Onaga skrifaði:
Wunderschönes Modell, da bekommt man Lust auf den Winter!
02.06.2011 - 15:51
Lotta Nord skrifaði:
De enkla är ofta de som är bäst jätte fin
01.06.2011 - 18:09
Marie Danneels skrifaði:
Zeer stijlvol !
01.06.2011 - 09:11
Anneke skrifaði:
Mooie basic. Zacht, warm en comformtabel.Eenvoudig maar elegant.
29.05.2011 - 14:54
Eldrid Oddhild Rønneberg skrifaði:
Elegant!!! Denne vil jeg strikkke:-))
28.05.2011 - 18:28
Joanna-Malin skrifaði:
Super schön, kuschelig und edel.
27.05.2011 - 12:32
Mette skrifaði:
Endnu en fantastisk kreation
26.05.2011 - 02:33
Andrea skrifaði:
Wow, der Mantel ist toll!! So schön einfach zu machen und dabei durch die Mohair-Boucléwolle trotzdem effektvoll.
25.05.2011 - 23:22
Elisabeth skrifaði:
Super lækker
23.05.2011 - 22:10
Nicole skrifaði:
???Wie soll man (frau) sich bloß entscheiden??? Superschöne Jacke!
23.05.2011 - 20:06
Autumn Elegance#autumnelegancecardigan |
|
|
|
Prjónuð peysa með sjalkraga úr DROPS Puddel. Stærð S - XXXL.
DROPS 134-43 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ÚTAUKNING: Aukið er út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) til að koma í veg fyrir göt. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir 2 hnappagötum í hægra framstykki. 1 hnappagat = fellið af 4. og 5. l frá kanti. Í næstu umf eru fitjaðar upp 2 nýjar l yfir þær l sem fellt var af. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: Stærð S: 31 og 41 cm. Stærð M: 32 og 42 cm. Stærð L: 33 og 43 cm. Stærð XL: 34 og 44 cm. Stærð XXL: 35 og 45 cm. Stærð XXXL: 36 og 46 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. BAKSTYKKI: Fitjið upp 62-66-70-75-81-87 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 7 með Puddel. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 20 cm er fækkað um 1 l í hvorri hlið, endurtakið úrtöku með 4½-4½-5-5-5-5 cm millibili alls 8 sinnum = 46-50-54-59-65-71 l. Þegar stykkið mælist 62-62-62-62-62-62 cm l fitjið upp nýjar l fyrir ermi í hvorri hlið í annarri hverri umf þannig: 10 l 2 sinnum, 11-10-9-8-6-4 l 1 sinni = 108-110-112-115-117-119 l. Haldið áfram yfir allar l þar til stykkið mælist 80-81-82-83-84-85 cm. Fellið nú af miðju 12-12-12-13-13-15 l fyrir hálsmáli og hvor hlið er nú prjónuð til loka fyrir sig = 48-49-50-51-52-52 l eftir fyrir ermi og öxl. Haldið áfram þar til stykkið mælist 82-83-84-85-86-87 cm. Felllið laust af. HÆGRA FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 37-39-41-44-47-50 l (meðtaldar eru 6 kantlykkjur að framan og 1 kantlykkja) á hringprjóna nr 7. Prjónið 6 umf garðaprjón. Síðan er prjónað sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið, en þær 6 l á við miðju að framan (kantur að framan) halda áfram í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 20 cm byrjar úrtaka í hlið eins og á bakstykki. Munið eftir að fella af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Jafnframt þegar stykkið mælist 42-43-44-45-46-47 cm er aukið út um 1 l frá réttu innan við kantlykkjur að framan þannig: Prjónið 6 l garðaprjón, aukið út um 1 l – sjá ÚTAUKNING að ofan, prjónið út umf. ATH. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni. Endurtakið útaukningu innan við l í garðaprjóni í kanti að framan með 4½ cm millibili alls 9 sinnum. Þegar stykkið mælist 62-62-62-62-62-62 cm fitjið upp nýjar l fyrir ermi í hliðum í annarri hverri umf þannig: 10 l 2 sinnum, 11-10-9-8-6-4 l 1 sinni = 69-70-71-73-74-75 l. Haldið áfram þar til stykkið mælist 82-83-84-85-86-87 cm. Í næstu umf frá röngu er fellt laust af þar til eftir eru 21-21-21-22-22-23 l fyrir kraga, prjónið út umf. Prjónið nú kragann (umf 1 = rétta) þannig: * Prjónið slétt fram og til baka yfir síðustu 12-12-13-14-14-15 l, prjónið slétt fram og til baka yfir allar l *. Endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist 9-9-9-10-10-11 cm mælið þar sem stykkið er styst frá þeim stað þar sem fellt var af fyrir ölx. Fellið laust af allar l. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd og án hnappagata. FRÁGANGUR: Saumið saman axlir innan við 1 kantlykkju. Saumið kragann saman við miðju að aftan og saumið við hálsmálið á bakstykki. Saumið tölur í vinstri kant að framan. KANTUR Í KRINGUM ERMAR: Kanturinn er prjónaður fram og til baka á hringprjóna. Prjónið upp frá réttu 44-44-50-50-56-56 l innan við 1 kantlykkju neðst á ermi. Prjónið garðaprjón í ca 10 cm. Stykkið mælist nú ca 63-64-65-67-68-69 cm frá miðju að aftan. Fellið laust af allar l. Endurtakið þetta á hinni erminni. FRÁGANGUR: Saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #autumnelegancecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 12 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 134-43
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.