Marie skrifaði:
Super flot tæppe!!!
26.01.2010 - 21:57Mimi skrifaði:
Superbe! que de choses à réaliser..........
18.01.2010 - 21:42
Claudia skrifaði:
Superschöne, große Decke. Perfekt, um mit seinen Lieben zu kuscheln! :D
11.01.2010 - 09:51
Sab skrifaði:
Suberbe travail! bravo à l'artiste! du temps, de la patience et du talent pour faire ce plaid.
06.01.2010 - 15:13
Marja skrifaði:
En mycket vacker filt, men mönstret är så klassiskt att man borde hitta liknande redan!
28.12.2009 - 16:02
Teresa skrifaði:
This pattern makes a beautiful blanket! I will definately make one for my home.
22.12.2009 - 20:55
Lone Bjørnsen skrifaði:
Super flot tæppe.
21.12.2009 - 15:43
Lotta skrifaði:
Läcker, läcker, läcker och åter härlig.
15.12.2009 - 09:03
Lisa skrifaði:
Ich finde der Hund sollte in der Kollektion aufgenommen werden ;-) aber die Decke ist auch wirklich sehr schön!!!
13.12.2009 - 17:07
INGER skrifaði:
Bare så lækker lækker
10.12.2009 - 22:39
Sugar Flowers#sugarflowersblanket |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónað teppi með blómaferningum úr DROPS Alpaca og DROPS Vivaldi eða DROPS Alpaca og DROPS Brushed Alpaca Silk.
DROPS 118-42 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1. Mynsturteikning sýnir mynstur séð frá réttu. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við 1 lykkju slétt í hverju horni. Uppslátturinn er síðan felldur af eins og venjuleg lykkja. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið er út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 lykkju, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri) til að koma í veg fyrir göt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna/hringprjóna. TEPPI: Fitjið upp 8 lykkjur á sokkaprjón 5,5 með 1 þræði af hvorri tegund. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umferðar. Skiptið lykkjunum niður á 4 prjóna þannig að það verða 2 lykkjur á hverjum prjóni. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan M.1 jafnóðum í umferð (= 4 sinnum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Skiptið yfir á hringprjón 5,5 þegar nægilegar margar lykkjur eru á prjóni. Þegar M.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 216 lykkjur á prjóni. Fellið af fyrstu 108 lykkjurnar – lesið AFFELLING – að ofan. Setjið næstu 54 lykkjur á þráð og setjið síðustu 54 lykkjur á annan þráð (ferningur 1 á teikningu 1). Prjónið 3 ferninga alveg eins = 4 hornferningar (ferningur 2, 3 og 4 á teikningu 1). Fitjið upp og prjóni eins og áður, en nú eru felldar af fyrstu 162 lykkjur – lesið AFFELLING – að ofan og síðustu 54 lykkjur eru settar á þráð. Prjónið 5 ferninga alveg eins = 6 hliðarferningar (ferningur 5, 6, 7, 8, 9 og 10 á teikningu 1). Fitjið upp og prjónið eins og áður, en nú eru allar lykkjur felldar af – lesið AFFELLING – að ofan. Prjónið 1 ferning alveg eins = 2 miðjuferningar (ferningur 11 og 12 á teikningu 1). Nú hafa verið alls 12 ferningar verið prjónaðir. Leggið ferninga eins og útskýrt er í teikningu 1 (með lykkjum á þráðum út að hliðum – strikuð lína á teikningu 1). Saumið ferningana saman kant í kant í ystu lykkjubogana svo að kantarnir verði ekki þykkir. Jaðrarnir/kantarnir á teppinu eru nú með lykkjum á þræði. SKAMMHLIÐ: Setjið til baka lykkjur af 3 þráðum frá neðri kanti á teppi (ferningur 2, 5 og 1 á teikningu 1) á hringprjón 5,5 = 162 lykkjur. Prjónið GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan – JAFNFRAMT er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING! – í annarri hverri umferð alls 18 sinnum = 198 lykkjur. Fellið síðan laust af. Prjónið alveg eins kant á gangstæðri hlið á teppi (ferningur 4, 8 og 3 á teikningu 1). LANGHLIÐ: Setjið til baka lykkjur af 4 þráðum á hlið á teppi (ferningur 1, 10, 9 og 4 á teikningu 1) á hringprjón 5,5 = 216 lykkjur. Prjónið GARÐAPRJÓN fram og til baka, JAFNFRAMT er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið í annarri hverri umferð alls 18 sinnum = 252 lykkjur. Fellið síðan laust af. Prjónið alveg eins kant í gangstæðri hlið á teppi (ferningur 3, 7, 6 og teikningu 1). FRÁGANGUR: Saumið saman kantinn á teppi í öllum hornum. Saumið í ystu lykkjubogana til að koma í veg fyrir að kanturinn verði of þykkur. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sugarflowersblanket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 118-42
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.