Summer Watermelon#summerwatermelonpotholder |
|
![]() |
![]() |
Heklaðir pottaleppar úr DROPS Paris, hringlaga pottaleppur með kúlum og sexhyrndur pottaleppur.
DROPS Extra 0-699 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- KÚLA (á við um hringlaga pottalepp): Heklið 1 stuðul, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin = 2 lykkjur á heklunálinni. Heklið 1 stuðul til viðbótar í sömu lykkju en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin = 3 lykkjur á heklunálinni. Endurtakið þetta alls 4 sinnum þannig að það verði 5 lykkjur á heklunálinni. Heklið 1 stuðul til viðbótar í sömu lykkju, en nú er þráðurinn dreginn í gegn í síðasta skipti þannig að þráðurinn er dreginn í gegnum allar lykkjur á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HRINGLAGA POTTALEPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring, frá miðju og út. HRINGLAGA POTTALEPPUR: Heklið 4 loftlykkjur með litnum natur DROPS Paris með heklunál 3,5 og tengið í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), heklið síðan 11 stuðla um hringinn og endað er með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar = 12 stuðlar. Skiptið yfir í litinn ljós gulur UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, heklið síðan 2 fastalykkjur í 3. loftlykkju frá fyrri umferð, * í næsta stuðul er heklað 1 KÚLA – lesið útskýringu að ofan, heklið 2 fastalykkjur í næsta stuðul*, endurtakið frá *-* og endið með 1 kúlu í síðasta stuðul og 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar = 6 kúlur. Skiptið yfir í litinn natur. UMFERÐ 3: Heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), * heklið síðan 2 stuðla í sömu lykkju og 2 fastalykkjur voru heklaðar frá fyrri umferð (þ.e.a.s. heklið síðan 2 stuðla hringinn í 2 fastalykkjur), heklið síðan 2 fastalykkjur í kúlu *, endurtakið frá *-* og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar. Skiptið yfir í litinn syren. UMFERÐ 4: Heklið 1 loftlykkju, * heklið 2 fastalykkjur í fyrsta stuðul, 1 kúla í næsta stuðul, heklið 2 fastalykkjur í fyrstu fastalykkju, 1 kúla í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* og endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar = 12 kúlur. Skiptið yfir í litinn natur. UMFERÐ 5: Heklið eins og umferð 3. UMFERÐ 6: Heklið 1 loftlykkju, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja lykkju umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar = 48 fastalykkjur. Skiptið yfir í litinn blush. UMFERÐ 7: Heklið 1 loftlykkju, heklið 2 fastalykkjur í fyrstu fastalykkju, * hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 kúla í næstu fastalykkju, heklið 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* og endið með að hoppa yfir 1 fastalykkju, 1 kúla í síðustu fastalykkju og 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar = 16 kúlur. Skiptið yfir í litinn natur. UMFERÐ 8: Heklið eins og umferð 3. UMFERÐ 9: Heklið eins og umferð 6 = 64 fastalykkjur. Skiptið yfir í litinn ísblár. UMFERÐ 10: Heklið 1 loftlykkju, hoppið yfir fyrstu fastalykkju, heklið 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju, * hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 kúla í næstu fastalykkju, heklið 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* og endið með að hoppa yfir 1 fastalykkju, 1 kúla í síðustu fastalykkju og 1 keðjulykkja í loftlykkju í byrjun umferðar = 21 kúla. Skiptið yfir í litinn natur. UMFERÐ 11: Heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), * heklið síðan 2 stuðla í sömu lykkju og 2 fastalykkjur voru heklaðar í síðustu umferð, heklið síðan 1 fastalykkju í kúlu *, endurtakið frá *-* og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar. Skiptið yfir í litinn ferskja. UMFERÐ 12: Heklið 1 loftlykkju, * heklið síðan 2 fastalykkjur í fyrsta stuðul, hoppið yfir 1 stuðul, 1 kúla í næstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næsta stuðul, 1 kúla í næsta stuðul, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju, hoppið yfir 1 stuðul, 1 kúla í næsta stuðul, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju, 1 kúla í næsta stuðul, 2 fastalykkjur í næsta stuðul, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 kúla í næsta stuðul, 2 fastalykkjur í næsta stuðuðl, 1 kúla í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum og endið með 2 fastalykkju í næsta stuðul, hoppið yfir 1 stuðul, 1 kúla í síðustu fastalykkju og 1 keðjulykkja í loftlykkju í byrjun umferðar = 25 kúlur. Skiptið yfir í litinn natur. UMFERÐ 13: Heklið eins og umferð 11. UMFERÐ 14: Heklið eins og umferð 6 = 75 fastalykkjur. Skiptið yfir í litinn myntugrænn. UMFERÐ 15: Heklið 1 loftlykkju, * heklið 2 fastalykkjur í fyrstu fastalykkju, 1 kúla í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* og endið með að hoppa yfir síðustu fastalykkju og 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar = 37 kúlur. Skiptið yfir í litinn natur. UMFERÐ 16: Heklið eins og umferð 11. UMFERÐ 17: Heklið 15 loftlykkjur, heklið síðan 1 keðjulykkju í 1. af 15 loftlykkjum (= lykkja), heklið síðan 1 fastalykkju í hverja lykkju umferðina hringinn, síðan eru heklaðar ca 20 fastalykkjur í kringum lykkjuna og endið með 1 keðjulykkju í keðjulykkju á undan lykkjunni. Klippið frá og festið þræði. ------------------------------------------------------- SEXHYRNDUR POTTALEPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring, frá miðju og út. SEXHYRNDUR POTTALEPPUR: Heklið 4 loftlykkjur með litnum ferskja DROPS Paris með heklunál 3,5 og formið í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), heklið síðan 11 stuðla um hringinn og endað er með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar = 12 stuðlar. Skiptið yfir í litinn natur. UMFERÐ 2: Heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), heklið síðan * 3 stuðlar í næsta stuðul, 1 stuðull í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 3 stuðla í síðasta stuðul og 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar = 24 stuðlar. UMFERÐ 3: Heklið 1 loftlykkju, heklið síðan 1 fastalykkju í 3. loftlykkju frá fyrri umferð, heklið síðan 1 loftlykkju, hoppið yfir 1 stuðul, 1 fastalykkja í næsta stuðul, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja í sama stuðul, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 stuðul, 1 fastalykkja í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum og endið með 1 loftlykkju, hoppið yfir 1 stuðul, 1 fastalykkja í næsta stuðul, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja í sama stuðul, 1 loftlykkja, hoppið yfir síðasta stuðul og 1 keðjulykkja í fastalykkju í byrjun umferðar. UMFERÐ 4: Heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), heklið síðan * 1 stuðul um loftlykkju, 1 stuðul í fastalykkju, 3 stuðlar um 2 loftlykkjur, 1 stuðull í fastalykkju, 1 stuðul um loftlykkju, 1 stuðul í fastalykkju *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum og endið með 1 stuðul um loftlykkju, 1 stuðull í fastalykkju, 3 stuðlar um 2 loftlykkjur, 1 stuðull í fastalykkju, 1 stuðull um loftlykkju og 1 keðjulykkja í 3. loftlykkju í byrjun umferðar = 48 stuðlar. Skiptið yfir í litinn ísblár. UMFERÐ 5: Heklið 1 loftlykkju, heklið síðan 1 fastalykkju í 3. loftlykkju frá fyrri umferð, heklið síðan * (1 loftlykkja, hoppið yfir 1 stuðul, 1 fastalykkja í næsta stuðul) 2 sinnum, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja í sama stuðul, (1 loftlykkja, hoppið yfir 1 stuðul, 1 fastalykkja í næsta stuðul) 2 sinnum *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum og endið með (1 loftlykkja, hoppið yfir 1 stuðul, 1 fastalykkja í næsta stuðul) 2 sinnum, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja í sama stuðul, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 stuðul, 1 fastalykkja í næsta stuðul, 1 loftlykkja og 1 keðjulykkja í fastalykkju í byrjun umferðar. UMFERÐ 6: Heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), heklið síðan * (1 stuðul um loftlykkju, 1 stuðul í fastalykkju) 2 sinnum, 3 stuðlar um 2 loftlykkjur, ( 1 stuðull í fastalykkju, 1 stuðull um loftlykkju) 2 sinnum, 1 stuðull í fastalykkju *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum og endið með (1 stuðull um loftlykkju, 1 stuðull í fastalykkju) 2 sinnum, 3 stuðlar í 2 loftlykkjur, (1 stuðull í fastalykkju, 1 stuðull um loftlykkju) 2 sinnum og 1 keðjulykkja í loftlykkju í byrjun umferðar = 72 stuðlar. Endurtakið umferð 5 og 6 þannig að aukið er út um 24 stuðla í hvert skipti sem umferð 6 er hekluð. Haldið svona áfram þar til heklaðar hafa verið alls 10 umferðir = 120 stuðlar. Skiptið yfir í litinn ferskja. UMFERÐ 11: Heklið 1 loftlykkju, heklið síðan 1 fastalykkju í 3. loftlykkju frá fyrri umferð, heklið síðan * (1 loftlykkja, hoppið yfir 1 stuðul, 1 fastalykkja í næsta stuðul) 5 sinnum, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja í sama stuðul, (1 loftlykkja, hoppið yfir 1 stuðul, 1 fastalykkja í næsta stuðul) 5 sinnum *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum og endið með (1 loftlykkja, hoppið yfir 1 stuðul, 1 fastalykkja í næsta stuðul) 5 sinnum, 20 loftlykkjur (= lykkja), 1 fastalykkja í sama stuðul, (1 loftlykkja, hoppið yfir 1 stuðul, 1 fastalykkja í næsta stuðul) 4 sinnum, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 stuðul og 1 keðjulykkja í fastalykkju í byrjun umferðar. UMFERÐ 12: 1 loftlykkja, heklið síðan * (1 fastalykkja í næstu loftlykkju, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 loftlykkja) 5 sinnum, 2 fastalykkjur í 2 loftlykkjur, 1 loftlykkja, (hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja í næstu loftlykkju, 1 loftlykkja) 5 sinnum *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum og endið með (1 fastalykkja í næstu loftlykkju, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 loftlykkja) 5 sinnum, 20 fastalykkjur um 20 loftlykkjur, 1 loftlykkja, (1 fastalykkja í næstu loftlykkju, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 loftlykkja) 4 sinnum, 1 fastalykkja í næstu loftlykkju og 1 keðjulykkja i loftlykkju í byrjun umferðar. Klippið frá og festið þræði. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #summerwatermelonpotholder eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-699
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.