Blue Wish Shorts#bluewishshorts |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklaðar stuttbuxur úr DROPS Safran. Stykkið er heklað ofan frá og niður með gatamynstri neðst á skálmum og snúru í mitti. Stærð XS – XXXL.
DROPS 266-35 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJUR: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju / hálfur stuðull / stuðull. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Munið að mynsturteikning er lesin frá hægri til vinstri þegar heklað er frá réttu og frá vinstri til hægri þegar heklað er frá röngu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út með því að hekla 2 stuðla í sömu lykkju. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman í 1 stuðul þannig: * Bregði þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum fyrstu 2 lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- STUTTBUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring, ofan frá og niður. Fyrst er heklaður kantur í hring með gataumferð til að þræða snúruna í gegn. Síðan er hekluð upphækkun aftan á buxum – upphækkunin er hekluð fram og til baka með stuttum umferðum til að forma bakstykkið. Eftir upphækkunina er heklað í hring. Stykkið skiptist fyrir skálmar, hekluð er klofbót fram og til baka frá miðju að framan og að miðju að aftan. Klofbótin er saumuð við bakstykkið á buxunum, Síðan er hvor skálm hekluð í hring og endað er með blúndukanti neðst á skálmum. Í lokin er hekluð snúra til að hnýta í mitti. KANTUR MEÐ GATAUMFERÐ: Heklið 137-157-173-189-205-229-257 LOFTLYKKJUR – lesið leiðbeiningar að ofan, með heklunál 3,5 með DROPS Safran. Tengið loftlykkjurnar saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið síðan þannig: Heklið A.1a í fyrstu lykkju (= byrjun og lok umferðar = miðja að aftan), heklið síðan A.1b umferðina hringinn = 136-156-172-188-204-228-256 fastalykkjur + 1 loftlykkja í byrjun umferðar. Haldið svona áfram með mynstur. Munið að fylgja heklfestunni. Þegar A.1 hefur verið heklað til loka, mælist kanturinn ca 3 cm. Síðan er hekluð upphækkun eins og útskýrt er að neðan. UPPHÆKKUN: Byrjið fyrir miðju að aftan, heklið A.2a í fyrstu lykkju, heklið A.2b yfir næstu 6-7-7-8-8-9-9 lykkjur, heklið A.2c í næstu lykkju, snúið stykkinu. Heklið A.2c í fyrstu lykkju, heklið A.2b yfir næstu 13-15-15-17-17-19-19 lykkjur, heklið A.2a í næstu lykkju, snúið stykkinu. Heklið A.2a í fyrstu lykkju, heklið A.2b yfir næstu 20-23-23-26-26-29-29 lykkjur, heklið A.2c í næstu lykkju, snúið stykkinu. Heklið A.2c í fyrstu lykkju, heklið A.2b yfir næstu 27-31-31-35-35-39-39 lykkjur, heklið A.2a í næstu lykkju, snúið stykkinu. Haldið svona áfram fram og til baka með því að hekla yfir 7-8-8-9-9-10-10 lykkjur fleiri í hvert skipti sem stykkinu er snúið, þar til heklaðar hafa verið alls 16-16-18-18-20-20-22 umferðir (stykkinu hefur nú verið snúið 8-8-9-9-10-10-11 sinnum í hvorri hlið). Stykkið mælist ca 9-9-10-10-11-11-12 cm frá uppfitjunarkanti fyrir miðju að aftan. Á eftir síðasta skipti sem stykkinu er snúið við, heklið fastalykkjur til baka að miðju að aftan. Síðan er stykkið heklað í hring frá miðju að aftan eins og útskýrt er að neðan. STUTTBUXUR: Heklið 1 umferð með fastalykkjum hringinn yfir allar lykkjur, þ.e.a.s. heklið fyrstu umferð í A.1. Heklið síðan stuðla hringinn þannig: Heklið A.3a í fyrstu lykkju, heklið A.3b umferðina hringinn. Haldið svona áfram með stuðla hringinn. Þegar stykkið mælist 5-5-5-5-6-6-6 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan, setjið 4 merki í stykkið, það er gert án þess að hekla lykkjurnar – byrjið fyrir miðju aftan, teljið 27-32-35-39-42-48-54 lykkjur (ásamt 1. stuðli í byrjun umferðar = 3 loftlykkjur), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 14-14-16-16-18-18-20 lykkjur, setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 52-62-68-76-82-94-106 lykkjur (= framan á buxum), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 14-14-16-16-18-18-20 lykkjur, setjið 1 merki í næstu lykkju, það eru 26-31-34-38-41-47-53 lykkjur eftir í umferð. Haldið áfram með A.3 hringinn eins og áður. Jafnframt í fyrstu umferð er aukið út um 1 stuðul í lykkjuna á undan 1. og 3. merki og á eftir 2. og 4. merki – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í hverri umferð 10-8-4-3-1-0-0 sinnum og síðan í annarri hverri umferð 4-5-8-9-11-11-11 sinnum = 192-208-220-236-252-272-300 stuðlar + 3 loftlykkjur í byrjun umferðar. ATH: Passið uppá að merkin sitji í sömu lykkju áfram út stykkið, þannig að það séu alltaf 14-14-16-16-18-18-20 lykkjur í hvorri hlið á buxum á milli lykkja með merki í. Þegar stykkið mælist 23-25-27-29-31-33-34 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan, skiptist stykkið fyrir skálmar og hekluð er klofbót frá miðju að framan að miðju að aftan á buxum. Klippið þráðinn. KLOFBÓT: Teljið 97-105-111-119-127-137-151 stuðla (ásamt 1. stuðli í byrjun umferðar = 3 loftlykkjur) og setjið 1 merki á undan fyrstu lykkju (= miðja að framan). Byrjið frá réttu 2-2-2-3-3-4-4 lykkjur á undan þessu merki, heklið A.4a í fyrstu lykkju, heklið A.4b í hverja af 2-2-2-4-4-6-6 næstu lykkjur, heklið A.4c í síðustu lykkju. Heklið A.4 fram og til baka svona. JAFNFRAMT þegar klofbótin mælist 4 cm, aukið út 1 lykkju í hvorri hlið – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og aukið út innan við ystu lykkju í hvorri hlið. Aukið svona út með 4 cm millibili alls 2-2-2-3-3-4-4 sinnum = 8-8-8-12-12-16-16 lykkjur. Þegar eftir er 1 umferð á undan klofbót mælist stykkið 12-12-12-15-15-18-18 cm, aukið út 1 stuðul fyrir miðju í umferð = 9-9-9-13-13-17-17 lykkjur. Klippið þráðinn, klofbótin mælist ca 12-12-12-15-15-18-18 cm. FRÁGANGUR: Saumið klofbótina við bakhlið á stuttbuxunum – byrjun umferðar á að passa við miðju á klofbót – saumið kant í kant með smáu spori. VINSTRI SKÁLM: Byrjið frá réttu við klofbót að aftan, heklið 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju, heklið A.3a í þessa lykkju, heklið síðan A.3b hringinn á skálminni þannig: Heklið 25-25-25-32-32-39-39 stuðla meðfram klofbót og heklið 1 stuðul í hvern af 90-98-104-109-117-124-138 stuðlum hringinn á skálminni á stuttbuxunum = 115-123-129-141-149-163-177 stuðlar + 3 loftlykkjur í byrjun umferðar. Haldið áfram með A.3 hringinn þar til skálmin mælist ca 4-4-5-6-6-7-7 cm – JAFNFRAMT í síðustu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður út til 113-125-131-143-149-161-179 stuðla + 3 loftlykkjur – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og LEIÐBEININGAR ÚRTAKA í útskýringu að ofan. Í næstu umferð byrjar blúndukantur og heklað er þannig: Heklið A.5a yfir fyrstu 4 lykkjur, heklið A.5b alls 18-20-21-23-24-26-29 sinnum, heklið A.5c yfir síðustu 2 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur þar til A.5 hefur verið heklað til loka. Klippið og festið þráðinn. Skálmin mælist ca 8-8-9-10-10-11-11 cm frá skiptingunni. HÆGRI SKÁLM: Byrjið frá réttu við klofbót að aftan, heklið 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju, heklið A.3a í þessa lykkju, heklið síðan A.3b hringinn á skálminni þannig: Heklið 1 stuðul í hvern af 90-98-104-109-117-124-138 stuðlum hringinn á skálminni á stuttbuxunum og heklið 25-25-25-32-32-39-39 stuðla meðfram klofbót = 115-123-129-141-149-163-177 stuðlar + 3 loftlykkjur í byrjun umferðar. Haldið áfram með A.3 hringinn þar til skálmin mælist ca 4-4-5-6-6-7-7 cm – JAFNFRAMT í síðustu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður út til 113-125-131-143-149-161-179 stuðla + 3 loftlykkjur – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og LEIÐBEININGAR ÚRTAKA í útskýringu að ofan. Í næstu umferð byrjar blúndukantur og heklað er þannig: Heklið A.5a yfir fyrstu 4 lykkjur, heklið A.5b alls 18-20-21-23-24-26-29 sinnum, heklið A.5c yfir síðustu 2 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur þar til A.5 hefur verið heklað til loka. Klippið og festið þráðinn. SNÚRA: Heklið 1 loftlykkju með heklunál 3,5 með DROPS Safran, síðan er notaðir 2 þræðir (takið þráðinn innan í dokkunni og notið þann þráð saman með þræðinum sem heklað er með). Leggið þræðina saman, en notið vinstri vísifingur til að halda þráðunum frá hvorum öðrum (látið annan þráðinn liggja yfir vísifingri og látið hinn þráðinn liggja undir vísifingri) og passið uppá að þráðurinn sem hekla á með sé í sömu röð. Heklið snúru eftir mynsturteikningu A.6 þar til snúran mælist ca 130-140-150-160-170-180-190 cm – eða heklið að óskaðri lengd. Klippið þræðina, þræðið þræðina í gegnum lykkjuna og festið vel. Þræðið snúruna upp og niður í gegnum gataumferð efst á stuttbuxunum – byrjun og lokin er ca fyrir miðju að framan. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bluewishshorts eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 12 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 266-35
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.