Michèle skrifaði:
Bonjour, Puis-je faire ce modèle en prenant de la laine Drops Alpaca et de la drops Air( donc groupe A et C ) au lieu de 2 fils drops Alpaca. Aurais-je le même résultat D'autre part, vous n'indiquez pas le nombre de pelotes à utiliser. Pour ma part, je vais le faire en taille XS/S. Merci de vos réponses
20.11.2026 - 14:45DROPS Design svaraði:
Bonjour Michèle, comme on tricote ici avec 2 fils Alpaca vous pouvez utiliser la laine DROPS Air (mais 1 seul fil alors) - utilisez le convertisseur pour calculer la quantité requise selon la taille choisie (cf. onglet Explications, entre les tailles et les aiguilles). Bon tricot!
20.11.2026 - 15:37
Terhi skrifaði:
Is there a mistake in the instructions reg. YOKE? After having 296 stitches comes Round 1, where 4 stitches are added. This round is instructed to be done two times along with the second round. Then there are added all together 8 stitches, which leads to having not 304, but 308 stitches. That doesn't add up when starting to divide the work to body and sleeves.
26.10.2026 - 19:21DROPS Design svaraði:
Hi Terhi, You are correct, there should be 304 stitches after working the 2 rounds x 2, and this is the stitch count which is also given in the text. Regards, Drops Team.
27.10.2026 - 06:03
Lena skrifaði:
Kan jeg strikke genseren med en tråd i størrelsene?
25.10.2026 - 15:11DROPS Design svaraði:
Hei Lena, Du kan bruke 1 tråd fra et garn i garngruppe C (blir samme tykkelse som 2 tråder Alpaca) - klikk på Garn & Pinner på toppen, deretter garngrupper på høyre siden og finn Garngruppe C, litt ned i lista. Hvis du bare bruker 1 tråd Alpaca, må du øke pinnestørrelsen for å få riktige strikkefasthet, og genseren vil få en tynnere og luftigere struktur. Hilsen Drops Team.
26.10.2026 - 05:18
Nancy skrifaði:
Would the Lima yarn be suitable for this pattern ( Sing to me Sweater ) , if I change needles according to suggestion for needle changes ?
20.10.2026 - 02:22DROPS Design svaraði:
Dear Nancy, you might use Lima as long as you get correct tension in both width and height and like the texture. Happy knitting!
21.10.2026 - 09:02
Véronique skrifaði:
Pourquoi ne montrez vous quasiment jamais les modèles de dos ? Sur de nombreux modèles se serait bien utile. Merci
05.09.2026 - 19:24DROPS Design svaraði:
Bonjour Véronique, des photos du dos sont faites lorsqu'elles sont un intérêt, ici, le dos va être exactement comme le devant. Bon tricot!
07.09.2026 - 08:06
Veronique skrifaði:
Pourquoi ne prenez vous jamais les modèles de dos ? 1 photo de dos serait utile. Merci
05.09.2026 - 19:21
Anna skrifaði:
Hi! I'm a little confused about the yoke part where we attach markers. The total stitches don't add up to 96 (I'm knitting size M). How should I be counting from by first stitch? I'm a beginner, sorry if it's a silly question.
03.09.2026 - 06:46DROPS Design svaraði:
Dear Anna, note that the markers will be added in one stitch (and not between stitches), so that you will have: 1 st with a marker in, 16 sts, 1 st with a marker in, 30 sts, 1 st with a marker in, 16 sts, 1 st with a marker in, 30 sts = 1+16+1+30+1+16+1+30=96 sts. Happy knitting!
03.09.2026 - 18:37
Teresa skrifaði:
The pattern says to use 3.5mm needles after the cast on but it doesn't say when to change to 4mm. Do I assume its after the rolled edge rows? Sorry , I'm not very experienced!
30.08.2026 - 15:03DROPS Design svaraði:
Dear Teresa, we'll send your comment to the design department and check where you should change to 4mm needles. Happy knitting!
31.08.2026 - 00:01
Lisbeth Jensen skrifaði:
Smuk og enkel sweter
28.08.2026 - 20:42
Anita skrifaði:
Precis en sådan tröja skulle jag vilja göra i herr , finns det möjligen ett sådant mönster ??
28.08.2026 - 17:19DROPS Design svaraði:
Hei Anita. Ta en titt på målene som er oppgitt på målskissen til 273-23, finn et herre plagg du allerede har og sammenlign med målene i målskissen for å se om det er en størrelse på damegenseren som matcher din herregenser. deretter velg den størrelsen som passer best, evnt strikk den litt lengre. Det som er det geniale med å strikke uppifrå og ner er at du kan prøve genseren og måle underveis. Bare husk å ha nok garn om du velger å strikke den lengre enn hva det står i oppskriften. mvh DROPS Design
31.08.2026 - 11:59
Sing To Me Sweater#singtomesweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu og rúllukanti. Stærð XS - XXXL.
DROPS 273-23 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- TVEIR ÞRÆÐIR: Ef fjöldi dokka í mynstri er með oddatölu er hægt að nota tvo þræði úr sömu dokkunni. Notið þráðinn bæði innan í og utan með dokkunni. Þegar skipt er yfir í nýja dokku er gott að skipta ekki um báða þræðina í einu svo festingin á þræðinum verði ekki eins sýnileg. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJUM (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjóninn með því að stinga vinstri prjóninum inn aftan í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn - svo ekki myndist gat. Á EFTIR LASKALYKKJUM (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp aðeins laust 90-92-96-100-104-108-114 lykkjur á hringprjón 4 með 2 þráðum DROPS Alpaca – lesið TVEIR ÞRÆÐIR í útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið sléttprjón í hring í 4-4-4-4-4½-4½-4½ cm (= rúllukantur). Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 32-32-33-34-35-36-38 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju, lykkja með merkinu og 1 lykkja hvoru megin við hana (= 3 lykkjur) kallast laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við þessar 3 laskalykkjur. Setjið 1. merkið í fyrstu lykkjuna, teljið 16 lykkjur (= ermi), setjið 2. merkið í næstu lykkju, teljið 27-28-30-32-34-36-39 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merkið í næstu lykkju, teljið 16 lykkjur (= ermi), setjið 4. merkið í næstu lykkju, það eru 27-28-30-32-34-36-39 lykkjur eftir síðasta merkið (= bakstykki). Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið sléttprjón í hring og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar - lesið útskýringu að ofan um hvernig á að auka út. Prjónið þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). ATH: Í byrjun umferðar er aukið út eftir fyrstu 2 lykkjum í umferð og í lok umferðar er aukið út þegar 1 lykkja er eftir í umferð - munið að aukið er út hvoru megin um 3 lykkjur, merkið er fyrir miðju á þessum lykkjum. UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón - munið að prjóna uppsláttinn eins og útskýrt er í LASKALÍNA. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 20-22-25-26-27-27-28 sinnum (= 40-44-50-52-54-54-56 umferðir prjónaðar) = 250-268-296-308-320-324-338 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Ekki er lengur aukið út fyrir ermar, prjónið þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu á framstykki og á bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á eftir 2. og 4. merki og á undan 3. og 1. merki – ekki er lengur aukið út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón – munið eftir að prjóna uppsláttinn eins og útskýrt er í LASKALÍNA. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 3-4-2-3-5-8-10 sinnum (= 6-8-4-6-10-16-20 umferðir prjónaðar) = 262-284-304-320-340-356-378 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, aukið hefur verið út alls 23-26-27-29-32-35-38 sinnum á framstykki/bakstykki og 20-22-25-26-27-27-28 sinnum á ermum. Prjónið síðan sléttprjón án þess að auka út, þar til stykkið mælist 20-21-22-24-26-28-30 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt (= tilheyrir bakstykki), setjið næstu 54-58-64-66-68-68-70 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-16-20-22 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 77-84-88-94-102-110-119 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 54-58-64-66-68-68-70 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-16-20-22 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 75-82-86-92-100-108-117 lykkjur sléttprjón (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 170-188-200-216-236-260-282 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 44-46-48-50-51-53-55 cm frá merki fyrir miðju að framan. Byrjun umferðar er í hlið fyrir miðju undir ermi. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff (= 3 lykkjur slétt og 3 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 10-10-10-12-10-10-12 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 180-198-210-228-246-270-294 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-4-5-5 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð slétt áður en fellt er af með sléttum lykkjum. Peysan mælist 48-50-52-54-56-58-60 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 52-54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 54-58-64-66-68-68-70 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-10-12-14-16-20-22 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 62-68-76-80-84-88-92 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 8-10-12-14-16-20-22 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið um 2 lykkjur með 0-10-8-6-5½-4½-4 cm millibili alls 1-3-5-6-6-7-7 sinnum = 60-62-66-68-72-74-78 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 41-41-41-39-37-35-33 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið stroff (= 3 lykkjur slétt og 3 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 6-4-6-4-6-4-6 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 66-66-72-72-78-78-84 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð slétt áður en fellt er af með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 45-45-45-43-42-40-38 cm frá skiptingunni. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #singtomesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 273-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.