Polar Charm Set#polarcharmset |
|
![]() |
![]() |
Prjónað hálsskjól og húfa úr DROPS Melody og DROPS Puna. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með stroffi.
DROPS 261-12 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja á frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. I-CORD: FYRSTU 2 LYKKJUR: Prjónið í hverri umferð þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. SÍÐUSTU 2 LYKKJUR: Prjónið í hverri umferð þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um húfu): Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt (merkið situr fyrir miðju í þessum 4 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið síðan lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona við hvert merki = 6 lykkjur færri í hverri umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna og prjónað er ofan frá og niður. Byrjað er á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. Framstykkið er fyrst prjónað í 2 hlutum. Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, samtímis sem aukið er út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni. Hægra og vinstra framstykki er sett saman þegar útaukning fyrir hálsmál hefur verið gerð til loka. Síðan er framstykkið prjónað til loka niður. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 26-28 lykkjur á hringprjón 6 með 1 þræði DROPS Melody og 1 þræði DROPS Puna (= 2 þræðir). UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 2 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 6-6 sinnum (= 12-12 umferðir prjónaðar), á eftir síðustu útaukningu eru = 50-52 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er nú stykkið mælt frá! Prjónið síðan fram og til baka þannig: Prjónið 2 lykkjur I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, 1 lykkja GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið sléttprjón þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju í garðaprjóni og 2 lykkjur i-cord. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið fram og til baka í sléttprjóni, garðaprjóni og i-cord í hvorri hlið þar til stykkið mælist 8-10 cm mælt frá merki yst í hlið. Nú er lykkjum fækkað í hvorri hlið innan við 3 lykkjur. Fækkið lykkjum frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur i-cord, 1 lykkja í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið sléttprjón þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni og endið með 2 lykkjur i-cord. Fækkið lykkjum svona í 7. hverjum cm alls 2 sinnum = 46-48 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 21-24 cm mælt frá merki yst meðfram hlið. Skiptið yfir á hringprjón 5, næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur i-cord, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt) yfir næstu 42-44 lykkjur JAFNFRAMT sem aukið er út um 5 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (þ.e.a.s. síðasta lykkjan er brugðin lykkja), endið með 2 lykkjur i-cord = 51-53 lykkjur. Prjónið stroff með i-cord í hvorri hlið í 4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur jafnframt því sem prjónaðar eru 2 lykkjur slétt saman yfir fyrstu 2 og síðustu 2 lykkjurnar. Nú er vinstra framstykki prjónað meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRI ÖXL: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út við handveg þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju = 12-12 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 2 lykkjur i-cord, 1 lykkja garðaprjón, prjónið sléttprjón út umferðina. Frá réttu er prjónað þannig: Prjónið sléttprjón þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju í garðaprjóni og 2 lykkjur i-cord. Þegar stykkið mælist 8 cm mælt frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið út umferðina í sléttprjóni, garðaprjóni og i-cord eins og áður. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón í garðaprjóni og i-cord eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-4 sinnum (= 6-8 umferðir prjónaðar) = 15-16 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu). Klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægra framstykkið prjónað meðfram hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRI ÖXL: Nú eru prjónaðar upp lykkjur meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við öxl og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Prjónið upp 1 lykkjur í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 12-12 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið sléttprjón þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju í garðaprjóni og 2 lykkjur i-cord. Frá réttu er prjónað þannig: 2 lykkjur i-cord, 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið sléttprjón út umferðina. Þegar stykkið mælist 8 cm mælt frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttprjón, garðaprjón og i-cord eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 2 lykkjur slétt – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón, garðaprjón og i-cord eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-4 sinnum (= 6-8 umferðir prjónaðar) = 15-16 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu). Síðan eru framstykkin sett saman eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI (hægri og vinstri öxl sett saman): Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 15-16 lykkjur frá hægra framstykki eins og áður, fitjið upp 20-20 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið síðan 15-16 lykkjur frá vinstra framstykki eins og áður = 50-52 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón í garðaprjóni og i-cord í hvorri hlið fram og til baka þar til stykkið mælist 17-19 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Nú er lykkjum fækkað í hvorri hlið innan við 3 lykkjur þannig: Fækkið lykkjum frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur i-cord, 1 lykkja í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið sléttprjón þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja í garðaprjóni og endið með 2 lykkjur i-cord. Fækkið lykkjum svona í 7. hverjum cm þannig að lykkjum sé fækkað alls 2 sinnum = 46-48 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 31-33 cm, mælt frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Næsta umferð er prjónuð frá réttu: Prjónið 2 lykkjur i-cord, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt) yfir næstu 42-44 lykkjur JAFNFRAMT sem aukið er út um 5 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, endið með 2 lykkjur i-cord = 51-53 lykkjur. Prjónið stroff með i-cord í hvorri hlið í 4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur jafnframt sem prjónaðar eru 2 lykkjur slétt saman yfir fyrstu 2 og síðustu 2 lykkjurnar. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 5. Byrjið frá réttu við aðra axlalínuna og prjónið upp ca 82-92 lykkjur innan við 1 lykkju – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 12-13 cm. Fellið af með léttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjóna þegar lykkjum fækkar. HÚFA: Fitjið upp 72-76 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði DROPS Melody og 1 þræði DROPS Puna (= 2 þræðir) – notið e.t.v. ítalska uppfitjun. Prjónið hringinn í stroffprjóni (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 10-11 cm. Skiptið yfir á hringprjón 6 og prjónið 1 umferð slétt jafnframt því sem fækkað er um 6-7 lykkjur jafnt yfir = 66-69 lykkjur. Prjónið síðan í sléttprjóni þar til stykkið mælist 22-24 cm (það eru eftir ca 9-9 cm að loka máli). Munið að fylgja prjónfestunni. Nú byrjar úrtaka í toppi á húfunni, setjið 3 merki jafnt yfir í umferð þannig að það séu 22-23 lykkjur á milli merkja – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 8-8 sinnum = 18-21 lykkjur. Prjónið 0-1 lykkjur slétt, prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman út umferðina = 18-21 lykkjur. Prjónið 0-1 lykkju slétt, prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman út umferðina = 9-11 lykkjur. Klippið þráðinn, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru. Herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 31-33 cm frá uppfitjunarkanti. Brjótið upp kantinn ca 7-8 cm neðst á húfunni. Húfan mælist ca 24-25 cm þegar kanturinn hefur verið brotinn upp. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #polarcharmset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 261-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.