Jane Frederiksen skrifaði:
Hej\\\\r\\\\nJeg vil gerne have opskriften sendt på mail, på forhånd tak.\\\\r\\\\nMvh Jane Frederiksen
21.02.2026 - 20:40
Ulrika skrifaði:
Vad är skillnaden mellan 50-13 och 49-10.?
10.02.2026 - 10:46DROPS Design svaraði:
Hej Ulrika, det står i titlen, den ene er med rundt ok og den anden med raglan :)
11.02.2026 - 15:07
Birgitte Birch skrifaði:
Glæder mig til at strikke den
30.01.2026 - 00:03
Airashii skrifaði:
Dear Drops Team, thank you for your explanation about gauge. It seems we all agree the gauge size is in square centimeters/inches (stitches x rows). And this is the reason "cm" must be written twice (i. e. cm x cm) - that is tehnically (mathematically) correct. As far as I understand your answer, your reason for writing gauge measurements as you do is not at all professional (and correct); it is sad to learn this fact. I hope you will realize the mistake and avoid it in future. Airashii
26.01.2026 - 20:39
Airashii skrifaði:
Hello, Drops Team. Would you be so kind and not delete my question but explain why do you keep writing gauge measurements in your patterns the wrong way, i.e. 10 x 10 cm, instead of 10 cm x 10 cm? It seems you know how to write it correctly when there are measurements given in inches, and since the gauge (size) is the same in centimeters, I would really like to know what is the reason for this difference in writing. I am looking forward for your explanation. Airashii
21.01.2026 - 13:36DROPS Design svaraði:
Dear Airashii, 10x10 is the connotation of the grid and "cm" is beside the grid, to indicate the measurement unit used. When working a gauge, you already know that you are working several rows, with several stitches, so it would be impossible to think that the swatch is a single row of 100 cm, as you indicate. In US we need to indicate the " in each number because it's a small symbol that could be easily mistaken by a typo, so repeating it on each number will increase its visibility and ensure knitter know the measurement unit used. Meanwhile, cm is a 2-letter word which is larger than " and therefore will be more visible to knitters even if indicated only once. Happy knitting!
25.01.2026 - 19:01
Susi skrifaði:
Warum gibt es so schöne Farbverläufe nicht in Merino extrafein? Kinder mögen so kratzige Schurwolle wie die Fiesta nicht.
21.01.2026 - 11:20DROPS Design svaraði:
Liebe Susi, haben Sie Fiesta schon einmal ausprobiert? Es ist weicher, als man es bei Schurwolle gemeinhin vermuten möchte. Wenn Sie aber doch lieber Merinowolle verstricken möchten, könnten Sie wegen der Farben bei Baby Merino schauen, dort haben wir inzwischen ein paar sehr schöne, fröhliche mehrfarbige Farben, allerdings gehört dieses Garn in Garngruppe A. Viel Spaß auf jeden Fall beim Stricken!
29.01.2026 - 11:43
Sunset Sprinkles Sweater#sunsetsprinklessweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Fiesta. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og sléttprjóni. Stærð 2 – 14 ára.
DROPS Children 50-13 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 20) = 4,2. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn - svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermarnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 80-80-84-88-88-92-96 lykkjur á sokkaprjóna / hringprjón 3 með DROPS Fiesta. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3-3-3-3-4-4-4 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 27-27-28-29-29-31-32 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út 16-20-20-20-24-24-24 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 96-100-104-108-112-116-120 lykkjur. Prjónið hringinn í sléttprjóni og aukið út eins og útskýrt er að neðan. Munið að fylgja prjónfestunni. Þegar stykkið mælist 2-2-3-3-3-3-3 cm frá merki aukið út 24-25-26-27-28-29-30 lykkjur jafnt yfir, þ.e.a.s. sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju umferðina hringinn = 120-125-130-135-140-145-150 lykkjur. Þegar stykkið mælist 4-4-5-5-5-5½-5½ cm frá merki aukið út 24-25-26-27-28-29-30 lykkjur jafnt yfir, þ.e.a.s. sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 5. hverja lykkju = 144-150-156-162-168-174-180 lykkjur. Þegar stykkið mælist 6-6-7-7-7-8-8 cm frá merki aukið út 24-25-26-27-28-29-30 lykkjur jafnt yfir, þ.e.a.s. sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 6. hverja lykkju = 168-175-182-189-196-203-210 lykkjur. Þegar stykkið mælist 8-8-9-9-9-10½-10½ cm frá merki aukið út 24-25-26-27-28-29-30 lykkjur jafnt yfir, þ.e.a.s. sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 7. hverja lykkju = 192-200-208-216-224-232-240 lykkjur. Þegar stykkið mælist 10-10-11-11-11-13-13 cm aukið út 24-25-26-27-28-29-30 lykkjur jafnt yfir, þ.e.a.s. sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 8. hverja lykkju = 216-225-234-243-252-261-270 lykkjur. Í næstu umferð er aukið út um 0-1-0-1-0-1-0 lykkjur = 216-226-234-244-252-262-270 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón. Þegar berustykkið mælist 13-14-15-16-17-18-18 cm frá merki við miðju að framan skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 46-48-48-50-51-52-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-8-10-10 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 62-65-69-72-75-79-82 lykkjur í sléttprjóni (= framstykki), setjið næstu 46-48-48-50-51-52-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-8-10-10 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 62-65-69-72-75-79-82 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 136-142-154-160-166-178-184 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (= fyrir miðju í 6-6-8-8-8-10-10 lykkjurnar sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar við merkið og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 26-29-33-37-40-42-43 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem er aukið út um 24-30-30-32-34-34-36 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 160-172-184-192-200-212-220 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 29-32-36-40-44-46-47 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 33-36-40-44-48-50-52 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 46-48-48-50-51-52-53 lykkjur frá ermi af þræði á hringprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 52-54-56-58-59-62-63 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-6-8-8-8-10-10 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 3-4-5-5½-7½-7-10 cm alls 6-6-6-6-5-6-5 sinnum = 40-42-44-46-49-50-53 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 20-25-29-32-35-39-44 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 8-6-8-6-7-8-7 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 48-48-52-52-56-58-60 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm fellið af. Ermin mælist ca 23-28-32-35-39-43-48 cm frá skiptingunni. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sunsetsprinklessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 50-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.