Josaphina skrifaði:
Hej igen. Hvor meget garn skal jeg bruge til en str 11-12 år hvis jeg strikker i 1 tråd alpaka og 2 tråde kid silk?
20.02.2026 - 12:57DROPS Design svaraði:
Hej Josaphina, da skal du bruge ca 7 nøgler DROPS Kid- Silk og 5 nøgler DROPS Alpaca :)
26.02.2026 - 11:05
Josaphina skrifaði:
Hej Kan jeg strikke den i 1 tråd flora og 2 tråde kid silk?
19.02.2026 - 13:41DROPS Design svaraði:
Hej Josaphina Det ska gå fint, det blir då detsamma som denna kombination, (men i de färger du väljer). Se bara till att göra en provlapp så att stickfastheten blir riktig. Mvh DROPS Design
19.02.2026 - 14:15
Anna-Karin skrifaði:
Hej! Kan jag byta garn och använda Drops Fiesta till denna modell? Hur mycket garn går det isf åt till storlek 3-4 år?
10.02.2026 - 10:04DROPS Design svaraði:
Hei Anna-Karin. DROPS Melody tilhører garngruppe D, mens DROPS Fiesta tilhører garngruppe B (tynnere enn D), så da vil ikke oppskriften stemme ved et garnbytte. mvh DROPS Design
13.02.2026 - 08:32
Fairy Floss Sweater#fairyflosssweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu og röndum. Stærð 2 – 14 ára.
DROPS Children 50-11 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- RENDUR: Prjónið með litnum Púður Bleikur þar til stykkið mælist 9-10-11-12-13-14-15 cm frá merki við miðju að framan. Haldið áfram til skiptis með 1 umferð í litnum Púður Bleikur og 1 umferð í litnum Skær Bleikur í 9-10-11-12-13-14-15 cm – munið eftir að rendurnar halda áfram eins og áður frá berustykki yfir á fram- og bakstykki og ermar. Prjónið síðan í litnum Skær Bleikur að loka máli. LASKALÍNA: Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALÍNU (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Á EFTIR LASKALÍNU (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 52-56-56-60-60-60-64 lykkjur á hringprjón 5 með litnum Púður Bleikur í DROPS Melody. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2½-2½-3-3-3-3½-3½ cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 17-18-18-19-19-19-20 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 6. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett á milli 2 lykkja slétt, þessar 2 lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Setjið 1. merki í fyrstu lykkju, teljið 7 lykkjur (= ermi), Setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 17-19-19-21-21-21-23 lykkjur (= framstykki), Setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 7 lykkjur (= ermi), Setjið 4. merki í næstu lykkju, það eru eftir 17-19-19-21-21-21-23 lykkjur á eftir síðasta merki (= bakstykki). Prjónið sléttprjón hringinn og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið útskýringu að ofan með leiðbeiningum hvernig auka á út. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, aukið er út hvoru megin við laskalykkjurnar alls 11-12-12-12-13-13-14 sinnum (= 8 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð) = 140-152-152-156-164-164-176 lykkjur. ATH: Í byrjun umferðar er aukið úr á eftir lykkju með 1. merki og í lok umferðar er aukið út á undan lykkju með 1. merki. Munið að fylgja prjónfestunni. Útaukning fyrir ermar er nú lokið, en haldið áfram að auka út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki í annarri hverri umferð 1-1-2-2-2-3-3 sinnum til viðbótar (= 4 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð) = 144-156-160-164-172-176-188 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, aukið hefur verið út alls 12-13-14-14-15-16-17 sinnum á framstykki/bakstykki og 11-12-12-12-13-13-14 sinnum á ermum. Prjónið síðan án þess að auka út þar til stykkið mælist 14-15-16-17-18-19-20 cm frá merki við miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð – munið eftir RENDUR, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 1 lykkju sléttprjón (= þessi lykkja tilheyrir bakstykki), setjið næstu 29-31-31-31-33-33-35 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-4-6-6-6-6 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 43-47-49-51-53-55-59 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 29-31-31-31-33-33-35 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-4-6-6-6-6 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 42-46-48-50-52-54-58 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 94-102-106-114-118-122-130 lykkjur. Prjónið sléttprjón með röndum eins og áður hringinn þar til stykkið mælist 27-30-34-38-41-43-45 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 14-14-16-16-16-18-18 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 108-116-122-130-134-140-148 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 31-34-38-42-46-48-50 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 34-37-41-45-49-51-53 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 29-31-31-31-33-33-35 lykkjur af þræði frá ermi í annarri hlið á stykki á hringprjón 6 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 4-4-4-6-6-6-6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 33-35-35-37-39-39-41 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 4-4-4-6-6-6-6 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón með röndum eins og áður hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 6-8-10-10-10-12-12 cm alls 3 sinnum = 27-29-29-31-33-33-35 lykkjur í umferð. Prjónið þar til ermin mælist 16-21-25-28-31-35-38 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 3-3-3-3-5-5-5 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 30-32-32-34-38-38-40 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 20-25-29-32-36-40-43 cm frá skiptingunni. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #fairyflosssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 50-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.