Pastel Bloom Sweater#pastelbloomsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Fiesta og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með evrópsku berustykki, stuttum ermum og rúllukanti. Stærð XS - XXXL.
DROPS 266-29 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU (= ný lykkja snýr til vinstri): Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU (= ný lykkja snýr til hægri): Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (í skiptingunni yfir í stroff). Þegar lykkjur eru auknar út jafnt yfir í skiptingunni yfir í stroff, er mikilvægt að auka út þar sem lykkjurnar eru síðar prjónaðar brugðið, sléttprjónuðu lykkjurnar halda þá fallega yfir í stroffið. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Stykkið er prjónað samkvæmt útskýringu 1-5. 1. BAKSTYKKI: Fitjaðar eru upp lykkjur aftan í hnakka og bakstykkið er prjónað fram og til baka niður á við jafnframt því sem lykkjum er aukið út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. 2. FRAMSTYKKI: Er prjónað í 2 stykkjum (= hvoru megin við hálsmál). Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, prjónið framstykkið niður á við jafnframt því sem aukið er út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni, síðan eru nýjar lykkjur fitjaðar upp fyrir hálsmáli fyrir miðju að framan = framstykkin eru sett saman í eitt stykki. Framstykkið er prjónað fram og til baka að tilgreindu máli. 3. BERUSTYKKI: Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar á sama hringprjón – prjónað er þannig: Prjónað er yfir lykkjur frá öðru framstykkinu, lykkjur prjónaðar upp fyrir ermi meðfram hlið á framstykki, lykkjur frá bakstykki prjónaðar, lykkjur prjónaðar upp fyrir ermi meðfram hlið á hinu framstykkinu = síðan er berustykkið prjónað í hring yfir allar lykkjur. 4. ÚTAUKNING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Samtímis sem berustykkið er prjónað, aukið út lykkjur fyrir fram- og bakstykki og ermar, fyrst er aukið út fyrir ermar og síðan er aukið út bæði á fram- og bakstykki og ermum. 5. FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar allar lykkjur hafa verið auknar út og berustykkið hefur verið prjónað að tilgreindu máli, á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við og í hring, á meðan ermarnar eru látnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður í hring. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 28-28-30-32-34-34-36 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði DROPS Fiesta og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið og fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið slétt og fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar. EFTIR UMFERÐ 2: Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 9-10-10-10-10-11-11 sinnum (= 18-20-20-20-20-22-22 umferðir prjónaðar), á eftir síðustu útaukningu eru = 64-68-70-72-74-78-80 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á þráð eða hjálparprjón. VINSTRI ÖXL: Finnið vinstri öxlina á bakstykkinu þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjurnar frá þræði/hjálparprjóni snúi að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru prjónaðar upp lykkjur meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl - byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi. Passið uppá að lykkjurnar séu prjónaðar fallega upp innan við útauknar lykkjur svo að uppprjónskanturinn verði fallegur. Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkjuna = 18-20-20-20-20-22-22 lykkjur fyrir öxl. Setjið 1 merki í stykkið við hálsmál. Öll lengdarmæling á framstykki er gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur brugðið, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur brugðið, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið. Nú eru 4 umferðir með garðaprjóni sýnilegar frá réttu með 2 lykkjum í sléttprjóni í hvorri hlið. Prjónið síðan í sléttprjóni yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 7-7-7-7-7-7-8 cm, aukið út lykkjur við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 5-5-6-6-7-7-7 sinnum (= 10-10-12-12-14-14-14 umferðir prjónaðar) = 23-25-26-26-27-29-29 lykkjur. Útaukningu fyrir hálsmáli er nú lokið. Stykkið mælist ca 11-11-12-12-13-13-14 cm frá merki. 2 cm af hálsmálsþykkt mun skarast á bakstykkinu. Setjið lykkjurnar á band eða prjón, prjónið nú hægri öxl meðfram hægri skáöxl bakstykkisins eins og útskýrt er hér að neðan. 2 cm af dýpt á hálsmáli kemur til með að teygja sig yfir á bakstykkið. Setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón og prjónið hægri öxl eins meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRI ÖXL: Prjónið upp lykkjur meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli. Passið uppá að lykkjurnar séu prjónaðar fallega upp innan við útauknar lykkjur svo að uppprjónskanturinn verði fallegur. Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 18-20-20-20-20-22-22 lykkjur fyrir öxl. Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál. Öll lengdarmæling á framstykki er gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur brugðið, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur brugðið, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið. Nú eru 4 umferðir með garðaprjóni sýnilegar frá réttu með 2 lykkjum í sléttprjóni í hvorri hlið. Prjónið síðan sléttprjón yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 7-7-7-7-7-7-8 cm, aukið út lykkjur við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 5-5-6-6-7-7-7 sinnum (= 10-10-12-12-14-14-14 umferðir prjónaðar) = 23-25-26-26-27-29-29 lykkjur. Útaukning fyrir hálsmáli eru nú lokið. Stykkið mælist ca 11-11-12-12-13-13-14 cm frá merki. FRAMSTYKKI: Í næstu umferð (= rétta) eru axlirnar settar saman til að mynda framstykki þannig: Prjónið slétt yfir 23-25-26-26-27-29-29 lykkjur frá hægri öxl, fitjið upp 18-18-18-20-20-20-22 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið slétt yfir 23-25-26-26-27-29-29 lykkjur frá vinstri öxl = 64-68-70-72-74-78-80 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er framstykkið og bakstykki sett saman og lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar, prjónið eins og útskýrt er að neðan. UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið fyrstu 2 lykkjurnar af framstykki slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á framstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki hér, prjónið upp 20-20-22-22-24-24-26 lykkjur meðfram hlið vinstra framstykkis (= lykkjur fyrir ermi - lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkjuna), setjið 1 merki, prjónið fyrstu 2 lykkjurnar af bakstykki slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki, prjónið upp 20-20-22-22-24-24-26 lykkjur meðfram hlið hægra framstykkis (= lykkjur fyrir ermi - lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkjuna), setjið 1 merki = 164-172-180-184-192-200-208 lykkjur. BERUSTYKKI: Prjónið síðan í stykkið hring. UMFERÐ 1: Prjónið allar lykkjur slétt og aukið út 1 lykkju hvoru megin við hvora ermi – munið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 – aukið út 1 lykkju til vinstri í byrjun á ermi, aukið út 1 lykkju til hægri í lok á ermi, fjöldi lykkja á hvorri ermi eykst, fjöldi lykkja á fram- og bakstykki verður óbreyttur. Prjónið þessa umferð alls 2-2-1-1-1-1-1 sinnum = 24-24-24-24-26-26-28 lykkjur á hvorri ermi og 62-66-68-70-72-76-78 lykkjur á framstykki/bakstykki = 172-180-184-188-196-204-212 lykkjur. Prjónið síðan í hring þannig: UMFERÐ 1: Prjónið allar lykkjur slétt og aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvora ermi eins og áður – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, fjöldi lykkja á hvorri ermi eykst, fjöldi lykkja á fram- og bakstykki verður óbreyttur. UMFERÐ 2: Prjónið allar lykkjur slétt án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 3-4-2-4-2-2-1 sinnum (= 6-8-4-8-4-4-2 umferðir prjónaðar. Alls hefur verið aukið út 5-6-3-5-3-3-2 sinnum á ermum = 30-32-28-32-30-30-30 lykkjur á hvorri ermi og 62-66-68-70-72-76-78 lykkjur á framstykki/bakstykki) = 184-196-192-204-204-212-216 lykkjur. Aukið síðan út á báðum ermum og fram- og bakstykki, aukið út á fram- og bakstykki 1 lykkju innan við merkið þannig að það verði 1 lykkja á milli útaukninga á fram- og bakstykki og útaukninga á ermi - prjónið næstu umferð þannig: UMFERÐ 1: Prjónið 1 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 1 lykkja er eftir á framstykkinu á undan merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 1 lykkju slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón (= ermi), prjónið 1 lykkju slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 1 lykkja er eftir á bakstykkinu á undan merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 1 lykkju slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón (= ermi). Aukið hefur verið út um 8 lykkjur, þ.e.a.s. 1 lykkja hefur verið aukin út hvoru megin við 1 lykkju í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og ermi. UMFERÐ 2: Prjónið allar lykkjur slétt án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 10-11-13-15-18-21-24 sinnum (= 20-22-26-30-36-42-48 umferðir prjónaðar). Alls hefur verið aukið út alls 15-17-16-20-21-24-26 sinnum á ermum og 10-11-13-15-18-21-24 sinnum á fram- og bakstykki = 50-54-54-62-66-72-78 lykkjur á hvorri ermi og 82-88-94-100-108-118-126 lykkjur á framstykki/bakstykki = 264-284-296-324-348-380-408 lykkjur. Ermin mælist ca 12-13-13-16-17-20-21 cm - þegar peysan er brotin tvöföld við öxlina, á stykkið að mælast ca 18-19-19-22-24-27-28 cm frá yst á öxl og niður meðfram handvegi. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 18-19-20-22-24-27-28 cm án útaukninga. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 82-88-94-100-108-118-126 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 78-50-54-54-62-66-72-78 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 82-88-94-100-108-118-126 lykkjur slétt (= bakstykki), setjið næstu 50-54-54-62-66-72-78 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 176-188-204-216-236-256-276 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 46-49-51-53-54-56-58 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að aftan. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 20-20-24-24-28-28-32 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 í útskýringu að ofan = 196-208-228-240-264-284-308 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 51-54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 50-54-54-62-66-72-78 lykkjur frá ermi af þræði á hringprjón 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir erminni – sjá LEIÐBEININGAR ERMI = 56-60-62-70-76-82-90 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-6-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð á eftir skiptinguna, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 1 sinni, síðan er fækkað um 2 lykkjur í öðrum hverjum cm alls 2-2-1-2-1-0-1 sinnum = 50-54-58-64-72-80-86 lykkjur í umferð. Prjónið síðan slétt þar til ermin mælist 12-11-10-10-8-6-6 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 6-6-6-8-8-8-10 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 = 56-60-64-72-80-88-96 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm, fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 29-29-29-30-30-30-31 cm frá öxl. HÁLSMÁL: Notið hringprjón númer 3,5 og 1 þráð af hvorri tegun (= 2 þræðir). Byrjið frá réttu við aðra axlarlínuna og prjónið upp ca. 76 til 104 lykkjur í kringum hálsmál, prjónið 3 umferðir sléttprjón - stillið e.t.v. fjölda lykkja í umferð 1 (fjöldi lykkja verður að vera deilanlegur með 4). Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 3-3-3-3-4-4-4 cm. Prjónið 3 umferðir sléttprjón (= rúllukantur) og fellið laust af með sléttum lykkjum. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #pastelbloomsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 266-29
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.