Snow Hive Sweater#snowhivesweater |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Nord og DROPS Kid-silk eða DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með býkúpumynstri og köðlum. Stærð XS - XXXL.
DROPS 262-32 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Vegna gatamynstursins er fjöldi lykkja í A.1 og A.3 breytilegur - fjöldi lykkja er alltaf talinn án lykkjunnar sem er fækkað og aukið (þ.e. A.1a er alltaf talið sem 26 lykkjur og A.1b er alltaf talið sem 5 lykkjur). LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1: Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ LYKKJUM Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ LYKKJUM Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 2 lykkjur slétt. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað til loka hvort fyrir sig, fram og til baka. Mynstur er prjónað bæði á framstykki og á bakstykki. Axlasaumar saumaðir. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 188-204-224-240-260-284-304 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Nord og DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir) eða DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5-5-5-5-6-6-6 cm. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar og 1 merkiþráð eftir 94-102-112-120-130-142-152 lykkjur = hliðar á stykkinu. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 1 umferð slétt jafnframt sem aukið er út um 44-40-48-44-48-44-44 lykkjur jafnt yfir í umferð þannig: Prjónið 7-10-13-16-18-23-28 lykkjur slétt, prjónið 80-82-86-88-94-96-96 lykkjur slétt jafnframt því sem aukið er út um 22-20-24-22-24-22-22 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (=102-102-110-110-118-118-118 lykkjur), prjónið 14-20-26-32-36-46-56 lykkjur slétt, prjónið 80-82-86-88-94-96-96 lykkjur slétt jafnframt sem aukið er út um 22-20-24-22-24-22-22 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (=102-102-110-110-118-118-118 lykkjur), prjónið 7-10-13-16-18-23-28 lykkjur slétt = 232-244-272-284-308-328-348 lykkjur. Prjónið síðan MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið þannig: Prjónið 7-10-13-16-18-23-28 lykkjur slétt, prjónið A.1 (= 31 lykkjur), prjónið A.2 (= 40-40-48-48-56-56-56 lykkjur), prjónið A.3 (= 31 lykkjur), prjónið 14-20-26-32-36-46-56 lykkjur slétt, prjónið A.1 (= 31 lykkjur), prjónið A.2 (= 40-40-48-48-56-56-56 lykkjur), prjónið A.3 (= 31 lykkjur), prjónið 7-10-13-16-18-23-28 lykkjur slétt. Haldið svona áfram með mynstur. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið svona þar til stykkið mælist 34-35-36-37-38-39-40 cm – stillið af að næsta umferð sé umferð með oddatölu í mynstri (þá kemur snúningur í kaðli frá réttu þegar prjónað er síðar fram og til baka). Nú er lykkjum fækkað fyrir handveg og stykkið skiptist fyrir framstykki og bakstykki. SKIPTING VIÐ HANDVEG Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og umferðin er prjónuð þannig: Fellið af fyrstu 2-3-4-4-5-5-7 lykkjur í umferð fyrir handveg, prjónið 112-116-128-134-144-154-160 lykkjur eins og áður, fellið af næstu 4-6-8-8-10-10-14 lykkjur fyrir handveg, prjónið 112-116-128-134-144-154-160 lykkjur eins og áður, fellið af síðustu 2-3-4-4-5-5-7 lykkjur fyrir handveg. Klippið þráðinn. Nú er framstykkið og bakstykkið prjónað til loka fram og til baka. BAKSTYKKI: = 112-116-128-134-144-154-160 lykkjur. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður. Í hvorri hlið eru lykkjur felldar af fyrir handveg, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 og fækkið um 2 lykkjur í annarri hverri umferð alls 2-3-5-6-8-12-13 sinnum = 108-110-118-122-128-130-134 lykkjur. Þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-61-63 cm, fellið af 40-40-48-48-56-56-56 miðjulykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig – stillið af að fellt sé af frá réttu í 3. umferð, 7. umferð eða 11. umferð í mynstri. ÖXL: Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu. Prjónið mynstur fram og til baka eins og áður yfir A.2a / A.3a (= 26 lykkjur), en yfir A.2.b/A.3b (= 5 lykkjur) eru einungis prjónaðar sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur JAFNFRAMT því sem fellt er af fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum, síðan 1 lykkju 1 sinni (= 5 lykkjur færri) = 29-30-30-32-31-32-34 lykkjur á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64-66 cm. FRAMSTYKKI: = 112-116-128-134-144-154-160 lykkjur. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður. Í hvorri hlið eru lykkjur felldar af fyrir handveg, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 og fækkið um 2 lykkjur í annarri hverri umferð alls 2-3-5-6-8-12-13 sinnum = 108-110-118-122-128-130-134 lykkjur. Þegar stykkið mælist 48-49-50-51-52-53-54 cm, setjið miðju 40-40-48-48-56-56-56 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. ÖXL: Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu. Prjónið mynstur fram og til baka eins og áður yfir A.2a / A.3a (= 26 lykkjur), en yfir A.2.b/A.3b (= 5 lykkjur) eru einungis prjónaðar sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur JAFNFRAMT því sem fellt er af fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni, síðan 1 lykkju 3 sinnum (= 5 lykkjur færri) = 29-30-30-32-31-32-34 lykkjur á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64-66 cm. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handveg og niður á við. Notið hringprjón 3,5 og 1 þráð í hvorri tegund (= 2 þræðir), byrjið fyrir miðju í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – prjónið upp 68-74-80-84-90-94-102 lykkjur – setjið 1 merki í axlasauminn og stillið af að prjónaðar séu upp jafnmargar lykkjur hvoru megin við merkið. Skiptið yfir í hringprjón 5, nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpuna til að forma ermina og að ermin passi betur, umferðin byrjar fyrir miðju undir ermi þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 6 lykkjur fram hjá merki ofan á öxl, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 6 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 4-4-4-3-3-3-3 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 4-4-4-3-3-3-3 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. Endurtakið síðan UMFERÐ 3 og 4. Prjónið þar til snúið hefur verið við alls 12-14-16-18-20-24-26 sinnum (= 6-7-8-9-10-12-13 sinnum í hvorri hlið og síðasta prjónaða umferðin sé frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem umferð 4 er prjónuð þá endar umferðin með að snúa stykkinu, síðan er prjónað frá réttu að byrjun umferðar (miðja undir ermi). Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir ermi, það á að nota merkiþráðinn þegar lykkjum er fækkað undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu. Nú er prjónað í hring í sléttprjóni yfir allar lykkjur JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá miðju undir ermi er fækkað um 2 lykkjur undir ermi, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í hverjum 5-4-3-2½-2-2-1½ cm alls 8-10-12-14-16-17-20 sinnum = 52-54-56-56-58-60-62 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 45-45-45-45-45-45-45 cm frá miðju ofan á öxl. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 16-16-16-16-16-18-18 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 68-70-72-72-74-78-80 lykkjur. Þegar stroffið mælist 8-8-8-8-9-9-9 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 53-53-53-53-54-54-54 cm frá miðju ofan á öxl. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 3,5 og 1 þráð í hvorri tegund (= 2 þræðir), prjónið upp lykkjur í kringum hálsmál frá réttu þannig: Byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp á milli 118 og 164 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði). Prjónið 1 umferð brugðið, síðan er prjónuð 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 86-88-98-100-110-112-114 lykkjur – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4-4-4-4-5-5-5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #snowhivesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 262-32
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.