Patrizia skrifaði:
Capito grazie. Leggevo il secondo passaggio non il primo.
14.10.2026 - 16:59DROPS Design svaraði:
Buongiorno Patrizia, abbiamo risposto alla domanda precedente. Buon lavoro!
17.10.2026 - 14:42
Patrizia skrifaði:
Dopo il primo aumento nel diagramma A1 ci sono 6 maglie, la prima e l'ultima si lavorano a rovescio le altre 4 servono per il disegno. Nel testo è scritto "mettere 2 maglie sul ferro ausiliario sul dietro del lavoro, 1 maglia diritto, 2 maglie diritto dal ferro ausiliario. mettere 1 maglia sul ferro ausiliario sul davanti del lavoro, 2 maglie diritto, 1 maglia diritto dal ferro ausiliario" per fare ciò ci vogliono 6 maglie ma ci sono solo 4 maglie. Non comprendo come si faccia.
14.10.2026 - 16:50DROPS Design svaraði:
Buongiorno Patrizia, deve leggere la spiegazione del simbolo con 2 quadratini, non 3. Buon lavoro!
17.10.2026 - 14:41
Manon skrifaði:
Bonjour. - besoin d'aide svp - model 272-11 (L) En utilisant la methode aug symétrique pour aug de 28m (136 a 164), il me manque des m pour compléter le tour en utilisant la methode suivante: tric 2, aug 1 , tric 5m , aug 1 *12 ... tric 4m, aug 1 * 3... tric 5m, aug 1 * 12 .... tric 2 ....etc Merci de préciser svp, je ne parviens pas a trouver ou je fais erreur. :(
07.10.2026 - 04:05DROPS Design svaraði:
Bonjour Manon, si vous utilisez le calculateur, les augmentations sont calculées après les mailles, mais ici vous devez augmenter dans une maille, autrement dit, sur la base du calculateur, procédez ainsi: tricotez 1 m, augmentez dans la m suivante, puis *tricotez 3 m et augmentez dans la m suivante* x 8 et ainsi de suite, autrement dit, au lieu d'augmenter après le nombre de mailles indiqué, augmentez dans la dernière de ces mailles (tricotez 1 m en moins et augmentez dans la m suivante). Bon tricot!
07.10.2026 - 07:55
Nina Andersen skrifaði:
Hej. jeg er ved at strikke Maple Cream Sweater 272-11. jeg mener der er en fejl i diagram forklaringen, det drejer sig om række 11 den er magen til række 10 så snoningen kommer til at pege samme vej. Mvh. Nina.
23.09.2026 - 19:16DROPS Design svaraði:
Hei Nina. Husk å hake av for Spørsmål om du ønsker svar når du sender inn. Ikke alltid Kommentarer blir besvart/ tar tid. Usikker på hva du mener. Det er ingen snoning i rad 10, men i rad 11. og strikker man slik over 2 masker: sæt 1 maske på snoningspind BAG arbejdet, strik 1 ret, strik 1 ret fra snoningspinden , deretter slik: sæt 1 maske på snoningspind FORAN arbejdet, strik 1 ret, strik 1 ret fra snoningspinden. Da får man den snoningen man ser på genseren. mvh DROPS Design
28.09.2026 - 14:32
Ewa skrifaði:
Proszę o wyjaśnienie "W TYM SAMYM CZASIE gdy zostanie przerobione 1 po podziale robótki, zacząć zamykać oczka na środku pod rękawem" Czy chodzi o 1 rząd czy o 1 cm?
18.09.2026 - 20:58DROPS Design svaraði:
Witaj Ewo, chodzi o okrążenie. Już to dodaję we wzorze. Pozdrawiam!
19.09.2026 - 18:19
Ewa skrifaði:
"Dalej przerabiać dżersejem, W TYM SAMYM CZASIE w 1-szym okrążeniu równomiernie dodając 83-81-79-69-62-60-58 oczek = 368-392-416-448-488-512-536 oczek." Powinno chyba być "równomiernie odjąć 83-81-79-69-62-60-58 oczek " . Mało zrozumiałe zdanie: "Długość swetra od markera na środku tyłu wynosi 45-47-49-51-53-54-56 cm i ok. 50-52-54-56-58-60-62 cm."
15.09.2026 - 21:17DROPS Design svaraði:
Witaj Ewo, zgadza się, wprowadzimy korektę. W 1-szym punkcie powinniśmy zamknąć oczka. A w 2-gim długość swetra wynosi 50-52-54-56-58-60-62 cm od ramienia. Pozdrawiamy i dziękujemy!
17.09.2026 - 14:52
Mette skrifaði:
Der er fejl i forklaringen til udtagelsen hvor retmaskerne i mønsteret bliver til 8, Fejl i anden disgram da texten fra første gentages. Da jeg igså bruger italiensk opskrift fandt jeg løsningen der. Men ret den danske! Mvh Mette
12.09.2026 - 21:56
Caroline skrifaði:
Bonjour, pour la partie du début du point fantaisie : * Tricoter A.1, tricoter A.2 *, tricoter 20-21-22-23-25-26-27 fois de *-* au total tout le tour, et tricoter encore 1-1-1-1-0-0-0 fois A.1, faut il tricoter tout le diagramme? Car j’ai l’impression que les points ne se suivent pas entre la première rangée du diagramme a.1 et sa deuxième rangée.
09.09.2026 - 00:18DROPS Design svaraði:
Bonjour Caroline, vous allez tricoter les diagrammes alternativement, autrement dit (A.1 = 1 m env, 3 m end, 1 m env puis A.2 = 1 m env, 3 m end, 1 m env) et vous tricotez ainsi tout le tour en terminant si besoin par A.1. Vous aurez les augmentations aux mêmes tours dans A.1 et A.2 et les torsades se feront aux mêmes tours dans A.1 et A.2 également. Bon tricot!
09.09.2026 - 08:06
Anne Stewart skrifaði:
Love it will let you know more when I have done it.
03.09.2026 - 03:42
Maple Cream Sweater#maplecreamsweater |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca eða DROPS Fabel. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með rúllukanti, hringlaga berustykki og köðlum. Stærð XS – XXXL.
DROPS 272-11 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 124 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 22) = 5,6. Í þessu dæmi er aukið út til skiptis í ca 5. og 6. hverja lykkju – aukið út þannig: Þessi samhverfa útaukning býr til 1 nýja lykkju. Fylgdu leiðbeiningum 1 - 4 að neðan: 1. Haldið þræðinum sem prjónað er með aftan við stykkið. Lyftið fyrstu lykkju á vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið. 2. Stingið vinstri prjóni aftan við lyftu lykkjuna og inn á milli lyftu lykkjunnar og næstu lykkju á hægri prjóni. 3. Sláið 1 sinni uppá prjóninn með þræðinum sem prjónað er með og dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna þannig að það myndast 1 ný lykkja á hægri prjóni. 4. Sleppið fremri lykkjuboganum af vinstri prjóni og prjónið síðan 1 lykkju slétt í fremri hlutann á hinum lykkjuboganum. Nú hefur þú aukið út um 1 lykkju. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir hringlaga berustykki. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermarnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 120-124-130-136-140-146-150 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Alpaca eða DROPS Fabel. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið sléttprjón þar til kantur í hálsmáli mælist 3-3-3-4-4-4-4 cm. Setjið 1 merki í byrjun umferðar (= miðja að aftan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 20-22-24-28-30-30-32 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 140-146-154-164-170-176-182 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón. Munið að fylgja prjónfestunni. Þegar berustykkið mælist 2-2-3-3-3-3-3 cm frá merki, aukið út 28-28-30-30-34-36-38 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 168-174-184-194-204-212-220 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar berustykkið mælist 4-4-5-5-5-6-6 cm frá merki, aukið út 37-41-41-41-46-48-50 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 205-215-225-235-250-260-270 lykkjur. Nú er prjónað MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan, fyrsta umferð er prjónuð þannig: * Prjónið A.1, prjónið A.2 *, prjónið frá *-* alls 20-21-22-23-25-26-27 sinnum berustykkið hringinn, prjónið A.1 alls 1-1-1-1-0-0-0 sinnum til viðbótar. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka, eru 451-473-495-517-550-572-594 lykkjur í umferð. Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið 8 umferðirnar merktar með stjörnu í mynsturteikningu 0-0-0-0-1-1-1 sinnum til viðbótar, síðan eru síðustu 2 umferðirnar í mynsturteikningu endurteknar þar til stykkið mælist 20-20-22-23-24-25-26 cm frá merki. Síðan er prjónað sléttprjón jafnframt sem fækkað er um 83-81-79-69-62-60-58 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 368-392-416-448-488-512-536 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 21-21-23-24-25-26-28 cm frá merki fyrir miðju að aftan. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 56-61-65-69-75-80-86 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki, setjið næstu 72-74-78-86-94-96-96 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12-14-16-18-20-24-28 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 112-122-130-138-150-160-172 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 72-74-78-86-94-96-96 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12-14-16-18-20-24-28 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 56-61-65-69-75-80-86 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 248-272-292-312-340-368-400 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykkinu (= fyrir miðju í 12-14-16-18-20-24-28 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 43-45-47-49-51-52-54 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 20-20-22-24-24-30-32 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 268-292-314-336-364-398-432 lykkjur. Þegar prjónaðar hafa verið 3 umferðir stroff, prjónið 2 umferðir sléttprjón. Notið hringprjón 3 og fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum. Peysan mælist 45-47-49-51-53-54-56 cm frá merki fyrir miðju að aftan og ca 50-52-54-56-58-60-62 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 72-74-78-86-94-96-96 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 3 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 12-14-16-18-20-24-28 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 84-88-94-104-114-120-124 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 12-14-16-18-20-24-28 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur alls 3-3-3-4-4-4-4 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur 4-5-6-9-13-14-15 sinnum í hverjum 2-2-2-1½-1½-1½-1½ cm = 70-72-76-78-80-84-86 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 43-44-42-42-41-42-40 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið 3 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 6 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 76-78-82-84-86-90-92 lykkjur. Prjónið 3 umferðir sléttprjón (= rúllukantur). Notið sokkaprjóna 3 og fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 45-46-44-44-43-44-42 cm frá skiptingunni. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #maplecreamsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 272-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.