Simone skrifaði:
Zur passe:nach M2A folgt immer M2B, richtig? Also von links, fängt man mit M2B an!in der weiteren Beschreibung wird nur von M2 geschrieben und Maschen abnehmen,das irritiert mich.sucherlich sind die Maschen in M2A und M2B gemeint.
08.11.2024 - 22:21DROPS Design svaraði:
Liebe Simone, Sie stricken wie begonnen, also M2A und dann M2B. Genau, in der Rück-Reihe starten Sie dann mit M2B, weil Sie das Muster ja richtig fortsetzen. In der Nennung "M2" sind M2A und M2B enthalten, Sie nehmen ja in beiden Diagrammen ab (teilweise etwas unterschiedlich). Viel Spaß beim Weiterstricken!
09.11.2024 - 08:31
Simone skrifaði:
Laut Strickschrift der Jacke bin ich nach 4cm Bündchen und Abnahme der Maschen auf der Rückreihe.d.h. ich beginne mit dem Muster auf einer Rückreihe.oder soll ich noch eine Reihe links(von vorne dann rechts) stricken und beginne von rechts mit dem Muster. Ist in der Schrift nicht so erkennbar,deshalb meine Frage. Danke!
04.10.2024 - 16:07DROPS Design svaraði:
Liebe Simone, sollte diese Abnahmen-Reihe eine Hin-Reihe sein, dann stricken Sie entweder eine Rückreihe glattrechts (links mit Blenden wie zuvor) oder beginnen Sie das Muster von der Rückseite; oder stricken Sie die Abnahmen-Reihe bei einer Rückreihe so beginnt das Muster mit einer Hin-Reihe. Viel Spaß beim Stricken!
04.10.2024 - 16:13
Lone skrifaði:
Hov jeg mente M1 og ikke m2
14.07.2018 - 17:08DROPS Design svaraði:
Hei Lone. Du skal strikke M.1 over 123 masker (131 – 8 stolpemasker). Hver M.1 går over 12 masker, så du vil få 10 hele rapporter av diagrammet (=120 masker), også kan du strikke de første 3 maskene av M.1 over de siste 3 maskene på omgangen. Altså du begynner på den 11 rapporten av M.1 over de siste maskene. God fornøyelse.
19.07.2018 - 08:57
Lone skrifaði:
Jeg er ved at lave jakken i 12-18 md. Jeg skal lave m2 men får det ikke til at passe ? Hvis jeg slutter af som diagram er det 3 m rosa og det passer ikke med de masker jeg har.
14.07.2018 - 11:49
Anneli skrifaði:
M.2A över de följande 144-160-184 (200-224) m, M.2B (= 4 m) och avsluta med 4 framkantsm. Fortsätt mönstret så, Jag stickar lilla storleken, när jag kommer fram till mönstret är det 156 maskor och när jag stickat 144 m med M.2A är det 12 maskor kvar inkl kanten då jag ska sticka M.2B vilket står att det ska vara fyra maskor men det blir ju fyra maskor över? 156 - 144 = 12 maskor 12 - 4 (kantm) = 8 .. och det står att det ska vara fyra??
08.02.2015 - 10:18DROPS Design svaraði:
Hej "Nästa v stickas så här från rätsidan: 4 framkantsm, M.2A över de följande 144-160-184 (200-224) m, M.2B (= 4 m) och avsluta med 4 framkantsm." Du glömde att räkna med de första 4 framkantsmaskorna. 4+144+4+4 =156 m. Lycka till!
15.05.2015 - 11:01
GullBritt skrifaði:
M.2A över de följande 144-160-184 (200-224) m, M.2B (= 4 m) och avsluta med 4 framkantsm. Fortsätt mönstret så, SAMTIDIGT som det minskas m i M.2. När M.2 är färdigt är det 81-89-101 (109-121) m kvar på st. Det står bara M2 är det både A och B som skall stickas eller bara M2A??
26.07.2014 - 14:34DROPS Design svaraði:
Hej GullBritt. Der er beskrevet i starten hvor du skal strikke A og B. Du fortsætter derefter over begge M.2'er som beskrevet.
07.08.2014 - 12:28
Martina skrifaði:
Ich habe 2 unklarheiten betreffend ärmel: 1) nach 5 cm 2 maschen aufnehmen = nach insgesamt 5 cm oder nach 5 cm glatt stricken 2) die aufnahme soll jede 6. runde wiederholt werden, total 8 mal (grösse 2 jahre), laut anleitung hat man dann am ende insgesamt 46 maschen. 2 aufnahmen x 8 sind aber 16 zusatzmaschen, bei grösse 2 jahre ergibt das 36 + 18 = 54 maschen. Oder muss man nur beim ersten mal 2 maschen aufnehmen und danach 8 x 1 masche?
24.03.2014 - 22:30DROPS Design svaraði:
Liebe Martina, zu Frage 1: die Maßangaben beziehen sich immer auf die Anschlagkante, wenn nichts anderes angebenen ist, also nach insgesamt 5 cm. Zu Frage 2: Nach dem Bündchen haben Sie ja 36 M, dann nehmen 8x je 2 M zu (= 16 M zugenommen), 36 + 16 = 52 M, ganz am Ende ketten Sie 6 M an der unteren Ärmelmitte ab = 46 M. Viel Spaß beim Weiterstricken!
25.03.2014 - 11:19
Anna skrifaði:
Garnmängden stämmer inte alls för mig. Stickar största storleken och har just börjat på mitt femte nystan i huvudfärgen, och då har jag nyss börjat på den mönstrade delen av oket.
01.06.2011 - 12:23
Anna-Karin skrifaði:
Ok, trodde halsresåren skulle stickas med stickor 3,5 även på denna.
13.07.2010 - 09:27
DROPS Design skrifaði:
I detta mönster börjar du med st 3,5 och fortsätter med 4,5 enligt mönster. Lycka till!
13.07.2010 - 09:04
Strawberry Cheeks#strawberrycheeksset |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Sett með prjónaðri peysu fyrir börn með hringlaga berustykki og háu hálsmáli, húfu og sokkum með norrænu mynstri úr DROPS Merino Extra Fine
DROPS Baby 19-1 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 til M.4 – allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið 2. og 3. l frá miðju að framan slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ 1/3 MÁN: 2, 8, 14, 20 og 26 cm. STÆRÐ 6/9 MÁN: 2, 8, 15, 21 og 28 cm. STÆRÐ 12/18 MÁN: 2, 8, 14, 20, 26 og 32 cm. STÆRÐ 2 ÁRA: 2, 9, 16, 23, 30 og 36 cm. STÆRÐ 3/4 ÁRA: 2, 10, 17, 25, 32 og 39 cm. Fellið einnig af fyrir 1 hnappagati í kanti í hálsmáli. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðjustykki á húfu): Fækkið lykkjum á eftir 1. lykkju þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna. Fækkið lykkjum á undan síðustu lykkju þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um sokka): Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 5-5-5 (6-6) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 5-5-5 (6-6) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 4-4-4 (5-5) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 4-4-4 (5-5) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. Haldið áfram á sama hátt með því það fækki um 1 l áður en 1 l er steypt yfir þar til 7-9-9 (9-9) l eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------ BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 119-133-145 (159-171) l (meðtaldar 4 kantlykkjur að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 3,5 með litnum ljós bleikur. Prjónið 1 umf br frá röngu (þær 4 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eru prjónaðar í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – til loka). Prjónið síðan stroff þannig; frá réttu: 4 kantlykkjur að framan, * 1 l sl /1 l br *, endurtakið frá *-* og endið á 1 l sl og 4 kantlykkjum að framan – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan. Þegar stroffið mælist 4 cm er skipt yfir á hringprjóna nr 4,5. Prjónið 1 umf sléttprjón (kantur að framan er áfram prjónaður í garðaprjóni) JAFNFRAMT er fækkað um 12-14-14 (16-16) l jafnt yfir (ekki er lykkjum fækkað yfir kant að framan) = 107-119-131 (143-155) l. Prjónið síðan M.1 með 4 kantlykkjum að framan í hvorri hlið. Eftir M.1 er prjónað sléttprjón og 4 kantlykkjur að framan í hvorri hlið með litnum ljós bleikur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 17-18-21 (24-26) cm – passið uppá að næsta umf sé prjónuð frá réttu – prjónið næstu umf þannig: prjónið 26-29-32 (35-38) l (= framstykki), fellið af 6 l fyrir handveg, prjónið 43-49-55 (61-67) l (= bakstykki), fellið af 6 l fyrir handveg, prjónið 26-29-32 (35-38) l (= framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 34-36-38 (38-38) l á sokkaprjóna nr 3,5 með litnum ljós bleikur. Prjónið 1 umf slétt, síðan er prjónað stroff = 1 l sl/1 l br. Þegar stroffið mælist 4 cm er skipt yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 4-6-2 (2-2) l jafnt yfir = 30-30-36 (36-36) l. Prjónið síðan M.1. Eftir M.1 er prjónað sléttprjón með litnum ljós bleikur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um 2 l mitt undir ermi. Endurtakið útaukningu í 4.-4.-6. (6.-6.) hverri umf 5-7-6 (8-10) sinnum = 40-44-48 (52-56) l. Þegar stykkið mælist 14-16-18 (22-26) cm (útaukningu á nú að vera lokið) fellið af 6 l mitt undir ermi = 34-38-42 (46-50) l á prjóni. Leggið stykkið til hliðar. Prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjóna og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handvegi = 163-183-203 (223-243) l. Prjónið síðan fram og til baka þannig: Prjónið 1 umf br frá röngu JAFNFRAMT er fækkað um 7-11-7 (11-7) l jafnt yfir (ekki er lykkjum fækkað yfir kant að framan) = 156-172-196 (212-236) l. Prjónið 0-1-2 (3-4) cm sléttprjón með litnum ljós bleikur. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur að framan, M.2A yfir næstu 144-160-184 (200-224) l, M.2B (= 4 l) og endið á 4 kantlykkjum að framan. Haldið svona áfram með mynstur, JAFNFRAMT er l fækkað í M.2. Þegar M.2 er lokið eru 81-89-101 (109-121) l eftir á prjóni. Prjónið 1 umf br frá röngu (kantur að framan eins og áður). Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur að framan, * 1 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* og endið á 1 l sl og 4 kantlykkjur að framan. Þegar stroffið mælist 1 cm er öllum 3 l br fækkað í 2 l br. Þegar stroffið mælist 2 cm er öllum 2 l br fækkað til 1 l br = 45-49-55 (59-65) l á prjóni. Peysan mælist nú 28-30-34 (38-41) cm upp að öxl og haldið er áfram með 1 l sl/ 1 l br fyrir hálsmáli (kantar að framan eins og áður). Þegar allt stroffið mælist 6-7-7 (8-8) cm (munið eftir að fella af fyrir síðasta hnappagati í kanti að framan þegar stroffið mælist 5-6-6 (7-7) cm) fellið síðan af með sl yfir sl og br yfir br. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka og saumað saman í lokin. HÚFA: Fitjið upp 75-81-85 (91-91) lausar l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 3,5 með litnum ljós bleikur. Prjónið 1 umf br frá röngu, prjónið síðan stroff (= 1 l sl/1 l br) með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – og 1 l sl innan við kantlykkju í hvorri hlið (séð frá réttu). Þegar stykkið mælist 3 cm er prjónuð 1 umf í sléttprjóni JAFNFRAMT er fækkað um 10-10-8 (8-8) l jafnt yfir = 65-71-77 (83-83) l. Skiptið yfir á prjóna nr 4,5 og prjónið M.3A með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Eftir M.3A eru prjónaðar 4 umf í sléttprjóni með litnum ljós bleikur (kantlykkjur eru áfram prjónaðar í garðaprjóni). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú M.3B með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Eftir M.3B eru prjónaðar 4 umf sléttprjón (kantlykkjur í garðaprjóni) með ljós bleikur. Prjónið nú M.3C með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist ca 11-12-13 (14-15) cm – stillið af eftir heila mynstureiningu og haldið áfram með nokkrar umf með litnum ljós bleikur að réttri lengd. Fellið nú af síðustu 23-25-28 (30-30) l í hvorri hlið (fellið af í byrjun á 2 næstu umf) = 19-21-21 (23-23) l eftir á prjóni (= miðjustykki aftan á húfu). Prjónið áfram í garðaprjóni yfir þessar l með litnum ljós bleikur – JAFNFRAMT eftir 3 cm er fækkað um 1 l í hvorri hlið – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í 4. hverjum cm alls 3 sinnum = 13-15-15 (17-17) l eftir á prjóni. Þegar mynstureining með garðaprjóni mælist 12-13-14 (15-15) cm fellið af. FRÁGANGUR: Saumið saman miðjustykki að aftan að hliðarstykkjum í hvorri hlið – saumið kant í kant í l með garðaprjóni svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Prjónið upp frá réttu ca 61-85 l (deilanlegar með 2 + 1) meðfram neðri kanti á húfu á prjóna nr 3,5 með litnum ljós bleikur. Prjónið 1 umf br frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Næsta umf er prjónuð þannig (frá réttu): 1 l sl, * 2 l sl saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir, þær eru prjónaðar slétt. Prjónið síðan 2 umf í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, fellið síðan af. SNÚRA: Klippið 3 þræði með litnum ljós bleikur ca 2 metra, tvinnið þá vel saman, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman, hnýtið hnút í hvorn enda. Þræðið snúruna í gegnum gataumferð neðst á húfu. ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna ofan frá og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 34-34-40 (40-40) l á sokkaprjóna nr 3 með litnum ljós bleikur. Prjónið stroff = 1 l sl, 1 l br í 4-4-5 (5-6) cm. Prjónið síðan 1 umf sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 4 l jafnt yfir = 30-30-36 (36-36) l. Prjónið nú M.4. Eftir M.4 eru prjónaðar 4 umf sléttprjón með litnum ljós bleikur – JAFNFRAMT í umf 1 (á eftir M.4) er fækkað um 2-0-4 (2-0) l jafnt yfir = 28-30-32 (34-36) l. Eftir 4 umf sléttprjón er haldið eftir fyrstu 15-17-17 (19-19) l á prjóni fyrir hæl og hinar 13-13-15 (15-17) l eru settar á þráð (= ofan á fæti). Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hæl-l í 3-3½-4 (4-4½) cm – setjið 1 prjónamerki. Héðan er nú prjónuð HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan! Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 7-8-9 (9-10) nýjar l hvoru megin við hæl og l af þræði ofan á fæti eru settar til baka á prjóninn = 34-38-42 (42-46) l. Haldið áfram í sléttprjóni hringinn yfir allar l með litnum ljós bleikur – JAFNFRAMT í umf 1 er lykkjum fækkað þannig: Þær 2 síðustu l á undan 13-13-15 (15-17) l ofan á fæti eru prjónaðar snúnar slétt saman (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri) og 2 fyrstu l á eftir 13-13-15 (15-17) l ofan á fæti eru prjónaðar slétt saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 4-6-6 (6-6) sinnum = 26-26-30 (30-34) l. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 8-9-9½ (11½-12½) cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir ca 2-2-2½ (2½-3½) cm að loka máli). Setjið 1 nýtt prjónamerki í hvora hlið þannig að það verða 13-13-15 (15-17) l bæði ofan á fæti og undir fæti. Fækkið nú lykkjum fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið lykkjum í annarri hverri umf: 2-2-3 (3-5) sinnum og síðan í hverri umf: 3-3-3 (3-2) sinnum = 6 l eftir á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið. Fóturinn mælist ca 10-11-12 (14-16) cm. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #strawberrycheeksset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 19-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.