ORTEGA skrifaði:
Bonjour, Je rencontre un soucis quand a la répartition des montage de mailles pour les devants. en effet : 35 +3 +3 +5 +5 + 7 + 7 +9 +16 comme effectué dans le dos me donne 90 m et non 81 comme indiqué dans le patron. Ou est mon erreur stv?
19.08.2026 - 14:03DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Ortega, vous montez pour la manche gauche: 2x3 m + 2x5m + 2x7 m + 1x 16 m (je ne vois pas de 9m dans les explications) vous aurez ainsi bien: 35+6+10+14+16=81 mailles quand toutes les mailles de la manche sont montées. Bon tricot!
20.08.2026 - 08:31
Andrea skrifaði:
Hallo, ist es richtig, dass Beine, Kapuze und Manschetten mit DOPPELTEM Faden gestrickt werden. Nur der Strampler selbst wird Ein-Fädig gestrickt? Liebe Grüße Andrea
29.07.2026 - 19:39DROPS Design svaraði:
Liebe Andrea, nein, es wird alles zweifädig, also mit doppeltem Faden, gestrickt, der ganze Strampler. Viel Spaß beim Stricken!
03.08.2026 - 23:44
Carin skrifaði:
Kan ik dit patroon ook op een rondbrei pen maken in plats van naalden zonder know. Ik kan daar moeilijk mee breien.
13.04.2026 - 01:47DROPS Design svaraði:
Dag Carin,
Jazeker, in plaats van naalden zonder knop, kun je gewoon een rondbreinaald gebruiken.
03.05.2026 - 18:09
Mathilde skrifaði:
Hej. Jeg har svært ved at forstå afsnittet "DRAGT". Har i mulighed for at skære det mere ud i pap? Lige nu har jeg begge ben på rundpind men det skaber jo et hul mellem benene. Også når I skriver "strik frem og tilbage" hvorfor kan man ikke bare strikke rundt? I forhold til "Sæt 1 mærke 25 m ind fra hver side ( =48 m imellem mærkerne på rygstk)" så kan jeg ikke regne ud hvor de mærker skal være? Håber I kan hjælpe :-) Kh Mathilde
15.10.2023 - 01:24
Maite Fabregat skrifaði:
Hello! I have a question regarding the buttonholes. When following the instructions the hole seems to not be centered but moved to the left. Is that correct? To center it i would need to 2nd and 3rd from mid. Thanks for the help!
27.11.2022 - 08:31DROPS Design svaraði:
Dear Maite, yes, the holes are slightly moved to the left. You could move them towards the center if you want. Happy knitting!
27.11.2022 - 16:06
Marissa Kanewske skrifaði:
Under the instructions for BACK PIECE, for the 1/3 MONTHS size: it says you will have 98 sts after all of the increases. Then you bind off 16 sts in the middle for the neck. Then it says "complete each shoulder/sleeve separately" with no other instructions on how to do so. 98 sts minus 16 sts should equal 82 sts but instead it says to bind off the remaining 41 sts. What happens to the other 41 sts?
16.11.2021 - 05:45DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Kanewske, each shoulder/sleeve will be worked separately means that you will first work one set of 41 sts (one side/shoulder/sleeve) leaving the other set of 41 sts unworked; and after these 2 rows over the first 41 sts on one side, cast off, cut the yarn. Join it to the other set of 41 sts for the other shoulder/sleeve and work the same way. Happy knitting!
16.11.2021 - 09:15
Anne Stecker skrifaði:
I used twice as much yarn as the pattern called for. I used 2 strands of Cascade 220. Gauge was good, sizzle was good. Anyone else use much more yarn?
12.10.2021 - 02:32
Betty Wagner skrifaði:
It looks like a pretty pattern
20.08.2020 - 19:58
Ivana skrifaði:
Hi, I am looking for a crochet pattern for this amazing romper overal.... please, have you got anything similar for the crocheters???
04.06.2020 - 07:45DROPS Design svaraði:
Dear Ivana, you will find our crocheted overalls for babies here. Happy crocheting!
04.06.2020 - 09:09
Diane Jackson skrifaði:
Hello, I am interested in knitting the pattern, My First Christmas by DROPS Design. I have a friend who is going to have a baby right before Christmas this year and I was wondering if the smallest size (1-3 mo) would be too large for a brand new baby. I looked at the bust measurement and it said 20 1/2" and I was wondering if that is the measurement for the garment or if that is the infant measurement? Thank you for any assistance you can provide. Kind regards, Diane
02.06.2020 - 00:44DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Jackson, the measurements are the finished one when pieces is laying flat (read more here. This might help you to find out the matching size -or you can find more overall patterns here. Happy knitting!
02.06.2020 - 10:35
My First Christmas#myfirstchristmasonesie |
|
|
|
|
Prjónaður galli fyrir börn fyrir jólin með hettu úr 2 þráðum DROPS Alpaca. Þema: Jól.
DROPS Baby 19-16 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið umferð 2. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið saman 2. og 3. lykkju frá miðju að framan slétt og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist alls: STÆRÐ 1/3 MÁN: 23, 30, 37, 44, 51 cm STÆRÐ 6/9 MÁN: 28, 36, 44, 52, 60 cm STÆRÐ 12/18 MÁN: 31, 38, 46, 53, 61, 68 cm STÆRÐ 2 ÁRA: 34, 42, 50, 58, 66, 74 cm STÆRÐ 3/4 ÁRA: 39, 48, 56, 65, 73, 82 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- GALLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Skálmar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, síðan er stykkið sett saman og gallinn er prjónaður uppúr. SKÁLM: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið laust upp 34-36-40 (44-48) lykkjur á sokkaprjón 4,5 með 2 þráðum í litnum hvítur. Prjónið 1 umferð slétt, haldið áfram í PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 12 cm er skipt yfir á sokkaprjón 5 og 2 þræði í litnum rauður. Prjónið síðan sléttprjón. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = innan á skálm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 14 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki, endurtakið útaukningu í 2.-2.-3. (4.-5.) hverri umferð alls 7-8-9 (9-10) sinnum = 48-52-58 (62-68) lykkjur. Þegar stykkið mælist 21-24-27 (32-37) cm fellið af 4 lykkjur innan á skálm (= 2 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 44-48-54 (58-64) lykkjur. Geymið stykkið og prjónið hina skálmina á sama hátt. GALLI: Setjið báðar skálmarnar á sama hringprjón 5 með affellingu á mót hvor annarri = 88-96-108 (116-128) lykkjur. Prjónið síðan fram og til baka frá miðju að framan (umferð 1 = rétta): Fitjið upp 3 nýjar lykkjur á prjóninn, prjónið slétt yfir allar lykkjur og fitjið upp 3 nýjar lykkjur í lok umferðar = 94-102-114 (122-134) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki 25-27-30 (32-35) lykkjur inn frá hvorri hlið (= 44-48-54 (58-64) lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki). Prjónið síðan sléttprjón en 5 ystu lykkjur í hvorri hlið við miðju að framan eru prjónaðar í garðaprjóni upp að hálsmáli (= kantar). JAFNFRAM þegar stykkið mælist 23-28-31 (34-39) cm fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan – sjá HNAPPAGAT! Þegar stykkið mælist 45-53-61 (66-73) cm skiptist stykkið við 2 prjónamerkin og fram- og bakstykki er prjónað til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 44-48-54 (58-64) lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni – JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar í hvorri hlið fyrir ermar: 3 lykkjur 2-1-3 (1-2) sinnum, 5 lykkjur 1-2-1 (2-2) sinnum, 7 lykkjur 1-1-1 (2-2) sinnum og síðan 9-10-12 (14-16) lykkjur 1 sinni = 98-108-120 (140-156) lykkjur á prjóni. Þegar stykkið mælist 55-64-73 (79-87) cm fellið af miðju 16-18-18 (20-20) lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl/ermi er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið 2 umferð til viðbótar yfir 41-45-51 (60-68) lykkjur í hvorri hlið – fellið laust af. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 25-27-30 (32-35) lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjur í garðaprjóni – JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í lok umferðar í hlið fyrir ermi eins og á bakstykki = 52-57-63 (73-81) lykkjur. Þegar stykkið mælist 52-61-69 (75-83) cm fellið af fyrstu 5-6-6 (7-7) lykkjur við miðju að framan fyrir hálsmáli. Fækkið síðan lykkjum í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 2 sinnum = 41-45-51 (60-68) lykkjur eftir á prjóni fyrir öxl/ermi. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 56-65-74 (80-88) cm, fellið laust af. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema spegilmynd – munið eftir hnappagötum í kanti að framan. FRÁGANGUR: Saumið sauma yfir ermum með lykkjuspori frá réttu. Leggið hægri kant að framan yfir vinstri og saumið þá saman neðst við uppfitjunarkant. Saumið saum undir ermum kant í kant í ystu lykkjubogana. Saumið tölur í. STROFF: Prjónið upp 32-36-36 (40-40) lykkjur á sokkaprjón 4,5 með 2 þráðum í litnum hvítur neðst í kringum aðra ermina. Prjónið perluprjón þar til stroffið mælist 5 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið á sama hátt neðst í kringum hina ermina. Brjótið uppá ermar og skálmar eftir þörf. HETTA: Prjónið upp frá réttu ca 40 -50 lykkjur í kringum hálsmál á hringprjón 5 með 2 þráðum í litnum rauður – byrjið eftir 5 kantlykkjur að framan á hægra framstykki og endið á undan 5 kantlykkjum að framan á vinstra framstykki. Prjónið sléttprjón fram og til baka – JAFNFRAMT í umferð 2 (= frá réttu) er aukið út jafnt yfir til 66-70-74 (78-82) lykkjur. Þegar hettan mælist 21-23-25 (27-28) cm fellið af. Saumið hettuna saman efst í toppnum með lykkjuspori. Prjónið kant meðfram opinu á hettunni þannig: Prjónið upp frá réttu ca 81-89-97 (105-109) lykkjur meðfram opi á húfu á prjón 4,5 með 2 þráðum í litnum hvítur. Prjónið perluprjón þar til kanturinn mælist 6 cm og fellið síðan LAUST af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Brjótið tvöfalt uppá kant að réttu og saumið kantinn niður við 5 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið. Gerið einn dúsk ca 4-5 cm að þvermáli í litnum hvítur og saumið niður í hornið aftan á hettu. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #myfirstchristmasonesie eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 19-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.