ALMA ROSA skrifaði:
Hola, desde Cd. de México. ha sido una fortuna encontrarlas, gracia por compartir. podrian enviarme las instrucciones del patron en español, gracias
06.10.2009 - 23:23Suzy skrifaði:
Lindissimo,
28.08.2009 - 04:18
Jacyra De Castro Zillner skrifaði:
Modelo muito lindo amei
23.08.2009 - 20:37
Emily Broadhead skrifaði:
Unique styles and love the cables, by the way found out how to print off instructions to knit this wonderful pattern for a friend.Love your work. Keep it up....
20.08.2009 - 22:47
Drops Design skrifaði:
Use the print button within the pattern - it's located right under the information about the materials needed.
20.08.2009 - 22:45
Emily Broadhead skrifaði:
Great design, would like to print off pattern but how..
20.08.2009 - 22:41
Raija skrifaði:
Kaunis. Toivottavasti tulee ohje!
19.08.2009 - 16:07
Maja skrifaði:
Ihana malli. Voi kunpa tästä olisi ohjekin.
14.08.2009 - 22:20
Diane skrifaði:
I love this, one for me and one for a Christmas present.
10.08.2009 - 18:46
Laila N. Rindal skrifaði:
Dette er et vakkert sett!
23.07.2009 - 18:02
Alpine Twist Set#alpinetwistset |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Prjónuð húfa með köðlum og hálsskjól með tölu og köðlum úr DROPS Classic Alpaca eða DROPS Puna.
DROPS 114-5 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2. Mynsturteikningin sýnir mynstrið séð frá réttu. -------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst er prjónaður kantur að neðan, fram og til baka, síðan eru lykkjur teknar upp á efri brún kants og kollurinn prjónaður í hring uppúr. KANTUR: Stykkið er prjónað fram og til baka á 2 sokkaprjóna. Fitjið upp 23 l á prj nr 4 með Classic Alpaca eða Puna. Prjónið 1 umf sl frá röngu. ATH: Síðasta l á neðri brún kants er prjónuð með TVÖFÖLDUM þræði allan hringinn - hafið auka dokku sem aðeins er notuð í þessa einu lykkju – þetta á við um síðustu l í fyrstu umf. Næsta umf er prjónuð (frá réttu) þannig: Prjónið 2 l GARÐAPRJÓN- sjá útskýringu að ofan, 3 l br, aukið út um 1 l í næstu l og prjónið þær báðar slétt, 1 l sl, 3 l br, 1 l sl, aukið út um 1 l í næstu 2 l og prjónið allar 4 l sl, 1 l sl, 3 l br, 1 l sl, aukið út um 1 l í næstu l og prjónið þær báðar sl, 3 l sl og 1 l garðaprjón = 27 l. Haldið áfram þannig: Prjónið 1 l garðaprjón, M.1 (fyrsta umf = ranga) og 2 l garðaprjón (= við neðri brún kants). Prjónið mynstur þar til stykkið mælist ca 48 cm, passið að síðasta umf sem er prjónuð sé næst síðasta umf í mynstri M.1 (þ.e.a.s. frá röngu). Prjónið næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 2 l garðaprjón, 3 l br, 2 l sl saman, 1 l sl, 3 l br, 1 l sl, 2 l sl saman, 2 l sl saman, 1 l sl, 3 l br, 1 l sl, 2 l sl saman, 3 l sl og 1 l garðaprjón alls = 23 l. Prjónið 1 umf sl yfir allar lykkjur frá röngu og fellið síðan af. Saumið saman kant í kant við miðju að aftan. KOLLUR: Takið upp 104 l með Classic Alpaca eða Puna á hringprjón nr 4 meðfram efri brún kants þar sem bara er 1 l með garðaprjóni og prjónið upp innan við þessa l (ca 21 l á hverja 10 cm). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm frá uppfitjunarkanti setjið 8 prjónamerki í stykkið með 13 l millibili. Í næstu umf er fækkað um 1 l við hvert prjónamerki með því að prjóna saman 2 l sl. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 11 sinnum = 16 l. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið. Húfan mælist ca 22 cm á hæðina. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í einni lengju, fram og til baka. HÁLSSKJÓL: Fitjið upp 45 l á prjóna nr 4 með Classic Alpaca eða Puna. Prjónið GARÐAPRJÓN (umf 1 = frá réttu) yfir allar l – sjá útskýringu að ofan - JAFNFRAMT í 5. umf er fellt af fyrir 1 hnappagati þannig: Prjónið 37 l, fellið af 3 l, prj 5 l. Í næstu umf eru fitjaðar upp 3 nýjar l yfir þær lykkjur sem felldar voru af. Þegar búið er að prjóna 10 umf í garðaprjóni er prjónað (frá réttu) þannig: Prjónið 17 l garðaprjón, 3 l br, aukið út um 1 l í næstu l og prj báðar sl, 1 l sl, 3 l br, 1 l sl, aukið út um 1 l í næstu 2 l og prj allar 4 l slétt, 1 l sl, 3 l br, 1 l sl, aukið út um 1 l í næstu l og prjónið báðar sl, 3 l br og 8 l garðaprjón = 49 l. Næsta umf er prjónuð (= frá röngu) þannig: Prjónið 8 l garðaprjón, mynstur M.1 (= 24 l) og mynstur M.2 yfir 17 l. Haldið svona áfram JAFNFRAMT (frá og með næstu umf frá réttu) eru prjónaðar stuttar umferðir þannig: * Prjónið 2 umf yfir allar l, 2 umf fram og til baka yfir aðeins neðstu 17 l (= M.2) *, endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist ca 52 cm á styttri brúninni – passið upp á að síðasta umf sem er prjónuð sé sú síðasta umf í M.1 (þ.e.a.s. frá röngu). Næsta umf er prjónuð (frá réttu) þannig: Prjónið 17 l garðaprjón, 3 l br, 2 l sl saman, 1 l sl, 3 l br, 1 l sl, 2 l sl saman, 2 l sl saman, 1 l sl, 3 l br, 1 l sl, 2 l sl saman, 3 l br og 8 l garðarprjón = 45 l. Prjónið 10 umf í garðaprjóni yfir allar l, fellið af. Festið töluna í miðju á M.1 ca 6 cm frá brún. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #alpinetwistset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 114-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.