Béatrice Bodeux skrifaði:
Bonjour, Où puis je trouver les corrections svp?
10.03.2026 - 18:26DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Bodeux, si vous avez imprimé les explications avant la date de la correction,, les corrections sont déjà faites, sinon, il peut être sage de vérifier la légende des symboles. Bon tricot!
11.03.2026 - 07:30
Annelise skrifaði:
Mange har skrevet om problemet med ombyttet tekst i diagrammet, i Wave sweateren, 🫣 nu må i gøre noget ved det , ikke godt i omtalen af jeres opskrifter
26.02.2026 - 13:40
Annelise skrifaði:
Tilføjet til mit skriv ang. wave sweater 😅 byttet om og ikke butte Mvh Annelise
26.02.2026 - 13:36
Annelise skrifaði:
Jeg er ved at strikke Mist Wave Sweater og opdager under Diagram forklaring at der er puttet om på teksterne ( tag en maske løst af, strik 2 ret sammen,løft den løse m over de samstrikkede m . Og på lav et omslag mel. 2 masker). Mvh Annelise
26.02.2026 - 13:34
Judith Henriksen skrifaði:
Diagram A1 er ikke rigtigt. Det giver for lidt masker. Hvad gør man ?
24.02.2026 - 11:41DROPS Design svaraði:
Hei Judith. Se vårt forrige svar til deg og evnt les rettelsen i rød tekst (kommer snart, eller les på den norske eller engelske side). mvh DROPS Design
03.03.2026 - 15:03
Judith Henriksen skrifaði:
Diagram A1 er ikke rigtigt. Det giver for lidt masker. Hvad gør man ?
24.02.2026 - 11:38DROPS Design svaraði:
Hei Judith. Det skal være 192-204-222-240-258-276-300 masker på pinnen når man starter med A.1. A.1 består av 6 masker og man strikker A.1 32-34-37-40-43-46-50 ganger. Når A.1 er strikket ferdig er det økt 4 masker pr gang A.1 er strikket = 320-340-370-400-430-460-500 masker på pinnen. (teksten på de 2 siste diagramteksten var feil, men er nå rettet/byttet plass). mvh DROPS Design
03.03.2026 - 14:54
Maja skrifaði:
Den beskrivande texten till diagrammet har blivit omkastad. De två nedersta texterna ska byta plats med varandra!
12.02.2026 - 20:50
Mari skrifaði:
A1 ohje toimii, jos vaihtaa neulemerkkien kirjalliset ohjeet.
12.02.2026 - 16:36
Malla Poussu-Hemming skrifaði:
Hei, onko Mist Wave Sweater ohjeessa pitsineuleen kuvan neulemerkkien selitykset vaihtaneet paikkaa?
12.02.2026 - 07:33DROPS Design svaraði:
Kyllä, merkkien selitykset olivat vaihtaneet paikkaa, tämä on nyt korjattu.
13.02.2026 - 19:17
Sibylle skrifaði:
Die Anleitung für das Diagramm A 1 kann so nicht stimmen. Das passt einfach nicht .
11.02.2026 - 21:08
Mist Wave Sweater#mistwavesweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með útaukningu fyrir axlarsæti, sléttprjóni, stuttum ermum og gatamynstri. Stærð XS - XXXL.
DROPS 266-15 |
|||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (frá réttu): AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI Á UNDAN MERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL TIL VINSTRI Á EFTIR MERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Aukið út 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja / fyrir miðju í þessum 2 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt – svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. ------------------------------------------------------ BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Hálsmáið og berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 98-102-106-106-110-114-118 lykkjur á hringprjón 3 með 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 3 umferðir sléttprjón, prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2-2-2-2-2½-2½-2½ cm. Setjið 1 merki í byrjun umferðar (= miðja að aftan). BERUSTYKKI: Nú eru sett 4 merki á prjóninn, merkin eru notuð þegar auka á út fyrir útaukningu á axlarsæti, ermum og berustykki. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið næstu umferð þannig: Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 15-16-17-17-18-19-20 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið 1. merki hér. Prjónið sléttprjón yfir næstu 19 lykkjur (= axlalykkjur), setjið 2. merki hér. Prjónið sléttprjón yfir næstu 30-32-34-34-36-38-40 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merki hér. Prjónið sléttprjón yfir næstu 19 lykkjur (= axlalykkjur), setjið 4. merki hér. Prjónið sléttprjón yfir síðustu 15-16-17-17-18-19-20 lykkjur (= hálft bakstykki). ÚTAUKNING AXLARSÆTI: Prjónið sléttprjón hringinn jafnframt því sem aukið er út fyrir útaukningu fyrir axlarsæti – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. Lykkjur eru einungis auknar út á bakstykki / framstykki, fjöldi lykkja á ermum verðu sá sami. Prjónið þannig: UMFERÐ 1: * Prjónið slétt fram að fyrsta/næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 19 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið slétt út umferðar (= 4 lykkjur fleiri). Prjónið þessa umferð alls 18-20-20-20-20-20-20 sinnum = 170-182-186-186-190-194-198 lykkjur. Munið að fylgja prjónfestunni. Það eru 19 lykkjur á hvorri ermi og 66-72-74-74-76-78-80 lykkjur á bakstykki / framstykki. Síðan er aukið út fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING ERMAR: Einungis er aukið út á ermum og fjöldi lykkja á bakstykki og framstykki verður sá sami. Prjónið sléttprjón, JAFNFRAMT er aukið út um 4 lykkjur í annarri hverri umferð – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið þannig: UMFERÐ 1: * Prjónið fram að fyrsta/næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið út umferðina (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið slétt. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 8-12-13-10-8-6-3 sinnum (= 16-24-26-20-16-12-6 umferðir prjónaðar) = 202-230-238-226-222-218-210 lykkjur. Það eru 35-43-45-39-35-31-25 lykkjur á hvorri ermi og 66-72-74-74-76-78-80 lykkjur á bakstykki / framstykki. Aukið síðan út bæði á fram- og bakstykki og á ermum eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING BERUSTYKKI: Nú er aukið út bæði á ermum og á bakstykki og framstykki. Prjónið sléttprjón – JAFNFRAMT er aukið út um 8 lykkjur í annarri hverri umferð, aukið er út á undan og á eftir hverju merki – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið þannig: UMFERÐ 1: * Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan fyrsta merki, aukið út til hægri, prjónið 1 lykkju, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 1 lykkju, aukið út 1 lykkju til vinstri *, prjónið frá *-* einu sinni til viðbótar, prjónið út umferðina (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið slétt. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 11-10-12-15-19-22-27 sinnum (= 22-20-24-30-38-44-54 umferðir prjónaðar) = 290-310-334-346-374-394-426 lykkjur. Það eru 57-63-69-69-73-75-79 lykkjur á hvorri ermi og 88-92-98-104-114-122-134 lykkjur á bakstykki / framstykki. Stykkið mælist ca 20-22-24-24-26-27-28 cm frá yst á öxl og niður (= 5 cm dýpt á útaukningu fyrir axlarsæti og 15-17-19-19-21-22-23 cm á útaukning fyrir ermar). Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið slétt yfir fyrstu 44-46-49-52-57-61-67 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 57-63-69-69-73-75-79 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-6-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið slétt yfir næstu 88-92-98-104-114-122-134 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 57-63-69-69-73-75-79 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 4-6-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið síðustu 44-46-49-52-57-61-67 lykkjur slétt (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 184-196-212-228-248-268-292 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, fyrir miðju í 4-6-8-10-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi og látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðir þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki. Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 10 cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merkiþræðina – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 15 cm = 192-204-220-236-256-276-300 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 45-47-49-51-53-55-57 cm frá merki við miðju að aftan. Prjónið 1 umferð og aukið út 0-0-2-4-2-0-0 lykkjur jafnt yfir = 192-204-222-240-258-276-300 lykkjur. Prjónið A.1 hringinn yfir allar lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, eru 320-340-370-400-430-460-500 lykkjur í umferð. Fellið af með sléttum lykkjum. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60-62 cm frá merki fyrir miðju að aftan. ERMAR: Setjið til baka 57-63-69-69-73-75-79 lykkjur frá ermi af þræði á hringprjón eða sokkaprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 4-6-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 61-69-77-79-83-87-91 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 9-6-5-6-4-4-3 cm. Prjónið 1 umferð slétt og jafnið lykkjufjöldann út til 60-66-78-78-84-84-90 lykkjur. Prjónið A.1 hringinn yfir allar lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, eru 100-110-130-130-140-140-150 lykkjur í umferð. Fellið af með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 14-11-10-11-9-9-8 cm frá skiptingunni. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mistwavesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 266-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.