Corrie skrifaði:
Oei, ik zie nu dat ik een rekenfout heb gemaakt: 40 - 16 = 24. Dan scheelt het maar 1 steek meer. Sorry, my name is Corrie.
03.12.2024 - 17:47
Corrie skrifaði:
Ik brei de grootste maat. Na de splitsing van de panden staat dat ik bij een hoigte van 73 cm. 1x8, 2x2en2×1 steken moet afkanten voor de hals = (16 in totaal) en daarna verder breien over de overige 23 steken. Maar als ik 40 steken heb en van er in totaal 16 afkant voor de hals, hou ik er 32 over. Wat doe ik verkeerd?
03.12.2024 - 17:38DROPS Design svaraði:
Dag Corrie,
Je hebt 40 steken. Je kant 1 keer 10 steken (niet 8, maar 10, want je breit de grootste maat) af, dan 4 steken (2 x 2), dan 2 steken (2 x 1). In totaal dus 16 steken. 40-16 = 24 steken. De aangegeven 23 steken klopt niet, maar het zijn 24 steken, net als op het achterpand.
04.12.2024 - 20:12
Heidi Flamsholt skrifaði:
Hej. Jeg er ved at strikke denne, men kunne godt tænke mig en lille video på, hvordan de røde spots på køreposen strikkes. Jeres video på hvordan man strikker fair isle er såmænd fin nok, men viser ikke hvordan i lader mønsterfarven følge dominansfarven, hverken på retsiden eller vrangsiden. Kan i hjælpe med det? Vh. Heidi
28.11.2020 - 19:51DROPS Design svaraði:
Hei Heidi. De røde"spots" strikkes som vanlig rett , i diagrammet er det 2 rett rød overnfor hverandre. For å få fargen mer dominant, kan du la den røde tråden ligge nærmest strikketøyet. Da kommer fargen (rød) tydeligst frem når du strikker. mvh DROPS design
30.11.2020 - 13:10Joy Howell skrifaði:
I would like some clarification in the pattern: 1. In the body it's says to work 24 rows in M1, then M2. M1 has only 18 rows do I then do 6 rows of M2. Or do M1 and then repeat 6 rows of M1 and do 24 rows of M2. 2. The chart s are not translated. The Colors are easy to figure out but to start the 3 month size M1 is it started at the centre front also? 3. What does (se opsk) translate to? ALso hette?
29.07.2016 - 00:59DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Howell, To work 24 rows in M.1, work the first the 16 rows in M.1 (= 1 time M.1 in height), then work the first 8 rows in M.1 = 24 rows. You will find translations to diagrams just above them: se opsk = see explanation. In size 3 months start M.1 at arrow ("hette 3"). Happy knitting!
29.07.2016 - 08:28
Maria Gundersen skrifaði:
Jeg kan ikke finde nogle av farvene der referes til her i Karisma serien, hverken blå, grøn eller gul er tilgængelige. Skal man da bytte garn type, eller det andre farver der er ens de gamle fargene? Tak
01.06.2015 - 11:01DROPS Design svaraði:
Hej Maria. Ja, det er et gammelt mönster det her. Men hvis du kigger paa Karisma garnkortet er der farvemuligheder du kan bruge som alternativ. Faa eventuelt hjaelp til at vaelge hos din DROPS garnbutik. God fornöjelse.
01.06.2015 - 11:11
Lilliput#lilliputbuntingbag |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Ferðapoki fyrir börn með eða án hettu úr DROPS Karisma
DROPS Baby 1-3 |
|||||||||||||||||||
UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: STROFF: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið út umferðina. KÚLA: Aukið út um 3 lykkjur í 1 lykkju, prjónið 3 umferðir yfir þessa lykkju, í 4. umferð eru prjónaðar 3 lykkjur saman í 1 lykkju. ---------------------------------------------------------- FERÐAPOKI: FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 168 (180-192) lykkjur á hringprjón 3,5 með natur og prjónið 1 umferð sléttprjón, eftir það er M.4 prjónað áfram með natur – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 24 (27-33) cm fellið af 4 lykkjur fyrir miðju að framan fyrir opi = 164 (176-188) lykkjur og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka. Þegar stykkið mælist 33 (38-44) cm prjónið 24 umferðir af M.1 (byrjið við ör), prjónið nú M.2 (byrjið við ör) – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 52 (56-62) cm fellið af fyrir handveg þannig: Prjónið 34 (37-40) lykkjur framstykki, fellið af 12 lykkjur, prjónið 72 (78-84) lykkjur bakstykki, fellið af 12 lykkjur, prjónið 34 (37-40) lykkjur framstykki. Nú er fram- og bakstykki prjónað til loka hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 72 (78-84) lykkjur. Haldið áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 65 (70-76) cm setjið miðju 30 (32-34) lykkjur á þráð fyrir hálsmáli, fellið nú af 1 lykkju í hvorri hlið við háls í næstu umferð. Fellið af þær 20 (22-24) lykkjur sem eftir eru fyrir öxl þegar stykkið mælist 67 (72-78) cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 34 (37-40) lykkjur. Haldið áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 62 (67-73) cm fækkið lykkjum við háls í 2. hverri umferð 8 (9-10) lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 2 sinnum. Fellið af 19 (21-23) lykkjur sem eftir eru á öxl þegar stykkið mælist 67 (72-78) cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið eins og vinstra framstykki. ERMI: Fitjið upp 34 (36-38) lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með natur og prjónið 3 cm STROFF – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið 1 umferð sléttprjón JAFNFRAMT því sem aukið er út um 0 (2-4) lykkjur jafnt yfir = 34 (38-42) lykkjur. Prjónið M.3 – staðsetjið 1 mynstureiningu mitt uppi á ermi – JAFNFRAMT er aukið út í hvorri hlið innan við 1 kantlykkju um 1 lykkju 15 (15-13) sinnum fyrir 3 mán: til skiptis * í hverri og annarri hverri umferð *, fyrir 6/9 mán: í annarri hverri umferð, fyrir 12/18 mán: í 3. hverri umferð = 64 (68-68) lykkjur. Eftir M.3 er prjónað M.1 þar til stykkið mælist 12 (15-18) cm (stillið af eftir mynstri), eftir það er M.4 prjónað jafnframt því sem stykkið skiptist upp mitt undir ermi og er prjónað til loka fram- og til baka. Fellið af þegar stykkið mælist 15 (18-21) cm. HETTA EÐA HÁLSMÁL: Saumið axlasaum. Takið upp ca 70 lykkjur í kringum hálsmál á sokkaprjóna/hringprjón 2,5 með natur og prjónið 2 cm stroff (Hér er fellt af ef ekki er óskað eftir að hafa hettu). HETTA: Skiptið yfir á sokkaprjóna/hringprjón 3,5 og prjónið M.1 upp úr JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir í 1. umferð til = 84 (92-92) lykkjur. Eftir 24 (26-26) cm er fellt af. FRÁGANGUR: Saumið hettuna saman við miðju á höfði með lykkjuspori. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Takið upp ca 90 lykkjur á hringprjón 2,5 með natur meðfram vinstra framstykki (lykkjur eru teknar upp frá réttu) og prjónið 2 cm STROFF – sjá útskýringu að ofan. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið eins og vinstri kantur nema eftir 1 cm er fellt af fyrir 7 hnappagötum jafnt yfir kant – 1 hnappagat = fellið af 2 lykkjur, aukið út um 2 lykkjur í næstu umferð. Fellið af. KANTUR Á HETTU: Takið upp ca 120 (130-132) lykkjur meðfram hettu (lykkjur eru teknar upp frá röngu). Prjónið 6 cm stroff, fellið af. FRÁGANGUR: Saumið kant að stroffi á hettu. Saumið stroff saman neðst við op. Saumið ermar á búk í ystu lykkju þannig að saumurinn verði ekki þykkur og saumið ermasauma. Saumið tölur í. Gerið dúsk og saumið á húfuna. Þegar ferðapokinn verður of lítill er hægt að gera peysu úr honum með því að klippa við byrjun á kanti að framan og prjóna stroff neðan á ca 4 cm. ---------------------------------------------------------- VETTLINGAR (með og án þumals): Hægt er að prjóna vettlingana án þumals í tveimur minnstu stærðunum. Fitjið upp 34-36 (36-38) lykkjur á sokkaprjón 2,5 og prjónið 4 cm STROFF – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið sléttprjón. Þegar vettlingurinn mælist 5-6 (6,5-7) cm setjið 5 lykkjur á þráð fyrir þumal. Aukið út um 5 lykkjur yfir þær lykkjur sem settar voru á þráð í næstu umferð. Þegar vettlingurinn mælist 11-13 (13-14) cm prjónið til skiptis * 1 umferð þar sem lykkjur eru prjónaðar 2 og 2 saman og 1 umferð sléttprjón *, endurtakið frá *-* 3 sinnum. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og saumið saman. ÞUMALL: Takið upp 5 lykkjur í útauknu lykkjurnar við op fyrir þumal jafnframt þær 5 lykkjur af þræði. Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við skiptingu á milli lykkju á þræði og þær lykkjur sem teknar voru upp = 12 lykkjur. Prjónið ca 3,5 cm þumal. Prjónið saman 2 og 2 lykkjur í hverri umferð 2 sinnum. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, saumið saman. ---------------------------------------------------------- HÚFA (ekki með á mynd): Fitjið upp 88-96 (100-104) lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með natur og prjónið 2 cm STROFF – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið M.5, eftir það er prjónað til loka með natur. Þegar stykkið mælist 16-18 (20-22) cm prjónið til skiptis * 1 umferð þar sem lykkjur eru prjónaðar 2 og 2 saman og 1 umferð sléttprjón *, endurtakið frá *-* 3 sinnum = 11-12 (12-13) lykkjur, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, saumið saman. KÚLA: Prjónið bláa kúlu (sjá KÚLA að ofan) og saumið á sem dúsk. EYRNALEPPUR: Fitjið upp 5 lykkjur á prjón 3,5 og prjónið 20 cm stroff. Aukið nú áfram út á hvorri hlið í hverri umferð 1 lykkja 9-9 (9-10) = 23-23 (23-25) lykkjur – útauknu lykkjurnar eru prjónaðar sem stroff. Þegar eyrnaleppurinn mælist 8-8 (9-9) cm fellið af. Prjónið annan eyrnalepp til viðbótar og saumið á húfuna frá röngu í 1. umferð í sléttprjóni – ca 6 cm á milli eyrnaleppa við miðju að aftan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lilliputbuntingbag eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 1-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.