DROPS Design skrifaði:
Husk at sokken strikkes fra skaften og ned og diagrammet strikkes nedenfra opp.
08.01.2012 - 16:34
Marit Osaze skrifaði:
Ser jeg helt feil.... eller er diagrammene opp ned i forhold til bildet? :)
07.01.2012 - 10:56
DROPS Design skrifaði:
Nei, det er bare designere som har velgt det slik.
23.11.2011 - 09:15
Astrid skrifaði:
Er det en grunn til at de øverste "stjernene" i M.4 er forskjøvet en maske til siden i forhold til de nederste?
22.11.2011 - 19:55
Martina Schur skrifaði:
Bei der Anleitung für den Kragen komme ich insgesamt nur auf 15 Maschen und nicht auf 21 bei der Zunahme 2M x2, 1M x10 und 1M x1 :-8 Habe ich da etwas falsch verstanden?
13.09.2011 - 17:36
Astrid skrifaði:
Hvor er genseren som passer til strømpene? Jeg har ventet på oppskriften lenge og hadde gledet meg til å strikke den!
12.07.2011 - 14:29
Margarita skrifaði:
Kor er det blitt av genseren som passar til sokkane? Hadde så lyst til å strikke den.
12.07.2011 - 09:49Marisa skrifaði:
Preciosas medias con una combinación de guardas y colores muy delicados. Me encantan! Marisa de Argentina
10.07.2011 - 21:53
Camilla skrifaði:
Jättefina! Fint mönster i härlig färg. Vill sticka dom.
28.06.2011 - 18:22
Margarita skrifaði:
Dekorativt og varmt til kalde haustdagar. Med matchande genser må dette bli flott.
23.06.2011 - 08:35
Denver#denversocks |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónaðir sokkar fyrir dömur og herra með norrænu mynstri úr DROPS Karisma. Stærð 35 - 46.
DROPS 135-44 |
||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-7-8-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-7-8-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-6-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-6-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku á sama hátt með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 12-14-14-14 lykkjur eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. SOKKUR MEÐ BYLGJULAGA KANTI: Fitjið upp 128-128-136-136 l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum natur DROPS Karisma. Prjónið M.1, eftir M.1 eru 64-64-68-68 l á prjóni. Haldið áfram með 2 cm stroff = 2 l sl / 2 l br. SOKKUR ÁN BYLGJULAGA KANTI: Fitjið upp 64-64-68-68 l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum natur DROPS Karisma. Prjónið stroff = 2 l sl / 2 l br í 4 cm. ALLIR SOKKAR: Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5 og prjónið nú 1 umf sléttprjón jafnframt er fækkað um 4-4-8-8 l jafnt yfir = 60 l. Haldið áfram með M.2, síðan M.3. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar M.3 er lokið, eru 56 l á prjóni. Haldið áfram með M.4, JAFNFRAMT í umf 1 af M.4 er fækkað um 8-4-0-0 l jafnt yfir = 48-52-56-56 l. Þegar M.4 er lokið, mælist stykkið ca 22 cm. Sokkurinn er prjónaður til loka með litnum dökk brúnn / vínrauður. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 23-24-25-26 cm. Í næstu umf er haldið eftir fyrstu 12-13-14-14 l á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 24-26-28-28 l á 1 þráð (= ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 12-13-14-14 l á prjóni fyrir hæl. Haldið áfram í sléttprjóni fram og til baka yfir 24-26-28-28 hællykkjur í 5-5½-6-6½ cm. Setjið merki. Prjónið HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan! Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 11-12-13-14 l hvoru megin við hæl og þær 24-26-28-28 l af þræði eru settar aftur á prjóninn = 58-64-68-70 l. Setjið 1 merki hvoru megin við 24-26-28-28 l ofan á fæti. Prjónið nú sléttprjón JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið: Prjónið 2 síðustu lykkjur Á UNDAN fyrra merki á fæti snúnar sl saman (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) og prjónið 2 fyrstu lykkjur Á EFTIR seinna merki sl saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 7-8-8-7 sinnum = 44-48-52-56 l. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 18-20-22-25 cm frá merki á hæl (= 4-4-5-5 cm að loka máli). Nú er sett 1 merki í hvora hlið þannig að það eru 22-24-26-28 l bæði ofan á fæti og undir fæti. Haldið áfram í sléttprjóni JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði merkin þannig: Á UNDAN merki: Prjónið 2 l sl saman. Á EFTIR merki: Prjónið 2 l snúnar sl saman (prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 4-4-5-5 sinnum og síðan í hverri umf 5-6-6-7 sinnum = 8 l eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #denversocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 135-44
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.