Hélène Lepetit wrote:
Bonjour, Attention y a une erreur en français et dans d'autres langues (islandais, néerlandais...), le total de mailles après les augmentations du coussin est de 248 mailles et non 216. En effet (2+27+2)*8=248. Ce qui donne bien 8*31. Hello, Watch out there is an error in French and in other languages (Icelandic, Dutch...), the total number of stitches after the cushion increases is 248 stitches and not 216. Indeed (2+27+2)*8 =248. Which gives 8*31.
04.10.2023 - 12:16DROPS Design answered:
Bonjour et merci Mme Lepetit, la correction a été faite et le message passé pour les autres langues. Bon tricot!
05.10.2023 - 08:58Giulia wrote:
Buongiorno, mi piacerebbe realizzare questo progetto e ho un paio di perplessità: 1) il colore 35 - vaniglia è quello effettivamente utilizzato per il cuscino in foto? Dal catalogo dei filati il Paris 35 sembra un giallo molto più chiaro.. 2) non riesco a trovare un'imbottitura rotonda del diametro di 50 cm. Secondo voi è fattibile utilizzarne una quadrata 50x50 schiacciandola agli angoli? (Tanto più che non c'è cerniera nel copri cuscino) Grazie in anticipo!
13.09.2020 - 12:53DROPS Design answered:
Buongiorno Giulia. Il colore della fotografia dipende da tanti elementi. Per un aiuto migliore può contattare il suo rivenditore Drops di fiducia, che saprà consigliarla al meglio. Consigliamo di usare un cucino rotondo o del materiale da imbottitura da inserire direttamente nel cuscino. Buon lavoro!
14.09.2020 - 15:41Amber wrote:
I do not understand the "increase 2 stitches evenly between marker threads" direction. Does this mean inc. 2 by YO in the middle between each marker? (15 stitches from the marker inc by 2?) Or yo k10 inc 1 k10inc 1? And are these increases still YO or KFB?
04.05.2020 - 16:52DROPS Design answered:
Dear Amber, when you increase evenly you have to work the 2 yarn overs between each marker evenly spaced between the markers, not next to each other neither next to the yarn over made for the regular increased - read more how to increase evenly here. These yarn overs will be worked also twisted to avoid holes. Happy knitting!
04.05.2020 - 16:58Lourdes wrote:
Ufff... No me entero de nada... lo mismo soy yo y no el patrón... una pena porque es precioso.
08.08.2019 - 13:59
Sunny Nap Pillow |
|
|
|
Prjónaður púði úr DROPS Paris. Prjónaður í hring eins og sól.
DROPS Children 35-3 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PÚÐI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring frá miðju og út með 1 þræði. Stykkið er prjónað í 2 hlutum sem saumaðir eru saman í lokin. Sólargeislarnir eru prjónaðir fram og til baka með 2 þráðum. PÚÐI: Fitjið upp 8 lykkjur með 1 þræði Paris og skiptið þeim niður á 4 sokkaprjóna nr 4. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Prjónið 2 lykkjur í hverja lykkju = 16 lykkjur. Setjið 8 prjónamerki í stykkið með 2 lykkjur á milli prjónamerkja. Prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Prjónið sléttprjón hringinn og aukið út um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki – sjá ÚTAUKNING (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 27 sinnum, jafnframt í síðustu umferð (27. umferð með útaukningu) er aukið út um 2 lykkjur jafnt yfir á milli hverra prjónamerkja (þ.e.a.s. 16 lykkjur fleiri sem viðbót við 8 lykkjur á eftir prjónamerki) = 248 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón eftir þörf. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar öll útaukning hefur verið gerð, mælist stykkið ca 44 cm að þvermáli (= 22 cm frá miðju og út). Næsta umferð er prjónuð þannig: * Prjónið 31 lykkju slétt og setjið þær á þráð *, prjónið frá *-* hringinn út umferðina. Nú eru 8 þræðir með 31 lykkju. Geymið stykkið. Prjónið annað stykki á sama hátt, en prjónið síðustu umferð þannig: * Prjónið 31 lykkju slétt og setjið þær á þráð *, prjónið frá *-* alls 6 sinnum (= 6 þræðir með 31 lykkju), fellið af þær 62 lykkjur sem eftir eru (nú er koddinn settur í púðaverið). FRÁGANGUR OG SÓLARGEISLAR: Prjónið nú bæði stykkin saman með því að lykkjur af þræði frá öðru stykkinu eru prjónaðar saman með lykkjum af þræði frá hinu stykkinu. Bæði stykkin eru sett með röngu að röngu og sólargeislarnir eru prjónaðir með 2 þráðum Paris frá réttu þannig: Setjið lykkjur af þráðum á báðum púðaverunum á sitt hvorn prjóninn og prjónið 1. lykkju frá öðru stykkinu slétt saman við 1. lykkju frá hinu stykkinu. Haldið svona áfram þar til allar 31 lykkjur frá öðru stykkinu hafa verið prjónaðar slétt saman við lykkjur frá hinu stykkinu = 31 lykkjur í umferð. Prjónið fram og til baka í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT í byrjun á hverri umferð eru fyrstu 2 lykkjurnar prjónaðar slétt saman. Þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið næstu umferð þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna og festið vel. Prjónið á sama hátt yfir 31 lykkjur af þráðum í næstu 5 mynstureiningum á báðum hlutum á púðaverinu í umferð. Yfir þær 2 mynstureiningar sem eftir eru, eru lykkjur felldar af á öðru stykkinu, setjið 31 lykkjur af þræði frá hinu stykkinu á prjóninn og prjónið fyrst 1 umferð slétt yfir 31 lykkju, sólargeislarnir eru prjónaðir á sama hátt og áður. Setjið kodda í púðaverið og saumið saman op við síðustu 2 sólargeislana með 1 þræði og í lykkjur eina og eina. Klippið frá og festið enda. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Silvia wrote:
Für diese Sonnenkissen reichen 300g DROPS Paris nicht. Ich musste noch 2 Knäuel nachbestellen. Ansonsten finde ich die DROPS Anleitungen super. DROPS Paris ist mein Lieblingsgarn.
04.03.2021 - 11:33