DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
DROPS SS24

First Snow

Sett með prjónaðri peysu fyrir börn með hringlaga berustykki og háu hálsmáli, húfu og sokkum með norrænu mynstri úr DROPS Merino Extra Fine

DROPS Baby 19-2
DROPS Design: Mynstur nr ME-031-by-ME-033-by-ME-034-by
Garnflokkur B
--------------------------------------------------------

PEYSA:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 50/56-62/68-74/80 (86/92-98/104)

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
150-150-200 (250-250) g nr 07, ljós brúnn
50-50-50 (50-50) g nr 01, natur
50-50-50 (50-50) g nr 06, ljós brúnn
50-50-50 (50-50) g nr 15, ljus grágrænn

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 l x 26 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 3,5 (fyrir stroff).
DROPS TRÉTALA nr 503: 6-6-7 (7-7) st.

HÚFA:
Höfuðmál:
40/42 - 44/46 - 46/48 (48/50 - 50/52) cm

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
50-50-50 (100-100) g nr 07, ljós brúnn
50-50-50 (50-50) g nr 01, natur
50-50-50 (50-50) g nr 06, brúnn
50-50-50 (50-50) g nr 15, ljós grágrænn

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 l x 26 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 3,5 (fyrir stroff).

SOKKAR:
Fótlengd: 10-11-12 (14-16) cm

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
50-50-50 (50-100) g nr 07, ljós brúnn
50-50-50 (50-50) g nr 01, natur
50-50-50 (50-50) g nr 15, ljós grágrænn

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 23 l x 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1-M.4 – allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan.
1 HNAPPAGAT = prjónið 2. og 3. l frá miðju að framan slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ 1/3 MÁN: 2, 8, 14, 20 og 26 cm.
STÆRÐ 6/9 MÁN: 2, 8, 15, 21 og 28 cm.
STÆRÐ 12/18 MÁN: 2, 8, 14, 20, 26 og 32 cm.
STÆRÐ 2 ÁRA: 2, 9, 16, 23, 30 og 36 cm.
STÆRÐ 3/4 ÁRA: 2, 10, 17, 25, 32 og 39 cm.
Fellið einnig af fyrir 1 hnappagati í kant í hálsmáli.

HÆLÚRTAKA:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 5-5-5 (6-6) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 5-5-5 (6-6) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 4-4-4 (5-5) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 4-4-4 (5-5) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
Haldið áfram á sama hátt með því það fækki um 1 l áður en 1 l er steypt yfir þar til 7-9-9 (9-9) l eru eftir á prjóni.

ÚRTAKA (á við um sokka):
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: 2 lykkjur slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 119-133-145 (159-171) l (meðtaldar 4 kantlykkjur að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 3,5 með litnum ljós brúnn. Prjónið 1 umf br frá röngu (þær 4 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eru prjónaðar í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – til loka). Prjónið síðan stroff þannig; frá réttu: 4 kantlykkjur að framan, * 1 l sl /1 l br *, endurtakið frá *-* og endið á 1 l sl og 4 kantlykkjum að framan – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan. Þegar stroffið mælist 4 cm er skipt yfir á hringprjóna nr 4,5. Prjónið 1 umf sléttprjón (kantur að framan er áfram prjónaður í garðaprjóni) JAFNFRAMT er fækkað um 12-14-14 (16-16) l jafnt yfir (ekki er lykkjum fækkað yfir kant að framan) = 107-119-131 (143-155) l. Prjónið síðan M.1 með 4 kantlykkjum að framan í hvorri hlið. Eftir M.1 er prjónað sléttprjón og 4 kantlykkjur að framan í hvorri hlið með litnum ljós brúnn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 17-18-21 (24-26) cm – passið uppá að næsta umf sé prjónuð frá réttu – prjónið næstu umf þannig: prjónið 26-29-32 (35-38) l (= framstykki), fellið af 6 l fyrir handveg, prjónið 43-49-55 (61-67) l (= bakstykki), fellið af 6 l fyrir handveg, prjónið 26-29-32 (35-38) l (= framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 34-36-38 (38-38) l á sokkaprjóna nr 3,5 með litnum ljós brúnn.
Prjónið 1 umf slétt, síðan er prjónað stroff = 1 l sl/1 l br. Þegar stroffið mælist 4 cm er skipt yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 4-6-2 (2-2) l jafnt yfir = 30-30-36 (36-36) l. Prjónið síðan M.1. Eftir M.1 er prjónað sléttprjón með litnum ljós brúnn. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um 2 l mitt undir ermi. Endurtakið útaukningu í 4.-4.-6. (6.-6.) hverri umf 5-7-6 (8-10) sinnum = 40-44-48 (52-56) l. Þegar stykkið mælist 14-16-18 (22-26) cm (útaukningu á nú að vera lokið) fellið af 6 l mitt undir ermi = 34-38-42 (46-50) l á prjóni. Leggið stykkið til hliðar og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjóna og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handvegi = 163-183-203 (223-243) l. Prjónið síðan fram og til baka þannig: Prjónið 1 umf br frá röngu JAFNFRAMT er fækkað um 7-11-7 (11-7) l jafnt yfir (ekki er lykkjum fækkað yfir kant að framan) = 156-172-196 (212-236) l. Prjónið 0-1-2 (3-4) cm sléttprjón með litnum ljós brúnn. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur að framan, M.2A yfir næstu 144-160-184 (200-224) l, M.2B (= 4 l) og endið á 4 kantlykkjum að framan. Haldið svona áfram með mynstur, JAFNFRAMT er l fækkað í M.2. Þegar M.2 er lokið eru 81-89-101 (109-121) l eftir á prjóni. Prjónið 1 umf br frá röngu (kantur að framan eins og áður). Næsta umf er prjónið frá réttu þannig: 4 kantlykkjur að framan, * 1 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* og endið á 1 l sl og 4 kantlykkjur að framan. Þegar stroffið mælist 1 cm er öllum 3 l br fækkað í 2 l br. Þegar stroffið mælist 2 cm er öllum 2 l br fækkað til 1 l br = 45-49-55 (59-65) l á prjóni. Peysan mælist nú 28-30-34 (38-41) cm upp að öxl og haldið er áfram með 1 l sl/ 1 l br fyrir hálsmáli (kantar að framan eins og áður). Þegar allt stroffið mælist 6-7-7 (8-8) cm (munið eftir að fella af fyrir síðasta hnappagati á kant að framan þegar stroffið mælist 5-6-6 (7-7) cm) fellið síðan af með sl yfir sl og br yfir br.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í.

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring neðan frá og upp.

HÚFA:
Fitjið upp 88-94-98 (104-106) l á hringprjóna nr 3,5 með litnum ljós brúnn.
Prjónið stroff = 1 l sl/ 1 l br þar til stykkið mælist 4-5-5 (6-6) cm. Prjónið 1 umf sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 10-10-14 (14-16) l jafnt yfir = 78-84-84 (90-90) l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5. Setjið 6 prjónamerki í stykkið með 13-14-14 (15-15) l á milli prjónamerkja. Prjónið M.3A. Haldið síðan áfram í sléttprjóni og með litnum ljós brúnn. JAFNFRAMT er l fækkað hægra megni við öll prjónamerkin með því að prjóna 2 l slétt saman (= 6 l færri í umf). Endurtakið úrtöku (með 1 l færri á milli skipta sem úrtakan er) að auki í annarri hverri umf 3 sinnum = 54-60-60 (66-66) l. Á eftir síðustu umf með úrtöku er prjónað M.3B. Síðan er haldið áfram í sléttprjóni og með litnum ljós brúnn JAFNFRAMT er lykkjum fækkað hægra megin við öll prjónamerki (= 6 l færri). Prjónið 1 umf án úrtöku og endurtakið síðan úrtöku = 42-48-48 (54-54) l. Prjónið M.3C. Haldið síðan áfram í sléttprjóni með litnum ljós brúnn til loka – JAFNFRAMT er lykkjum aftur fækkað hægra megin við öll prjónamerki. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 3-3-4 (4-5) sinnum = 24-30-24 (30-24) l á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem efir eru og herðið að.

DÚSKUR:
Gerið einn dúsk með litnum natur að þvermáli ca 4 cm. Saumið dúskinn efst á húfuna.

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna ofan frá og niður að tá.

SOKKUR:
Fitjið upp 34-34-40 (40-40) l á sokkaprjóna nr 3 með litnum ljós brúnn.
Prjónið stroff = 1 l sl, 1 l br í 4-4-5 (5-6) cm. Prjónið síðan 1 umf sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 4 l jafnt yfir = 30-30-36 (36-36) l. Prjónið nú M.4. Eftir M.4 eru prjónaðar 4 umf sléttprjón með litnum ljós brúnn – JAFNFRAMT í umf 1 (á eftir M.4) er fækkað um 2-0-4 (2-0) l jafnt yfir = 28-30-32 (34-36) l.
Eftir 4 umf sléttprjón er haldið eftir fyrstu 15-17-17 (19-19) l á prjóni fyrir hæl og hinar 13-13-15 (15-17) l eru settar á þráð (= ofan á fæti). Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hæl-l í 3-3½-4 (4-4½) cm – setjið 1 prjónamerki. Héðan er nú prjónuð HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan! Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 7-8-9 (9-10) nýjar l hvoru megin við hæl og l af þræði ofan á fæti eru settar til baka á prjóninn = 34-38-42 (42-46) l. Haldið áfram í sléttprjóni hringinn yfir allar l með litnum ljós brúnn – JAFNFRAMT í umf 1 er lykkjum fækkað þannig: Þær 2 síðustu l á undan 13-13-15 (15-17) l ofan á fæti eru prjónaðar snúnar slétt saman (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri) og 2 fyrstu l á eftir 13-13-15 (15-17) l ofan á fæti eru prjónaðar slétt saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 4-6-6 (6-6) sinnum = 26-26-30 (30-34) l. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 8-9-9½ (11½-12½) cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir ca 2-2-2½ (2½-3½) cm til loka). Setjið 1 nýtt prjónamerki í hvora hlið þannig að það verða 13-13-15 (15-17) l bæði ofan á fæti og undir fæti.
Fækkið nú lykkjum fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA: Fækkið l í annarri hverri umf: 2-2-3 (3-5) sinnum og síðan í hverri umf: 3-3-3 (3-2) sinnum = 6 l eftir á prjóni.
Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið. Fóturinn mælist ca 10-11-12 (14-16) cm.

Prjónið annan sokk á sama hátt.

Mynstur

symbols = ljós brúnn
symbols = ljós grágrænn
symbols = natur
symbols = brunn
symbols = 2 l slétt saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

First Snow

Anna-Karin, Sweden

Hello Harry

Margaret, Ireland

Bebiskofta till vännen

KnitCeli, Netherlands

First Snow

Margaret, Ireland

First Snow

Victoria, United States

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 19-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (91)

country flag Richère wrote:

Bonjour, quelle est la meilleure méthode pour faire des augmentations invisibles quand on tricote les manches? Merci

16.04.2024 - 21:02

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Richère, il existe plusieurs façons d'augmenter, utilisez la technique que vous préférez - n'hésitez pas à vous entraîner avec un échantillon. Retrouvez toutes nos vidéos montrant les augmentations ici. Bon tricot!

17.04.2024 - 08:26

country flag Gerda Overkämping wrote:

Hallo,was bedeutet bei der Passe alle Maschen auf eine Nadel legen?Werden sie gestrickt oder nur draufgezogen?

17.03.2024 - 09:06

DROPS Design answered:

Liebe Frau Overkämping, legen Sie zuerst alle Maschen auf dergleichen Nadel wie in diesem Video, dann beginnen Sie die Passe mit einer Rückreihe. Viel Spaß beim Stricken!

18.03.2024 - 09:08

country flag Jacqueline wrote:

Hallo. Ich habe eben mit dem Diagramm-Stricken bei der Passe für die Kinderjacke begonnen. Die erste Hinreihe M.2A beginnt mit einer Abnahme (2 M. rechts zusammenstricken). Werden diese Abnahmen während der ganzen ersten Reihe wiederholt oder erst am Schlus mit M.2B? Danke herzlich zum voraus für die Erläuterung. Jacqueline

11.03.2024 - 19:44

DROPS Design answered:

Liebe Jacqueline, M.2A wird mal die ganze Reihe wiederholt, und dann endet das Muster mit M.2B, dh am Anfang jeder M.2A + am +Anfang M.2B wird man 1 Masche abnehmen; bei der nächsten Abnahmen, 1 Masche am Ende jeder M.2A + am Ende M.2B abnehmen, und so immer weiterstricken. Viel Spaß beim Stricken!

12.03.2024 - 07:27

country flag Chris wrote:

Hur läser jad diagram m2a o m2b. Maskor som ska sticka 2m ihop???? Ska man bara göra den i början o slutet eller runt hela varvet..????? Hoppas någon fattar vad jag undrar över

30.11.2023 - 16:59

DROPS Design answered:

Hej Chris. "Nästa v stickas så här från rätsidan: 4 framkantsm, M.2A över de nästföljande 144-160-184 (200-224) m, M.2B (= 4 m) och avsluta med 4 framkantsm." Om du stickar den minsta storleken så stickar du såhär: 4 framkansmaskor, M.2A (= 8 m) över nästa 144 m (dvs du stickar de 8 maskorna i M.2.A 18 gånger, varav de 2 första av de 8 stickas ihop varje gång), M.2B (=4 m) och avsluta med 4 framkantsmaskor. Mvh DROPS Design

01.12.2023 - 14:06

country flag Elvie Violetta wrote:

Skrev på fel\r\n19-2 mössa omkrets får man ju i storlek men efter alla mönster står FORTSÄTT SEDAN TILL FÄRDIGT MÅTT- men inga måttangivelser om längd !!! Hur lång ska mössan vara… en inte oviktig detalj - och 10 dagar för svar … 😓 så mycket tappad tid där hela setet kunde varit färdigt !!! Inte bra service

27.08.2023 - 13:07

DROPS Design answered:

Hei Elvie I denne oppskriften er det ikke oppgitt det ferdige cm målet, kun hvordan man strikker de forskjellige omgangene. Ut ifra cm på vrangbord, hvor mange omganger det er på de ulike diagrammene, hvor mange fellinger man skal gjøre og at man vet strikkefastheten på oppskriften, kan man fint regne ut cm målet i den str. man strikker selv. mvh DROPS Design

11.09.2023 - 12:32

country flag Jean wrote:

The pattern says I should knit 17 cm (smallest size) before putting in the sleeve and starting M.2A. The photos of the cardigan don't look as if the yoke is 17 cm before the fairisle pattern starts though. Am I misreading this? Very confused!

04.06.2023 - 07:28

DROPS Design answered:

Dear Jean, remember that this jacket is worked from the bottom up. So it's not 17 cm of the yoke, but rather of the body. Later on, you will knit the yoke with the fairisle pattern. Happy knitting!

04.06.2023 - 17:41

country flag Helena wrote:

Hallöchen, in der Anleitung wird beschrieben mann sollte nach Diagramm M2 stricken und so abnehmen. Diagramm M2 kann ich bei der Anleitung nicht finden. Bitte um eine Antwort Danke und LG Helena.

16.02.2023 - 10:53

DROPS Design answered:

Liebe Helena, diagram M.2 finden Sie unter die Maßskizze (unter M.1 und links von M.3/M.4) es beteht aus M.2A und M.2B und diese Diagramme stricken Sie so: M.1 wierdholen Sie über die nächsten 144-160-184 (200-224) Maschen nach den Blendenmaschen und dann stricken Sie M.2B, vor den Blendenmaschen. Viel Spaß beim stricken!

16.02.2023 - 13:51

country flag Anne wrote:

Sidste pind i for/bagstykke skal strikkes fra retsiden. Hvordan sætter / strikker jeg så ærmerne ind, når de skal sættes ind før første pind i bærestykke, der strikkes fra vrangen?

10.12.2022 - 20:34

DROPS Design answered:

Hej Anne, når du strikker tilbage fra vrangen sætter du ærmet ind i arbejdet når du kommer til ærmet :)

15.12.2022 - 08:15

country flag Thüring wrote:

Ich möchte diese Kinderjacke Stricken finde aber weder in der Schweiz noch in Deutschland Keine Merino extra Fine in den richtigen Farben. Ich möchte Sie anfragen ob es diese Wolle gar nicht mehr gibt .

23.01.2022 - 22:03

DROPS Design answered:

Liebe Frau Thüring, diese Farben sind immer noch erhältlich, Namen wurden etwas angepasst, suchen Sie nach der Farbennummer, gerne wird Ihnen Ihr DROPS Laden noch damit helfen, auch telefonisch oder per E-Mail. Viel Spaß beim stricken!

24.01.2022 - 10:07

country flag Chris Bassett wrote:

I was a bit confused by the mid under arm on sleeve, but then realized I'm working in the round. But I find if I read right through everything first and each section before starting I can work it out. I have knitted several drops patterns now, THANK YOU so much for providing beautiful patterns for free.

19.01.2022 - 03:40