off 2 sts at the beg of next row from WS (= 2 sts cast off in each side). Happy knitting!
08.08.2016 - 09:57
Twilight#twilightsweater |
|
|
|
|
Prjónuð peysa fyrir herra í perluprjóni úr DROPS Lima eða DROPS Loves You III. Stærð S - XXXL.
DROPS 135-39 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- TVÖFALT PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1 (= frá réttu): *Prjónið 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2 (= frá röngu): Prjónið sl yfir sl og br yfir br. UMFERÐ 3 (= frá réttu): *Prjónið 1 l br, 1 l sl*, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 4 (= frá röngu): Prjónið br yfir br og sl yfir sl. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 213-234-255-288-318-351 l á hringprjóna nr 3,5 með Lima eða Love You III. Prjónið stroff 1 l sl, 2 l br. Þegar stykkið mælist 4 cm er prjónuð 1 umf í sléttprjóni JAFNFRAMT er fækkað um 53-58-63-72-78-87 l jafnt yfir (lykkjum er fækkað með því að prjóna ca 3. og 4. hverja l slétt saman) = 160-176-192-216-240-264 l. Setjið tvö prjónamerki í stykkið, í byrjun umf og eftir 80-88-96-108-120-132 l (merkir hliðar). Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið nú hringinn í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 15 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan, svo ekki myndist gat). Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 25 cm = 168-184-200-224-248-272 l. Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm er prjónað TVÖFALT PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – JAFNFRAMT eru felldar af 6 l í hvorri hlið fyrir handveg (felldar eru af 3 l hvoru megin við hvort prjónamerki). Prjónið nú hvort stykkið til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 78-86-94-106-118-130 l (umf 1 = ranga). Haldið áfram með tvöfalt perluprjón JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun umf í hvorri hlið þannig: 2 l 0-1-2-4-6-8 sinnum og 1 l 1-2-3-4-5-6 sinnum = 76-78-80-82-84-86 l. Þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm er fellt af miðju 24-26-28-30-32-34 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af 1 l í næstu umf frá hálsi (fellt er af með því að prjóna 2 síðustu l við háls saman) = 25 l eftir á öxl í öllum stærðum. Fellið af þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm. FRAMSTYKKI: = 78-86-94-106-118-130 l (umf 1 = ranga). Prjónið tvöfalt perluprjón og fellið af fyrir handveg á sama hátt og á bakstykki, JAFNFRAMT þegar prjónað er 5 cm með perluprjóni á hæðina eru felldar af miðju 2 l fyrir hálsmáli í næstu umf frá réttu og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af með því að prjóna 2 síðustu l við hálsmál saman (prjónið þær saman svo að mynstrið passi) í byrjun hverrar umf frá hálsi alls 12-13-14-15-16-17 sinnum. Þegar úrtöku er lokið eru 25 l eftir á öxl í öllum stærðum. Fellið af þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 63-66-69-72-75-78 l á sokkaprjóna nr 3,5 með Lima eða Love You III. Prjónið stroff 1 l sl, 2 l br. Þegar stykkið mælist 4 cm eru prjónuð 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 15-16-17-18-19-20 l jafnt yfir (lykkjum er fækkað með því að prjóna ca 3. og 4. hverja l slétt saman) = 48-50-52-54-56-58 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4. Setjið prjónamerki í byrjun umf. Prjónið nú sléttprjón. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið útaukningu með 5-4½-3½-3-2½-2½ cm millibili alls 10-11-13-15-17-18 sinnum = 68-72-78-84-90-94 l. Þegar stykkið mælist 57-57-56-56-54-53 cm (ATH! Styttri mál í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla) prjónið tvöfalt perluprjón yfir allar l JAFNFRAMT eru felldar af 6 l við miðju undir ermi (felldar eru af 3 l hvoru megin við prjónamerki). Prjónið nú stykkið fram og til baka á hringprjóna. Haldið áfram að fella af fyrir handveg í byrjun umf í hvorri hlið þannig: 2 l 3-3-4-4-4-3 sinnum og síðan 1 l 3-4-4-5-8-13 sinnum. Fellið nú af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 64-65-65-66-66-67 cm. Fellið af 3 l 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af. Stykkið mælist 65-66-66-67-67-68 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma. Saumið ermar í. HÁLSMÁL: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju framan í hálsmáli. Prjónið upp 92-98-104-110-118-124 l í kringum hálsmál á hringprjóna nr 3,5 með byrjun við miðju að framan. Prjónið 1 umf slétt frá röngu JAFNFRAMT er aukið út um 37-37-40-43-47-50 l jafnt yfir (aukið er út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á milli ca 3. og 4. hverrar l og nokkrum sinnum aðeins þéttar. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn). Í næstu umf frá réttu er prjónað stroff þannig: Prjónið 1 l garðaprjón, * 1 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir, endið með 1 l sl og 1 l í garðaprjóni. Haldið áfram að fella laust af með sl yfir sl og br yfir br þegar stroffið mælist 3,5 cm. Leggið hægra stykki í kanti í hálsmáli yfir vinstra stykki í kanti í hálsmáli og saumið bæði stykkin niður neðst með nokkrum smáum sporum. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #twilightsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 12 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 135-39
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.