Jannyhilhorst skrifaði:
Kan ik ze gratis krijgen Zo leuk vriendelijke groet. Janny hilhorst
21.09.2024 - 12:47
Christel Jansson skrifaði:
Hur gör man huvud o kropp? Hittar inte något skrivit on det?
22.06.2015 - 19:37DROPS Design svaraði:
Hej. Om du läser texten i stycket där det står "Tröja:" så hittar du det. Lycka till!
24.06.2015 - 08:46
J.de Ruijter skrifaði:
Bij het haakpatroon van het truitje van Peter en Pernille staat niet bij hoeveel steken ik moet opzetten en wat voor steken. Ik wil hier graag antwoord op?
13.03.2014 - 03:25DROPS Design svaraði:
Hoi J. de Ruijter. Je haakt de truien in verlenging van de broek. Je had hier 22 stk en haak dan verder met de kleur voor de trui over deze stk en volgens de beschrijving voor de trui.
13.03.2014 - 17:07
Françoise skrifaði:
Je n'ai pas trouvé à quel moment il fallait intégrer les jambes de la poupée, mais je n'ai peut-être pas tout compris..........comme pour les diminutions du pantalon
12.02.2013 - 17:24DROPS Design svaraði:
Bonjour Françoise, la partie du pantalon a été corrigée pour expliquer l'assemblage des jambes et de celles du pantalon. Pour diminuer, crochetez 1 B mais ne faites pas le dernier jeté, crochetez la B suiv et au dernier jeté, écoulez toutes les boucles. Bon crochet !
13.02.2013 - 11:51
Peter#dropspeter |
|
![]() |
![]() |
Heklaðar dúkkur: Petter og Pernille úr DROPS Muskat
DROPS Baby 13-33 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLIÐ 2 ST Í 1 ST: Heklið 1 st en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næsta st en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni. BLÚNDUKANTUR: Fl er ekki heklað um alla l heldur bara um fremri lykkjubogann. Heklið þannig: * 2 l sl, 1 l fl *, endurtakið frá *-*. Umferðin á eftir blúndukanti er hekluð í sömu umf og blúndukanturinn nema í aftari lykkjubogann. LITIR Í PETTER: Fætur: 5 umf brúnn, 2 umf natur, 1 natur blúndukantur, 15 umf húðlitur. Hendur: 7 umf húðlitur, 1 umf natur, 1 natur blúndukantur, * 2 umf natur, 1 umf blár *, endurtakið frá *-* til loka. Buxur: Blár. Peysa: * 1 umf blár, 2 umf nstur *, endurtakið frá *-*. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PETTER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Sjá skýringu á litum að ofan. Heklið 2 fætur, 2 hendur og 2 buxnaskálmar. FÓTUR: Heklið 4 ll og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 1: Heklið 6 fl um hringinn. Endið með 1 kl í fyrstu fl. UMFERÐ 2: 1 ll, * 1 fl, 2 fl í næstu l *. Endurtakið frá *-* (= 9 fl hringinn). Endið með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 3-21: 1 ll, 9 fl, endið með 1 kl í fyrstu ll (munið eftir BLÚNDUKANTUR – sjá útskýringu að ofan). UMFERÐ 22: 1 ll, 4 fl, 2 fl í næstu fl, 3 fl, 2 fl í næstu l (= 11 fl hringinn). Endið með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 23: 1 ll, heklið 2 fl í hverja fl = 22 fl. Endið með 1 kl í fyrstu ll. Klippið frá og festið enda. Fyllið með vatti. Heklið annan fót á sama hátt. HÖND: Fitjið upp og heklið umferð 1-21 eins og fætur, síðan í næstu umf er fækkað um 1 fl með því að hoppa yfir 1 l (= 8 fl í umf). Klippið frá og festið enda. Fyllið með vatti. Heklið aðra hönd á sama hátt. SKÁLM: Heklið 22 ll og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 1: Heklið 1 fl í hverja ll. Endið með 1 kl í fyrstu fl. UMFERÐ 2-4: 3 ll, 1 st í hverja fl. Endið með 1 kl í byrjun umf. Klippið frá, frá og festið enda. Heklið aðra skálm á sama hátt en á seinni skálminni á ekki að klippa frá, þráðurinn er notaður síðar til að hekla skálmarnar saman. BUXUR: Setjið fæturna í sitt hvora skálmina á buxunum. Heklið 3 ll með þræðinum frá annarri skálminni. UMFERÐ 1: Nú eru skálmarnar festar við buxurnar með því að hekla bæði í gegnum buxurnar og fæturna. Heklið eina umf með st í kringum annan fótinn og síðan í kringum hinn fótinn. UMFERÐ 2: 3 ll, 1 umf með st jafnframt sem í 4. Hvern st er fellt af með því að hekla saman 3. og 4. hvern st – sjá HEKLIÐ 2 ST Í 1 ST – að ofan = 33 st í umf. Endið með 1 kl í byrjun umf. UMFERÐ 3: 3 ll, 1 umf með st jafnframt er fækkað um 3. hvern st með því að hekla samann 2. og 3. hvern st = 22 st. Endið með 1 kl í byrjun umf. PEYSA: Umferðin byrjar við miðju að aftan. UMFERÐ 1-10: 1 ll, 1 fl í hverja l, endið með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 11: 1 ll, heklið 1 fl, hoppið yfir 1 fl, 1 fl í hverja og eina af næstu 6 fl, hoppið yfir 1 fl, 1 fl í næstu l, hoppið yfir 1 fl, 1 fl í næstu l, hoppið yfir 1 fl, 1 fl í hverja og eina af næstu 6 fl, hoppið yfir 1 fl, 1 fl í næstu l, hoppið yfir 1 fl og festið með 1 kl í byrjun umf = 16 fl. UMFERÐ 12: Heklið nú hendurnar á búkinn þannig: 1 ll, 2 fl, leggið höndina saman tvöfalda ofan á peysuna, heklið 4 fl í gegnum bæði höndina og peysuna, heklið síðan 4 fl (= fram), síðan er hin höndin hekluð inn alveg eins og sú fyrri, heklið 2 fl, endið með 1 kl í 1. ll. UMFERÐ 13: Heklið 1 blúndukant með litnum natur. HÖFUÐ: Skiptið yfir í húðlit. UMFERÐ 1-2: 1 ll, 16 fl hringinn, endið með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 3: 1 ll, * 1 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl, endið með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 4-7: 1 ll, 1 fl í hverja l umf hringinn, endið með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 8: 1 ll, 5 fl, í næstu l er heklað 1 eyra þannig: 3 st sem eru heklaðir saman (þ.e.a.s. bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin í hverjum st þar til allir 3 st hafa verið heklaðir, bregðið þá þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar l). 11 fl, heklið 1 eyra í næstu l, heklið fl út umf, endið með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 9-13: Heklið eins og í 4-7 umf. FRÁGANGUR: Fyllið búkinn og höfuðið með vatti, saumið saman bilið í klofi á buxum. Saumið út augu og munn. Heklið höfuðið saman með húðlit með fl í gegnum bæði lögin. STUTT HÁR: 1 fl, * 5 ll, heklið til baka yfir ll þannig: Hoppið yfir 1. ll, heklið 3 fl í hverja af næstu 4 ll, heklið 1-2 fl frá höfði (fer eftir hversu mikið hár dúkkan á að hafa) *, endurtakið frá *-* út umf, klippið frá og festið enda. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dropspeter eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 13-33
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.