Caramel Dip#carameldip |
|
![]() |
![]() |
Prjónaður toppur / vesti úr DROPS Cotton Light. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni, i-cord og v-hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 257-11 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. 2 KANTLYKKJUR: Í BYRJUN UMFERÐAR: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (í hliðum á fram- og bakstykki): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 6 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 6 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum á sama hátt við hinn merkiþráðinn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður. Það er prjónað sléttprjón með 2 kantlykkjur i-cord í hvorri hlið. Byrjað er á að fitja upp lykkjur fyrir band á öxl / hlýra á vinstra framstykki og prjónað er niður á við jafnframt því sem aukið er út hvoru megin á stykki fyrir handveg og v-hálsmáli. Þegar handvegurinn og v-hálsmálið hefur verið prjónað til loka, er vinstra framstykkið látið bíða og prjónuð eru 3 stykki til viðbótar (= hægra framstykki, hægra bakstykki og vinstra bakstykki). Við handveg eru framstykkin og bakstykkið sett á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við í hring á hringprjóna. Í lokin eru bönd á öxlum / hlýrar saumað saman á öxl. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 7-7-9-9-11-11 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Cotton Light og prjónið sléttprjón með 2 KANTLYKKJUR í hvorri hlið – lesið leiðbeiningar að ofan. Prjónið þar til band á öxl / hlýri mælist 5-5-6-6-6-6 cm, endið eftir umferð frá röngu. Nú er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið. Haldið áfram með kantlykkjur og sléttprjón, aukið út 1 lykkju í hvorri hlið, aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 2 kantlykkjur í hvorri lið, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, það á ekki að myndast gat. Haldið áfram með kantlykkjur og sléttprjón og aukið út í annarri hverri umferð (= hverri umferð frá réttu) alls 5-5-6-7-7-8 sinnum = 17-17-21-23-25-27 lykkjur í umferð. Haldið áfram með kantlykkjur og sléttprjón, en nú er einungis aukið út í 4. hverri umferð að hlið (í lok umferðar frá réttu) og í annarri hverri umferð við miðju að framan (= byrjun umferðar frá réttu). Aukið út með þessum hætt þar til aukið hefur verið út 8 sinnum að miðju að framan og 4 sinnum að hlið = 29-29-33-35-37-39 lykkjur í umferð. Prjónið síðan í sléttprjóni og kantlykkjur, nú er aukið út í hvorri hlið í annarri hverri umferð. Aukið út með þessum hætti 5-6-6-7-8-9 sinnum, það hefur verið aukið út 18-19-20-22-23-25 sinnum við miðju að framan og 14-15-16-18-19-21 sinnum að hlið = 39-41-45-49-53-57 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 18-19-20-22-22-24 cm frá efst á bandi á öxl / hlýra, endið með umferð frá réttu (án útaukninga). Klippið þráðinn. Prjónið annað stykki á sama hátt (= hægra bakstykki). HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 7-7-9-9-11-11 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Cotton Light og prjónið sléttprjón með 2 kantlykkjur í hvorri hlið – lesið leiðbeiningar að ofan. Prjónið þar til band á öxl / hlýri mælist 5-5-6-6-6-6 cm, endið eftir umferð frá röngu. Nú er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið. Haldið áfram með kantlykkjur og sléttprjón, aukið út 1 lykkju í hvorri hlið, aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 2 kantlykkjur í hvorri lið, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, það á ekki að myndast gat. Haldið áfram með kantlykkjur og sléttprjón og aukið út í annarri hverri umferð (= hverri umferð frá réttu) alls 5-5-6-7-7-8 sinnum = 17-17-21-23-25-27 lykkjur í umferð. Haldið áfram með kantlykkjur og sléttprjón, en nú er einungis aukið út í 4. hverri umferð að hlið (í byrjun umferðar frá réttu) og í annarri hverri umferð við miðju að framan (= í lok umferðar frá réttu). Aukið út með þessum hætt þar til aukið hefur verið út 8 sinnum að miðju að framan og 4 sinnum að hlið = 29-29-33-35-37-39 lykkjur í umferð. Prjónið síðan í sléttprjóni og kantlykkjur, nú er aukið út í hvorri hlið í annarri hverri umferð. Aukið út með þessum hætti 5-6-6-7-8-9 sinnum, það hefur verið aukið út 18-19-20-22-23-25 sinnum við miðju að framan og 14-15-16-18-19-21 sinnum að hlið = 39-41-45-49-53-57 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 18-19-20-22-22-24 cm frá efst á bandi á öxl / hlýra, endið með umferð frá réttu (án útaukninga). Klippið þráðinn og geymið stykkið. Prjónið annað stykki á sama hátt (= vinstra bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú á að prjóna stykkin saman, það er gert frá röngu þannig: Prjónið 39-41-45-49-53-57 lykkjur frá vinstra bakstykki, fitjið upp 14-16-16-18-22-26 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið undir ermi), prjónið 39-41-45-49-53-57 frá vinstra framstykki, prjónið 39-41-45-49-53-57 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 14-16-16-18-22-26 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið undir ermi), prjónið 39-41-45-49-53-57 lykkjur frá hægra bakstykki = 184-196-212-232-256-280 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 14-16-16-18-22-26 lykkjur sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið. Látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðir þegar fækka á lykkjum og auka út í hliðum. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 2 kantlykkjur eins og áður, prjónið 35-37-41-45-49-53 lykkjur sléttprjón, prjónið GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan – yfir næstu 18-20-20-22-26-30 lykkjur, prjónið sléttprjón yfir næstu 35-37-41-45-49-53 lykkjur, setjið næstu 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur sléttprjón (= fyrstu 2 lykkjur frá næsta stykki), prjónið 2 lykkjur af kaðlaprjóni í sléttprjóni, prjónið sléttprjón yfir næstu 35-37-41-45-49-53 lykkjur, prjónið garðaprjón yfir næstu 18-20-20-22-26-30 lykkjur, prjónið sléttprjón yfir næstu 35-37-41-45-49-53 lykkjur, setjið síðustu 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, ekki snúa stykkinu, en prjónið síðan yfir fyrstu 2 lykkjur af vinstri prjóni í sléttprjóni, prjónið 2 lykkjur af kaðlaprjóni í sléttprjóni. Stykkið hefur nú verið sett saman að framan og að aftan og nú er prjónað í hring yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 6-6-7-7-8-8 cm frá þar sem stykkin voru sett saman, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 13-13-14-14-15-15 cm frá þar sem stykkin voru sett saman = 176-188-204-224-248-272 lykkjur. Þegar stykkið mælist 19-19-20-21-22-22 cm frá þar sem stykkin voru sett saman, aukið út 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri) = 180-192-208-228-252-276 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 24-25-26-25-27-27 cm frá þar sem stykkin voru sett saman. Í næstu umferð (= rétta) byrjar stroff jafnframt því sem aukið er út um 16-18-18-20-22-26 lykkjur jafnt yfir í umferð = 196-210-226-248-274-302 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukningu). Þegar stroffið mælist 2-2-2-3-3-3 cm, fellið af. Stykkið mælist ca 44-46-48-50-52-54 cm. FRÁGANGUR: Saumið saman bönd á öxlum / hlýra. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #carameldip eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 257-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.