-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
= slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu | |
= brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu | |
= 2 lykkjur brugðið saman | |
= sláið 1 sinni uppá prjóninn | |
= 2 lykkjur slétt saman | |
= lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir | |
= lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Angel Kissed |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Prjónaður heilgalli með blúndumynstri fyrir börn úr DROPS BabyAlpaca Silk. Stærð 1 - 9 mánaða.
DROPS Baby 11-30 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-*. UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið umferð 2. ÚRTAKA-2 (á við um buxur fyrir miðju að framan): Fækkið lykkjum hvoru megin við 2 lykkjur sléttprjón. Fækkið lykkjum á undan 2 lykkjur þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. Fækkið lykkjum á eftir 2 lykkjur þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.2 - M.4 - M.6 - M.7. Mynsturteikning sýnir allt mynstur séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HEILGALLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Hvor skálm er prjónuð fyrir sig, síðan eru skálmarnar tengdar saman og afgangurinn af fram- og afturstykki er prjónað, ermar eru prjónaðar í lokin. VINSTRI SKÁLM: Fitjið upp 32-40 lykkjur á sokkaprjóna nr 2,5 með BabyAlpaca Silk. Prjónið PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – í 5-6 cm. Prjónið síðan 1 umferð sléttprjón jafnframt því sem aukið er út um 8 lykkjur jafnt yfir = 40-48 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-*, síðan er prjónuð 1 umferð sléttprjón jafnframt er aukið út um 8 lykkjur jafnt yfir = 48-56 lykkjur. Prjónið M.2. Haldið síðan áfram í sléttprjóni, jafnframt í 1. umferð er aukið út um 12 lykkjur jafnt yfir = 60-68 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar = innan á skálm. Jafnframt þegar stykkið mælist 11-12 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í 4. hverri umferð alls 6 sinnum = 72-80 cm. Þegar stykkið mælist 18-21 cm er stykkinu skipt upp í innri hlið í skálm, þ.e.a.s. við prjónamerki (þetta er gert til að það verði auðveldara að tengja skálmarnar saman á hringprjóna í lokin). Prjónið nú til loka fram og til baka. Aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir saum = 74-82 lykkjur. Þegar stykkið mælist 20-23 cm eru felldar af 5 lykkjur í hvorri hlið = 64-72 l. Geymið stykkið. HÆGRI SKÁLM: Prjónið eins og vinstri skálm. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið hægri og vinstri skálm á sama hringprjón = 128-144 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í skiptinguna á milli skálma við miðju að framan og við miðju að aftan. Prjónið 3 umferðir sléttprjón. Aukið síðan út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur við miðju að aftan í annarri hverri umferð 8 sinnum. Jafnframt er felld af 1 lykkja hvoru megin við 2 lykkjur við miðju að framan – sjá ÚRTAKA-2 – í annarri hverri umferð 8 sinnum = 128-144 lykkjur. Þegar stykkið mælist 30-40 cm eru felldar af 8 lykkjur fyrir miðju að aftan (= op til að klæða barnið í og úr flíkinni) og stykkið er prjónað til loka fram og til baka = 120-136 lykkjur. Þegar stykkið mælist 39-48 cm er M.6 prjónað – umferð 1 = ranga (1 kantlykkja í hvorri hlið við miðju að aftan er ekki prjónuð inn í mynstur), jafnframt í síðustu umferð eru prjónaðar 2 miðjulykkjur saman = 119-135 lykkjur. Prjónið síðan næstu umferð þannig: 1 kantlykkja, M.7A (= 9 lykkjur), M.7B yfir 96-112 lykkjur, M.7C (= 12 lykkjur) og 1 kantlykkja. Jafnframt þegar stykkið mælist 45-54 cm er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: 25-29 lykkjur (= vinstra bakstykki), fellið af 6 lykkjur fyrir handveg, 57-65 lykkjur (= framstykki), fellið af 6 lykkjur fyrir handveg, 25-29 lykkjur (= hægra bakstykki). Hvor hluti er nú prjónaður til loka fyrir sig. HÆGRA BAKSTYKKI: = 25-29 lykkjur. Prjónið áfram með M.7 jafnframt er lykkjum fækkað fyrir handveg í hlið í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 1-1 sinni og 1 lykkja 3-4 sinnum = 20-23 lykkjur. ATH: Prjónið sléttprjón yfir þær lykkjur sem mynstrið gengur ekki upp í við handveg. Þegar stykkið mælist 53-63 cm eru felldar af 5-6 lykkjur við miðju að aftan fyrir hálsmáli. Haldið áfram að fella af 1 lykkju við hálsmál í annarri hverri umf 2 sinnum = 13-15 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 55-65 cm. VINSTRA BAKSTYKKI: Prjónið eins og hægra bakstykki. FRAMSTYKKI: = 57-65 lykkjur. Prjónið áfram með M.7 jafnframt er fellt af fyrir handvegi í hvorri hlið eins og á bakstykki = 47-53 lykkjur. Þegar stykkið mælist 51-60 cm eru felldar af miðju 11-13 lykkjur fyrir hálsmáli. Haldið áfram að fella af við hálsmál í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 3 sinnum = 13-15 lykkjur eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist ca 55-65 cm – stillið af við bakstykki. ERMI: Fitjið laust upp 68-68 lykkjur á sokkaprjóna nr 2,5 með BabyAlpaca Silk. Prjónið M.4 – jafnframt í síðustu umferð er fækkað um 28-20 lykkjur jafnt yfir = 40-48 lykkjur. Prjónið M.2, prjónið síðan M.7B til loka. Jafnframt þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi í 6.-9. hverri umf 5-4 sinnum = 50-56 lykkjur – útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 17-19 cm eru felldar af 6 lykkjur mitt undir ermi og prjónað fram og til baka til loka. Fækkið nú lykkjum fyrir ermakúpu í hvorri hlið í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 2-3 sinnum, 1 lykkja 5-3 sinnum, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 23-25 cm. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. VINSTRI KANTUR: Takið upp ca 60-65 lykkjur meðfram vinstra bakstykki á hringprjóna nr 2,5 með BabyAlpaca. Prjónið fram og til baka þannig: 1 umferð slétt frá röngu, síðan perluprjón í 2,5 cm, fellið af. HÆGRI KANTUR: Takið upp meðfram hægra bakstykki og prjónið eins og vinstri kantur, en eftir 1 cm er fellt af fyrir 5 hnappagötum jafnt yfir: 1 hnappagat = fellið af 2 lykkjur og fitjið upp 2 nýjar lykkjur í næstu umferð yfir þær lykkjur sem felldar voru af. Leggið hægri kant yfir vinstri kant og saumið fallega niður neðst í klaufinni. BLÚNDUKRAGI: Takið upp frá röngu ca 55-65 lykkjur í kringum hálsmál (lykkjur eru ekki teknar upp í kanti að framan og að aftan) á prjóna nr 2,5 með BabyAlpaca Silk. Prjónið 4 umferðir garðaprjón, prjónið síðan 1 umferð sléttprjón jafnframt er aukið út um 123 lykkjur jafnt yfir. Prjónið síðan M.4 – byrjið á 3. umferð í mynstri – með 2 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið við miðju að aftan. Eftir M.4 er fellt af. Heklið í kringum kraga með heklunál nr 2,5 þannig: 1 keðjulykkja í 1. lykkju, * 4 loftlykkjur, hoppið yfir 2 lykkjur, 1 keðjulykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-*. Saumið ermar í. Saumið skrefbót / klofsauma og saum undir fæti. Saumið tölur í kantinn. Klippið 2 st 20 cm langan silkiborða og þræðið 1 í efstu gataumferðina á hvorri ermi. Klippið 2 st 60 cm langan silkiborða og þræðið 1 í neðstu gataumferðina á hvorri skálm. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (17)
Sima wrote:
Bonjour; je n'ai pas compris dans la rubrique Dos et Devant vous dites "Placer un marqueur à la transition entre les 2 jambes au milieu devant et au milieu dos" on va mettre 1 seule marqueur au niveau de la transition entre les 2 jambe devant c ça ou on mettra 1 autre coté dos. et donc les augmentation se feront du coté de dos à 2 m du bord c'est ça merci de m'éclairer.
17.07.2023 - 15:17DROPS Design answered:
Bonjour Sima, vous plecez 2 marqueurs: premier au milieu dos et deuxieme au milieu devant. Les augmentations se fond de chaque cote de 2 mailles au milieu dos et au milieu devant (il s'agit de 2 mailles - 1 maille de chaque cote du marqueur). Bon tricot!
17.07.2023 - 23:01Lottis Ikonen wrote:
Hejsan! tänkte konvertera byxdräkten till en kofta istället och är osäker på var jag skall hoppa in i så fall.. kommer fortfarande att ha knapparna bak
16.12.2021 - 21:37DROPS Design answered:
Hej Lottis. Du får börja där det står "Fram- och bakstycke", men du behöver inte göra ökningar och minskningar utan sticka bara slätstickning (ev. en kant nederst om du önskar det). Sedan kan du bara sticka så långt som du vill ha koftan innan du avmaskar för öppning och mönster. Mvh DROPS Design
20.12.2021 - 10:04Cristina wrote:
Los menguados de la sisa no coinciden con los menguados de la manga, Es correcto para unirlos después ?? Gracias
28.10.2021 - 13:25DROPS Design answered:
Hola Cristina, las disminuciones de la copa de la manga pueden ser diferentes a las de la sisa, pero luego cuadrarán bien.
01.11.2021 - 12:40Zaza wrote:
De linker en rechter pijp moeten hetzelfde worden gebreid, maar zou ik het niet gespiegeld moeten breien?
12.09.2021 - 23:25DROPS Design answered:
Dag Zaza,
Nee, je kunt het tweede pijpje op exact dezelfde manier breien, ze zijn namelijk al symmetrisch, dus de rechter en linker kant van het pijpje is hetzelfde.
17.09.2021 - 10:38Veronica wrote:
I noticed the instructions for the cast on of the collar specifies to 2.5 cm needles however this is not listed in the supplies for this pattern is this a mis type or should it be 2. 5 mm
14.11.2018 - 12:31DROPS Design answered:
Dear Veronica, you are right, it's a typo, you should use needle size 2,5 mm for the lace collar, this will be fixed, thanks. Happy knitting!
14.11.2018 - 12:43Veronica wrote:
I am knitting the gown and it specifies to bind off 40 sts on each side and to work the front portion however it later says to put sts from thread back on needle to knit, so do i bind off or put on a thread? Thanks
08.11.2018 - 18:58DROPS Design answered:
Dear Veronica, the "left side" part of the pattern belongs to the front piece, ie after you have cast off the middle 2 sts for neck you continue each side of neck separately, first work the right side of neck then the left side. The 42 sts on each side of the 70 sts for front piece are bound off as explained in the pattern. Happy knitting!
09.11.2018 - 08:30Veronica wrote:
I am knitting the sleeves and just finished M2 and am now moving on to M7 and notice that there are 48 sts but M7 has 29 sts. Can you indicate how to proceed ie on row 3 it reads *(K6, YO, slip as if to knit, K1, PSSO)* repeat 3 times, K5 ? Would I simply start with K6 thereby having 11 knit sts or would I just repeat K6, YO, slip as if to knit, K1, PSSO until I got to the end of the row?
01.11.2018 - 01:24DROPS Design answered:
Hi Veronica, You work just a section of M.7 on the sleeves (marked as M.7B) which consists of 8 stitches repeated on the round; Knit 5, 1 yarn over, 1 psso and knit 1. Happy knitting!
01.11.2018 - 07:54Emilie wrote:
Bonjour, Combien de mailles doit-on relever pour le col dentelle de la combinaison? Merci.
20.06.2018 - 15:42DROPS Design answered:
Bonjour Émilie, on relève 55 à 65 m (le nombre de mailles a été ajouté, merci). Bon tricot!
20.06.2018 - 16:09Emilie wrote:
Est-ce que les jambes de la combinaison se tricotent en rond sur les aiguilles double pointes?
01.05.2018 - 03:05DROPS Design answered:
Bonjour Émilie, les jambes se tricotent en rond jusqu'à 18-21 cm de hauteur totale, puis on les continue en allers et retours en montant 1 m de chaque côté pour les coutures. Bon tricot!
02.05.2018 - 09:43Sofia Jansson wrote:
1 varv slätst efter M1? Ska det vara rätta maskor på avigsidan?
23.01.2014 - 10:32DROPS Design answered:
Hej Sofia. Slätst = rm paa rätsiden og am paa avigsiden
23.01.2014 - 12:16