Damiane Lucas skrifaði:
Gorgeous bulky sweater! I definitely want to make this one! Thank you.
29.05.2011 - 08:18Françoise skrifaði:
Modèle indispensable dans une garde-robe
29.05.2011 - 07:41
Irene K. skrifaði:
Schön kuschelig. Brauch ich dringend!
28.05.2011 - 09:19
Susnane skrifaði:
Ja, bitte!
26.05.2011 - 11:04
Tamisier skrifaði:
Très joli modèle élégant et confortable
24.05.2011 - 12:57Anita W. Thon skrifaði:
Gratulerer Designeren for dette flotte modell.
24.05.2011 - 10:03
Rysk- Любовь skrifaði:
Очень красивый жилет, просто мечта..........
24.05.2011 - 09:58
Jeannine skrifaði:
IK ZOU DIT PATROON HEEL GRAAG VAN JULLIE ONTVANGEN INDIEN HET NIET IN DE NIEUWE BOEKEN KOMT! ALVAST HARTELIJK DANK
24.05.2011 - 07:43Laura Tello skrifaði:
Hermoso, espero hagan la traducción a español pronto!
23.05.2011 - 23:49
Elisabeth skrifaði:
Lækker varm vest også en jeg gerne vil strikke
23.05.2011 - 22:08
Sophisticated Twist#sophisticatedtwistcardigan |
||||||||||
|
||||||||||
Prjónuð víð / oversized, ermalaus peysa með köðlum úr DROPS Polaris. Stærð S - XXXL
DROPS 133-36 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- BYRJUN Á NÝJUM ÞRÆÐI: Þegar skipt er um dokku af Polaris þá er endanum skipt í tvo hluta á þræðinum sem er að ljúka ca 15 cm – klippið af annan endann og það sama er gert við nýja þráðinn. Leggið endana saman yfir hvorn annan svo að þykktin verði sú saman og áður og prjónið áfram – með þessu er komið í veg fyrir að samskeytin sjáist. MYSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2. Allar umf í mynstri sýna mynstur frá réttu. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Til að fá pláss fyrir allar lykkjur er stykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna. Stykkið er saumað saman í lokin. LESIÐ BYRJUN Á NÝJUM ÞRÆÐI! HÆGRA FRAMSTYKKI + ERMI: Fitjið upp 23-24-26-27-29-31 l á hringprjóna nr 15 með Polaris. Fyrstu 12 l á prjóni (séð frá réttu) eru prjónaðar eftir M.1, yfir aðrar lykkjur eru prjónaðar 4 umf GARÐAPRJÓN - lesið útskýringu að ofan, áður en haldið er áfram í sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm, aukið út um 1 l í hlið. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm = 25-26-28-29-31-33 l. Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm, fitjið upp 10-10-9-8-7-6 nýjar l í lok næstu umf frá réttu = 35-36-37-37-38-39 l. Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Nýjar l eru prjónaðar í sléttprjóni, fyrir utan síðustu l sem er prjónuð í garðaprjóni í öllum umf. Þegar stykkið mælist ca 19-20-21-22-23-24 cm frá prjónamerki (passið uppá að næsta umf sé prjónuð frá réttu), prjónið 12 fyrstu l eins og áður í M.1, setjið þær síðan á þráð = 23-24-25-25-26-27 l eftir á prjóni, prjónið út umf. Setjið 1 nýtt prjónamerki (= miðja á öxl) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið 2 umf fram og til baka yfir l á prjóni. Setjið l á þráð og geymið stykkið. VINSTRA FRAMSTYKKI + ERMI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki + ermi, nema gagnstætt – prjónið M.2 í stað M.1. Efst við öxl eru prjónaðar 12 l í M.2 frá röngu áður en l eru settar á þráð. Prjónið út umf, haldið áfram með bakstykki án þess að setja l á þráð. BAKSTYKKI: Prjónið 1. umf frá réttu þannig: Prjónið l frá vinstra framstykki + ermi, fitjið upp 9-9-9-11-11-11 nýjar l (= aftan við hnakka) og prjónið inn l af hægra framstykki + ermi á hringprjóna = 55-57-59-61-63-65 l. Haldið síðan áfram fram og til baka í sléttprjóni með 1 kantlykkju í hvorri hlið sem prjónuð er í garðaprjóni í hverri umf, þar til stykkið mælist 21-22-23-24-25-26 cm frá prjónamerki fyrir miðju á öxl. Í næstu umf eru felldar af fyrstu og síðustu 10-10-9-8-7-6 l, klippið frá. Prjónið sléttprjón yfir þær 35-37-41-45-49-53 l sem eftir eru, þar til stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm. Fellið nú af 1 l í hvorri hlið. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm = 31-33-37-41-45-49 l. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 53-55-57-59-61-63 cm (passið að næsta umf sé prjónuð frá röngu). Prjónið 3 umf garðaprjón yfir allar l, fellið síðan laust af. KRAGI: Setjið til baka 12 l af þræði frá hægra framstykki á prjóninn. Fitjið upp 1 nýja l við öxl = 13 l. Prjónið síðan M.1 með 1 kantlykkju í hlið sem prjónuð er í garðaprjóni í hverri umf. Þegar kraginn mælist ca 7-7-7-8-8-8 cm, fellið af. Prjónið alveg eins yfir l af þræði frá vinstra framstykki. Saumið kragastykkin saman kant í kant fyrir miðju að aftan og saumið kragann niður við háls að aftan í kantlykkjuna. FRÁGANGUR: Saumið hliðar- og ermasauma í eitt, saumið kant í kant í ysta lið í ystu l svo að saumurinn verði ekki of þykkur. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sophisticatedtwistcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 133-36
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.