Chocolate Roll Sweater#chocolaterollsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Andes eða DROPS Snow. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu og rúllukanti. Stærð XS – XXXL.
DROPS 272-25 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til hægri): Færið uppsláttinn frá vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón með því að stinga vinstri prjóni inn aftan í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur jafnóðum inn í mynstur. Á EFTIR LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur jafnóðum inn í mynstur. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Þegar lykkjur eru auknar jafnt út í skiptingunni yfir í stroff, þá verður útaukningin jafnari ef aukið er út þar sem lykkjurnar verða síðan prjónaðar brugðið, sléttprjónuðu lykkjurnar koma þá til með að halda fallega áfram yfir í stroffið. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir laskalínu. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp aðeins laust 56-60-60-64-68-68-72 lykkjur á hringprjón 6 með DROPS Andes eða DROPS Snow. Prjónið 3 umferðir sléttprjón (= rúllukantur), prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1: * 1 lykkja brugðið, 3 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. UMFERÐ 2: Prjónið slétt. UMFERÐ 3: * 1 lykkja brugðið, 3 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Prjónið síðan sléttprjón þar til kantur í hálsmáli mælist 5-5-5-6-6-6-6 cm frá uppfitjunarkanti. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 20-21-21-22-24-24-25 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 8. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í brugðna lykkju, þessar lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Setjið 1. merki í fyrstu lykkju, teljið 11-11-11-11-13-13-13 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 15-17-17-19-19-19-21 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 11-11-11-11-13-13-13 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju, það eru 15-17-17-19-19-19-21 lykkjur á eftir síðasta merki (= bakstykki). Prjónið sléttprjón hringinn og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið leiðbeiningar að ofan hvernig auka á út. UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). ATH: Í byrjun umferðar er aukið út á eftir lykkju með 1. merki og í lok umferðar er aukið út á undan lykkju með 1. merki. UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í LASKALÍNA). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 5-6-9-9-9-15-14 sinnum (= 10-12-18-18-18-30-28 umferðir prjónaðar) = 96-108-132-136-140-188-184 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið síðan og aukið út þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón (uppslátturinn er prjónaður eins og áður). UMFERÐ 3: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu á framstykki og á bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á eftir 2. og 4. merki og á undan 3. og 1. merki – lykkjur eru ekki auknar út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón (uppslátturinn er prjónaður eins og áður). Prjónið UMFERÐ 1 til 4 5-5-4-5-5-2-3 sinnum (= 20-20-16-20-20-8-12 umferðir prjónaðar = 5-5-4-5-5-2-3 sinnum útaukning á ermum og 10-10-8-10-10-4-6 sinnum útaukning á framstykki/bakstykki) = 156-168-180-196-200-212-220 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið og stykkið mælist alls ca 21-23-24-27-27-27-29 cm frá merki fyrir miðju að framan. Aukið hefur verið út alls 15-16-17-19-19-19-20 sinnum á framstykki/bakstykki og 10-11-13-14-14-17-17 sinnum á ermum. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar koma laskalykkjurnar til með að vera staðsettar aðeins inn á framstykki/bakstykki í stærð XL, XXL og XXXL (í stærð XS, S, M og L skiptist stykkið við laskalykkjurnar), þ.e.a.s. jafnframt sem næsta umferð er prjónuð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 1-1-1-1-2-5-5 lykkjur sléttprjón (= þessar lykkjur tilheyra bakstykki), setjið næstu 31-33-37-39-39-39-39 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 47-51-53-59-61-67-71 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 31-33-37-39-39-39-39 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 46-50-52-58-59-62-66 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 106-114-122-134-142-158-170 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykkinu (= fyrir miðju í 6-6-8-8-10-12-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 45-47-49-51-51-53-55 cm frá merki fyrir miðju að framan. Í næstu umferð byrjar stroffið JAFNFRAMT sem aukið er út um 18-22-22-26-26-30-30 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 124-136-144-160-168-188-200 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6 og prjónið þannig: UMFERÐ 1: * 1 lykkja brugðið, 3 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. UMFERÐ 2: Prjónið slétt. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-3-3-3-4-4-4 sinnum (= 6-6-6-6-8-8-8 umferðir prjónaðar). Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum. Peysan mælist 49-51-53-55-56-58-60 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 54-56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 31-33-37-39-39-39-39 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 8 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 37-39-45-47-49-51-53 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-6-8-8-10-12-14 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð eftir skiptinguna, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í 3. hverjum cm 1-1-3-3-3-3-3 sinnum = 35-37-39-41-43-45-47 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 40-38-38-35-35-36-34 cm frá skiptingunni. Í næstu umferð byrjar stroffið JAFNFRAMT sem aukið er út um 5-7-9-7-9-7-9 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 40-44-48-48-52-52-56 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6 og prjónið þannig: UMFERÐ 1 * 1 lykkja brugðið, 3 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. UMFERÐ 2: Prjónið slétt. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-3-3-3-4-4-4 sinnum (= 6-6-6-6-8-8-8 umferðir prjónaðar). Prjónið síðan 2 umferðir sléttprjón til viðbótar (= rúllukantur). Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 45-43-43-40-41-42-40 cm frá skiptingunni. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #chocolaterollsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 272-25
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.