FRANÇOISE skrifaði:
Bonsoir, puis-je monter les 154 mailles directement sur l'aiguille circulaire N° 2,5 et les reprendre à la suite. merci
13.06.2025 - 16:12
FRANÇOISE skrifaði:
Je monte 154 mailles pour le dos mais je ,ne comprend pas les 34 mailles côtes 2/2, combien de mailles au point mousse de chaque côté. Avez -vous une vidéo pour me montrer. merci et bonne journée
13.06.2025 - 13:12DROPS Design svaraði:
Bonjour Françoise, lorsque vos 154 mailles sont montées pour le dos, tricotez ainsi: les 129 mailles du dos comme avant, puis 6 m point mousse, mettez 1 marqueur, 34 m point mousse, avec l'aiguille 2,5 tricotez 74 m en côtes 2 m env/2 m end, et terminez le tour au point mousse, mettez 1 marqueur 6 m avant la fin du tour pour le côté. Dans cette vidéo, nous montrons comment tricoter avec 2 tailles d'aguilles. Après 2 côtes mousse sur les 40 m de chaque côté, tricotez ces mailles en côtes avec la petite aiguille. Bon tricot!
13.06.2025 - 16:46
FRANÇOISE LELARGE skrifaði:
Bonjour , je ne sais pas comment faire pour monter les 154 m du dos merci de votre réponses. je n'ais pas compris comment les monter
02.05.2025 - 15:54DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Lelarge, retrouvez en photos ici ou bien en vidéo ici comment monter les mailles du dos à la suite de l'ouvrage. Notez que vous monterez ces mailles à la fin d'un rang du devant tricoté sur l'endroit donc plutôt comme dans la leçon, mais la technique pour monter les mailles reste la même dans les deux cas. Bon tricot!
02.05.2025 - 16:00
Alona skrifaði:
Hej Finns det en bild hur plaget ser ut från backsidan?
30.04.2025 - 23:37DROPS Design svaraði:
Hei Alona. Har tittet igjennom bildearkivet vårt, men kunne ikke finne et bilde som viser ryggen. mvh DROPS Design
05.05.2025 - 13:53
Ocean Halter#oceanhalter |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónaður toppur / bolur úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með öldumynstri, bandi á öxl, i-cord og stroffprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 259-20 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. 2 KANTLYKKJUR: Í BYRJUN UMFERÐAR: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Til að stroffprjónið dragist saman, er stroffprjónið prjónað með einu númeri minni prjóna en afgangur af toppi. Þegar prjónað er bæði með hringprjón 3,5 og 2,5 í sömu umferð, er mikilvægt að passa uppá að stroffprjónið sé alltaf prjónað með hringprjón 2,5 og að þær lykkjur sem eru eftir séu alltaf prjónaðar með hringprjón 3,5. Það er áfram prjónað í hring, en með 2 hringprjónum í stykkinu. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (í hliðum á fram- og bakstykki): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 4 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum á sama hátt við hinn merkiþráðinn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um ermar): Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Toppurinn er prjónaður ofan frá og niður, fyrst eru prjónuð 2 stykki sem eru sett saman fyrir framstykki, síðan eru lykkjur fitjaðar upp fyrir bakstykki og toppurinn er síðan prjónaður í hring yfir allar lykkjur. BAND Á ÖXL / HLÝRI: Fitjið upp 5 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með DROPS Safran. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu, * færið allar lykkjur að byrjun á prjóni, herðið á þræði og prjónið 5 lykkjur slétt frá réttu *, prjónið frá *-* þar til band á öxl / hlýri mælist ca 30-30-32-32-34-34 cm. Prjónið næstu umferð þannig: 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt = 7 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið til baka, uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 KANTLYKKJUR, 1 lykkja slétt, AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI, 1 lykkja slétt, AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI, 1 lykkja slétt, 2 kantlykkjur – lesið leiðbeiningar að ofan. Prjónið til baka frá röngu þannig: 2 kantlykkjur, 5 lykkjur brugðið, 2 kantlykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með 2 kantlykkjur í hvorri hlið, jafnframt er aukið út um 1 lykkju til hægri / vinstri eins og útskýrt er að ofan, aukið út innan við 2 kantlykkjur + 1 lykkja slétt, það verða fleiri og fleiri lykkjur í sléttprjóni á milli ystu 3 lykkja í hvorri hlið. Aukið út í hverri umferð frá réttu alls 13-15-18-20-23-26 lykkjur (ásamt fyrstu útaukningu) = 33-37-43-47-53-59 lykkjur. Endið með umferð frá röngu. Klippið þráðinn og geymið stykkið. Prjónið annað stykki á sama hátt, en ekki klippa þráðinn. Nú eru stykkin sett saman. Byrjið frá réttu og prjónið þannig: 2 kantlykkjur, 1 lykkja slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið 30-34-40-44-50-56 lykkjur slétt, fitjið upp 15 nýjar lykkjur í umferð (= miðja að framan), prjónið fyrstu 30-34-40-44-50-56 lykkjur slétt frá hinu stykkinu, aukið út 1 lykkju til hægri, 1 lykkja slétt, 2 kantlykkjur = 83-91-103-111-123-135 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu þannig: 2 kantlykkjur, prjónið brugðið þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 2 kantlykkjur. Prjónið síðan þannig – frá réttu: 2 kantlykkjur, 1 lykkja slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, 29-33-39-43-49-55 lykkjur slétt, A.1, 29-33-39-43-49-55 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til hægri, 1 lykkja slétt, 2 kantlykkjur. Haldið áfram með þetta mynstur og aukið út í annarri hverri umferð (= hverri umferð frá réttu) alls 3 sinnum = 89-97-109-117-129-141 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: Prjónið eins og áður yfir 89-97-109-117-129-141 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 104-114-124-140-154-172 lykkjur í umferð (= undir ermum og bakstykki) = 193-211-233-257-283-313 lykkjur. Nú á að prjóna A.1, sléttprjón og garðaprjón yfir lykkjur á framstykki og yfir miðjulykkjur á bakstykki er prjónað stroffprjón – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. Stykkið er nú prjónað í hring með 2 mismunandi prjónanúmerum eins og útskýrt er að neðan. Prjónið mynstur eins og áður yfir 89-97-109-117-129-141 lykkjur á framstykki, prjónið 4-4-4-6-6-8 lykkjur í GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan, setjið 1 merki hér (merkir hlið), prjónið 23-26-29-31-34-39 lykkjur í garðaprjóni, skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið stroffprjón (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) yfir næstu 50-54-58-66-74-78 lykkjur (byrjar og endar með 2 lykkjur brugðið), skiptið til baka yfir á hringprjón 3,5 og prjónið garðaprjón út umferðina. Setjið 1 merki 4-4-4-6-6-8 lykkjur á undan lok umferðar (merkir hlið). Það eru 97-105-117-129-141-157 lykkjur á framstykki og 96-106-116-128-142-156 lykkjur á bakstykki (á milli merkja). Haldið áfram með þetta mynstur þar til prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón á hæðina yfir 27-30-33-37-40-47 lykkjur í hvorri hlið, lykkjur í stroffprjóni á bakstykki eru alltaf prjónaðar með hringprjón 2,5, þær lykkjur sem eru eftir eru alltaf prjónaðar með hringprjón 3,5. Prjónið síðan þannig: Notið hringprjón 3,5 og prjónið A.1 og sléttprjón yfir lykkjur á framstykki + sléttprjón yfir 23-26-29-31-34-39 lykkjur í hvorri hlið á bakstykki, notið hringprjón 2,5 og prjónið stroffprjón yfir miðju 50-54-58-66-74-78 lykkjur á bakstykki. Þegar stykkið mælist 5 cm frá þar sem stykkin eru sett saman, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í hverjum 1½ cm alls 5 sinnum = 173-191-213-237-263-293 lykkjur. Þegar stykkið mælist 14 cm frá þar sem stykkin voru sett saman, aukið út 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í hverjum 1½ cm alls 5 sinnum = 193-211-233-257-283-313 lykkjur. Prjónið síðan með A.1, sléttprjón og stroffprjón. Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist 24-25-25-26-26-26 cm frá þar sem nýjar lykkjur voru fitjaðar upp. Prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir lykkjur í A.1 og lykkjur sem prjónaðar voru í sléttprjóni (stroffprjón heldur áfram eins og áður), fellið síðan af. Bönd á öxlum / hlýrar er saumað saman í hnakka. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #oceanhalter eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 259-20
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.