Margaretha skrifaði:
Hej! Jag vill gärna sticka Forever Rose Sweater i Drops Belle nr 37 Ockra men ingen av era återförsäljare har denna färg. Är den så pass ny att de inte har hunnit få den och i sådana fall när kommer den ut till försäljning? Med vänliga hälsningar Margaretha
30.03.2026 - 09:17
Andrée Thibeault skrifaði:
Bonjour, merci pour votre réponse. Si je prends A3, les torsades ne seront pas dans le bon sens. Ne devraient elles pas être dans le même sens que A1?
25.02.2026 - 22:26DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Thibeault, vous ne tricotez pas A.1 en taille XS, et vous pouvez volontiers changer la torsade si vous le souhaitez; Bon tricot!
26.02.2026 - 09:50
Andrée Thibeault skrifaði:
Bonjour, je voudrais faire la grandeur XS mais je n’arrive pas avec vos chiffres. tricote 12 M - 2xA2 = 76M - 1xA4 = 8 M et 108 M TOTAL de 204M et non 206. Est-ce possible de m’expliquer pourquoi je n’arrive pas avec votre calcul. Merci à l’avance.
24.02.2026 - 19:45DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Thibeault, en taille XS vous tricotez:12 m jersey, 2 fois les 38 m de A.2, 1 x les 10 m de A.3 et 108 m jersey, vous aurez ainsi: 12+(2x38)+10+108=206 mailles. Bon tricot!
25.02.2026 - 07:25
Forever Rose Sweater#foreverrosesweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Daisy eða DROPS Lima. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með gatamynstri og köðlum. Stærð XS - XXXL.
DROPS 267-1 |
|||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING – FRAM- OG BAKSTYKKI: Aukið er út hvoru megin við 6-6-6-8-8-8-8 lykkjur fyrir miðju undir ermi (merkiþráðurinn situr á milli þessa 6-6-6-8-8-8-8 lykkja) – aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er síðan prjónaður snúinn slétt í næstu umferð. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING – ERMAR: Aukið út hvoru megin við 2 lykkjur fyrir miðju undir ermi (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja) – aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breytið eftir þörfum. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað til loka, fram og til baka hvort fyrir sig. Ermarnar eru prjónaðar neðan frá og upp og prjónað er í hring fram að handvegi, síðan er ermin prjónuð fram og til baka að loka máli. Stykkin eru saumuð saman. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli í hring. Það er prjónað mynstur á framstykki og bakstykki. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 206-226-242-264-284-308-336 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Daisy eða DROPS Lima. Prjónið stroff í hring (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3-3-3-4-4-4-4 cm. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar og 1 merkiþráð eftir 110-120-128-142-152-164-178 lykkjur = í hliðar á stykkinu (það eru 96-106-114-122-132-144-161 lykkjur á bakstykki). Skiptið yfir í hringprjón 4 og prjónið frá byrjun umferðar þannig: 12-17-21-20-25-31-38 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 0-0-0-1-1-1 sinnum, prjónið A.2 2 sinnum, prjónið A.3 1 sinni, prjónið A.4 0-0-0-1-1-1-1 sinnum, prjónið sléttprjón yfir næstu 108-123-135-142-157-175-196 lykkjur. Haldið áfram með þetta mynstur upp á við, jafnframt því að fækka lykkjum og auka út í hliðum eins og útskýrt er að neðan. Munið að fylgja prjónfestunni. ÚRTAKA Í HLIÐUM: Þegar stykkið mælist 6 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþræði – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2 cm millibili alls 4 sinnum = 190-210-226-248-268-292-320 lykkjur. ÚTAUKNING Í HLIÐUM: Þegar stykkið mælist 15 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merkiþræði – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Endurtakið útaukninguna með 3 cm millibili alls 4 sinnum = 206-226-242-264-284-308-336 lykkjur. Prjónið mynstur þar til stykkið mælist 29-30-31-32-33-34-35 cm – stillið af að næsta umferð sé umferð með oddatölu í mynstrinu (þá kemur kaðallykkjan frá réttu þegar prjónað er fram og til baka á eftir). Nú er lykkjum fækkað fyrir handveg og stykkið skiptist í framstykki og bakstykki. SKIPTING VIÐ HANDVEG: Í næstu umferð er stykkinu skipt í framstykki og bakstykki og umferðin prjónuð þannig: Feljið af fyrstu 3-3-3-4-4-4-4 lykkjur í umferðinni fyrir handverg, prjónið 104-114-122-134-144-156-170 lykkjur, feljið af næstu 6-6-6-8-8-8-8 lykkjur fyrir handverg, prjónið 90-100-108-114-124-136-150 lykkjur, feljið af síðustu 3-3-3-4-4-4-4 lykkjur fyrir handverg. Klippið þráðinn. Nú er fram- og bakstykkið prjónað fram og til baka á prjóninum. BAKSTYKKI: = 90-100-108-114-124-136-150 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka. JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 3-5-6-6-8-10-12 sinnum í hvorri hlið, 1 lykkju 3-4-6-4-5-7-8 sinnum í hvorri hlið = 72-72-72-82-82-82-86 lykkjur. Þegar stykkið mælist 47-49-51-53-55-57-59 cm, fellið af miðju 30-30-30-32-32-32-32 lykkjur fyrir hálsmáli og prjónið hvora öxl til loka fyrir sig = 21-21-21-25-25-25-27 lykkjur. ÖXL: Feljið af 1 lykkju fyrir hálsmáli í næstu umferð = 20-20-20-24-24-24-26 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60-62 cm. FRAMSTYKKI: = 104-114-122-134-144-156-170 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður. JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 3-5-6-6-8-10-12 sinnum í hvorri hlið, 1 lykkju 3-4-6-4-5-7-8 sinnum í hvorri hlið = 86-86-86-102-102-102-106 lykkjur. Þegar stykkið mælist 43-45-47-49-50-52-54 cm, setjið miðju 22 lykkjurnar á þráð fyrir hálsmál og prjónið hvora öxl til loka fyrir sig = 32-32-32-40-40-40-42 lykkjur. ÖXL: Fellið nú af lykkjur fyrir hálsmáli í annarri hverri umferð þannig: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 28-28-28-36-36-36-38 lykkjur. Þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59-61 cm, fækkið um 8-8-8-12-12-12-12 lykkjur jafnt yfir kaðlana = 20-20-20-24-24-24-26 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60-62 cm. ERMI: Fitjið upp 64-66-68-70-72-74-76 lykkjur á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt/ 1 lykkja brugðið). Haldið áfram með stroff í 3-3-3-3-4-4-4 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 6 lykkjur jafnt yfir = 58-60-62-64-66-68-70 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir ermi, hann verður notaður þegar auka á út lykkjur undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu. Prjónið síðan mynstrið þannig – frá miðju undir ermi: Prjónið 24-25-26-27-28-29-30 lykkjur sléttprjón, A.3, 24-25-26-27-28-29-30 lykkjur sléttprjón. Haldið áfram með mynstrið svona upp úr. Þegar ermin mælist 8 cm, aukið út lykkjur fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og aukið út þannig: Aukið út um 2 lykkjur með 3½-3-2½-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 10-12-14-17-19-21-22 sinnum = 78-84-90-98-104-110-114 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón þar til ermin mælist 44-45-46-44-44-44-42 cm. Prjónið nú ermakúpu eins og útskýrt er að neðan. ERMAKÚPA: Í næstu umferð eru felldar af 6-6-6-8-8-8-8 lykkjur fyrir miðju undir erminni, en til að þurfa ekki að klippa þráðinn frá, byrjið umferðina 3-3-3-4-4-4-4 lykkjum á undan merkiþræði fyrir miðju undir erminni, fellið af og prjónið síðan út umferðina eins og áður. Prjónið síðan stykkið fram og til baka á prjóninum JAFNFRAMT sem fellt er af fyrir ermakúpu í hvorri hlið, fellið af lykkjur í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-1-1-1-1 sinnum í hvorri hlið, 2 lykkjur 4-4-4-4-4-5-5 sinnum í hvorri hlið, 1 lykkja 4-5-6-7-8-8-10 sinnum í hvorri hlið, fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 54-56-58-56-57-58-58 cm, fellið af og prjónið 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 55-57-59-57-58-59-59 cm. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 3 og prjónið upp lykkjur í kringum hálsmál frá réttu þannig: Byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp ca. 98 til 104 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði) – fjöldi lykkja verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í hring í 3-3-3-4-4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #foreverrosesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 38 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 267-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.