Knock on Christmas#dropsknockonchristmas |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||
Heklað piparkökuhús / hús / jólaskraut úr DROPS Belle. Stykkið er heklað neðan frá og upp. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-1689 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJUR: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.5. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PIPARKÖKUHÚS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Húsið er heklað neðan frá og upp. Það er heklaður kantur í kringum þakið. Þakskífurnar, hurðin og handfang á hurð er saumað út. Það eru heklaðir litlir hringir sem saumaðir eru á þakið. Í lokin er uppfitjunarkanturinn heklaður saman neðst á húsinu og upphengilykkja fest í toppinn á þakinu svo hægt sé að hengja húsið upp. HÚS: Notið heklunál 3,5 og DROPS Belle í litnum Kastanía, heklið 26 loftlykkjur og tengið loftlykkjurnar saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju – lesið LOFTLYKKJUR í útskýringu að ofan. Heklið A.1 (kemur í stað 1. fastalykkju), heklið A.2 umferðina hringinn = 26 fastalykkjur. Endurtakið mynsturteikningu svona á hæðina þar til stykkið mælist ca 5½ cm. Í næstu umferð er heklað þannig: Heklið A.1, heklið A.2 í hverja af fyrstu 12 fastalykkjum, heklið 8 loftlykkjur ( fyrir þak), heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 13 fastalykkjum, heklið 8 loftlykkjur (fyrir þak) og endið umferðina með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju = 42 lykkjur. Klippið og festið þráðinn. Byrjið í 5. loftlykkju sem var hekluð í lok umferðar, festið þráðinn með 1 keðjulykkju. Nú á að hekla A.3 2 sinnum í umferð, en skiptið út fyrstu fastalykkju í A.3 eins og í A.1. Þegar A.3 hefur verið heklað til loka eru 6 fastalykkjur í umferð. Heklið 2 fastalykkjur saman, heklið 1 fastalykkju, heklið 2 fastalykkjur saman og heklið 1 fastalykkju = 4 fastalykkjur. Klippið þráðinn, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eru eftir, herðið á þræði og festið vel. Húsið mælist ca 13 cm. KANTUR Í KRINGUM ÞAKIÐ: Notið DROPS Belle í litnum Ljós Beige. Haldið á húsinu eins og útskýrt er í A.4, passið uppá að byrjun umferðar sé á bakhlið á stykki og byrjið við ör með stjörnu og heklið þá stefnu sem örvar vísa þannig: Festið þráðinn með 1 keðjulykkju yst við þakið (ysti hluti á þakinu er heklaður í gegnum bæði lögin, þvert yfir húsið er heklað um fyrstu umferð á framhlið á þaki), * heklið 3 loftlykkjur, hoppið fram ca 1½ til 2 cm, heklið 1 fastalykkju í stykkið *, heklið frá *-* og stillið af að það verða 6 loftlykkjubogar þvert yfir þakið á húsinu og að síðasta keðjulykkjan er yst við þakið í hinni hliðinni – sjá mynd. Heklið síðan með 2 loftlykkjur, hoppið fram ca 1 cm og 1 fastalykkju upp á við meðfram hlið á þaki (það er heklað yst í gegnum bæði lögin) og stillið af að það sé 1 fastalykkja fyrir miðju ofan á þakinu á húsinu. Heklið síðan með 2 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm og heklið 1 fastalykkju fram að byrjun umferðar og endið með 2 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm og heklið 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. Ekki snúa stykkinu, það er núna heklað frá þessari hlið. Nú er heklað um hvern af 6 loftlykkjubogum þvert yfir þakið á húsinu þannig: Um hvern boga er heklaður 1 hálfur stuðull, 3 stuðlar, 1 hálfur stuðull og í hverja fastalykkju á milli boga er hekluð 1 keðjulykkju, endið með 1 keðjulykkju í síðustu fastalykkju þvert á þakinu. Klippið og festið þráðinn. ÚTSAUMUR: Notið litinn Ljós Beige, allur útsaumurinn er gerður á framhlið á húsinu (ekki í gegnum bæði lögin) og festið þræðina innan í húsinu. Sjá mynsturteikningu A.5. Útsaumur flatsaumur á þaki – sjá mynd A. Útsaumur keðjuspor fyrir hurð – sjá mynd B. Útsaumur franskur hnútur fyrir handfang á hurð – sjá mynd C. LITLIR HRINGIR: Notið afgangsgarn í mismunandi litum DROPS Belle. Heklið 2 loftlykkjur, heklið 4 fastalykkjur í 2. loftlykkju frá heklunálinni og endið með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju frá heklunálinni. Klippið þráðinn og þræðið í gegnum síðustu lykkjuna. Heklið 15 stykki og saumið fallega á þakið – sjá mynd. NEÐRI KANTUR: Notið litinn Ljós Beige, haldið stykkinu þannig að hægt sé að hekla í gegnum bæði lögin (framhlið og bakhlið á húsi) og heklið frá framhlið: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju í gegnum bæði lögin. Klippið og festið þráðinn. LYKKJA: Klippið þráð DROPS Belle í litnum Kastanía ca 15 cm, þræðið þráðinn í gegnum toppinn á húsinu og hnýtið hnút í endann. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dropsknockonchristmas eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 12 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1689
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.