Lucifer#dropslucifer |
|
![]() |
![]() |
Heklað jólaskraut / engill úr DROPS Cotton Viscose. Þema: Jól
DROPS Extra 0-733 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrstu fastalykkju í hverri umferð er skipt út fyrir 1 loftlykkju og hver umferð endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun umferðar. 2 FASTALYKKJUR HEKLAÐAR SAMAN: 2 fastalykkjjur eru heklaðar saman í 1 fastalykkju þannig: Stingið heklunálinni í lykkjuna, sækið þráðinn, stingið heklunálinni í næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- ENGILL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring. BÚKUR: Heklið 20 loftlykkjur með litnum hvítur DROPS Cotton Viscose og tengið í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. UMFERÐ 1: 20 fastalykkjur um loftlykkjuhringinn – lesið LEIÐBEININGAR! UMFERÐ 2-8: 1 fastalykkja í hverja fastalykkju. UMFERÐ 9: * 1 fastalykkja í hvora af fyrstu 2 fastalykkjum, heklið saman næstu 2 fastalykkjur *, - lesið 2 FASTALYKKJUR HEKLAÐAR SAMAN að ofan, endurtakið frá *-* = 15 fastalykkjur. UMFERÐ 10: * 1 fastalykkja í fyrstu fastalykkju, heklið saman næstu 2 fastalykkjur *, endurtakið frá *-* = 10 fastalykkjur. UMFERÐ 11: Heklið saman allar fastalykkjur 2 og 2 = 5 fastalykkjur. HÖFUÐ: UMFERÐ 12: 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 10 fastalykkjur. UMFERÐ 13: Aukið út um 8 fastalykkjur jafnt yfir = 18 fastalykkjur. UMFERÐ 14-17: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. Setjið smá vatt í höfuðið. UMFERÐ 18: * 1 fastalykkja í fyrstu fastalykkju, heklið saman næstu 2 fastalykkjur *, endurtakið umferðina hringinn = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 19: Heklið saman allar fastalykkjur 2 og 2 = 6 fastalykkjur. Heklið síðan loftlykkjuband ca 12 cm, klippið þráðinn, þræðið þráðarendanum utan um 6 fastalykkjur efst á höfði og festið þráðinn þannig að loftlykkjubandið myndar lykkju. BLÚNDUKANTUR: Heklið neðst á búkinn þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju , * 5 loftlykkjur, hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* og endið með 5 loftlykkjum og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð. VÆNGUR: Heklið 6 loftlykkjur og tengið í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. UMFERÐ 1: 1 fastalykkja um loftlykkjuhringinn, 5 loftlykkjur, 1 fastalykkja um loftlykkjuhringinn, 9 loftlykkjur, 1 fastalykkja um loftlykkjuhringinn, 9 loftlykkjur, 1 fastalykkja um loftlykkjuhringinn, 5 loftlykkjur, 1 keðjulykkja í fyrstu fastalykkju í umferð. UMFERÐ 2: Um fyrsta og síðasta loftlykkjuboga (= 5 loftlykkjur) er heklað: 1 fastalykkja, 1 loftlykkja, 5 stuðlar, 1 loftlykkja og 1 fastalykkja. Um hina 2 loftlykkjubogana (= 9 loftlykkjur) er heklað: 1 fastalykkja, 1 loftlykkja, 12 stuðlar, 1 loftlykkja og 1 fastalykkja. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð. UMFERÐ 3: 1 keðjulykkja í fyrstu fastalykkju, 1 fastalykkja í fyrsta stuðul, * 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum, 1 fastalykkja í næsta stuðul, endurtakið frá *-* 11 sinnum, 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum, 1 fastalykkja í næsta stuðul, endurtakið frá *-* 11 sinnum, 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum, 1 fastalykkja í næsta stuðul, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, 1 fastalykkja í síðustu fastalykkju og 1 keðjulykkja í fyrstu fastalykkju í byrjun umferðar. Klippið þráðinn. FRÁGANGUR: Saumið vænginn á bakhlið á búk – 2 minni bogarnir eiga að snúa niður á við og 2 stærri upp á við. LAUSIR ENGLAVÆNGIR: Heklið 6 loftlykkjur og tengið í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. UMFERÐ 1: 1 fastalykkja um loftlykkjuhringinn, 5 loftlykkjur, 1 fastalykkja um loftlykkjuhringinn, 9 loftlykkjur, 1 fastalykkja um loftlykkjuhringinn, 9 loftlykkjur, 1 fastalykkja um loftlykkjuhringinn, 5 loftlykkjur, 1 keðjulykkja í fyrstu fastalykkju í umferð. UMFERÐ 2: Um fyrsta og síðasta loftlykkjuboga (= 5 loftlykkjur) er heklað: 1 fastalykkja, 1 loftlykkja, 5 stuðlar, 1 loftlykkja og 1 fastalykkja. Um hina 2 loftlykkjubogana (= 9 loftlykkjur) er heklað: 1 fastalykkja, 1 loftlykkja, 12 stuðlar, 1 loftlykkja og 1 fastalykkja. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð. UMFERÐ 3: 1 keðjulykkja í fyrstu fastalykkju, 1 fastalykkja í fyrsta stuðul, * 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, heklið loftlykkjur til ca 12 cm langt loftlykkjubgand, 1 fastalykkja í næsta stuðul, endurtakið frá *-* 11 sinnum, 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum, 1 fastalykkja í næsta stuðul, endurtakið frá *-* 11 sinnum, 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum, 1 fastalykkja í næsta stuðul, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, 1 fastalykkja í síðustu fastalykkju og 1 keðjulykkja í fyrstu fastalykkju í byrjun umferðar. Klippið þráðinn. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dropslucifer eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 6 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-733
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.