Vigdis skrifaði:
Strikker str L. Får ikke maske antallet til å stemme etter første utlegg A1. 144m+36=180. Ikke 216m som det står i oppskriften. Hva gjør jeg galt?
19.03.2026 - 19:00DROPS Design svaraði:
Hei Vigdis, I din størrelse, øker du 2 masker i hver rapport av A.1 (diagrammet til høyre). Da får du 72 økte masker = 216 masker. Hilsen Drops Team
20.03.2026 - 05:40
Cecilia skrifaði:
Bonjour, je tricote à l’heure actuelle. La taille L et le premier rang A1 me donne déjà beaucoup de fil à retordre. J’ai déjà fait une maille une augmentation une maille plus une maille une augmentation une maille mais je ne tombe pas du tout sur le bon nombre et j’ai bien 144 m au départ Je ne comprends pas ce qui cloche.
11.03.2026 - 15:17DROPS Design svaraði:
Bonjour Cécilia, en taille L, tricotez A.1 36 fois A.1 au total tout le tour soit 36 fois (1 m end, augmentez 1 maille, 2 m end, augmentez 1 m, 1 m end) répétez de (à) tout le tour, vous passez à 6 mailles pour chaque A.1, soit 6 x 36=216 mailles. Pensez à mettre des marqueurs si besoin pour mieux repérer vos A.1 et le nombre de mailles dans chaque diagramme (utile aussi pour les diagrammes suivants). Bon tricot!
11.03.2026 - 16:09
Theresa skrifaði:
Hi there, regarding my previous question. At the beginning of the round I knit 2 did the increase as in the video ( the symmetrical increase) then counted the second leg of the increase as 1 stitch...I know get 178 stitches not 180.
02.03.2026 - 15:19DROPS Design svaraði:
Dear Theresa, see answer below - you can insert markers between each repeat of the diagram, so that you will be sure to work the 36 repeats of A.1 and increase a total of 36 sts. Happy knitting!
03.03.2026 - 09:14
Theresa skrifaði:
I am working size m. After my first increase row I have 144 stitches. When I worked A1 I don't get 36 increases in and my stitch count is 173 it's. I have checked that I worked A1 correctly...k2 increase k4 increase. Please help as I cannot see where I am going wrong.
02.03.2026 - 14:02DROPS Design svaraði:
Dear Theresa, you repeat 36 times the 4 sts A.1 (= 36x4=144 sts), at the same time, you increase 1 stitch in each A.1 so that you will increase a total of 36 sts: 144+36=180 sts and there are now 5 sts in each A.1. Hope this can help. Happy knitting!
03.03.2026 - 08:56
Nina skrifaði:
I beskrivningen står det under HALSKANT: ”Sätt 1 markör efter de första 38-39-42-44-45-46 maskorna på varvet (= ca mitt fram), arbetet ska mätas från denna markör.” Innebär det att markören placeras mitt fram på det allra första varvet av resårstickningen, så att arbetet sedan mäts inklusive halskanten? Eller ska den placeras där först efter att resårstickningen är färdig, så att arbetet kommer att mätas från var oket börjar efter kanten?
18.01.2026 - 21:29DROPS Design svaraði:
Hei Nina. Merket settes etter halskanten (der man starter å strikke glattstrikk), og ca midt foran. mvh DROPS Design
29.01.2026 - 13:39
Magdalena skrifaði:
Witam ja chcialm zapytać o rzedy skrócone Czy w takich sweterkach jak i z azurem mozna wykonac rzedy skrocone
18.01.2026 - 08:43DROPS Design svaraði:
Witaj Magdaleno, oczywiście że można. O który sweter Ci chodzi? Pytam, ponieważ sweter, do którego dołączyłaś pytanie nie zawiera ażuru. Pozdrawiamy!
19.01.2026 - 09:57
Elke Patzwaldt skrifaði:
Kann seit diesem Jahr keine Bilder unter Drops Anleitungen sehen . Habe mit Safari, Edge, Chrome usw. alle Browser probiert, leider wird dieses Bildformat nicht aktiviert. Beste Strickgrüsse - Elke
05.01.2026 - 17:03DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Patzwaldt, die Bilder sind wieder da, Entschuldigungen Sie die Störung. Viel Spaß beim Stricken!
06.01.2026 - 09:00
DRUILLE Maryse skrifaði:
Pull 1 piece
05.01.2026 - 16:21
Karina skrifaði:
Hej. Jeg har også problemer med A.1. Strikker XS. Begynder med at strikke 2 ret derefter udtagningen i næste maske og 4 ret, udtagning i næste maske, 4 ret etc. jeg slutter med at have 149 masker, når omgangen er slut. Hvad gør jeg forkert?
02.01.2026 - 19:36DROPS Design svaraði:
Hi Karina, you have 124 sts: 124:4 (sts in A.1)=31 repetitions of A.1. In each repetition you increase 1 stitch by making a yarn over > 31 additional stitches in the round. 124+31=155 sts. Happy knitting!
05.01.2026 - 14:52
Caroline skrifaði:
Je ne comprpas bien quel diagramme choisir?
28.12.2025 - 11:03DROPS Design svaraði:
Bonjour Caroline, cela depend de votre taille (regardez au dessus des diagrammes, vous avez les tailles la-bas). Bon tricot!
28.12.2025 - 11:21
Caramel Haze Sweater#caramelhazesweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Sky eða DROPS Daisy. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með hringlaga berustykki. Stærð XS - XXL.
DROPS 262-21 |
|||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 110 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 14) = 7,9. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermarnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 110-114-120-124-128-134 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Daisy. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4-4-4-5-5-5 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 38-39-42-44-45-46 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 14-22-24-20-24-30 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 124-136-144-144-152-164 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón. Munið að fylgja prjónfestunni. Þegar berustykkið mælist 2-3-3-3½-3½-3½ cm frá merki, aukið út lykkjur með því að prjóna MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan og prjónið þannig: A.1: Prjónið fyrstu umferð í A.1 alls 31-34-36-36-38-41 sinnum berustykkið hringinn = 155-170-180-216-228-246 lykkjur. Prjónið sléttprjón í 3-3-3-3-3½-3½ cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: A.2: Prjónið fyrstu umferð í A.2 alls 31-34-36-36-38-41 sinnum berustykkið hringinn = 186-204-216-252-266-287 lykkjur. Prjónið sléttprjón í 3-3-3-3-3½-3½ cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: A.3: Prjónið fyrstu umferð í A.3 alls 31-34-36-36-38-41 sinnum berustykkið hringinn = 217-238-252-288-304-328 lykkjur. Prjónið sléttprjón í 3-3-3-3-3½-3½ cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: A.4: Prjónið fyrstu umferð í A.4 alls 31-34-36-36-38-41 sinnum berustykkið hringinn = 248-272-288-324-342-369 lykkjur. Prjónið sléttprjón í 3-3-3-3-3½-3½ cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: A.5: Prjónið fyrstu umferð í A.5 alls 31-34-36-36-38-41 sinnum berustykkið hringinn = 279-306-324-360-380-410 lykkjur. Prjónið sléttprjón í 3-3-3-3-3½-3½ cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: A.6: Prjónið fyrstu umferð í A.6 alls 31-34-36-36-38-41 sinnum berustykkið hringinn = 310-340-360-396-418-451 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón jafnframt sem aukið er út um 2-0-4-4-6-9 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 312-340-364-400-424-460 lykkjur. Þegar stykkið mælist 21-23-23-24-26-28 cm frá merki fyrir miðju að framan skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 60-64-70-78-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 96-106-112-122-132-146 lykkjur í sléttprjóni (= framstykki), setjið næstu 60-64-70-78-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 96-106-112-122-132-146 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 208-228-244-264-288-316 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (= fyrir miðju í 8-8-10-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 43-45-46-47-49-51 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 46-46-50-54-62-64 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 254-274-294-318-350-380 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 47-49-50-52-54-56 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 52-54-56-58-60-62 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 60-64-70-78-80-84 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 68-72-80-88-92-96 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3-3-3-3-2-2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 6-5-3½-2½-2½-2 cm alls 6-7-10-12-13-14 sinnum = 56-58-60-64-66-68 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 41-39-41-39-37-36 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt / 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 12-12-12-14-14-14 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 68-70-72-78-80-82 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 45-43-45-44-42-41 cm frá skiptingunni. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #caramelhazesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 262-21
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.