Gry skrifaði:
Er det riktig at armene blir litt snurpete/bølgete etter å ha lagt ut så mange masker som det står, på bakstykket? Det virker som det blir lagt ut for mange masker på få pinner , slik at det blir snurpete?
11.05.2010 - 07:42
Drops Design skrifaði:
Har du husket å strikke riller?
06.01.2009 - 10:09
Gullinn skrifaði:
Jeg får ikke det til å stemme at en skal bruke denne tynne tråden og pinne 3 med 24 m strikkefasthet..jeg har rekt opp igjen 5 ganger nå..snufs.. måtte helt opp til pinne 5,5 for å få 10cm på 24 masker. hjelp meg please..er det en feil i oppskriften??
23.12.2008 - 04:28Laila skrifaði:
Bra modell. ser ut kunna växa med barnet ett tag.
21.03.2006 - 11:51
eva holm skrifaði:
en rigtig sød bluse + i noget så skøn en garn.
15.03.2006 - 20:41
Helle skrifaði:
Ja,køn og enkel - en vidunderlig farve (lavendel?)fremfor babylyseblå
15.03.2006 - 19:25Lena skrifaði:
Lätt att sticka, bekväm att bära, skön att se på!
14.03.2006 - 20:48
Little Fiona#littlefionacardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa fyrir börn án ermasauma og sokkar úr garðaprjóni úr DROPS Alpaca. Stærð 1 mán - 4 ára.
DROPS Baby 14-6 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kant að framan. 1 hnappagat = fellið af 3. og 4. lykkju frá kanti og fitjið upp 2 nýjar lykkjur yfir þær sem felldar voru af í næstu umferð. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist ca: Stærð 1/3 mán: 16, 19 og 22 cm Stærð 6/9 mán: 16, 20 og 24 cm Stærð 12/18 mán : 19, 23 og 27 cm Stærð 2 ára: 20, 24 og 28 cm Stærð 3/4 ára: 21, 26 og 31 cm ATH: Fellt er af fyrir síðasta hnappagatinu þegar 2 umferðir eru eftir innan við úrtöku í hálsmáli. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Vegna fjölda lykkja er stykkið prjónað fram og til baka á hringprjón – brotið er uppá neðstu 4 cm á hvorri ermi. BAKSTYKKI: Fitjið upp 58-64-71 (78-86) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 3 með Alpaca og prjónið slétt í hverri umferð (= garðaprjón). Þegar stykkið mælist 16-17-19 (20-22) cm fitjið upp nýjar lykkjur í hvorri hlið fyrir ermi í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í lok hverrar umferðar): 3 lykkjur 3-3-3 (3-2) sinnum, 4 lykkjur 4-4-3 (5-8) sinnum, 10 lykkjur 2-2-3 (3-3) sinnum og síðan 10-13-12 (15-14) lykkjur 1 sinni = 168-180-197 (226-250) lykkjur. Þegar stykkið mælist 25-27-30 (32-35) cm fellið af miðju 18-20-23 (24-24) lykkjur fyrir hálsmáli. Fækkið síðan um 2 lykkjur í næstu umferð við hálsmál = 73-78-85 (99-111) lykkjur eftir á hvorri öxl/ermi. Þegar stykkið mælist 26-28-31 (33-36) cm – stillið af eftir 1 umferð slétt frá röngu – setjið allar lykkjur á þráð. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 34-37-41 (44-48) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hlið og 5 lykkjur fyrir kant við miðju að framan) á hringprjón 3 með Alpaca. Prjónið sléttar lykkjur í hverri umferð. Munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 16-17-19 (20-22) cm aukið út fyrir ermi eins og á bakstykki = 89-95-104 (118-130) lykkjur. Þegar stykkið mælist 22-24-27 (28-31) cm fellið af ystu 9-10-12 (12-12) lykkjur við miðju að framan fyrir hálsmáli. Haldið áfram að fækka lykkjum í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 3 sinnum = 73-78-85 (99-111) lykkjur eftir á prjóni. Þegar stykkið mælist 26-28-31 (33-36) cm – stillið af eftir 1 umferð slétt frá röngu – setjið allar lykkjur á þráð. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra framstykki nema gagnstætt. ATH: Ekki er fellt af fyrir hnappagötum í vinstra framstykki. FRÁGANGUR: Saumið axla – og ermasauma með lykkjuspori. Saumið sauma undir ermum -og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp ca 60-80 lykkjur í kringum hálsmál á hringprjón 3 með Alpaca. Prjónið 6 umferðir slétt (umferð 1 = ranga), fellið síðan laust af með sléttum lykkjum frá röngu. Brjótið uppá 4 neðstu cm á hvorri ermi (saumið e.t.v. niður með nokkrum sporum). HEKLAÐUR KANTUR: Heklið kant neðst í kringum báðar ermar og meðfram öllu opinu á peysunni (þ.e.a.s. upp meðfram báðum framstykkjum, aftan í hnakka og meðfram öllum neðri kanti) með heklunál 3 og Alpaca þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu af 3 loftlykkjum sem voru heklaðar, hoppið yfir 1 lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 lykkjum *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn en endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð (í stað 1 fastalykkju í næstu lykkju). ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Sokkurinn er prjónaður fram og til baka, frá miðju að aftan. SOKKUR: Fitjið upp 48-52-56 (56) lykkjur á prjón 2,5 með 2 þráðum Alpaca. Takið frá annan þráðinn og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt/2 lykkjur brugðið) í 5-6-6 (7) cm – passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá röngu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu jafnframt því sem fækkar um 14-14-18 (14) lykkjur jafnt yfir = 34-38-38 (42) lykkjur. MEÐ GATAUMFERÐ: Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* og endið með 1 lykkju slétt. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. ÁN GATAUMFERÐAR: Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð brugðið frá röngu. Setjið nú ystu 12-13-13 (15) lykkjur í hvorri hlið á þráð. Prjónið 4 - 4½ - 5½ (6½) cm með sléttum lykkjum í hverri umferð yfir miðju 10-12-12 (12) lykkjur. Setjið lykkjur af þræði til baka á prjóninn og prjónið upp 10-11-13 (16) lykkjur hvoru megin um miðju stykki = 54-60-64 (74) lykkjur alls á prjóni. Prjónið 3-4-5 (5) cm með sléttum lykkjum í hverri umferð yfir allar lykkjur jafnframt eftir 1½ - 2 - 2½ (3) cm er lykkjum fækkað í annarri hverri umferð til loka þannig: Fækkið um 1 lykkju í byrjun og í lok á stykki og prjónið 2 lykkjur slétt saman hvoru megin við 2 miðju lykkjurnar. Fellið af og saumið saum undir fæti og upp meðfram miðju að aftan í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði ekki þykkur. Þræðið e.t.v. silkiborða í gegnum gataumferðina. Prjónið annan sokk á sama hátt. ------------------------------------------------------- Kolkrabbi: DROPS Baby 13-27 Teppi: DROPS Baby 14-24 ------------------------------------------------------- |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #littlefionacardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 14 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 14-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.