Audrey Chase skrifaði:
Just found this lovely website but am unable to print off any of the patterns. Please advise.
15.06.2025 - 12:05
Emily skrifaði:
Working down the back panel, in the pattern diagram A.3 (from the wrong side) says to double crochet and then chain three? But the symbol key says that symbol means "3 chain stitches at beginning of row." I am assuming I don't start a new row of A.3 with a double crochet and then a chain three and /then/ another double crochet but I can't seem to understand this diagram any other way. Any help would be appreciated!
12.06.2025 - 03:20DROPS Design svaraði:
Dear Emily, diagrams A.2, A.3 and A.4 are worked to increase for armholes on each side, ie you will increase 1 stitch in the first stitch by crocheting 3 chain stitches to replace first double crochet + 1 double crochet in the last double crochet of previous row = this means working A.2 if you work from RS as you read from the right towards the left or A.3 if you work from WS as you read from the left towards the right - at the end of the row, work A.4 = 2 double crochets in the last stitch. Happy crocheting!
12.06.2025 - 09:33
Paula skrifaði:
Od jakiego miejsca odmierzam 6cm przerabiając tył a od jakiego 13 robiąc przód? Wydaje mi się, że robię zgodnie z opisem, ale w miejscu połączenia trzech części robótki tył wychodzi dłuższy niż przód, a nie wydaje mi się aby tak mialo być. Proszę o szczegółowe oznaczenie od których łańcuszków należy odmierzać tył i przód robótki.
10.06.2025 - 18:31DROPS Design svaraði:
Witaj Paulo, przerabiasz tył, aż długość robótki od łańcuszka początkowego (ramię) wynosi 13 cm, następnie zaczynasz dodawanie oczek na podkroje rękawów. Tak samo na przodzie, czyli dodajesz oczka na podkroje rękawów jak długość robótki od łańcuszka początkowego wynosi 13 cm. Po połączeniu 3 części robótki, przód i tył powinien mieć taką samą długość, Nie wiem o co chodzi z tymi 6 cm? Możesz napisać? Pozdrawiam!
11.06.2025 - 10:43
Chloé skrifaði:
Bonjour ! Pour le dos, lorsque vous indiquez de faire 13/14 cm depuis le « montage », il s’agit depuis la chaînette de l’épaule ou depuis le début du dos (depuis l’assemblage des deux épaules) Merci
29.05.2025 - 22:15DROPS Design svaraði:
Bonjour Chloé, mesurez à partir de l'encolure (pas à partir des épaules). Bon crochet!
30.05.2025 - 09:40
Elke Hunke skrifaði:
Guten Abend, ich möchte die Weste gerne für meine Tochter häkeln, da sie ihr so gut gefällt. Leider versteh ich die Anleitung gar nicht. Für Größe M fange ich mit 23 Lm (linke Schulter) an, aber es sind nur 3 Reihen beschrieben. Woher weiß ich wieviele Reihen ich dann weiterarbeiten muss? Ähnlich geht es mir mit den anderen Teilen. Können Sie mir helfen? Vielen Dank im Voraus, Elke Hunke
02.05.2025 - 21:07DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Hunke, wenn die 3 ersten Reihen für die linke Schulter fertig sind, den Faden abschneiden und zur Seite legen; dann die 3 ersten Reihen für die rechte Schulter häkeln, und dann häkeln Sie Rückenteil, dh beide Schulter zusammen: zuerst die rechte, dann neue Maschen für den Halsausschnitt und die linke Schulter, dann mit A.1 weiterhäkelnd und für den Armausschnitt zunehmen. Viel Spaß beim Häkeln!
05.05.2025 - 07:24
Scallop Bliss Vest#scallopblissvest |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklaður toppur úr DROPS Safran. Stykkið er heklað ofan frá og niður í stuðlum með v-hálsmáli og kanti í sólfjaðramynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 257-32 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJUR: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðull. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Frá röngu á að lesa mynsturteikningu frá vinstri til hægri. HEKLLEIÐBEININGAR: Hver umferð með stuðlum byrja með 3 loftlykkjur, þessar 3 loftlykkjur koma í stað fyrsta stuðul. Síðasti stuðull í umferð er heklaður í 3. loftlykkju í byrjun fyrri umferðar. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka, ofan frá og niður. Byrjað er á bakstykki með því að hekla 2 axlir, síðan er stykkið sett saman með því að fitjaðar eru upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli á milli stykkja. Síðan er heklað fram og til baka niður á við á bakstykki samtímis sem aukið er út fyrir handveg í hvorri hlið. Þegar handvegur hefur verið heklaður til loka er bakstykkið látið bíða og framstykkin eru hekluð. Fyrst eru lykkjur heklaðar upp meðfram vinstri öxl. Síðan er vinstra framstykkið heklað niður á við jafnframt því sem aukið er út fyrir v-hálsmáli og handvegi. Þegar handvegur hefur verið heklaður til loka, þá er hægra framstykkið heklað á sama hátt, en með útaukningu fyrir v-hálsmáli og handvegi í gagnstæðri hlið. Við handveg eru stykkin sett saman fyrir fram- og bakstykki og heklað er fram og til baka yfir allar lykkjur að loka máli. Í lokin er heklaður kantur í meðfram framstykkjum, v-hálsmáli og í kringum báða handvegina. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. VINSTRI ÖXL AÐ AFTAN (séð þegar flíkin er mátuð): Heklið 21-23-24-26-27-28 LOFTLYKKJUR – lesið leiðbeiningar að ofan, með heklunál 3,5 með DROPS Safran, snúið stykkinu. UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið A.1B í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan A.1B í hverja loftlykkju þar til 1 lykkja er eftir í umferð, heklið A.1C í síðustu lykkju = 18-20-21-23-24-25 stuðlar + 3 loftlykkjur, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Lesið HEKLLEIÐBEININGAR, heklið A.3 í fyrstu lykkju (= 1 stuðull fleiri – munið eftir að mynsturteikning er lesin frá vinstri til hægri þegar heklað er frá röngu), heklið A.1B þar til 1 lykkja er eftir í umferð, heklið A.1A = 20-22-23-25-26-27 stuðlar, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Heklið A.1A í fyrstu lykkju, heklið A.1B þar til 1 lykkja er eftir í umferð, heklið A.4 í síðustu lykkju (= 1 stuðull fleiri) = 21-23-24-26-27-28 stuðlar. Klippið og festið þráðinn. HÆGRI ÖXL AÐ AFTAN (séð þegar flíkin er mátuð): Heklið 21-23-24-26-27-28 loftlykkjur með heklunál 3,5 með DROPS Safran, snúið stykkinu. UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið A.1B í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan A.1B í hverja loftlykkju þar til 1 lykkja er eftir í umferð, heklið A.1C í síðustu lykkju = 18-20-21-23-24-25 stuðlar + 3 loftlykkjur, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið A.1C í fyrstu lykkju heklið A.1B þar til 1 lykkja er eftir í umferð, heklið A.4 í síðustu lykkju (= 1 stuðull fleiri) = 20-22-23-25-26-27 stuðlar, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Heklið A.2 í fyrstu lykkju (= 1 stuðull fleiri), heklið A.1B þar til 1 lykkja er eftir í umferð, heklið A.1C í síðustu lykkju = 21-23-24-26-27-28 stuðlar. Nú eru axlirnar settar saman fyrir bakstykki eins og útskýrt er að neðan. BAKSTYKKI (hægri öxl og vinstri öxl heklaðar saman): UMFERÐ 1 (= ranga): Heklið A.1C í fyrstu lykkju, heklið A.1B í hverja af næstu 20-22-23-25-26-27 lykkjur frá hægri öxl, heklið 26-26-28-28-30-32 loftlykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, heklið A.1B í hverja af fyrstu 20-22-23-25-26-27 lykkjur frá vinstri öxl (heklið frá röngu), heklið A.1A í síðustu lykkju = 68-72-76-80-84-88 stuðlar. UMFERÐ 2 (= rétta): Heklið A.1A í fyrstu lykkju, heklið A.1B í hvern stuðul og hverja loftlykkju þar til 1 lykkja er eftir í umferð, heklið A.1C í síðustu lykkju = 68-72-76-80-84-88 stuðlar. Á eftir UMFERÐ 2: Heklið A.1 svona fram og til baka með 1 stuðul í hverja lykkju þar til stykkið mælist 13-13-13-14-14-14 cm frá uppfitjunarkanti á öxl. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1: Heklið A.2 (þegar heklað er frá réttu) / A.3 (þegar heklað er frá röngu) í fyrstu lykkju (= 1 stuðull fleiri), heklið A.1B þar til 1 lykkja er eftir í umferð, heklið A.4 í síðustu lykkju (= 1 stuðull fleiri). Heklið UMFERÐ 1 alls 6-7-6-5-5-5 sinnum = 80-86-88-90-94-98 stuðlar. Útaukningu fyrir handveg er lokið í stærð S og M. Síðan er aukið út í stærð L, XL, XXL og XXXL þannig: UMFERÐ 1: Heklið A.2/A.3 í fyrstu lykkju (= 1 stuðull fleiri), A.1B í næstu lykkju, A.4 í næstu lykkju (= 1 stuðull fleiri), A.1B í hverja lykkju þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, A.4 í næstu lykkju (= 1 stuðull fleiri), A.1B í næstu lykkju, A.4 í síðustu lykkju (= 1 stuðull fleiri). Það hafa verið auknir út alls 4 stuðlar í umferð. Heklið UMFERÐ 1 alls 0-0-2-3-5-6 sinnum = 80-86-96-102-114-122 stuðlar. Á eftir síðustu umferð með útaukningu mælist stykkið ca 18-19-20-21-22-23 cm frá uppfitjunarkanti – endið eftir umferð frá réttu. Nú er vinstra framstykkið heklað meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI (séð þegar flíkin er mátuð): Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að botninn á handvegi snúi að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Setjið 1 merki í uppfitjunarkantinn – stykkið á að mælast frá þessu merki. Nú er heklað meðfram bakstykkis vinstri öxl – byrjið frá réttu við hálsmál með 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju, byrjið á umferð 3 í A.1 og heklið A.1A í fyrstu lykkju, heklið A.1B þar til 1 lykkja er eftir í umferð, heklið A.1C í síðustu lykkju = 19-21-22-24-25-26 stuðlar. Heklið A.1 fram og til baka eins og áður með 1 stuðul í hverja lykkju þar til stykkið mælist 5-6-7-8-8-8 cm frá merki. Nú er aukið út fyrir v-hálsmáli eins og útskýrt er að neðan. JAFNFRAMT sem aukið er út fyrir v-hálsmáli á einnig að auka út fyrir handveg. Lestu því báða kaflana að neðan áður en heklað er áfram. ÚTAUKNING FYRIR V-HÁLSMÁLI: UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið A.2 í fyrstu lykkju (= 1 stuðull fleiri), heklið A.1B þar til 1 lykkja er eftir í umferð, heklið A.1C í síðustu lykkju. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið A.1C í fyrstu lykkju, heklið A.1B þar til 1 lykkja er eftir í umferð, heklið A.4 í síðustu lykkju (= 1 stuðull fleiri). Heklið UMFERÐ 1 og 2 alls 7-7-8-8-8-9 sinnum (= 14-14-16-16-16-18 umferðir heklaðar), heklið síðan fyrstu umferð 1-1-0-0-1-0 sinni til viðbótar (= 15-15-16-16-17-18 umferðir heklaðar). ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 13-13-13-14-14-14 cm frá merki, aukið út fyrir handveg í hlið á sama hátt og á bakstykki, þ.e.a.s. aukið út um 1 stuðul í hverja umferð við handveg alls 6-7-6-5-5-5 sinnum og síðan 2 stuðla í hverja umferð við handveg alls 0-0-2-3-5-6 sinnum. Á eftir síðustu umferð með útaukningu mælist stykkið ca 18-19-20-21-22-23 cm frá merki á öxl – endið eftir umferð frá réttu. Nú er hægra framstykkið heklað meðfram hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI (séð þegar flíkin er mátuð): Setjið 1 merki í uppfitjunarkantinn – stykkið er nú mælt frá þessu merki. Nú er heklað meðfram bakstykkis hægri öxl – byrjið frá réttu við handveg með 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju, byrjið á umferð 3 í A.1 og heklið A.1A í fyrstu lykkju, heklið A.1B þar til 1 lykkja er eftir í umferð, heklið A.1C í síðustu lykkju = 19-21-22-24-25-26 stuðlar. Heklið A.1 fram og til baka eins og áður með 1 stuðul í hverja lykkju þar til stykkið mælist 5-6-7-8-8-8 cm frá merki. Nú er aukið út fyrir v-hálsmáli eins og útskýrt er að neðan. JAFNFRAMT sem aukið er út fyrir v-hálsmáli á einnig að auka út fyrir handveg. Lestu því báða kaflana að neðan áður en heklað er áfram. ÚTAUKNING FYRIR V-HÁLSMÁLI: UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið A.1A í fyrstu lykkju, heklið A.1B þar til 1 lykkja er eftir í umferð, heklið A.4 í síðustu lykkju (= 1 stuðull fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið A.3 í fyrstu lykkju (= 1 stuðull fleiri), heklið A.1B þar til 1 lykkja er eftir í umferð, heklið A.1A í síðustu lykkju. Heklið UMFERÐ 1 og 2 alls 7-7-8-8-8-9 sinnum (= 14-14-16-16-16-18 umferðir heklaðar), heklið síðan fyrstu umferð 1-1-0-0-1-0 sinni til viðbótar (= 15-15-16-16-17-18 umferðir heklaðar). ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 13-13-13-14-14-14 cm frá merki, aukið út fyrir handveg í hlið á sama hátt og á vinstra framstykki, en með útaukningu í gagnstæða hlið. Á eftir síðustu umferð með útaukningu mælist stykkið ca 18-19-20-21-22-23 cm frá merki á öxl – endið eftir umferð frá réttu, ekki klippa þráðinn. Nú eru stykkin sett saman í fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Byrjið frá röngu og heklið þannig: Heklið A.1C í fyrstu lykkju (eða A.3 ef útaukning fyrir v-hálsmáli er ekki lokið), heklið A.1B í hverja lykkju frá hægra framstykki, heklið 8-10-12-14-18-22 loftlykkjur fyrir handveg, heklið A.1B í hverja af 80-86-96-102-114-122 lykkjur frá bakstykki, heklið 8-10-12-14-18-22 loftlykkjur fyrir handveg, heklið A.1B í hverja lykkju frá vinstra framstykki þar til 1 lykkja er eftir í umferð, heklið A.1A í síðustu lykkju (eða A.4 ef útaukning fyrir v-hálsmáli er ekki lokið). Haldið áfram með A.1 fram og til baka eins og áður með 1 stuðul í hverja lykkju. Þegar útaukning fyrir v-hálsmáli er lokið eru 176-192-216-232-264-288 lykkjur í umferð. Heklið þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm frá merki á öxl. Klippið og festið þráðinn. HEKLAÐUR KANTUR MEÐFRAM FRAMSTYKKI OG V-HÁLSMÁLI: Notið heklunál 3,5, byrjið frá réttu neðst á hægra framstykki, heklið A.5 í fyrstu lykkju, heklið síðan A.6 meðfram kanti á framstykki, v-hálsmáli, hálsmáli aftan í hnakka, í hina hliðina á v-hálsmáli og síðan niður meðfram vinstra framstykki – stillið af að A.6 endar með 1 fastalykkju í síðustu lykkju neðst á vinstra framstykki. Klippið og festið þráðinn. HEKLAÐUR KANTUR Í KRINGUM HANDVEG: Notið heklunál 3,5, byrjið frá réttu neðst í handvegi, heklið A.5 í fyrstu lykkju, síðan er A.6 heklað í kringum handveg – stillið af að A.6 endar með 1 keðjulykkju í fastalykkju í byrjun umferðar (í stað 1 fastalykkju í síðustu lykkju). Klippið og festið þráðinn. FRÁGANGUR: Saumið 3 tölur meðfram vinstra framstykki. Efsta talan er staðsett ca 1 cm undir síðustu útaukningu fyrir v-hálsmáli og hinar 2 með ca 3-3-4-4-5-5 cm á milli talna. Tölum er hneppt í gegnum göt í hekluðum kanti. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #scallopblissvest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 8 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 257-32
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.