Emilie skrifaði:
Bonjour, Combien de mailles doit-on relever pour le col dentelle de la combinaison? Merci.
20.06.2018 - 15:42DROPS Design svaraði:
Bonjour Émilie, on relève 55 à 65 m (le nombre de mailles a été ajouté, merci). Bon tricot!
20.06.2018 - 16:09
Emilie skrifaði:
Est-ce que les jambes de la combinaison se tricotent en rond sur les aiguilles double pointes?
01.05.2018 - 03:05DROPS Design svaraði:
Bonjour Émilie, les jambes se tricotent en rond jusqu'à 18-21 cm de hauteur totale, puis on les continue en allers et retours en montant 1 m de chaque côté pour les coutures. Bon tricot!
02.05.2018 - 09:43
Sofia Jansson skrifaði:
1 varv slätst efter M1? Ska det vara rätta maskor på avigsidan?
23.01.2014 - 10:32DROPS Design svaraði:
Hej Sofia. Slätst = rm paa rätsiden og am paa avigsiden
23.01.2014 - 12:16
Mme LOCHET skrifaði:
Pourriez vous m'adresser la photo detaillee des points du modele car le descriptif ne me semble pas correct Merci d'avance
05.10.2012 - 10:54DROPS Design svaraði:
Bonjour Madame Lochet, après vérification, il s'avère qu'aucune erreur n'a été relevée dans la traduction ni dans le modèle. Si vous rencontrez des difficultés pour réaliser ce modèle, n'hésitez pas à demander une aide personnalisée à votre magasin DROPS ou sur le forum. Bon tricot !
05.10.2012 - 11:11DROPS Design skrifaði:
Either, you can change color on the band to a color of choice :)
10.02.2012 - 23:06Polonca skrifaði:
Is this for a boy or for a girl?
10.02.2012 - 22:53
Drops Design France skrifaði:
Bonjour Pamela, il faut effectivement monter 68 m pour les manches pour les 2 tailles, les explications ont été modifiées. Merci.
08.11.2011 - 09:09
Pamela Granier skrifaði:
Pour faire les manches de la combinaison en la taille de 1-3 mois,le nombre de mailles ne pas exact,j'ai du augmenter pour ajuster a un nombre multiple de 17 (68),sinon le motif n'est pas exact!
07.11.2011 - 17:17
DROPS Design skrifaði:
Har regnet etter. Det skal stemme. Holder du strikkfasthheten?
30.09.2011 - 09:33
May Iren skrifaði:
Får ikkje ermene til å bli like store som ermhullene. Er iallefall 3-4 cm større ermhull enn ermen er bred oppe.
30.09.2011 - 00:41
Angel Kissed#angelkissedset |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Prjónaður heilgalli með blúndumynstri fyrir börn úr DROPS BabyAlpaca Silk. Stærð 1 - 9 mánaða.
DROPS Baby 11-30 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-*. UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið umferð 2. ÚRTAKA-2 (á við um buxur fyrir miðju að framan): Fækkið lykkjum hvoru megin við 2 lykkjur sléttprjón. Fækkið lykkjum á undan 2 lykkjur þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. Fækkið lykkjum á eftir 2 lykkjur þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.2 - M.4 - M.6 - M.7. Mynsturteikning sýnir allt mynstur séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HEILGALLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Hvor skálm er prjónuð fyrir sig, síðan eru skálmarnar tengdar saman og afgangurinn af fram- og afturstykki er prjónað, ermar eru prjónaðar í lokin. VINSTRI SKÁLM: Fitjið upp 32-40 lykkjur á sokkaprjóna nr 2,5 með BabyAlpaca Silk. Prjónið PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – í 5-6 cm. Prjónið síðan 1 umferð sléttprjón jafnframt því sem aukið er út um 8 lykkjur jafnt yfir = 40-48 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-*, síðan er prjónuð 1 umferð sléttprjón jafnframt er aukið út um 8 lykkjur jafnt yfir = 48-56 lykkjur. Prjónið M.2. Haldið síðan áfram í sléttprjóni, jafnframt í 1. umferð er aukið út um 12 lykkjur jafnt yfir = 60-68 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar = innan á skálm. Jafnframt þegar stykkið mælist 11-12 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í 4. hverri umferð alls 6 sinnum = 72-80 cm. Þegar stykkið mælist 18-21 cm er stykkinu skipt upp í innri hlið í skálm, þ.e.a.s. við prjónamerki (þetta er gert til að það verði auðveldara að tengja skálmarnar saman á hringprjóna í lokin). Prjónið nú til loka fram og til baka. Aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir saum = 74-82 lykkjur. Þegar stykkið mælist 20-23 cm eru felldar af 5 lykkjur í hvorri hlið = 64-72 l. Geymið stykkið. HÆGRI SKÁLM: Prjónið á sama hátt og vinstri skálm. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið hægri og vinstri skálm á sama hringprjón = 128-144 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í skiptinguna á milli skálma við miðju að framan og við miðju að aftan. Prjónið 3 umferðir sléttprjón. Aukið síðan út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur við miðju að aftan í annarri hverri umferð 8 sinnum. Jafnframt er felld af 1 lykkja hvoru megin við 2 lykkjur við miðju að framan – sjá ÚRTAKA-2 – í annarri hverri umferð 8 sinnum = 128-144 lykkjur. Þegar stykkið mælist 30-40 cm eru felldar af 8 lykkjur fyrir miðju að aftan (= op til að klæða barnið í og úr flíkinni) og stykkið er prjónað til loka fram og til baka = 120-136 lykkjur. Þegar stykkið mælist 39-48 cm er M.6 prjónað – umferð 1 = ranga (1 kantlykkja í hvorri hlið við miðju að aftan er ekki prjónuð inn í mynstur), jafnframt í síðustu umferð eru prjónaðar 2 miðjulykkjur saman = 119-135 lykkjur. Prjónið síðan næstu umferð þannig: 1 kantlykkja, M.7A (= 9 lykkjur), M.7B yfir 96-112 lykkjur, M.7C (= 12 lykkjur) og 1 kantlykkja. Jafnframt þegar stykkið mælist 45-54 cm er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: 25-29 lykkjur (= vinstra bakstykki), fellið af 6 lykkjur fyrir handveg, 57-65 lykkjur (= framstykki), fellið af 6 lykkjur fyrir handveg, 25-29 lykkjur (= hægra bakstykki). Hvor hluti er nú prjónaður til loka fyrir sig. HÆGRA BAKSTYKKI: = 25-29 lykkjur. Prjónið áfram með M.7 jafnframt er lykkjum fækkað fyrir handveg í hlið í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 1-1 sinni og 1 lykkja 3-4 sinnum = 20-23 lykkjur. ATH: Prjónið sléttprjón yfir þær lykkjur sem mynstrið gengur ekki upp í við handveg. Þegar stykkið mælist 53-63 cm eru felldar af 5-6 lykkjur við miðju að aftan fyrir hálsmáli. Haldið áfram að fella af 1 lykkju við hálsmál í annarri hverri umf 2 sinnum = 13-15 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 55-65 cm. VINSTRA BAKSTYKKI: Prjónið á sama hátt og bakstykki. FRAMSTYKKI: = 57-65 lykkjur. Prjónið áfram með M.7 jafnframt er fellt af fyrir handvegi í hvorri hlið eins og á bakstykki = 47-53 lykkjur. Þegar stykkið mælist 51-60 cm eru felldar af miðju 11-13 lykkjur fyrir hálsmáli. Haldið áfram að fella af við hálsmál í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 3 sinnum = 13-15 lykkjur eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist ca 55-65 cm – stillið af við bakstykki. ERMI: Fitjið laust upp 68-68 lykkjur á sokkaprjóna nr 2,5 með BabyAlpaca Silk. Prjónið M.4 – jafnframt í síðustu umferð er fækkað um 28-20 lykkjur jafnt yfir = 40-48 lykkjur. Prjónið M.2, prjónið síðan M.7B til loka. Jafnframt þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi í 6.-9. hverri umf 5-4 sinnum = 50-56 lykkjur – útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 17-19 cm eru felldar af 6 lykkjur mitt undir ermi og prjónað fram og til baka til loka. Fækkið nú lykkjum fyrir ermakúpu í hvorri hlið í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 2-3 sinnum, 1 lykkja 5-3 sinnum, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 23-25 cm. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. VINSTRI KANTUR: Takið upp ca 60-65 lykkjur meðfram vinstra bakstykki á hringprjóna nr 2,5 með BabyAlpaca. Prjónið fram og til baka þannig: 1 umferð slétt frá röngu, síðan perluprjón í 2,5 cm, fellið af. HÆGRI KANTUR: Takið upp meðfram hægra bakstykki og prjónið eins og vinstri kantur, en eftir 1 cm er fellt af fyrir 5 hnappagötum jafnt yfir: 1 hnappagat = fellið af 2 lykkjur og fitjið upp 2 nýjar lykkjur í næstu umferð yfir þær lykkjur sem felldar voru af. Leggið hægri kant yfir vinstri kant og saumið fallega niður neðst í klaufinni. BLÚNDUKRAGI: Takið upp frá röngu ca 55-65 lykkjur í kringum hálsmál (lykkjur eru ekki teknar upp í kanti að framan og að aftan) á prjóna nr 2,5 með BabyAlpaca Silk. Prjónið 4 umferðir garðaprjón, prjónið síðan 1 umferð sléttprjón jafnframt er aukið út um 123 lykkjur jafnt yfir. Prjónið síðan M.4 – byrjið á 3. umferð í mynstri – með 2 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið við miðju að aftan. Eftir M.4 er fellt af. Heklið í kringum kraga með heklunál nr 2,5 þannig: 1 keðjulykkja í 1. lykkju, * 4 loftlykkjur, hoppið yfir 2 lykkjur, 1 keðjulykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-*. Saumið ermar í. Saumið skrefbót / klofsauma og saum undir fæti. Saumið tölur í kantinn. Klippið 2 st 20 cm langan silkiborða og þræðið 1 í efstu gataumferðina á hvorri ermi. Klippið 2 st 60 cm langan silkiborða og þræðið 1 í neðstu gataumferðina á hvorri skálm. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #angelkissedset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 11-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.