Rocky Mountain |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Settið samanstendur af: Prjónaðri húfu og vettlingum úr DROPS Snow eða DROPS Andes með loðnum kanti úr DROPS Puddel.
DROPS 134-10 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HÚFA: GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1. Mynsturteikningin sýnir mynstrið séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Byrjað er við miðju á höfði og endað á eyrnaleppum í hvorri hlið. HÚFA: Fitjið upp 26 l með Snow á prjóna nr 7 (meðtaldar eru 2 kantlykkjur í garðaprjóni). Næsta umf (= rétta) er prjónuð þannig: Prjónið 1 l í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið M.1, endið með 1 l í garðaprjóni. Þegar M.1 hefur verið prjónað 3 sinnum á hæðina, setjið prjónamerki í byrjun og enda á næstu umf (= umf 1 í M.1). Þegar M.1 hefur verið prjónað 5 sinnum á hæðina, setjið prjónamerki til viðbótar í byrjun og enda næstu umf (= umf 1 í M.1). Haldið áfram þar til M.1 hefur verið prjónað alls 8 sinnum á hæðina, stykkið á að mælast 40 cm, fellið laust af allar l. EYRNALEPPUR: Stykkið er prjónað með Snow á prjóna nr 5 (til þess að fá fínni umf í byrjun) þannig: Prjónið upp 14 l jafnt yfir meðfram kantinum á milli tveggja prjónamerkja í annarri hliðinni á stykkinu frá réttu. Næsta umf (= ranga) er prjónuð þannig: Prjónið 1 l garðaprjón, 3 l sl, 2 l br, 2 l sl, 2 l br, 3 l sl, 1 l garðaprjón. Skiptið yfir á prjóna nr 7 í næstu umf og prjónið þannig: Prjónið 1 l garðaprjón, prjónið M.2, endið með 1 l garðaprjón. Haldið áfram að prjóna M.2 (með 1 l garðaprjón í hvorri hlið). Þegar M.2 hefur verið prjónað 3 sinnum á hæðina, aukið út um 1 l í hvorri hlið í næstu umf frá réttu (umf 1 í M.2) þannig: Prjónið 1 l í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið M.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, endið með 1 l garðaprjón. Uppslátturinn er prjónaður snúinn br (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan til þess að koma í veg fyrir göt) í næstu umf frá röngu, prjónið nú nýju l í hvorri hlið sl frá réttu og br frá röngu. Haldið áfram þar til M.2 hefur verið prjónað 4 sinnum á hæðina. Prjónið nú umf 1 og umf 2 af M.2, síðan er fækkað um 1 l í byrjun næstu umf frá réttu (3. umf í M.2) þannig: * Prjónið 2 l, steypið fyrri l yfir, prjónið út umf *. Endurtakið frá *-* 5 umf til viðbótar, nú hefur M.2 verið prjónað alls 5 sinnum. Fellið nú af allar l JAFNFRAMT er prjónuð umf 1 í M.2. Prjónið annan eyrnalepp á sama hátt hinum megin á stykkinu. FRÁGANGUR: Saumið saman eyrnaleppana og miðju hlutann í hvorri hlið innan við 1 kantlykkju. LOÐINN KANTUR: Heklað er meðfram neðri kanti yst í lykkjuna frá réttu. ATH: Heklið ekki of fast. Heklið með 2 þráðum af Puddel með heklunál nr 8 þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Byrjið í horninu þar sem vinstri eyrnaleppurinn byrjar (merki með ör í mynstri), heklið fl kringum vinstri eyrnaleppinn, yfir aftari hlutann, kringum hægri eyrnaleppinn, snúið við. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið 1 ll, síðan 1 fl í hverja fl til baka að byrjun. Heklið nú 16 fl yfir neðri kant við miðju að framan, endið umf með 1 kl í 1. fl í 2. umf (við hægri eyrnalepp), snúið við. UMFERÐ 3-5: Heklið 1 ll, fl í hverja fl við miðju að framan = 16 fl í umf, snúið við. UMFERÐ 6: Heklið 1 ll, hoppið yfir 1. fl, 1 fl í næstu fl, 1 fl í hverja fl þar til 2 fl eru eftir í umf, hoppið yfir næstu fl, 1 fl í síðustu fl = 14 fl, snúið við. UMFERÐ 7: Heklið 1 ll, hoppið yfir 1. fl, 1 fl í næstu fl, 1 fl í hverja fl þar til 2 fl eru eftir í umf, hoppið yfir næstu fl, 1 fl í síðustu fl = 12 fl, snúið við. UMFERÐ 8: Heklið 1 ll, hoppið yfir 1. Fl, 1 fl í næstu fl, 1 fl í hverja fl þar til 2 fl eru eftir í umf, hoppið yfir næstu fl, 1 fl í síðustu fl = 10 fl, endið með 1 kl í síðustu fl. Klippið frá og festið enda. Brjótið upp kantinn yfir húfuna og saumið niður. Gerið 1 dúsk ca 7 cm að þvermáli með Puddel. Náið í þráðinn í enda á eyrnaleppnum með Snow, gerið 1 snúru með því að hekla ll í ca 20 cm. Leggið endann á snúrunni innan í dúskinn áður en hann er klipptur upp og hnýtið um dúskinn. Gerið 1 dúsk og 1 snúru til viðbótar á sama hátt í hinni hliðinni. ------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- VETTLINGAR: ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að ná í þráðinn á milli 2 l frá fyrri umf – prjónið þessa l snúna slétt, þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan til að koma í veg fyrir göt. ÚRTAKA: Fækkið um 1 l hvoru megin við prjónamerki: Prjónið þangað til 1 l er eftir á undan prjónamerki, næsta l er sett á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, steypið næstu l yfir (með prjónamerki), setjið til baka l af hjálparprjóni á vinstri prjón, prjónið 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir = 2 l færri. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.2 og M.3. Mynsturteikningin sýnir mynstur séð frá réttu. -------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. VINSTRI VETTLINGUR: Fitjið upp 24 l á sokkaprjóna nr 7 með Snow. Prjónið umf 1 (= rétta) þannig: Prjónið 12 l sl, prjónið M.2 (= 12 l sl og 12 l frá M.2). ATHUGIÐ PRJÓNFESTU! Haldið áfram svona þar til stykkið mælist 6 cm, setjið nú eitt prjónamerki í 9. l. Í næstu umf er aukið út um 1 l hvoru megin við l með prjónamerki fyrir þumal – Lesið ÚTAUKNING að ofan. Endurtakið útaukningu hvoru megin við útauknu l í næstu umf = 5 l á þumli. Prjónið 2 umf án útaukninga. Í næstu umf eru 5 þumallykkjurnar settar á þráð – Jafnframt er fitjuð upp 1 ný l fyrir aftan l af þræði = 24 l í umf (12 l sl og 12 l frá M.2). Setjið tvö prjónamerki í stykkið (umf byrjar með 1. l sl) þannig. Eitt prjónamerki í 1. l sl, og eitt prjónamerki í 12. l sl. Þegar M.2 hefur verið prjónað 3 sinnum á hæðina, prjónið næstu umf þannig: Prjónið 12 l sl, prjónið M.3. Eftir 4 svona umf er fækkað um 2 l í hvorri hlið á vettlingnum – Lesið ÚRTAKA að ofan = 4 l færri í umf. Endurtakið úrtöku í hverri umf alls 5 sinnum = 4 l eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru og herðið að. ÞUMALL: Setjið til baka 5 þumallykkjur á sokkaprjóna. Prjónið upp 5 l fyrir aftan þumal = 10 l. Haldið áfram í sléttprjón hringinn þar til þumallinn mælist 5 cm. Setjið tvö prjónamerki í þumalinn, eitt í 1. l og annað í 6. l (= í hvorri hlið). Í næstu umf er fækkað um 2 l í hvorri hlið á þumli – Lesið ÚRTAKA að ofan = 4 l færri í umf. Endurtakið úrtöku í næstu umf = 2 l eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru og herðið að. HÆGRI VETTLINGUR: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og vinstri vettlingur, nema spegilmynd. Setjið prjónamerki í 4. l á undan útaukningu fyrir þumal. LOÐINN KANTUR: Heklið með 2 þráðum af Puddel með heklunál nr 8. Heklið 1 kl í uppfitjunarkantinn á vettlingnum, heklið 1 ll, heklið síðan 18 fl kringum kantinn, endið með 1 kl í fyrstu fl. Heklið nú 1 fl í hverja fl hringinn þar til kanturinn mælist ca 6 cm, klippið frá og festið enda. Heklið á sama hátt á hinum vettlingnum. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (99)
AnnKristin Bakkebø wrote:
Kjempe fin lue og votter til vinter norge.
27.05.2011 - 18:24Vesna wrote:
Superschön!! habe schon die andere Mütze mit Ohrenklappen gesrickt, und die muss ich ebenfalls machen:-)
27.05.2011 - 14:00Agneta wrote:
Ser underbart skön ut
26.05.2011 - 13:17Mette wrote:
Hvordan har jeg kunnet undvære dette sæt ?
26.05.2011 - 02:38Elisabeth wrote:
Wow hvor er det flot det må jeg også strikke :)
25.05.2011 - 17:12Knitter wrote:
Just super design
25.05.2011 - 12:56Pia Øhrman wrote:
Den må jegbare strikke
24.05.2011 - 22:21Anna Hedberg wrote:
Åhh va fin, detta ska jag sticka till hösten.
24.05.2011 - 17:02Natascha wrote:
Schön!Mal was anderes.
24.05.2011 - 14:52DE CLERCQ Chr. wrote:
Een model dat blijvend is voor zeer strenge winters !
24.05.2011 - 14:46