DROPS Children 49 · Fullt af nýrri hönnun fyrir börn!
Product image DROPS Delight yarn
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS AW2425
DROPS Baby 20-15

#tamzynjacket

DROPS Design: Mynstur nr DE-006-by
----------------------------------------------------------

Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4 - 5/6) ára
Stærð í cm: 50/56-62/68-74/80 (86/92-96/104-110/116)

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
150-150-200 (200-250-300) gr litur nr 04, ljósblár

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l x 48 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS TRÉTALA NR 511: 3-4-4 (5-5-5) stk

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l hvoru megin við l með prjónamerki með því að slá 1 sinni uppá prjóninn.
Til að koma í veg fyrir göt þá er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt í næstu umf (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað frá hlið. Prjónuð eru 2 stykki sem saumuð eru saman að aftan í lokin. Stykkin eru prjónuð frá ermi að miðju á peysu.

HÆGRA HÁLFA STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 36-38-40 (40-42-44) l á hringprjóna nr 3 með Delight. Prjónið slétt fram og til baka í öllum umf til loka (= garðaprjón). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6-6-5 (5-6-6) cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið, endurtakið útaukningu í 8. hverri umf alls 6-7-9 (11-13-14) sinnum = 48-52-58 (62-68-72) l. Prjónið þar til stykkið mælist 17-19-20 (25-29-33) cm – passið uppá að síðasta umf sé prjónuð frá röngu.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjónið 1 umf slétt (= rétta), í lok umf eru fitjaðar upp 41-43-50 (53-58-60) l (= að bakstykki) = 89-95-108 (115-126-132) l. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Prjónið 1 umf til baka, snúið við, setjið eitt prjónamerki í 2. l á prjóni frá réttu (= í hægri hlið). Prjónið áfram – JAFNFRAMT er aukið út um 1 l hvoru megin við l með prjónamerki í annarri hverri umf alls 38-40-46 (48-50-52) sinnum – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8½-9-10½ (11-12-13) cm prjónið áfram einungis yfir síðustu 60-65-74 (79-86-91) l í vinstri hlið séð frá réttu (= bakstykki), aðrar l eru settar á þráð.

BAKSTYKKI:
Prjónið þar til stykkið mælist 13-14-16 (17-18-19) cm (frá þar sem l voru fitjaðar upp á bakstykki), fellið af.

FRAMSTYKKI:
Setjið l á þráð til baka á prjóninn, en skiljið eftir 9-10-10 (10-12-12) l við bakstykki áfram á þræði fyrir hálsmál. Haldið áfram með útaukningu í annarri hverri umf – JAFNFRAMT er felld af 1 l við hálsmál (= að lykkjum á þræði) í 4. hverri umf alls 6-7-7 (7-7-7) sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 14-15-17 (18-19-20) cm (frá þar sem útaukning á framstykki byrjaði og við miðju að framan) fellið af fyrir 3-4-4 (5-5-5) hnappagötum þannig (frá hálsmáli, þ.e.a.s. í umf frá röngu): Prjónið 2 l, fellið af 2 l, * prjónið 12-9-11 (9-10-10) l, fellið af 2 l *, endurtakið frá *-* alls 2-3-3 (4-4-4) sinnum, prjónið síðan slétt út umf. Í næstu umf eru fitjaðar upp 2 nýjar l yfir allar l sem felldar voru af.
Eftir alla úrtöku og útaukningu eru 90-93-109 (115-121-126) l á prjóni. Þegar útaukningu í hægri hlið er loki fellið af 51-52-62 (66-70-74) l frá hálsmáli og niður yfir kant að framan (fellið af í 1 umf frá röngu) = 39-41-47 (49-51-52) l eftir á prjóni. Prjónið slétt áfram fram og til baka yfir þessar l í ca 1-1-2 (2-3-3) cm (brjótið stykkið saman tvöfalt við öxl og passið uppá að framstykki sé jafn langt og bakstykki). Fellið síðan af.

VINSTRA HÁLFA STYKKI:
Prjónið á sama hátt og hægra hálfa stykki nema án hnappagata – ganga á frá þessu stykki með rönguna út.

FRÁGANGUR:
Leggið 2 stykkin saman á móti hvort öðru og saumið saman við miðju að aftan – saumið kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur.
Brjótið peysuna saman tvöfalda og saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt í ysta lykkjubogann. Saumið tölur í.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp 55 til 80 l (meðtaldar l á þræði) í kringum hálsinn á hringprjóna nr 3 með Delight.
Prjónið 3 umf slétt fram og til baka, fellið af.

Mynstur

prjónstefna = prjónstefna
Diagram for DROPS Baby 20-15
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 20-15

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (201)

country flag Ida Hentze skrifaði:

Jeg er i gang med at strikke enbførste del af denne model med et ensfarvet garn og et farveskiftende garn skiftevis 2 pinde af hver. Hermed er der forskel på ret og vrang. Kan jeg stadig følge opskriften på den anden del, eller skal den spejlvendes for at få retsiden udad? Mvh

13.04.2025 - 23:13

country flag Oana skrifaði:

Hello, I would like to knit this in 2 colors - any suggestions for how to so that? Thank you in advance!

21.02.2025 - 19:33

DROPS Design svaraði:

Dear Oana, the yarn used in this pattern has a print pattern, so the yarn itself would make the stripes and it's complicated to replicate them with unicolor yarns. You can work with yarns such as DROPS Fabel (which also has some print combinations) or 2 colours of DROPS Alpaca or other Group A yarns. If you want to check how to combine these colours and adapt the pattern you can ask for guidance in your closest DROPS store. Happy knitting!

23.02.2025 - 21:28

country flag Liz skrifaði:

I am doing the 3rd size so when I’m increasing each side of marker, I have to do this 46 times which means 92 rows, won’t the front be too long?

15.02.2025 - 05:37

DROPS Design svaraði:

Dear Liz, with the correct tension, front piece won't be too long, but note that you will divide piece for neckline and finish first back piece separately before all increases on front pieces are done. Happy knitting!

17.02.2025 - 13:58

country flag Robin Deugo skrifaði:

I'm having trouble with the Tamzyn pattern. The image with measurements is confusing. Is there a step by step video? I'm knitting a size 2 with Drops yarn.

02.01.2025 - 16:18

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Deugo, we do not have any videos for this pattern but you are welcome to explain more on where you are stuck so that we can try to help you furthermore. Thanks for your comprehension.

03.01.2025 - 07:43

country flag Elisabetta skrifaði:

Buongiorno, vorrei eseguire il modello per un maschietto di due anni. Le asole dovrebbero andare a sinistra. Posso avere indicazioni per favore? Grazie

10.12.2024 - 17:44

DROPS Design svaraði:

Buonasera Elisabetta, può applicare le spiegazioni al bordo sinistro. Buon lavoro!

13.12.2024 - 23:01

country flag Beate skrifaði:

Ich bin mit dem ersten Teil fast fertig. Aber ich weiss nicht was oder wie die restlichen Maschen auf dem Hilfsfaden "verarbeitet" werden. Wo es weitergeht mit dem Vorderteil sollen ja 10 auf dem Hilfsfaden bleiben. Ich habe aber nicht gefunden was mit denen gemacht wird. Wann werden die verwendet? Für was?

06.12.2024 - 18:27

DROPS Design svaraði:

Liebe Beate, die 10 stillgelegten Maschen werden später für die Halsblende gestrickt. Dann soll man beim Vorderteil Maschen für den Halsausschnitt abnehmen (= die Seite wo die 10 Maschen stillgelegten wurden) - aber nicht vergessen genauso wie zuvor beidseitig von der Masche mit der Markierung zuzunehmen. Viel Spaß beim Stricken!

09.12.2024 - 07:46

country flag Gabriele Schiffers skrifaði:

Hallo, ich verstehe überhaupt nicht, wo die zweiten Hälften der jeweiligen Vorderteile herkommen sollen, nachdem ich die Spitzen gestrickt habe! Wenn ich das Rückenteil annähe, fehlt mir die Hälfte des Rückenteils! Liebe Grüße, Gabi

22.10.2024 - 10:47

DROPS Design svaraði:

Liebe Frau Schiffers, beide Teile werden separat gestrickt, dh zuerst strickt man die rechte Seite (Anfang mit rechtem Ärmel, dann rechtem Vorderteil und halb-Rückenteil) - dann strickt man die 2. Seite = die linke Seite genauso wie die 1. dann werden die abgekettenen Maschen für Rückenteil zusammengenäht. Viel Spaß beim Stricken!

22.10.2024 - 13:45

country flag Sue Roberts skrifaði:

I have just downloaded this pattern and I see that you have discontinued Delight yarn. What can I use instead?

01.09.2024 - 21:20

DROPS Design svaraði:

Hi Sue, All Drops yarns in the same yarn group can be used for the same patterns. Delight belongs to yarn group A. Click on Yarns and Needles at the top of the page and choose Yarn Groups bottom right(ish). There you will find yarn group A with all the yarns you can choose from. Happy crafting!

02.09.2024 - 06:30

country flag Joan Latimer skrifaði:

After doing the buttonholes for 6-9 month old size i am still needing to do 20 more rows before the stitch count will be correct (95). This leaves too big a piece between the buttonholes and the edge. Where have I gone wrong please?

24.05.2024 - 17:13

DROPS Design svaraði:

Dear Joan, you start the buttonhole at approx. 2cm before the end of the front piece. In the second size, for that front piece part you have 17cm in total (see chart below); if you start the buttonholes at the 15cm mark you'd only have 2cm left before finishing off the front piece. Happy knitting!

27.05.2024 - 01:01

country flag Barbara skrifaði:

I would like to know if you think the "Tamzyn, Pattern no DE-006-by" can be knitted in 100% cotton fingering weight yarn. Bought a bunch for another project then I made a pair of booties and mitts from it for my daughter & now she wants this jacket. Cotton & a wool blend are going to act very different and since I have very limited experience with wool/wool blend yarns (my daughter and her family are the 1st that tolerate wool. Please advise. Thanks.

02.05.2024 - 16:58

DROPS Design svaraði:

Dear Barbara, please understand that these patterns are available for free to support DROPS yarns. For DROPS yarns, you can substitute the yarn suggested for another one within the same yarn group with very little modification. For other manufacturer's yarns we cannot advise you. Happy Knitting!

02.05.2024 - 21:22