DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8624.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 135-35
DROPS Design: Mynstur nr U-647
Garnflokkur B
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
600-650-700-750-850-900 gr litur nr 54, beige
50-50-50-50-100-100 gr litur nr 01, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) nr 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) nr 3 – fyrir stroff

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8624.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 – mynstrið er prjónað í sléttprjóni og mynsturteikningin sýnir 1 mynstureiningu af mynstri.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 184-208-224-248-264-288 l á hringprjóna nr 3 með litnum beige DROPS Karisma.
Prjónið stroff = 5 l sl, 3 l br í 5 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið 1 umf slétt jafnframt er fækkað er um 10-14-10-14-10-14 l jafnt yfir = 174-194-214-234-254-274 l. Setjið prjónamerki í byrjun umf og 1 prjónamerki eftir 87-97-107-117-127-137 l (þau merkja hliðar). Haldið áfram í sléttprjóni.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 15 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerkin. Endurtakið útaukningu með 8 cm millibili alls 4 sinnum = 190-210-230-250-270-290 l. Þegar stykkið mælist 41-43-44-46-47-49 cm er prjónuð mynsturteikning M.1 – byrjið á lykkju merktri með ör fyrir þína stærð, byrjið aftur við sömu ör þegar þú kemur að prjónamerki í hlið svo að mynstrið verði eins bæði á fram- og bakstykki með 1 stjörnu fyrir miðju. Þegar stykkið mælist 46-47-48-49-50-51 cm, fellið af 8 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. 4 l hvoru megin við bæði prjónamerkin). Fram- og bakstykki eru nú prjónuð til loka fyrir sig.

FRAMSTYKKI:
= 87-97-107-117-127-137 l. Haldið áfram með M.1 til loka mynsturs, prjónið nú áfram með litnum beige. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun hverrar umf í hvorri hlið: 3 l 0-0-1-1-2-3 sinnum, 2 l 0-2-2-3-3-4 sinnum og 1 l 2-2-2-4-5-4 sinnum = 83-85-89-91-93-95 l eftir á prjóni.
Stykkið mælist 59-61-63-65-67-69 cm, setjið miðju 21-21-23-23-25-25 l á þráð fyrir hálsmáli. Hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig – JAFNFRAMT er fellt af í hverri umf fyrir hálsmáli: 2 l 2 sinnum og 1 l 3 sinnum = 24-25-26-27-27-28 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm.

BAKSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og framstykki, en fellið ekki af fyrir hálsmáli fyrr en stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. Fellið af miðju 33-33-35-35-37-37 l af. Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig – JAFNFRAMT er felld af 1 l í næstu umf frá hálsmáli = 24-25-26-27-27-28 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 48-56-56-56-56-64 l á sokkaprjóna nr 3 með litnum beige DROPS Karisma. Prjónið stroff = 5 l sl, 3 l br 6 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og haldið áfram í sléttprjóni. Setjið prjónamerki við miðju undir ermi. Þegar stykkið mælist 10 cm, aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið útaukningu með 8-9-7-6-5-6 umf millibili alls 15-13-15-17-19-17 sinnum = 78-82-86-90-94-98 l. Þegar stykkið mælist 54-53-52-51-50-49 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla) fellið af 8 l við miðju undir ermi. Prjónið nú stykkið til loka fram og til baka - JAFNFRAMT fellið af fyrir handveg í byrjun hverrar umf í hvorri hlið: 2 l 3 sinnum og 1 l 3-5-6-7-9-10 sinnum, fellið af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 61 cm, fellið nú af 4 l 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær l sem eftir eru, stykkið mælist ca 62 cm í öllum stærðum.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma og saumið ermar í.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp ca 85 til 95 l kringum hálsmál (meðtaldar eru lykkjur af þræði að framan) á stutta hringprjóna nr 4 með litnum beige DROPS Karisma.
Prjónið 1 umf brugðið síðan er prjónuð 1 umf slétt jafnframt er aukið út jafnt yfir til 96-96-104-104-112-112 l. Haldið áfram með stroff = 5 l sl, 3 l br í ca 4 cm, fellið af með sl yfir sl og br yfir br.

Mynstur

symbols = litur beige
symbols = litur natur
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 135-35

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (48)

country flag Marijke wrote:

Beste Dropsmedewerker,\\r\\nIk ben eigenaar van een kleine webwinkel en verkoop babykleertjes. De meeste truitjes en vestjes heb ik zelf gegenereerd dmv een app. Maar bv. jurkjes kan ik daar niet mee maken. Alles wat ik verkoop is handgemaakt en uniek, dwz maar 1 product in die kleur en die maat. Graag zou ik af en toe gebruikwillen maken van dropspatronen. Mijn vraag is: geven jullie mij toestemming hiervoor? Ik kijk uit naar uw antwoord. Met vr. Gr. Marijke Geerlings

20.07.2023 - 15:18

country flag Diane wrote:

Bonjour, je tricote le eveningstar, u647. Je ne comprends pas : Lorsque on dit tricoter devant et dos séparément, je ne peux plus me servir des aiguilles circulaires ? Car si je met en attente le dos par exemple pour tricoter devant, je n' ai plus la possibilité de tricoter en circulaire. Merci !

30.11.2020 - 22:11

DROPS Design answered:

Bonjour Diane, quand vous divisez l'ouvrage pour les emmanchures, vous ne tricotez effectivement plus en rond, mais vous pouvez continuer à tricoter sur l'aiguille circulaire, en allers et retours (cf vidéo) en mettant la moitié des mailles en attente sur une autre aiguille/un fil/un arrêt de mailles. Quand le devant (par ex) sera terminé, vous reprendrez les mailles du dos pour le terminer et vous pourrez ensuite assembler les épaules comme pour un pull "classique". Bon tricot!

01.12.2020 - 09:22

country flag Nicole wrote:

Et ma laine est Mérinos extra fine. Merci

18.09.2020 - 17:41

country flag Nicole wrote:

Bonjour je me prépare à faire le pull DROPS design : Modèle n° U-647. Le tour de poitrine de mon fils est 102cm. Je prenais le modèle Médium. Est-ce que ça sera correcte. J'ai fais mon échantillon et j'ai bien 10X10 cm. Merci de votre aide

18.09.2020 - 17:39

DROPS Design answered:

Bonjour Nicole, mesurez un pull qu'il aime pour vérifier les mesures et ajuster la taille - attention à tricoter Merino Extra Fine comme il faut (plutôt serrée si besoin - cf nuancier), lavez votre échantillon et vérifiez les mesures si besoin. Votre magasin DROPS saura vous assister. Bon tricot!

21.09.2020 - 15:55

country flag Nicole wrote:

Est-ce qu'il est possible de commencer le patron par le haut plutôt que par le bas? Je suis plus à l'aise en commençant par de haut en bas. Si ça se fait qu'est que j'ai à changer pour que ça fonctionne?

04.09.2020 - 15:32

country flag Nicole wrote:

Merci pour votre réponse!

04.09.2020 - 15:29

country flag Nicole wrote:

Bonjour, je fais le modèle DROPS Design: Modell nr U-647 un pull pour homme taille M je suis novice dans le jacquard. Quand je suis rendue au diagramme M.1 je ne comprends pas comment commencer ce diagramme. J'ai déjà fait un pull de femme avec jacquard et je commençais le diagramme complètement à droite mais là le M est complètement à gauche et ça dit d'aller à la flèche de notre taille et je ne sais pas du tout comment commencer le diagramme. Merci de m'aider!

29.08.2020 - 04:17

DROPS Design answered:

Bonjour Nicole, commencez le diagramme sur l'endroit par la maille avec la flèche et lisez vers la gauche = 2 mailles en taille M, puis reprenez le diagramme de droite à gauche et répétez 5 fois les 20 mailles de M.1, tricotez maintenant les 3 premières mailles = vous avez tricoté la moitié des mailles = 105 m. Recommencez encore une fois de la même façon (le diagramme ne tombe pas juste sur les côtés mais le motif est ainsi centré). Bon tricot!

31.08.2020 - 10:50

country flag Christa Kujawa-Hüsch wrote:

Guten morgen ,ich habe den Pullover fast fertig gestrickt und ich bin begeistert . Jetzt weiss ich nicht ob ich den Pullover ganz fertig ist ,feucht aufbügeln soll ,damit das Muster noch schöner rauskommt ,oder mache ich da was falsch ?

09.07.2020 - 10:17

DROPS Design answered:

Liebe Frau Kujawa-Hüsch, Sie können auch einfach den fertigen Pullover auf einer geeigneten Unterlage spannen, anfeuchten (z.B. mit einer Sprühflasche für Blumen) und trocknen lassen, oder auch einfach mal waschen - lesen Sie die Banderole sowie diese Tipps. Viel Spaß beim stricken!

09.07.2020 - 11:32

country flag Florence wrote:

Merci beaucoup pour votre réponse !

09.03.2020 - 15:31

country flag Florence wrote:

Bonjour, pouvez-vous me dire combien de fois il faut répéter la diminution de 2 m en haut de la manche, et combien il doit rester de mailles à la fin ? Je tricote la taille XXXL. Bien cordialement.

07.03.2020 - 09:30

DROPS Design answered:

Bonjour Florence, le nombre de mailles restantes va dépendre du nombre de fois où vous allez rabattre 2 mailles de chaque côté, autrement dit, cela va dépendre de votre tension en hauteur, veillez juste à bien rabattre autant de fois en début de rang sur l'endroit et en début de rang sur l'envers jusqu'à ce que la manche mesure 61 cm. Bon tricot!

09.03.2020 - 09:56