Iced Coffee Dress#icedcoffeedress |
|
![]() |
![]() |
Prjónaður kjóll úr DROPS Belle. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með evrópsku berustykki og i-cord. Stærð XS - XXXL.
DROPS 268-34 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Stykkið er prjónað samkvæmt útskýringu 1-5. 1. BAKSTYKKI: Fitjaðar eru upp lykkjur aftan í hnakka og bakstykkið er prjónað fram og til baka niður á við jafnframt því sem lykkjum er aukið út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. 2. FRAMSTYKKI: Er prjónað í 2 stykkjum (= hvoru megin við hálsmál). Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, framstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni síðan eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli fyrir miðju að framan = framstykkin eru sett saman í eitt stykki. Framstykkið er síðan prjónað fram og til baka að tilgreindu máli. 3. BERUSTYKKI: Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar á sama hringprjón – prjónað er þannig: Lykkjur eru prjónaðar frá framstykki, lykkjur prjónaðar upp fyrir ermi meðfram hlið á framstykki, bakstykkið er prjónað, lykkjur prjónaðar upp fyrir ermi meðfram hlið á hinu framstykkinu og framstykkið prjónað = síðan er berustykkið prjónað í hring yfir allar lykkjur. 4. ÚTAUKNING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Samtímis sem berustykkið er prjónað, eru lykkjur auknar út fyrir fram- og bakstykki og ermar, fyrst er aukið út fyrir ermar og síðan er aukið út bæði fyrir fram- og bakstykki og ermar. 5. FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar allar lykkjur hafa verið auknar út og berustykkið hefur verið prjónað að tilgreindu máli, á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við og í hring, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður í hring. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 36-36-36-38-40-42-42 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Belle. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið 3 lykkjur brugðið. Munið að fylgja prjónfestunni. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 10-11-11-11-11-12-13 sinnum (= 20-22-22-22-22-24-26 umferðir prjónaðar), eftir síðustu útaukningu eru = 76-80-80-82-84-90-94 lykkjur í umferð. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón. VINSTRI ÖXL: Finnið vinstri öxl bakstykkisins þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjurnar á þræði/hjálparprjóni snúi að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Prjónið upp lykkjur meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl - byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkjuna = 20-22-22-22-22-24-26 lykkjur fyrir öxl., Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 7-8-9-10-11-12-13 cm, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4 sinnum (= 8 umferðir prjónaðar) = 24-26-26-26-26-28-30 lykkjur. Útaukning fyrir hálsmáli er nú lokið. Stykkið mælist ca 10-11-12-13-14-15-16 cm frá merki. Ca 2-2-3-3-4-4-4 cm af dýpt af hálsmáli kemur til með að teygja sig yfir á bakstykkið. Setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægri öxl prjónuð meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRI ÖXL: Prjónið upp lykkjur meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl - byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur að hálsmáli þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 20-22-22-22-22-24-26 lykkjur fyrir öxl. Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 7-8-9-10-11-12-13 cm, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4 sinnum (= 8 umferðir prjónaðar) = 24-26-26-26-26-28-30 lykkjur. FRAMSTYKKI: Í næstu umferð (= rétta) eru axlirnar settar saman fyrir framstykki: Prjónið slétt yfir 24-26-26-26-26-28-30 lykkjur frá hægri öxl, fitjið upp 28-28-28-30-32-34-34 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið slétt yfir 24-26-26-26-26-28-30 lykkjur frá vinstri öxl = 76-80-80-82-84-90-94 lykkjur. Prjónið sléttprjón, fram og til baka yfir framstykki þar til stykkið mælist 11-12-13-14-15-16-17 cm frá merki – síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Setjið síðan framstykkið og bakstykkið saman og prjónið upp lykkjur fyrir ermar, prjónið eins og útskýrt er að neðan. UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið fyrstu 2 lykkjur frá framstykki slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á framstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki, prjónið upp 24-26-28-30-32-34-36 lykkjur meðfram hlið frá vinstra framstykki (= lykkjur fyrir ermi - lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkjuna), setjið 1 merki, prjónið fyrstu 2 lykkjur frá bakstykki slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki , prjónið upp 24-26-28-30-32-34-36 lykkjur meðfram hlið á hægra framstykki (= lykkjur fyrir ermi - lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkjuna) = 196-208-212-220-228-244-256 lykkjur. BERUSTYKKI: Nú er stykkið prjónað í hring. UMFERÐ 1: Prjónið slétt yfir allar lykkjur og aukið út 1 lykkju hvoru megin við hvora ermi – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og aukið út 1 lykkju til vinstri í byrjun á ermi, aukið út 1 lykkju til hægri í lok á ermi, lykkjufjöldinn á hvorri ermi eykst, lykkjufjöldinn á framstykki og bakstykki verður sá sami. Prjónið þessa umferð 2 sinnum = 28-30-32-34-36-38-40 lykkjur á hvorri ermi og 74-78-78-80-82-88-92 lykkjur á framstykki/bakstykki) = 204-216-220-228-236-252-264 lykkjur. Prjónið síðan í hring þannig: UMFERÐ 1: Prjónið slétt yfir allar lykkjur og aukið út 1 lykkju hvoru megin við hvora ermi eins og áður – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, lykkjufjöldinn á hvorri ermi eykst, lykkjufjöldinn á framstykki og bakstykki verður sá sami. UMFERÐ 2: Prjónið slétt yfir allar lykkjur án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 9-9-7-6-3-2-1 sinnum (= 18-18-14-12-6-4-2 umferðir prjónaðar. Aukið hefur verið út alls 11-11-9-8-5-4-3 sinnum á ermum = 46-48-46-46-42-42-42 lykkjur á hvorri ermi og 74-78-78-80-82-88-92 lykkjur á framstykki/bakstykki) = 240-252-248-252-248-260-268 lykkjur. Aukið síðan út á báðum ermum og á fram- og bakstykki, aukið út á fram- og bakstykki 2 lykkjur innan við merki þannig að það eru 2 lykkjur á milli útaukningar fyrir fram- og bakstykki og útaukningu fyrir ermi – næsta umferð er prjónuð þannig: UMFERÐ 1: Prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á framstykkinu á undan merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykki á undan merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón (= 8 lykkjur fleiri, þ.e. 1 lykkja hefur verið aukin út hvoru megin við 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og ermi). UMFERÐ 2: Prjónið allar lykkjur slétt án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 8-11-14-17-20-22-25 sinnum (= 16-22-28-34-40-44-50 umferðir prjónaðar). Alls hefur verið aukið út 19-22-23-25-25-26-28 sinnum á ermum og 8-11-14-17-20-22-25 sinnum á fram- og bakstykki = 62-70-74-80-82-86-92 lykkjur á hvorri ermi og 90-100-106-114-122-132-142 lykkjur á framstykki/bakstykki = 304-340-360-388-408-436-468 lykkjur. Ermin mælist ca 14-16-17-18-18-19-20 cm - þegar kjóllinn er brotin tvöfaldur við öxlina á stykkið að mælast ca 20-22-24-25-26-27-29 cm frá yst á öxl og niður meðfram handveg. Ef stykkið mælist minna en þetta, haldið þá áfram að prjóna að tilgreindu máli án útaukningar. Skiptið nú berstykkinu í fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptið berustykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar. Prjónið fyrstu 90-100-106-114-122-132-142 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 62-70-74-80-82-86-92 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 90-100-106-114-122-132-142 lykkjur slétt (= bakstykki), setjið næstu 62-70-74-80-82-86-92 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 192-212-228-244-264-284-308 lykkjur. Setjið 2 merki undir hvora ermi (= alls 4 merki), það eiga að vera 20-20-22-22-24-24-26 lykkjur á milli merkja undir hvorum handvegi – þessi merki eru notuð þegar auka á út í pilsi. Þegar stykkið mælist ca 7-7-7-8-9-10-11-11 cm frá skiptingunni, aukið út 1 lykkju til vinstri á eftir 1. og 3. merki og aukið út 1 lykkju til hægri á undan 2. og 4. merki – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (= 4 lykkjur fleiri). Þetta þýðir að það verða fleiri og fleiri lykkjur að framan og aftan, en 20-20-22-22-24-24-26 lykkjurnar undir hvorri ermi haldast óbreyttar. Aukið svona út með 3 cm millibili alls 7-7-7-8-8-8-8 sinnum og síðan með 5 cm millibili alls 7-7-7-7-7-7-7 sinnum = 248-268-284-304-324-344-368 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón án útaukningar þar til stykkið mælist 85-88-89-92-94-97-100 cm, mælt frá uppfitjunarkanti við miðju að aftan. Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 12-14-16-20-20-22-30 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 260-282-300-324-344-366-398 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-4-4-4-4-4 cm, fellið af. Kjóllinn mælist ca 88-91-93-96-98-101-104 cm frá miðju að aftan og 90-93-96-99-102-105-108 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 62-70-74-80-82-86-92 lykkjur af erminni af einum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir erminni – sjá LEIÐBEININGAR ERMI = 68-76-82-88-92-96-104 lykkjur. Prjónið sléttprjón í hring þar til ermin mælist 12-10-9-8-9-7-6 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT og aukið út um 6 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 74-82-88-94-98-102-110 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-4-4-4-4-4 cm, fellið af. Ermin mælist ca. 29-29-30-30-31-30-30 cm frá öxl. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu við aðra axlarlínuna og prjónið upp ca. 96 til 124 lykkjur í kringum hálsmálið á hringprjón 3. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #icedcoffeedress eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 43 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 268-34
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.