Emma skrifaði:
Jag har en fråga om A5. Avser A5 3 luftmassor eller 6 luftmassor (3x2)? Det ser mycket märkligt ut att ha 6 st. Men om ni avser 3 st borde väl det finnas en liten ofylld stjärna bredvid ned nedre ”tre luftmaskor” som avtecknas i A.5?
26.05.2025 - 17:04DROPS Design svaraði:
Hej Emma, den lange ovale ring som er i A.5 betyder 3 luftmasker :)
28.05.2025 - 07:52
Emma skrifaði:
Virkat axlar + bakstycke. Nu börjat på framstycket. Hö och vän framstycke ska virkas samman. I strl XL ska jag ha 31 stolpar i slutet av beskrivningen för hö framstycke, RAD 5. Men sen när jag ska vända och virka en till rad dvs första raden för sammanvirkning - där jag sedan lägger upp maskor för urringning/sammanvirkning - så skriver ni att jag bara ska göra 30 stolpar. Hur går det ihop? Tänker jag fel?
22.05.2025 - 16:01DROPS Design svaraði:
Hej Emma, du virkar A.1A i första m, A.1B i de nästa 30 m osv :)
27.05.2025 - 09:45
Emma skrifaði:
Virkat axlar + bakstycke. Nu börjat på framstycket. Hö och vän framstycke ska virkas samman. I strl XL ska jag ha 31 stolpar i slutet av beskrivningen för hö framstycke, RAD 5. Men sen när jag ska vända och virka en till rad dvs första raden för sammanvirkning - där jag sedan lägger upp maskor för urringning/sammanvirkning - så skriver ni att jag bara ska göra 30 stolpar. Hur går det ihop? Tänker jag fel?
22.05.2025 - 15:59
Scallop Bliss Top#scallopblisstop |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklaður toppur úr DROPS Safran. Stykkið er heklað ofan frá og niður í stuðlum með kanti í sólfjaðramynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 257-31 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJUR: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðull. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Frá röngu á að lesa mynsturteikningu frá vinstri til hægri. HEKLLEIÐBEININGAR: Hver umferð með stuðlum byrja með 3 loftlykkjur, þessar 3 loftlykkjur koma í stað fyrsta stuðul. Síðasti stuðull í umferð er heklaður í 3. loftlykkju í byrjun fyrri umferðar. Hver umferð með stuðlum byrjar með 3 loftlykkjur, þessar 3 loftlykkjur koma í stað fyrsta stuðul. Í lok umferðar er hekluð 1 keðjulykkja í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar, áður en stykkinu er snúið við svo að næsta umferð sé hekluð frá hinni hliðinni á stykkinu, þ.e.a.s. umferðin er hekluð til skiptis frá réttu og frá röngu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til að reikna út hvernig auka á út jafnt yfir, teljið lykkjufjöldann sem auka á út yfir (t.d. 176 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 29,3. Í þessu dæmi er aukið út með því að hekla A.4 í ca 29. hverja lykkju í umferð (þ.e.a.s. heklið 2 stuðla í ca 29. hverja lykkju í umferð). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er fyrst heklað fram og til baka, ofan frá og niður. Byrjað er á bakstykki með því að hekla 2 axlir, síðan er stykkið sett saman með því að fitjaðar eru upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli á milli stykkja. Síðan er heklað fram og til baka niður á við á bakstykki samtímis sem aukið er út fyrir handveg í hvorri hlið. Þegar handvegur hefur verið heklaður til loka er bakstykkið látið bíða og framstykkið er heklað. Framstykkið er fyrst heklað í 2 stykkjum. Byrjað er á að hekla upp lykkjur meðfram vinstri öxl, heklað niður á við samtímis sem aukið er út fyrir hálsmáli. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni. Hæga og vinstra framstykkið er sett saman þegar útaukningu fyrir hálsmáli er lokið. Síðan er framstykkið heklað fram og til baka niður að handvegi. Stykkin er nú sett saman fyrir fram- og bakstykki og heklað er í hring að loka máli, en stykkinu er snúið eftir hverja umferð til að áferðin verði alveg eins og þegar heklað er fram og til baka. Í lokin er heklaður kantur með sólfjaðramynstri í kringum hálsmál og í kringum báða handvegina. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. VINSTRI ÖXL AÐ AFTAN (séð þegar flíkin er mátuð): Heklið 21-23-24-26-27-28 LOFTLYKKJUR – lesið leiðbeiningar að ofan, með heklunál 3,5 með DROPS Safran, snúið stykkinu. UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið A.1B í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan A.1B í hverja loftlykkju þar til 1 lykkja er eftir í umferð, heklið A.1C í síðustu lykkju = 18-20-21-23-24-25 stuðlar + 3 loftlykkjur, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Lesið HEKLLEIÐBEININGAR, heklið A.3 í fyrstu lykkju (= 1 stuðull fleiri, heklið A.1B þar til 1 lykkja er eftir í umferð, heklið A.1A = 20-22-23-25-26-27 stuðlar, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Heklið A.1A í fyrstu lykkju, heklið A.1B þar til 1 lykkja er eftir í umferð, heklið A.4 í síðustu lykkju (= 1 stuðull fleiri) = 21-23-24-26-27-28 stuðlar. Klippið og festið þráðinn. HÆGRI ÖXL AÐ AFTAN (séð þegar flíkin er mátuð): Heklið 21-23-24-26-27-28 loftlykkjur með heklunál 3,5 með DROPS Safran, snúið stykkinu. UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið A.1B í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan A.1B í hverja loftlykkju þar til 1 lykkja er eftir í umferð, heklið A.1C í síðustu lykkju = 18-20-21-23-24-25 stuðlar + 3 loftlykkjur, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið A.1C í fyrstu lykkju heklið A.1B þar til 1 lykkja er eftir í umferð, heklið A.4 í síðustu lykkju (= 1 stuðull fleiri) = 20-22-23-25-26-27 stuðlar, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Heklið A.2 í fyrstu lykkju (= 1 stuðull fleiri), heklið A.1B þar til 1 lykkja er eftir í umferð, heklið A.1C í síðustu lykkju = 21-23-24-26-27-28 stuðlar. Nú eru stykkin sett saman fyrir bakstykki eins og útskýrt er að neðan. BAKSTYKKI (hægri öxl og vinstri öxl heklaðar saman): UMFERÐ 1 (= ranga): Heklið A.1C í fyrstu lykkju, heklið A.1B í hverja af næstu 20-22-23-25-26-27 lykkjur frá hægri öxl, heklið 26-26-28-28-30-32 loftlykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, heklið A.1B í hverja af fyrstu 20-22-23-25-26-27 lykkjur frá vinstri öxl (heklið frá röngu), heklið A.1A í síðustu lykkju = 68-72-76-80-84-88 stuðlar. UMFERÐ 2 (= rétta): Heklið A.1A í fyrstu lykkju, heklið A.1B í hvern stuðul og hverja loftlykkju þar til 1 lykkja er eftir í umferð, heklið A.1C í síðustu lykkju = 68-72-76-80-84-88 stuðlar. Á eftir UMFERÐ 2: Heklið A.1 svona fram og til baka með 1 stuðul í hverja lykkju þar til stykkið mælist 13-13-13-14-14-14 cm frá uppfitjunarkanti á öxl. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1: Heklið A.2 (þegar heklað er frá réttu) / A.3 (þegar heklað er frá röngu) í fyrstu lykkju (= 1 stuðull fleiri), heklið A.1B þar til 1 lykkja er eftir í umferð, heklið A.4 í síðustu lykkju (= 1 stuðull fleiri). Heklið UMFERÐ 1 alls 6-7-6-5-5-5 sinnum = 80-86-88-90-94-98 stuðlar. Útaukningu fyrir handveg er lokið í stærð S og M. Síðan er aukið út í stærð L, XL, XXL og XXXL þannig: UMFERÐ 1: Heklið A.2/A.3 í fyrstu lykkju (= 1 stuðull fleiri), A.1B í næstu lykkju, A.4 í næstu lykkju (= 1 stuðull fleiri), A.1B í hverja lykkju þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, A.4 í næstu lykkju (= 1 stuðull fleiri), A.1B í næstu lykkju, A.4 í síðustu lykkju (= 1 stuðull fleiri). Það hafa verið auknir út alls 4 stuðlar í umferð. Heklið UMFERÐ 1 alls 0-0-2-3-5-6 sinnum = 80-86-96-102-114-122 stuðlar. Á eftir síðustu umferð með útaukningu mælist stykkið ca 18-19-20-21-22-23 cm frá uppfitjunarkanti – endið eftir umferð frá réttu. Nú er vinstra framstykkið heklað meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI (séð þegar flíkin er mátuð): Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að botninn á handvegi snúi að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Setjið 1 merki í uppfitjunarkantinn – stykkið á að mælast frá þessu merki. Nú er heklað meðfram bakstykkis vinstri öxl – byrjið frá réttu við hálsmál með 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju, byrjið á umferð 3 í A.1 og heklið A.1A í fyrstu lykkju, heklið A.1B þar til 1 lykkja er eftir í umferð, heklið A.1C í síðustu lykkju = 19-21-22-24-25-26 stuðlar. Heklið A.1 fram og til baka eins og áður með 1 stuðul í hverja lykkju þar til stykkið mælist 4-4-6-6-8-8 cm frá merki og næsta umferð er hekluð frá röngu. Nú er aukið út fyrir hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Heklið A.1C í fyrstu lykkju, heklið A.1B þar til 1 lykkja er eftir í umferð, heklið A.4 í síðustu lykkju (= 1 stuðull fleiri). UMFERÐ 2 (= rétta): Heklið A.2C í fyrstu lykkju (= 1 stuðull fleiri), heklið A.1B þar til 1 lykkja er eftir í umferð, heklið A.1C í síðustu lykkju. UMFERÐ 3 (= ranga): Heklið A.1C í fyrstu lykkju, heklið A.1B þar til 1 lykkja er eftir í umferð, heklið A.4 í síðustu lykkju (= 1 stuðull fleiri). UMFERÐ 4 (= rétta): Heklið A.2C í fyrstu lykkju (= 1 stuðull fleiri), heklið A.1B í næstu lykkju, heklið A.4 í næstu lykkju (= 1 stuðull fleiri), heklið A.1B þar til 1 lykkja er eftir í umferð, heklið A.1C í síðustu lykkju. UMFERÐ 5 (= ranga): Heklið A.1C í fyrstu lykkju, heklið A.1B þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, heklið A.4 í næstu lykkju (= 1 stuðull fleiri), heklið A.1B í næstu lykkju, heklið A.4 í síðustu lykkju (= 1 stuðull fleiri) = 26-28-29-31-32-33 stuðlar. Nú er hægra framstykkið heklað meðfram hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI (séð þegar flíkin er mátuð): Setjið 1 merki í uppfitjunarkantinn – stykkið á að mælast frá þessu merki. Nú er heklað meðfram bakstykkis hægri öxl – byrjið frá réttu við handveg með 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju, byrjið á umferð 3 í A.1 og heklið A.1A í fyrstu lykkju, heklið A.1B þar til 1 lykkja er eftir í umferð, heklið A.1C í síðustu lykkju = 19-21-22-24-25-26 stuðlar. Heklið A.1 fram og til baka eins og áður með 1 stuðul í hverja lykkju þar til stykkið mælist 4-4-6-6-8-8 cm frá merki og næsta umferð er hekluð frá röngu. Nú er aukið út fyrir hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Heklið A.3 í fyrstu lykkju (= 1 stuðull fleiri), heklið A.1B þar til 1 lykkja er eftir í umferð, heklið A.1A í síðustu lykkju. UMFERÐ 2 (= rétta): Heklið A.1A í fyrstu lykkju, heklið A.1B þar til 1 lykkja er eftir í umferð, heklið A.4 í síðustu lykkju (= 1 stuðull fleiri). UMFERÐ 3 (= ranga): Heklið A.3 í fyrstu lykkju (= 1 stuðull fleiri), heklið A.1B þar til 1 lykkja er eftir í umferð, heklið A.1A í síðustu lykkju. UMFERÐ 4 (= rétta): Heklið A.1A í fyrstu lykkju, heklið A.1B þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, heklið A.4 í næstu lykkju (= 1 stuðull fleiri), heklið A.1B í næstu lykkju, heklið A.4 í síðustu lykkju (= 1 stuðull fleiri). UMFERÐ 5 (= ranga): Heklið A.3 í fyrstu lykkju (= 1 stuðull fleiri), heklið A.1B í næstu lykkju, heklið A.4 í næstu lykkju (= 1 stuðull fleiri), heklið A.1B þar til 1 lykkja er eftir í umferð, heklið A.1A í síðustu lykkju = 26-28-29-31-32-33 stuðlar. Síðan eru framstykkin sett saman eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI (hægra og vinstra framstykki heklað saman): UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið A.1A í fyrstu lykkju, heklið A.1B í hverja af næstu 25-27-28-30-31-32 lykkjur frá hægra framstykki, heklið 16-16-18-18-20-22 loftlykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, heklið A.1B í hverja af fyrstu 25-27-28-30-31-32 lykkjur frá vinstra framstykki (heklað frá réttu), heklið A.1C í síðustu lykkju = 68-72-76-80-84-88 stuðlar. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið A.1C í fyrstu lykkju, heklið A.1B í hvern stuðul og hverja loftlykkju þar til 1 lykkja er eftir í umferð, heklið A.1A í síðustu lykkju = 68-72-76-80-84-88 stuðlar. Á eftir UMFERÐ 2: Heklið A.1 svona fram og til baka með 1 stuðul í hverja lykkju þar til stykkið mælist 13-13-13-14-14-14 cm frá merki. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg – stillið af að útaukning fyrir handveg byrjar frá sömu hlið á stykki eins og á bakstykki. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1: Heklið A.2 (þegar heklað er frá réttu) / A.3 (þegar heklað er frá röngu) í fyrstu lykkju (= 1 stuðull fleiri), heklið A.1B þar til 1 lykkja er eftir í umferð, heklið A.4 í síðustu lykkju (= 1 stuðull fleiri). Heklið UMFERÐ 1 alls 6-7-6-5-5-5 sinnum = 80-86-88-90-94-98 stuðlar. Útaukningu fyrir handveg er lokið í stærð S og M. Síðan er aukið út í stærð L, XL, XXL og XXXL þannig: UMFERÐ 1: Heklið A.2/A.3 í fyrstu lykkju (= 1 stuðull fleiri), A.1B í næstu lykkju, A.4 í næstu lykkju (= 1 stuðull fleiri), A.1B í hverja lykkju þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, A.4 í næstu lykkju (= 1 stuðull fleiri), A.1B í næstu lykkju, A.4 í síðustu lykkju (= 1 stuðull fleiri). Það hafa verið auknir út alls 4 stuðlar í umferð. Heklið UMFERÐ 1 alls 0-0-2-3-5-6 sinnum = 80-86-96-102-114-122 stuðlar. Á eftir síðustu umferð með útaukningu mælist stykkið ca 18-19-20-21-22-23 cm frá uppfitjunarkanti. Nú eru stykkin sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Snúið framstykkinu (heklað er fram og til baka, en hver umferð endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar og umferðin er hekluð til skiptis frá réttu og frá röngu), heklið þannig: Heklið A.5 í fyrstu lykkju, heklið A.1B yfir 79-85-87-89-93-97 lykkjur frá framstykki, heklið 8-10-12-14-18-22 loftlykkjur fyrir handveg, heklið A.1B í hverja af 80-86-88-90-94-98 lykkjum frá bakstykki og heklið 8-10-12-14-18-22 loftlykkjur fyrir handveg = 176-192-216-232-264-288 lykkjur. Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið A.5 í fyrstu lykkju, heklið A.1B í hvern stuðul og hverja loftlykkju umferðina hringinn. Haldið svona áfram. Þegar stykkið mælist 4-4-5-5-5-5 cm frá handvegi er aukið út um 6 stuðla jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Aukið svona út í hverjum 4-4-4-5-5-5 cm alls 5 sinnum = 206-222-246-262-294-318 lykkjur. Heklið þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm frá merki á öxl. Klippið og festið þráðinn. HEKLAÐUR KANTUR Í KRINGUM HÁLSMÁL: Notið heklunál 3,5, byrjið frá réttu í horni neðst í hægri hlið í hálsmáli að framan (séð þegar flíkin liggur flöt), heklið A.6 í fyrstu lykkju, heklið síðan A.7 í kringum hálsmál (stillið af að heklaðar séu heilar mynstureiningar með A.7 neðst í hálsmáli að framan og stillið af að A.7 endar með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun umferðar (í stað fyrir 1 fastalykkju í síðustu lykkju). Klippið og festið þráðinn. HEKLAÐUR KANTUR Í KRINGUM HANDVEG: Notið heklunál 3,5, byrjið frá réttu neðst í handvegi, heklið A.6 í fyrstu lykkju, síðan er A.7 heklað í kringum handveg – stillið af að A.7 endar með 1 keðjulykkju í fastalykkju í byrjun umferðar (í stað 1 fastalykkju í síðustu lykkju). Klippið og festið þráðinn. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #scallopblisstop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 257-31
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.