Stefanie Heßling skrifaði:
Mütze: Am Rundanfang 2 feste Maschen überspringen Runde mit 1 Kettmasche beenden In jeder Runde 2 Luftmaschen in den Luftmaschenbogen So wird die Mütze spitz und der Rand stufenlos. 😉
21.10.2018 - 16:49
Stefanie Heßling skrifaði:
Bei mir wird der Hut eckig nicht spitz! Auf dem Foto sieht es so aus als wenn in den Luftmaschenbogen (die 2 Luftmaschen) feste Maschen gehäkelt wurden?! Laut Anleitung wird auf die festen Maschen der Vorrunde die festen Maschen gehäkelt?! Wenn ich feste Maschen in den Luftmaschenbogen häkle dann stimmt die Anzahl der Maschen nicht.
21.10.2018 - 14:20
Maria skrifaði:
Si puede explicar con diagrama no pude entender
29.11.2012 - 22:39DROPS Design svaraði:
Hola Maria, lo siento, no hay diagrama para este modelo, pero si sigues vuelta por vuelta es texto escrito te saldrá bien.
04.12.2012 - 08:36
EvaLena skrifaði:
Jo visst hoppade jag över 2 luftmaskorna, sen följde jag mönstret till punkt och pricka5 fm, nästa varv 6 fm sen 4 fm sen 5 fm, sist 3 fm. jag får ändå en fyrkantig hatt. Jag har mailat bild...........nu ger jag upp på Drops, trots otaliga inhandlade böcker TACK
05.12.2011 - 19:21
Drosp Design skrifaði:
EvaLena, du ska inte virka i de 2 lm, det står inte att man ska virka i dem. Du hoppar över dem, eftersom det står att du ska virka i de följande fm.
05.12.2011 - 17:28
EvaLena Hallgren skrifaði:
Ok jag tar tillbaka, nu ser jag att dc och sc är olika beroende på brittisk eller amerikanska. Mössan blir ändå inte som på bilden. Ska man virka i föregående 2 luftmaskor på toppen eller ? varv 3 virka 6 fm i var och en av föregående fm 2 lm, ska man hoppa över föregående lm ? det blir ju inte en toppluva då ? en fyrkantig hatt ??
05.12.2011 - 15:38EvaLena Hallgren skrifaði:
Återigen ett kasst mönster, på engelska ska man virka mössan i double chrochet, på svenska fm...............
05.12.2011 - 15:22
Drops Design skrifaði:
Hi LIse. Last row on hat explains how to make 4 sts, then ch 24, then 4 st. The = 8 sts is just showing like previous rows how many sts you have on full row, this is not including the ch 24.
04.12.2009 - 16:17
Lise skrifaði:
I have just tried to make this pattern, and I don't understand the end of it. In the English pattern, it seems to end with 8 stitches across the top of the hat, which doesn't look like the picture with the pattern. It also does not include the loop with which to hang it on the tree. Can you please check it and see if there are some instructions missing from the end of the pattern? Otherwise, I will just have to guess and try to design the end myself.
04.12.2009 - 15:08
Santa Red Nose#dropssantarednose |
|
|
|
|
Heklað jólaskraut / jólasveinn úr 2 þráðum DROPS Alpaca. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-563 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Heklið 1 fastalykkju, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið síðan næstu fastalykkju, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar lykkjur á heklunálinni – 1 fastalykkju færri. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- JÓLASVEINN - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Byrjað er á að hekla nefið, síðan höfuðið og húfu. NEF: Heklið 4 loftlykkjur með 2 þráðum í litnum rauður DROPS Alpaca og tengið loftlykkjurnar í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju = Hringur 1. Heklið 3 loftlykkjur með 2 þráðum rauður DROPS Alpaca og tengið loftlykkjurnar í hring með því að hekla 1 keðjulykkju í keðjulykkju frá Hringur 1 = Hringur 2. Snúið stykkinu. Heklið 4 loftlykkjur, heklið síðan 5 tvíbrugðna stuðla í kringum Hringur 2, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin = 6 lykkjur á heklunálinni, í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar lykkjur á heklunálinni = ½ nef. Heklið 1 loftlykkju, heklið síðan 5 tvíbrugðna stuðla í kringum Hringur 1, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin = 6 lykkjur á heklunálinni, í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar lykkjur á heklunálinni = nef. Klippið og festið þráðinn. HÖFUÐ: Nú er heklað með 2 þráðum í litnum natur. Heklið 1 fastalykkju í toppinn á 1 loftlykkju á milli 2 helminga á nefi. Heklið 4 loftlykkjur, 1 fastalykkja í aðra hliðina á milli 2 helminga á nefi. Heklið 4 loftlykkjur og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. Nú eru 2 raðir/umferðir með litnum natur á milli helminga á nefi. UMFERÐ 1: Heklið 1 loftlykkju, heklið síðan 5 fastalykkjur í kringum báðar 2 loftlykkju umferða og endað er með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð = 10 fastalykkjur í kringum nefið. UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, heklið síðan 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð = 20 fastalykkjur í kringum nefið. UMFERÐ 3: Heklið 1 loftlykkju, heklið síðan * 1 fastalykkju í fyrstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð = 30 fastalykkjur. UMFERÐ 4: Heklið 8 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu fastalykkju, * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í næstu fastalykkju, 4 loftlykkjur, 1 stuðull í sömu fastalykkju *, endurtakið frá *-* alls 14 sinnum. Klippið og festið þráðinn. HÚFA: Heklið síðan fram og til baka með 2 þráðum í litnum rauður. Byrjið á að hekla í fastalykkju sem fylgir þar sem hvíti þráðurinn var klipptur. UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 7 fastalykkjum, heklið 2 loftlykkjur, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja af næstu 7 fastalykkjum = 14 fastalykkjur. Snúið stykkinu. UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, heklið 1 fastalykkju – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA – heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 5 fastalykkjum, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja í hverja af næstu 5 fastalykkjum, fækkið um 1 fastalykkju = 12 fastalykkjur. Snúið stykkinu. UMFERÐ 3: Heklið 1 loftlykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 6 fastalykkjum, 2 loftlykkjur, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja af næstu 6 fastalykkjum = 12 fastalykkjur. Snúið stykkinu. UMFERÐ 4: Heklið 1 loftlykkju, fækkið um 1 fastalykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 4 fastalykkjum, 2 loftlykkjur, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 4 fastalykkjum, fækkið um 1 fastalykkju = 10 fastalykkjur. Snúið stykkinu. UMFERÐ 5: Heklið 1 loftlykkju, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja af næstu 5 fastalykkjum, 2 loftlykkjur, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja af næstu 5 fastalykkjum = 10 fastalykkjur. Snúið stykkinu. UMFERÐ 6: Heklið 1 loftlykkju, fækkið um 1 fastalykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 3 fastalykkjum, 24 loftlykkjur, 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 fastalykkjum, fækkið um 1 fastalykkju = 8 fastalykkjur. Klippið og festið þráðinn. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dropssantarednose eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 5 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-563
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.